Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
ÝmislegtHúsviðhald
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og
tek að mér
ýmis verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Leikfimi með Maríu kl. 9-9.45.
Opin handavinnustofa kl. 9 - 12. Handavinnuhópur kl. 12-16.
Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið
fyrir innipútt og 18. holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaf-
fisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Mánudagur: Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Vatnsleikfimi kl.
14.30. Spjallhópur Boðans kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Samprjón kl. 13.30-14.30.
Bútasaumshópur kl. 13-16. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Bústaðakirkja Vorferð félagsstarfsins verður farin þann 15. maí kl
13. frá Bústaðakirkju. Skráning og nánari upplýsingar eru hjá
Hólmfríði djákna og Ásbirni kirkjuhaldara í sima 5538500 og hægt að
senda Hólmfríði tölvupóst, holmfridur(hjá)kirkja.is
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8:50. Listasmiðja opin kl. 9-16. Línudans kl. 10. Ganga kl. 10.
Hádegismatur kl. 11:30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhprnið kl. 13-15.
Síðdegiskaffi kl. 14:30. Kóræfing kl. 19:30-21:45. Skráning hafin í vor-
ferð Hollvina. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma
411-2790
Furugerði 1 Mánudagur: Bókmenntahópur kl. 10. leikfimi kl. 11.
hádegismatur kl. 11.30-12.30. ganga kl. 13, botsía kl. 14. kaffisala kl.
14.30-15.30. Annan hvern mánudag sirka: Helgistund í staðinn fyrir
botsía. Annan hvern mánudag: Opin fjöliðja með leiðbeinanda / opin
fjöliðja frá kl. 10-16.
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7.30 /8.15 /15. Kvennaleikf. Sjál. kl. 9.30.
Liðstyrkur. Sjál kl. 10.15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11.15 fellur niður.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Bridge í Jónshúsi
kl. 13. Zumba í Kirkjuhv kl. 16.15.
Gjábakki kl. 9. Handavinna, kl. 9. Boccia, kl. 9.30 Postulínsmálun, kl.
10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta.
Gullsmári Mánudagur: Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, handav-
inna/ Bridge kl. 13, jóga kl. 17, félagsvist kl. 20.
Hraunsel Kl. 9. myndmennt, kl. 11. Gaflarakórinn, kl. 13. félagsvist
Hjallabraut, kl. 10-16 Fjölstofan.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30 jóga með Carynu kl. 9.
útvarpsleikfimi kl. 9.45. jóga með Carynu kl. 10. og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30. tálgun og listasmiðja kl. 13. frjáls
spilamennska kl. 13. liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9. í Borgum, gönguhópar kl. 10.
frá Borgum og Grafarvogskirkju. Prjónað til góðs í Borgum frá kl. 13. í
dag og félagsvist í Borgum kl. 13 í dag. Tréútskurður kl. 13. á
Korpúlfsstöðum.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45 Lesið upp úr blöðum kl. 10.15
Upplestur kl 11-11.30. Hádegisverður kl. 11.30. Tréútskurður kl. 13-15.
Bókabíllinn kl. 14.15-15, Gönguhópur kl. 14.
Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð Félagsh. við
Suðurströnd kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10.
Krossgátur og kaffi í króknum kl.10.30. Jóga með Öldu í salnum á
Skólabraut kl. 11. Handavinna salnum Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimií
kl. 18.30. Á morgun þriðjudag verður púttað úti á golfvelli kl. 13.30.
Munið vorhátíðina í salnum nk. fimmtudag kl.18.00. Skráning í síma
8939800
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Al-
lir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Ég man þegar
við fjölskyldan fylgdum afa mín-
um og ömmu frá Rútsstöðum til
grafar, þrátt fyrir að nokkrir
áratugir séu síðan það gerðist.
