Morgunblaðið - 13.05.2019, Qupperneq 10
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eftir áratugi við fiskveiðar á Ís-
landsmiðum mun Jökull ÞH 259 fá
ný verkefni í Noregi, m.a. í þjón-
ustu við olíuiðnaðinn í Norðursjó
og lagningu sæstrengja milli
norskra fjarða, samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins.
Þegar skipið kom til landsins
1964 bar það nafnið Súlan EA 300,
en er það kom nýverið úr slipp
mátti lesa nafnið Nord á síðunni
og heimahöfn Grindavík. Íslenskir
aðilar eru meðal kaupenda að
Jökli, sem áður var í eigu GPG
Seafood ehf.
Byggðarráð Norðurþings fjallaði
um sölu skipsins 11. apríl og sam-
þykkti að nýta ekki forkaupsrétt
að skipinu. GPG Seafood ehf.
keypti skipið 2010 og var það ým-
ist á trolli eða netum. Hörður
Björnsson ÞH 260 leysti Jökul af
hólmi 2015 og hefur skipið að
mestu legið við bryggju á Húsavík
síðan. Jökull kom blámálaður í
slipp í Reykjavík á dögunum, en
fór niður nokkrum dögum síðar í
rauðum litum nýrra eigenda.
Margmenni fagnaði skipinu
Jökull ÞH 259 var smíðaður fyr-
ir Leó Sigurðsson, útgerðarmann
á Akureyri, í Sandefjord í Noregi
árið 1964 og hét upphaflega Súlan
EA 300. Talsvert var fjallað um
komu skipsins til landsins í febr-
úar fyrir rúmum 55 árum. Í Morg-
unblaðinu sagði meðal annars að
múgur og margmenni hefði kom til
að fagna skipinu, er það lagðist að
bryggju. „enda hefir skipaflota
Akureyringa hér bætzt glæsilegur
og vandaður farkostur.“
Í blaðinu segir ennfremur: „Súl-
an er 233 lestir að stærð, byggð í
Framnæs Mekanisk Værksted í
Sandfjord í Noregi. Ganghraði var
11 mílur í reynsluferð og 10 mílur
til jafnaðar á heimsiglingu. Skipið
er búið öllum venjulegum sigl-
inga-, fjarskipta- og fiskileitar-
tækjum af nýjustu og fullkomn-
ustu gerð og er traustlegt og
vandað í alla staði. Íbúðir skips-
hafnar eru sérlega smekklegar og
Verður þjónustu-
skip í olíuiðnaði
Kom til lands sem Súlan EA fyrir
55 árum Hét síðast Jökull ÞH
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég öfunda ekki íþróttafélög á Íslandi
af þeirra rekstrargrundvelli. Það eru
stórir kostnaðarliðir sem þarf að
standa undir og eðlilegt að menn leiti
allra leiða til fjáröflunar,“ segir Klara
Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ.
Íslandsmótið í knattspyrnu er ný-
hafið og athygli hefur vakið að sífellt
fleiri vellir virðast
nefndir eftir fyrir-
tækjum eða vöru-
merkjum sem
styrkja liðin. Það
er af sem áður var
að knattspyrnu-
unnendur fóru á
Hlíðarenda eða á
Valbjarnarvöll.
Nú er leikið á
Origo-vellinum
eða Eimskipsvellinum. Sitt sýnist
hverjum en ljóst virðist að þessi
markaðsvæðing er komin til að vera.
Klara segir að augljóst sé af þeim
fjölda valla sem nú bera heiti kost-
enda að félögin sjá sér akk í þessu fyr-
irkomulagi. KSÍ hafi þó ekki neinar
upplýsingar um hversu miklum
tekjum það geti skilað liðum að selja
nafn vallarins með þessum hætti.
Aðspurð segir Klara að engar
reglugerðir séu hjá KSÍ um nafngiftir
valla. Þær þurfi vitaskuld að vera í
samræmi við landslög og eðlilegt sé
að þær vinni ekki gegn hugsjón
íþróttanna.
Leggja sitt af mörkum
Talsverður munur er á því eftir
hvers konar fyrirtækjum vellirnir eru
nefndir. Þannig virðast liðin í efstu
deildunum laða að sér stórfyrirtæki. Í
neðri deildunum og á landsbyggðinni
eru styrktaraðilarnir gjarnan smærri
og oft tengdir viðkomandi liði eða
bæjarfélagi með einhverjum hætti.
