Morgunblaðið - 13.05.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 13.05.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Þegar vetrinum sleppti og sumarið tók við lést góður vinur minn, fyrrv. eiginmaður minn og barnsfaðir á heimili sínu. Við vorum unglingar þegar við kynntumst og unglingar þegar við áttum dóttur okkar Hildi. Garðar vakti strax athygli mína vegna þess að hann gat verið manna kátastur og skemmtilegastur. Við höfðum kynnst í leiklistarklúbbi MT en vinkona mín úr MH hafði verið meðlimur í klúbbnum. Síðan hittumst við þegar við vorum bæði að skila skattaskýrslunum okkar, ég minni fyrstu og hann sinni annarri. Það má því segja að hægt sé að kenna skatt- manni um að samband okkar hófst, eins rómantískt og það nú hljómar. Það kom fljótt í ljós hversu fjölhæfur og úrræðagóður Garðar var þegar von var á einkabarni okkar beggja. Hann var með mömmu sína í fullri vinnu við að útbúa barnaföt sem hann hannaði í samvinnu við hana. Enginn hefði getað sýnt óléttunni meiri áhuga og hann beið með óþreyju eftir barninu. Svo rammt kvað að áhuganum að hann kynnti sér allt um ástandið, líffærafræði og inn- yflastaðreyndir og undirritaðri þótti nóg um, en líffræði var eitt aðaláhugasvið hans í æsku. Allt lék í höndunum á honum hvort sem það var að setja permanett eða rúllur í hárið á mömmu sinni, skreyta tertur með henni, sjá um garðinn eða seinna að smíða eða gera við gamla hluti. Hann saumaði út í frábæra hippakápu sem gerð var úr gærubútum á dóttur okkar þegar hún var á fyrsta árinu, húfur og gallapils á mig svo aðeins fátt sé nefnt. Þó að Garðar hafi haft mik- inn áhuga á lífræði og nátt- úrufræði fór svo að hann valdi listina sem sinn feril en hann hafði ekki tök á að sinna henni af alvöru fyrr en á seinni árum þar sem lífsbaráttan krafðist launavinnu. Hann vann fjöl- mörg störf framan af með skóla og við gerðum upp húsið okkar líka. Hann hafði unun af skipu- lagi hússins og vílaði ekki fyrir sér að gera húsið allt upp í einu sem stundum var ekki okkur mæðgum að skapi þar sem við bjuggum í húsinu óíbúðarhæfu um tíma. Húsið varð að lokum fallegt en þá tók við hjá Garðari að breyta öllu og stundum þeg- ar ég og dóttir okkar komum heim eftir heimsóknir til ætt- ingja vissum við ekki okkar rjúkandi ráð því það gat verið að svefnherbergi sem var í kjallara væri komið upp í ris, svo snöggur var hann að breyta öllu. Alltaf voru þetta útpældar breytingar og oftast kunnum við vel við breytingarnar sem alltaf voru mjög fallegar en okkur fannst stundum að við hefðum átt að vera spurðar. Garðar fylgdist vel með frétt- um og málefnum líðandi stund- ar og meira að segja íþróttum sem hann hafði ekki haft áhuga á sem ungur maður. Kom sá áhugi til vegna barnabarnanna okkar tveggja sem bæði leggja stund á íþróttir og standa sig þar með prýði. Þegar Garðar var ungur var hann einstaklega kátur, hress og brosmildur sem honum tókst Garðar Bjarnar Sigvaldason ✝ Garðar Bjarn-ar Sigvaldason fæddist 26. janúar 1954. Hann lést 25. apríl 2019. Útför hans fór fram 10. maí 2019. furðanlega að halda í þrátt fyrir erfiða sjúkdóma sem hann glímdi við á seinni árum. Það er með söknuði að ég kveð minn kæra vin Garðar Bjarnar Sigvaldason og ljóst er að símtölin verða ekki fleiri á milli okkar. Sigríður Tómasdóttir. Tveir níu ára peyjar sitja og sauma í púða með móður