Morgunblaðið - 13.05.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 13.05.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ástandið í loftslagsmálum, sem birtist okkur m.a. í hlýnun and- rúmsloftsins, kallar á róttækar aðgerðir og nýja hugsun í um- hverfismálum. Efst á blaði er auðvitað sú breyting á lífsháttum okkar og neyslumenningu sem verður að koma til. Það helst svo í hendur hvernig við umgöng- umst og nýtum landið,“ segir Árni Bragason landgræðslustjóri. „Þegar kemur að endur- heimt votlendis er nærtækast að fylla í skurði, en þannig má efla kolefnisbindingu í gróðri og jarð- vegi. Úr hverjum hektara fram- ræsts lands fara 20 tonn á ári af kolefni út í andrúmsloftið. Á síð- asta ári var meira ræst fram af votlendi á Íslandi en endurheimt- ist og því verður að breyta. Framræsla á svæðum sem er stærri en tveir hektrarar er leyf- isskyld af hálfu sveitarstjórna, sem fylgjast þó lítið með þessu málum. Í sumum tilvikum getur verið þörf á framræslu og fyrir henni gildar ástæður, en stund- um ekki.“ Samstarf við 600 bændur Umræða og áherslur í land- græðslumálum hafa breyst mikið á undanförnum árum. Eitt sinn var tóninn sá að endurheimta skyldi gróðurlendi í einskonar skuldaskilum fólksins við landið. Í dag er einnig litið svo á að vegna loftslagsbreytinga sé nauðsynlegt að græða upp ör- foka land. Að því er líka unnið með ýmsu móti. Undir merkjum verkefnisins Bændur græða land- ið er Landgræðslan í samstarfi við um 600 bændur víða um land sem græða upp jarðir sínar. Er hátturinn þá sá að stofnunin leggur bændunum til áburð, en þeir sjálfir vinnu og vélar. Sam- starfsverkefnin eru fleiri, en nærri lætur að á hverju ári séu 18.000-19.000 hektrarar undir í uppgræðsluverkefnum. „Ef við tökum landið allt þá þarf að huga að uppgræðslu á meira en einni milljón hektara. Slíkt er verkefni sem tekur um eina öld og miklu þarf að kosta til. Þegar mólendi og beitarlönd rofna fýkur lífrænn jarðvegur burt. Því fylgir niðurbrot líf- rænna efna og um helmingur þeirra breytist hratt í kol- tvísýing,“ segir Árni sem telur mikilvægt að bregðast við þessu með til dæmis takmörkun beitar á verst farna landinu. „Já, það kemur alveg til greina að stöðva að fé sé rekið til sumarbeitar á vissum afréttar- svæðum. Vissulega hefur verið dregið úr því álagi með gæða- stýringu í sauðfjárrækt og eins því að færra fé fer á afrétt. En það þarf lítið til svo jafnvægið raskist, jarðvegurinn á gosbelt- inu sem liggur þvert yfir landið er viðkvæmur og lítið þarf til svo gróðureyðing fari af stað. Við þurfum heldur ekki að nýta af- réttina inni á hálendinu með sama hætti og var. Í byggð er nóg af grasgefnu landi sem nýta má til beitar. Í Grindavík er hefð fyrir sauðfjárbúskap frístunda- bænda sem nú beita fé í ákveðiðn hólf sem hafa þol til beitar. Út- koman af þessu er góð, auk þess sem bændurnir ná að halda í hefðir til dæmis varðandi smölun og réttir sem skiptir marga miklu.