KA keppir á Greifavellinum, Víðir í
Garði á Nesfisk-vellinum, Fjarða-
byggð á Eskju-vellinum og Grótta á
Vivaldi-vellinum. Sú tenging er komin
frá því að stofnandi netvafrafyrirtæk-
isins Vivaldi, Jón von Tetzchner, er af
Seltjarnarnesi og vill leggja sitt af
mörkum til íþróttastarfs í bænum.
Samfélagið er þakklátt
Eitt vallarnafn sker sig nokkuð úr
þetta árið. Völlur Þróttar í Vogum
kallast nú Vogaídýfuvöllur.
Klara segir aðspurð að nafnið hafi
óneitanlega vakið athygli. „Þessi
nafngift kom á óvart. Sumir brostu út
í annað,“ segir hún. Marteinn Ægis-
son, framkvæmdastjóri Þróttar í
Vogum, segir að völlurinn hafi síðustu
ár kallast Vogabæjarvöllur, eftir
fyrirtækinu sem framleiðir Vogaídýf-
una, en þetta sé fyrsta árið sem hann
kallast Vogaídýfuvöllurinn. Samstarf
og stuðningur fyrirtækisins við
íþróttastarf í bænum eigi sér langa
sögu og þetta sé mikilvæg tekjulind.
„Vogabær var upphaflega stofnað í
Vogunum og við höfum verið svo lán-
söm að eigendur fyrirtækisins hafa
haldið tengslunum þó að fyrirtækið
hafi flutt héðan árið 2006. Þau hafa
stutt við starfið hér og fyrir það eru
við þakklát. Við í Þrótti erum sverð og
skjöldur fyrir ungmenni í sveitarfé-
laginu og þetta er rosalega góður
stuðningur við forvarnarstarfið,“ seg-
ir Marteinn.
Hann segir að aldrei hafi komið
neinar athugasemdir við umrætt
samstarf, jafnvel þótt mæjónesídýfa
sé ekki beint það fyrsta sem maður
tengir við íþróttir. „Við höfum alltaf
verið ótrúlega stolt af Vogaídýfunni.
Hún er sko til á hverju heimili hér og
rennur aldrei út. Samfélagið okkar er
þakklátt ef íþróttastarfið nýtur góðs
af þessum tengslum við uppruna Vo-
gaídýfunnar.“
„Ótrúlega stolt af Vogaídýfunni“
Sífellt fleiri knattspyrnuvellir nefndir eftir styrktaraðilum Mikilvæg tekjulind fyrir félögin Einn
völlurinn nefndur eftir mæjónesídýfu Vogamenn stoltir af styrktaraðilanum Engar reglur hjá KSÍ
Vogaídýfa Marteinn Ægisson í
Vogaídýfu-treyju frá árinu 1990.
Morgunblaðið/Ómar
Vel merktur Íþróttavöllur Vals á Hlíðarenda í Reykjavík er ekki kenndur við félagið heldur fyrirtækið Origo.
Klara
Bjartmarz
Eins og rakið er hér á síðunni laða stóru klúbbarnir gjarn-
an til sín stóra styrktaraðila. Þannig má sjá í efstu deild-
um, sem kallast raunar Pepsi Max-deildir, að Valsliðin
leika á Origo-vellinum, ÍA leikur á Norðurálsvellinum,
Stjarnan á Samsungvellinum, KA á Greifavellinum, Fylkir
á Würth-vellinum. Í Inkasso-deildinni má sjá að Þróttur
leikur á Eimskipsvellinum, Fjölnir leikur á Extra-vellinum,
Keflvíkingar á Nettóvellinum og Grótta á Vivaldivellinum.
Í annarri deild leikur ÍR á Hertz-vellinum, Selfoss á JÁ-
VERK-vellinum, Þróttur Vogum á Vogaídýfuvellinum,
Fjarðabyggð á Eskjuvelli og Vestri á Olísvellinum. Í þriðju
deild karla leikur Reynir Sandgerði á Europcarvellinum
og í þeirri fjórðu leikur KFR á SS-vellinum.
Verktakar, bílaleiga og tyggigúmmí
FJÖLMARGIR KNATTSPYRNUVELLIR BERA NÖFN STYRKTARAÐILA
Morgunblaðið/Ómar
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———