ann- ars þeirra. Það lá mun betur fyrir þeim gestkomandi að sauma í og lá listfengi hans þegar í augum uppi, hann not- aði hverja stund til að mála og teikna, hæfileikinn var þegar kominn fram ... hinn helgaði sig fuglum himinsins og m.a. að festa þá á filmu. Við kynntumst í 9 ára bekk, Garðar kom úr Ísaksskóla og lenti ég og fleiri nemendur í Breiðagerðisskóla í bekk með þeim sem komu þaðan. Faðir Garðars var fullorðinn og hann var einbirni móður sinnar. Það var alltaf gott að koma á Soga- veginn til Sigvalda og Rögnu, en þó sótti Garðar meira í Mel- gerðið. Enda sagði móðir mín stundum að hún gæti átt okkur báða, það voru sléttir 11 mán- uðir á milli okkar. Á þeim tíma vorum við fremur svipaðir út- lits, lítt íþróttamannlega vaxnir og með gleraugu. Við Garðar uxum úr grasi og bættist þriðji vinurinn, Baldur, í hópinn eftir landspróf. Ýmislegt var brallað á þeim árum og eitt skammarstrikið var að senda út falskan spurningalista um heilsufar fólks. Þá komumst við á forsíðu Vísis. Garðar var skrefi á undan okkur hinum í þroska, þegar hann hitti Sillu sína. Samband þeirra bar fljótt ávöxt, þau eignuðust dótturina Hildi, enn á táningsaldri. Eftirminnilegt var þegar við skunduðum á Laug- arvatn um verslunarmannahelgi 1972 á blöðruskóda, sem Baldur átti. Hann gekk meira fyrir handafli en vélarafli, eins og títt var um bifreiðar ungra manna á þessum árum. Við Baldur vor- um frekar hneykslaðir á því hve Garðar hlífði Sillu við að ýta bílnum, en þá vissum við ekki að hún bar barn undir belti. Ég átti alltaf athvarf hjá Garðari og Sillu, hvort sem var í Rauðagerðinu eða Grettisgöt- unni. Bjó meira að segja um tíma í kjallaranum á Grettisgöt- unni í einhverri húsnæðiskrísu á rótleysisárum kringum 1980. Síðan hefur mikið vatn runn- ið til sjávar og hver stundað sitt. Garðar veiktist í blóma lífs- ins, en hélt þó sínu striki í list- sköpuninni og var af og til með sýningar. Hann keypti stórt hús í miðbænum, þar sem hann hugðist reka gistiheimili og jafnframt að búa móður sinni stað í ellinni. Því miður runnu þau áform út í sandinn. Við félagarnir þrír hittumst óreglulega eða hringdum hver í annan. Ég ætlaði einmitt að hóa í þá félaga í málsverð hingað á Stokkseyri þegar ég kæmi heim úr vinnuferð að utan. Þangað bárust mér þær sorgarfregnir, að Garðar væri látinn. Þetta var áminning um að fresta ekki samfundum við kæra vini. Garðar kemst nú í návígi við englana, sem hann var svo ötull við að mála á síðustu árum. Ég votta Hildi og fjölskyldu og öllum ættingjum og vinum samúð mína. Hvíl í friði, kæri vinur. Jóhann Óli. ✝ Sigurður JónKristjánsson fæddist í Reykja- vík 29. mars 1939. Hann lést 27. apríl 2019 á gjörgæslu- deild Landspítal- ans í Fossvogi. Foreldrar hans voru Kristján Jó- hannsson frá Skógarkoti í Þing- vallasveit, f. 8. febrúar 1908, d. 20. desember 1986, og Gróa Jónsdóttir, f. í Reykjavík 14. desember 1912, d. 19. maí 1985. Systkini Sigurðar: Sverrir Bragi, f. 23. febrúar 1934, d. Þau bjuggu á Víðilæk í Skrið- dal. Börn Sigurðar og Guðrúnar eru: 1) Jón Bjarki, f. 24. apríl 1965, eiginkona hans er Lauf- ey Sigurðardóttir, f. 26. apríl 1967, og eiga þau drengina Sigurð Björn, f. 31. ágúst 1991, og Arnór Inga, f. 25. apríl 1993. Sigurður Björn og kærasta hans, Sigurbjörg Ósk Kristjánsdóttir, f. 17. maí 1991, eiga soninn Elmar Trausta, f. 27. september 2016. Kærasta Arnórs Inga er Lina Marija Balèiûnaitë, f. 9. júní 1994. 