Mér þótti afskaplega vænt um
afa og ömmu og þótti gott að
vera hjá þeim. Þegar þau létust
voru þau rétt tæplega 100 ára
gömul. Þau voru án efa orðin
hvíldinni fegin eftir langa og far-
sæla ævi. Ég man að ég upplifði
þá ekki mikla sorg heldur frekar
söknuð, þakklæti og væntum-
Margeir Dire
Sigurðarson
✝ Margeir DireSigurðarson
fæddist 12. apríl
1985. Hann lést 30.
mars 2019.
Útför hans fór
fram 17. apríl 2019.
Minningarathöfn
fór fram frá Akur-
eyrarkirkju 7. maí
2019.
þykju. Einhvern
veginn skynjaði
maður dauðann
eðlilegan við þessar
aðstæður.
Það sama verður
ekki sagt þegar við
fylgjum bróðursyni
mínum, Margeiri
Sigurðssyni, til
grafar. Við erum
slegin djúpum
harmi og sárri sorg.
Margeir lést á heimili sínu í
Berlín 30. mars síðastliðinn að-
eins rétt tæplega 32 ára að aldri,
og ég nefni hér í upphafi afa
minn og ömmu til þess að varpa
ljósi á hversu ólíkt dauðinn getur
sótt að.
Margeiri var ekki ætluð auð-
velda leiðin í lífinu. Á unglings-
aldri gekk hann listagyðjunni á
hönd og þau slitu aldrei samvist-
um. Það er stundum talað um að
taka hlutina alla leið. Það gerði
Margeir í list sinni. Lengra og
dýpra í helgun til viðfangsefnis
er ekki hægt að fara.
Fyrir um tveimur árum flutti
hann búferlum til Berlínar sem
segja má að sé höfuðborg sam-
tímamyndlistar í Evrópu. Þar
var myndlistin hans eina við-
fangsefni og atvinna. Gæði list-
málara samanstanda í grunninn
af nokkrum þáttum. Margeir
þroskaðist hratt síðustu árin í list
sinni og réð yfir öllum þessum
þáttum. Hann var kominn í úr-
valsflokk þegar örlögin tóku ráð-
in. Það þurfti ekki kunnáttufólk
um myndlist til að sjá hæfni Mar-
geirs.
Á sama tíma og tækni hans
var krefjandi og flókin þá var
myndefnið öllum skiljanlegt og
það sem ekki síður er mikilvægt,
þá veittu verk hans fólki bæði
hughrif og gleði.
Ef eitthvert eitt hugtak ætti
að lýsa Margeiri þá væri það
elskulegheit. Hann hafði hlýja
nærveru þess sem ekkert þarf að
sýnast eða látast. Hann kom frá
hjartanu sjálfu. Svolítið barns-
legur í útliti og fasi. Sú elska sem
fólk hafði á honum var án efa
vegna persónu hans. Hann fór
ekki fram á neitt frá neinum,
dæmdi engan og var einfaldlega
einstakur ljúflingur. Þeir sem
gerðu sig að vinum hans voru
óteljandi og óvildarmann hefur
hann engan átt. Tenging hans við
veraldlega hluti var ekki mikil og
hann virti þá yfirleitt lítils. Verð-
mætin í kringum hann voru fyrst
og fremst fólkið og listin.
Því miður er það svo að snill-
ingar verða ekki alltaf langlífir.
Það þekkjum við. Það hlýtur að
geta verið erfitt og einmanalegt
fyrir viðkvæmar sálir að fóta sig
á átakasvæðum daglegs lífs þar
sem allt snýst um fé og verald-
lega hluti. Stórviðri geta gengið
yfir sál og huga og í einhverjum
djúpum öldudal hvarf hann okk-
ur sjónum. Sorgin er allsráðandi
og dagarnir verða þungir fyrir
foreldra og systkini.
Við, hans nánasta skyldfólk,
munum minnast hans hvern dag
hér eftir með trega og sorg í
huga. Ef til vill er lífshlaup okkar
í einhverri mynd skrifað í skýin
og að við fáum minna ráðið en við
sjálf höldum.