“ Banki með framræstu landi Frá miðri 20. öld og í ára- tugi eftir það voru tugir þús- undir hektarar mýrlendis víða um land ræstir fram sem hélst í hendur við sóknarhug meðal bænda. „Í dag er tiltækur á Ís- landi stór banki af framræstu landi, en aðeins um 15% af inni- stæðunni er nýtt til ræktunar. Skynsamlegast er að geyma landið áfram sem votlendi og moka ofan í skurðina. Hægja þannig á bruna lífrænna efna og losun. Á Íslandi hefur verið hefð fyrir því að þegar lagðir eru nýir vegir úti á landi að beggja vegna þeirra séu grafnir djúpir skurðir til óþarfrar framræslu. Mikil hætta fylgir svo skurðunum ef bílar lenda út af og þannig hafa mörg slys orðið - sem fyrirbyggja hefði mátt,“ segir Árni Bragason. Huga þarf að uppgræðslu á einni milljón hektara lands Morgunblaðið/Sigurður Bogi Umhverfi Til greina kemur að stöðva að fé sé rekið til sumarbeitar á vissum afréttarsvæðum, segir Árni Bragason, landgræðslustjóri. Jafnvægi náttúrunnar  Árni Bragason er fæddur 1953. Líffræðingur frá HÍ að mennt og tók seinna doktors- gráðu í jurtaerfðafræði frá Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn með erfða- fræði og lífeðlisfræði sem aukafög. Landgræðslustjóri frá 2016.  Að baki á Árni fjölbreyttan feril. Var forstöðumaður rann- sóknastöðvar Skógræktarinnar á Mógilsá, forstjóri Náttúru- verndar ríkisins, forstöðu- maður hjá Umhverfisstofnun, starfaði hjá verkfræðistofunni Eflu og var í nokkur ár forstjóri Norrænu erfðaauðlindastofn- unarinnar. Hver er hann? Snorri Másson snorrim@mbl.is Lokaatkvæðagreiðsla um stjórnar- frumvarp um þungunarrof, sem heimilar slíkar aðgerðir fram til 22. viku meðgöngu, er á dagskrá Alþing- is í dag en atkvæðagreiðslunni var frestað í síðustu viku. Eins verða greidd atkvæði um tvær breytingar- tillögur sem lagðar hafa verið fram við frumvarpið, eina sem kveður á um að mörkin liggi í 20 vikum og aðra um að mörkin liggi í 18 vikum. Meirihluti velferðarnefndar þingsins hefur lagt til að frumvarpið verði samþykkt. Í umræðuþættinum Þingvöllum á K100 í gær hvatti Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við Guðfræði- og trúar- bragðafræðideild Háskóla Íslands, þingmenn til þess að sýna varúð og taka sér meiri tíma til að gaumgæfa málið, líkt og Siðfræðistofnun HÍ hefði þegar lagt til í sinni umsögn. „Það er alls engin samfélagsumræða búin að fara fram um þetta, að mín- um dómi,“ sagði hún. Í samtali við Morgunblaðið kvaðst hún auk þess túlka málið sem svo að verið væri með frumvarpinu að ganga lengra en gert er annars stað- ar á Norðurlöndum. „22 vikur eru mörkin sem eru dregin til þess að maður geti verið viss um að fóstrið sé ekki lífvænlegt, ekki einu sinni með gjörgæslumeð- ferð,“ sagði Sigurlaug Benedikts- dóttir, fæðingar- og kvensjúkdóma- læknir, sem einnig var gestur í þættinum. Hún sagði að árleg tilfelli þess að þungunarrof ættu sér stað svona seint á meðgöngu væru telj- andi á fingrum annarrar handar. 3-5 konum á ári væri meinað að rjúfa meðgöngu eftir 16 vikur. Þar liggja mörkin nú. Herdís Þorgeirsdóttir, mannrétt- indalögmaður og varaforseti Fen- eyjanefndar Evrópuráðsins, var gestur í þættinum. Hún sagði að þegar kæmi að því að skilgreina rétt- inn til lífs „treysti Mannréttinda- dómstóll Evrópu sér ekki til þess að setja fram abstrakt skilgreiningu á því hvort fyrir hendi sé réttur til lífs“. Hún sagði Mannréttindadómstól- inn gefa aðildarríkjum sínum ákveð- ið svigrúm til lagasetningar, svo þau megi skilgreina mörkin sjálf, þ.e. hvenær fóstur öðlist réttinn til lífs. Því væri Íslandi samkvæmt því frjálst að setja þessar reglur um svigrúm til fóstureyðinga fram til 22. viku. Herdís tók samt í sama streng og Sólveig Anna og lagði auk þess til að svigrúm yrði veitt til undanþága frá lögunum þegar nauðsyn krefði, frekar en að lagabókstafnum sjálfum yrði breytt, eins og stendur til.  