2) Aðalbjörg Erna, f. 9. ágúst 1967, gift Einari Sigurðssyni, f. 9. janúar 1965, þau eiga börnin Sigurð Jó- hann, f. 28. janúar 1993, og Lovísu Guðrúnu, f. 5. apríl 2000. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 13. maí 2019, klukkan 15. 19. febrúar 2018. Maron Hafsteinn, f. 6. maí 1936. Sig- ríður, f. 26. ágúst 1941. Jóna, f. 26. júlí 1952. Sigurður kvænt- ist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Guð- rúnu Aðalbjörgu Björgvinsdóttur, 20. október 1962. Foreldrar hennar voru Níels Björgvin Sigfinn- son, f. 28. mars 1894, d. 11. október 1974, og eiginkona hans Aðalbjörg Metúsalems- dóttir Kjerúlf, f. 16. apríl 1906, d. 2. nóvember 1949. Að eiga góðar minningar frá æskuárum er dýrmætt. Og að leita í sjóð minninganna og finna þar allskyns perlur sem gott er að ylja sér við. Fjögur systkinanna eru fædd í Reykjavík þar sem foreldrar okkar bjuggu. Síðasta barnið bættist í hópinn eftir að við fluttum í Þingvallasveitina. Við fluttum austur í Árnessýslu, að Hlemmiskeiði á Skeiðum og þaðan í Þingvallasveitina. Faðir okkar var alinn upp í Skógarkoti í miðju Þingvalla- hrauni. Hann vildi alltaf komast aftur á þær slóðir og að vori 1949 fluttum við að Mjóanesi. Húsið stóð næstum því á vatns- bakkanum. Þetta varð ævintýra- heimur fyrir okkur krakkana. Æskuheimilið iðaði að lífi. Það var nóg við að vera allan daginn. Það voru forréttindi að alast upp í sveit. Á sumrin bætt- ist heldur betur við heimilisfólk- ið sem dvaldi hjá okkur um skemmri eða lengri tíma. Öll sumur voru hjá okkur börn sem send voru í sveit eins og tíðk- aðist í þá daga. Alltaf virtist vera nóg pláss í húsinu fyrir alla gestina. Ef húspláss þraut þá vorum við krakkarnir settir út í hlöðu og það þótti spennandi að fá að sofa í heyinu. Á sumar- björtum kvöldum var allur hóp- urinn úti að leika í „kílóbolta, yf- ir, fallin spýta“ eða hvað sem okkur datt í hug. Bræðurnir út- bjuggu gryfjur til að geta stund- að langstökk og þrístökk. Einnig voru settar upp slár til þess að geta verið í hástökki. Fótboltinn var líka stundaður. Ekkert raf- magn var í húsinu og á haustin og veturna var notast við svo- kallaða Aladdin-lampa sem gáfu mjög góða birtu. Ekkert renn- andi vatn var heldur til staðar. Bera þurfti allt vatn í stórum brúsum þessa stuttu leið frá vatninu, vatnið var líka okkar matarkista. Á hverjum degi var farið að vitja um netin sem lögð höfðu verið og aldrei varð neinn mat- arskortur. Þegar hausta tók var farið rétt út fyrir túngarðinn til að ná sér í eftirréttinn sem voru bláber og þau borðuð með þeytt- um rjóma. Á daginn sinntum við þeim störfum sem okkur voru falin að vinna sem allt voru hefðbundin sveitastörf. Árið 1956 fluttum við að Gjá- bakka í sömu sveit og þar bjuggum við til ársins 1960. Síð- ustu tuttugu ár og ríflega það nutu Siggi og Lilla sín í sum- arbústaðalandinu sínu í Hæðar- endalandi í Grímsnesi þar sem þau ásamt börnum sínum og tengdabörnum byggðu sér myndarlegan sumarbústað og ræktuðu upp landið sitt. Þegar eftirlaunaaldri var náð voru þau í sveitinni sinni eins mikið og mögulegt var og nutu alls þessa fallega umhverfis sem þau voru búin að koma sér upp. Snyrtimennskan var þeim báð- um í blóð borin og alúð lögð í hvert handartak sem gert var. Barnabörnin og