Guð blessi Margeir og ferð
hans úr þessum heimi.
Hjalti Gestsson.
Elsku bróðir og
mágur, minning um
góðan og traustan
dreng lifir.
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu,
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kallaður á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða,
svo gestrisinn, einlægur og hlýr.
En örlög þín ráðin – mig setur hljóða,
við hittumst ei framar á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Bjarni og Arna.
Elsku Röggi minn, ég er bara
ekki að trúa því að þú sért farinn
frá okkur, að ég sitji hérna og sé
að skrifa minningargrein um þig.
Þú varst besti vinur minn síðast-
liðin 15 ár. Ég man það eins og
Rögnvaldur Helgi
Guðmundsson
✝ RögnvaldurHelgi Guð-
mundsson fæddist
14. nóvember 1978.
Hann lést 30. apríl
2019.
Útför Rögnvald-
ar Helga fór fram
10. maí 2019.
það hefði gerst í gær
þegar við byrjuðum
að vera saman, það
var í byrjun árs
2004, þá var ég ný-
orðin 15 ára og þú að
verða 25 ára. Ég
gleymi aldrei svipn-
um á mömmu og
pabba þegar ég
sagði þeim að ég
væri komin með
kærasta sem væri 10
árum eldri en ég, en svipurinn fór
nú strax eftir að þau kynntust
þessum ljúfa og góða dreng. Það
gerðist allt svo hratt hjá okkur,
tveimur árum seinna vorum við
búin að trúlofa okkur, þremur ár-
um seinna varð ég ólétt og stuttu
seinna keyptum við okkur fyrstu
íbúð okkar, á Bölunum á Patró.
Besti dagur lífs okkar var 22. jan-
úar 2007, þá eignuðumst við litla
fullkomna prinsessu sem lét held-
ur betur hafa fyrir og bíða eftir
sér, en það gleymdist um leið og
við fengum hana í fangið. Ég sá
strax hvað þú elskaðir þessa litlu
stelpu mikið, og frá fyrsta degi í
lífi hennar varstu besti pabbi sem
til var og gerðir allt fyrir hana. 10.
mars 2007, á 19 ára afmælisdag-
inn minn, skírðum við hana Sig-
urbjörgu Helgu. Þú hefur alltaf
verið svo stoltur af henni. Eftir ca
átta ára samband slitnaði upp úr
hjá okkur og fórum við sitt í hvora
áttina en ekki langt frá hvort
öðru, bara í næsta hús. Í öll þessi
15 ár sem við höfum þekkst höf-
um við alltaf verið svo góðir vinir
og verð ég ævinlega þakklát fyrir
það, það var oft sem við fengum
að heyra hvað við ættum gott
samband og settum við alltaf
stelpuna okkar í fyrsta sætið, ekki
okkur, og gerðum allt það sem var
best fyrir hana. Þú varst elskaður
af allri fjölskyldunni minni, þó svo
að við værum hætt saman eyddir
þú nánast öllum hátíðisdögum
með okkur og eftir að þú fluttir
frá Patró var alltaf herbergi fyrir
þig hjá mömmu og pabba. Þau
elskuðu að hafa Rögga sinn hjá
sér, alltaf svo hjálpsamur og alltaf
komstu færandi hendi með fisk
fyrir okkur af sjónum. Finnst svo
vænt um hvað þú tókst strax
Friðriki vel og stelpunni okkar
Friðriks, henni Hrafnhildi Sölku,
alltaf spurðirðu hvernig hún væri
og hafðir miklar áhyggjur af veik-
indum hennar.
Ég gæti setið og skrifað í alla
nótt en ætla að geyma þær minn-
ingar fyrir mig og dóttur okkar.
Elsku Röggi minn, ég lofa þér að
passa vel upp á elsku gullið okkar
og mun ég halda minningunni um
þig þar til minn dagur kemur. Þú
átt alltaf stað í hjarta okkar.