Með nýju frumvarpi er gengið lengra en í öðrum norrænum löndum, segir pró- fessor  Íslendingum þó frjálst að breyta lögunum að mati Mannréttindadómstóls Atkvæðagreiðsla um frumvarp um þungunarrof á dagskrá í dag Í frumvarpinu er ævinlega tal- að um þungunarrof. Sólveig Anna benti á að það orð væri um sumt meira í takt við orða- notkun erlendis, eins og á ensku þar sem talað er um „abortion“. Hins vegar þyki sumum að orðið þungunarrof „dylji það sem fram fer“ og sagði Sólveig að því væri „fóstrið ekki nálægt í þessu frumvarpi. En það er það nátt- úrlega í þessu máli.“ Fóstureyðing/ þungunarrof? HUGTAKANOTKUN Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Páll Björgvin Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), segir að áformað sé að fram- kvæmdir hefjist við borgarlínu í mars árið 2021 að undangengnu út- boði, en nú unnið er að fjármögnun undirbúningsvinnu fyrir útboðið. Reykjavíkurborg samþykkti í þessu skyni fjárútlát á fundi borgarráðs í síðsutu viku. „Þetta er margþætt verkefni en nú er að störfum stýrihópur og verkefnahópur sem vinnur að því með ríkinu hvernig náð verði utan um fjármögnun borgarlínu. Kostn- aður við hana er áætlaður um 102 milljarðar,“ segir Páll Björgvin. „Samhliða því er unnið að undir- búningsvinnu,“ segir hann, en í henni felst meðal annars umferðar- greining, forhönnun, skipulags- vinna, umhverfismat og vinna við gerð leiðakerfis. „Með þessu er ver- ið að leggja línurnar að þessu verk- efni. […] Þessar forsendur þurfa að liggja fyrir áður en boðið verður út og verkið hafið,“ segir Páll Björgvin, en áformað er að framkvæmdir við fyrsta áfanga borgarlínu hefjist í mars árið 2021. Allt að fimmtán ár gæti þó tekið að ljúka verkinu öllu. Reykjavík er enn sem komið er eina sveitarfélag- ið sem hefur sam- þykkt fjárútlát vegna undirbún- ingsvinnu í tengslum við borgarlínu. „Nú eru hin sveitar- félögin að taka þetta fyrir og við munum kynna þetta fyrir þeim í næstu viku. Vonandi verður þetta samþykkt þar líka,“ segir hann. Samstaða um samgöngubætur Spurður hvernig verkefnið hafi mælst fyrir kveðst hann halda að samstaða sé um að koma verkefninu á dagskrá. „Þetta snertir í rauninni þrennt. Þetta snýst um loftslagsmál, að umferð gangi greiðlega fyrir sig og að búa til valkosti fyrir fólk þann- ig það geti nýtt hágæða almennings- samgöngur, bíla, að það geti hjólað og gengið. Ég held að sveitarfélögin séu sammála um að ganga í þetta verk,“ segir hann. „Það er komið fjármagn frá ríkinu og sveitar- félögin þurfa nú að ræða hvernig þau mæta því þannig það verði farið af stað í þetta verkefni af ein- hverjum þunga,“ segir Páll Björg- vin. Borgarlínan er margþætt verkefni Páll Björgvin Guðmundsson  Umferðargreining m.a. á döfinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.