litli langafa- drengurinn nutu þess að vera með þeim og fjölskyldunni. Á síðari árum stunduðu þau saman golf og skutust á golfvell- ina sem voru þarna í kring. Einnig var farið til útlanda til að spila golf. Við eigum einungis góðar minningar frá öllum þess- um tíma. Fjölskyldurnar fóru saman í tjaldútilegur og veiði- túra. Við ferðuðumst líka saman til útlanda að kanna nýjar slóðir. Þakklæti er okkur efst í huga. Siggi var ávallt boðinn og búinn að leggja lið hvar sem þörf var á. Við kveðjum kæran bróður, mág og frænda og biðjum Guð að blessa fjölskylduna hans sem honum var svo annt um. F.h. okkar systkina og fjöl- skyldna okkar, Sigríður Kristjánsdóttir. Sigurður Jón Kristjánsson ✝ Guðný Bernd-sen (Dídí) fæddist 3. janúar 1922 á Bergstaða- stræti 8a í Reykja- vík. Hún andaðist á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ í Reykjavík 26. apríl 2019. Foreldrar þeirra voru Sig- urður Berndsen kaupmaður frá Skagaströnd og Margrét Pétursdóttir hús- freyja frá Mýrdal í Kjós. Systkini Guðnýjar voru Ed- wald Ellert (Lilli), Pétur, Her- mann, Margrét (Maggý) Sól- veig og Brynhildur Olga (Úlla). Eiginmaður Guðnýjar var Viðar Sigurðsson, síðast for- stjóri Sjóklæðagerðar Íslands, 66°N, frá Borgarnesi, f. 27.2. 1915, d. 20.9 1985. Börn Guð- nýjar og Viðars eru Margrét, vann hún við verslunar- og módelstörf og sýndi tískufatn- að á Hótel Borg. Fyrstu árin bjó hún í Reykja- vík en flutti seinna með fjöl- skylduna í Kópavog. Guðný var alla tíð mjög bók- hneigð og var í bókmennta- klúbbi en 1973 bauð hún sig fram til bæjarstjórnar Kópa- vogs og var kosin ritari Sjálf- stæðisflokksins. Lengi vel var hún dagmamma ásamt því að sinna heimili og börnum. Árið 1980 fluttu hjónin í Krumma- hóla í Breiðholti, Guðný gekk til liðs við kvenfélag Breiðholts og var gerð að heiðursfélaga árið 2002. Seinni árin vann Guðný ýmis störf utan heimilis, meðal ann- ars í mötuneyti Borgarspít- alans til 72 ára aldurs, enn við nokkuð góða heilsu. Síðustu ár- unum eyddi hún í kór við Ás- kirkju Vesturbrún og í dansi á Vesturgötu. Útför Guðnýjar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 13. maí 2019, klukkan 13. Jóhanna Erla, Sól- veig, Sigrún, Elín og Sigurður Bjarni. Barnabörnin eru Berglind og Guðný. Guðný Sól- ey, Hafsteinn Við- ar, Helga, Kristinn Þór og Eva. Rakel, Elfar, Rebekka og Úlfar. Daníel og Helena Sól. Ásdís Ósk, Sara Rún og Signý Rut. Elfa og Viðar. Barnabarna- börnin eru orðin alls 18. Guðný gekk í Miðbæjar- og Austurbæjarskólann, stundaði nám við Verzlunarskóla Ís- lands en síðan lá leið hennar í leiklistarnám hjá Lárusi Páls- syni leikstjóra. Eftir útskrift þaðan 1941 tók hún þátt í upp- færslu Gullna hliðsins í Leik- félagi Reykjavíkur (Iðnó) sam- fleytt í þrjú ár. Samhliða því Elsku amma mín hefur kvatt þennan heim. Amma sem alltaf var svo fín og flott, gekk ávallt bein í baki með nýlagt hárið og vel til höfð. Þegar maður hugsar til baka í gegnum tímann þá man maður alltaf eftir því hvað við vorum lánsöm að geta farið í heimsókn til ömmu og afa í Dal- brekku. Ég á ótrúlega margar og skemmtilegar minningar um elsku ömmu. Í barnæsku heimsótti ég hana mikið og gisti þá oftar en ekki hjá henni. Ávallt var mikill gestagangur á fallega heimilinu hjá ömmu og afa en öllum þótti gott að koma til þeirra í heim- sókn. Við fjölskyldan nutum gestrisni og kærleika einna mest enda var amma dugleg að bjóða okkur öllum í mat og þar var alltaf mikið spjallað og hlegið. Hún amma mín gaf mér meira en mat, hún gaf mér hlýju og skjól sem ég gat alltaf leitað til hvar og hvenær sem var. Hún kenndi mér ýmislegt sem fylgir mér í dag og hún kenndi mér að vera þakklát fyrir það sem fyrir mig er gert. Hún var engin venjuleg kona hún amma, hún var amma mín. Ég gæti skrifað og skrifað og sagt hve góð hún amma var því þeir sem til henn- ar þekktu vita hve góð persóna hún var. Hún var einstök kona og gaf sér alltaf tíma fyrir hvern sem var. Elsku amma mín, ég er svo þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, fyrir allt sem þú kenndir mér og fyrir alla þá góðvild sem þú sýndir mér. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kveðja þig áður en þú sofnaðir svefninum langa. Takk fyrir allan kærleikann sem þú gafst mér og mínum. Hvíldu í friði, elsku amma, þú verður alltaf í hjarta mínu, ég mun aldrei gleyma þér. Þín Helga. Guðný Berndsen Við fráfall vinar míns Guðjóns Jós- epssonar, sem and- aðist á Hrafnistu 30. apríl sl., er mér bæði ljúft og skylt að minnast hans með fáein- um orðum. Kynni okkar hófust fyrir nokkrum áratugum þegar ég falaðist eftir að fá afnot af fjárhúsum fyrir kindur mínar hjá honum ásamt jarðnæði o.fl. Guð- Guðjón Jósepsson ✝ Guðjón Jóseps-son fæddist 9. september 1932. Hann lést 30. apríl 2019. Guðjón var jarð- sunginn 10. maí 2019. jón tók beiðninni vel og hófst þá hjá okk- ur góð samvinna. Vorum við þarna saman með kindur okkar og hafði Guð- jón forystu um alla hirðingu og gjöf. Fór honum það vel úr hendi enda alinn upp innan um skepnur frá barn- æsku. Guðjón var glæsimenni og stundaði líkamsrækt frá ung- lingsaldri, t.d. fjallgöngur, lyft- ingar og sjóböð, einnig var hann mikill sóldýrkandi. Við heyskap sat hann gjarnan á sundskýlunni á dráttarvélunum ef sólar naut við. Það voru mikil forréttindi fyrir mig að taka þátt í bústörf- unum með Guðjóni ásamt véla- viðhaldi og ýmsu sem til féll á heimilinu. Hann var hagur á tré og járn og margt handverk eftir hann vekur aðdáun. Ég held að hann hafi sjaldan þurft utanað- komandi vinnuafl varðandi smíð- ar og viðhald vélanna. Guðjón var ekki fyrstur manna að til- einka sér nýjustu tækni heldur nýtti sér efni og verkfæri þó að gamalt væri. Fyrir nokkrum árum fór heilsu Guðjóns að hraka nokkuð og að því kom að hann hafði ekki mátt til útiverka. Það var honum þung raun að geta ekki farið í fjárhúsin eða á verkstæðið sitt en við tók innivera. Hann bað ævinlega um fréttir úr fjárhús- inu þegar ég kom frá því að gefa kindunum, hvort þær hefðu étið vel og hvaða glugga ég hefði skil- ið eftir opinn, t.d. ef illviðri var í aðsigi. Fyrir ári varð Guðjón að leggjast á sjúkrahús og átti ekki þaðan afturkvæmt. Guðjóni var annt um köttinn sinn, sem heitir Svartur, og fékk ég það ábyrgðarmikla hlutverk að hugsa um hann og vildi hann fá fréttir af honum í hverri í heimsókn minni á spítalann, hvar hann hefði sofið í nótt og hvað hann hefði étið, sem ber vott um hversu góðan mann hann hafði að geyma en Guðjón var umfram allt skemmtilegur og hafði góða nærveru. Ég þakka Guðjóni fyrir allt sem hann gerði fyrir mig og mína fjölskyldu og ekki síst kind- urnar. Megi Guðjón hvíla í friði. Guðmundur Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.