Hvíldu í friði, elsku engill.
Þín vinkona og barnsmóðir,
Petrína Sigrún
Helgadóttir.
Elsku hjartans Rögnvaldur
minn.
Það var mikið reiðarslag að fá
fréttirnar af andláti þínu, þú
svona ungur og í blóma lífsins. Við
minnumst þeirrar stundar er hún
dóttir mín, þá aðeins 15 ára, kom
og kynnti þig fyrir okkur. Okkur
hefur stundum verið strítt á því
að svipurinn á okkur hafi verið
eitthvað skrítinn, en þú varst 10
árum eldri en hún. En sá svipur
breyttist fljótt við nánari kynni.
Þú varst okkur alltaf jafn kær og
okkar eigin synir. Okkar heimili
hefur alltaf staðið þér opið og hjá
okkur hefur þú gist síðastliðin ár
þegar þú varst hér til sjós. Þið
Petrína eigið saman yndislega
dóttur og ég veit að hún var auga-
steininn þinn. Litla stúlkan þín
hefur alltaf verið númer eitt hjá
þér. Það sannast oft að þeir deyja
ungir sem guð elskar. Takk, elsku
Röggi, fyrir allar yndislegu sam-
verustundirnar sem við höfum átt
saman.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Elsku Sigurbjörg mín, Halla,
Guðmundur, systkini og fjöl-
skyldur.
Við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Megi algóður Guð
styrkja ykkur öll. Minning um
góðan dreng lifi.
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Þínir fyrrverandi tengdafor-
eldrar
Sigurbjörg Pálsdóttir og
Helgi Auðunsson.
Uppáhalds frændi
minn er látinn.
Þrátt fyrir að hafa
nýlega fagnað 80
ára afmælinu sínu
varð Hjalti móður-
bróðir minn aldrei gamall. Alltaf
teinréttur, hjólaði um allan bæ
og synti oft í viku.
Hjalti var ræktandi. Hann
hafði gaman af því að rækta
garðinn sinn, setti niður græn-
Hjalti Ragnar
Ásmundsson
✝ Hjalti RagnarÁsmundsson
fæddist 26. apríl
1939. Útför hans
fór fram 10. maí
2019.
meti og jarðarberin
hans voru einstök,
mikil uppskera og
ákaflega bragðgóð.
Hann ræktaði líka
fólkið sitt, var dug-
legur að kíkja í kaffi
til systkina sinna og
aðstoða þau þegar
þurfti. Hlynur son-
ur hans og Anna
Kristín nutu einnig
dyggrar aðstoðar
hans við endurbætur á Stekkum.
Hjalti hafði gaman af veiði
enda alinn upp á bökkum Stóru-
Laxár. Síðustu árin hafði hann
endurbyggt gamla veiðikofann á
eyrunum við Hólakot til að nota
sem sumarhús og síðustu vinnu-
stundirnar voru við að klára pall-
inn við bústaðinn.
Ég naut þess sem barn að
vera í miklum samskiptum við
Hjalta þegar ég dvaldi í Hóla-
koti, bæði hjá ömmu og afa og
síðar sem barnapía hjá honum
og Jónínu. Það eru margar góð-
ar minningar frá þessum árum
bæði úr daglegum störfum þar
sem oft var slegið á létta strengi.
Einnig eru minnisstæðar ferðir á
Álfaskeið og í sundlaugina í
Þjórsárdal. Hjalti hafði gaman af
djassi og mér er minnisstætt
stóra segulbandið hans sem
hann spilaði oft djass af á kvöld-
in.
Takk fyrir samfylgdina, kæri
frændi. Innilegar samúðarkveðj-
ur kæra Jónína, Gísli, Ásmundur
Páll, Hlynur, tengdadætur og
barnabörn.
Þín frænka,
Brynja Hjálmtýsdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar