Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í 580 7000
eða farðu á
heimavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT
„Æ, GERÐU ÞETTA BARA – ÓKEI? ÞAÐ
SKEMMIR FYRIR MÉR AÐ ÚTSKÝRA
HVERS VEGNA.”
„LÍKAR ÞÉR VIÐ FLÍSARNAR SEM ÉG
SETTI UPP INNI Á BAÐI?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fjársjóðirnir þínir.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER TILBOÐ Á
GOUDA-OSTI HJÁ
OSTABÚÐINNI!
ÞURRKIÐ AF
SKÓNUM!
HRÓLFUR ER ALLTAF SVONA FYRSTU DAGANA
EFTIR AÐ HANN FÆR NÝTT SKIP!
GRETTIR!
HVAÐ ER Í
GANGI?!
ar Reyr Ágústsson framkvæmda-
stjóri, bús. í Mosfellsbæ, f. 18.3.
1983. Maki: Guðmundur David
Terrazas, grafískur hönnuður, f. 9.4.
1982.
Systkini: Hermann Óskarsson
prófessor, bús. í Mosfellsbæ, f. 7.2.
1951. Kvæntur Karínu Sveinbjörns-
dóttur kennara; Knútur Óskarsson
viðskiptafræðingur, bús. í Mosfells-
bæ, f. 23.2. 1952. Kvæntur Guðnýju
Jónsdóttur, sjúkraþjálfara og fram-
kvæmdastjóra; Una María Ósk-
arsdóttir varaþingmaður, bús. í
Kópavogi, f. 19.9. 1962. Gift Helga
Birgissyni hæstaréttarlögmanni.
Foreldrar: Hjónin Óskar Ágústs-
son, íþróttakennari, hótelstjóri og
póstmeistari á Laugum í Þingeyj-
arsýslu, formaður HSÞ í 19 ár, f.
8.11. 1920, d. 27.7. 2011, og Elín Frið-
riksdóttir, hússtjórnarkennari á
Laugum í Þingeyjarsýslu, f. 8.8.
1923, d. 15.5. 2017.
Úr frændgarði Ágústs Óskarssonar
Ágúst Óskarsson
Halldóra Halldórsdóttir
bóndi og húsmóðir í Kambakoti
Sigurður Árni Davíðsson
bóndi í Kambakoti á
Skagaströnd
Una Sigurðardóttir
bóndi og húsmóðir á Sunnuhvoli
Elín Friðriksdóttir
hússtjórnarkennari á Laugum
Eiríkur Ágústsson verslunarmaður í Rvík
Einar Ágústsson
eildsali í Reykjavíkh
Ágúst Einarsson
prestur í Gautaborg
Björgvin
Eyjólfur
Ágústsson
bifreiðarstjóri
í Rvík
Guðbjartur
Björgvinsson
fv. bóndi
á Sveins-
stöðum á
Skarðsströnd
Þorgrímur
Guðbjartsson
bóndi á
Rjómabúinu
Erpsstöðum í
Dölum
Sigurjón Ágústsson deildarstjóri
hjá Ríkisendurskoðun
Friðrik Hallgrímsson
bóndi á Sunnuhvoli í Blönduhlíð, Skag.
Helga Jóhannsdóttir
bóndi og húsmóðir á
Sunnuhvoli
Hallgrímur Friðriksson
bóndi á Sunnuhvoli
Árni Hallgrímsson ritstjóri í Reykjavík
Friðrik Friðriksson múrari í Mosfellsbæ
Hallgrímur Friðriksson
húsasmíðameistari í New York
Halldóra Ingibjörg
Friðriksdóttir
þróttakennari og
klíníkdama í Rvík
í
Davíð Ingason
lyfjafræðingur í Rvík
Sigríður Eiríksdóttir
bóndi og húsmóðir á Stóra-Klofa
Jóhann Jónsson
bóndi á Stóra-Klofa í
Landsveit, Rang.
María Jóhannsdóttir
bóndi og húsmóðir í Sauðholti
Ágúst Jónsson
bóndi í Sauðholti í Holtum, Rang.
Björg Eyjólfsdóttir
bóndi og húsmóðir á Heiði
Jón Jónsson
bóndi á Heiði í Holtum, Rang.
Óskar Ágústsson
íþróttakennari, hótelstjóri og póstmeistari
á Laugum í Reykjadal, S-Þing.
Davíð Hjálmar í Davíðshagaskrifaði á Leirinn á miðviku-
dag: „Lífið heldur áfram þótt kóln-
að hafi í bili.“
Leika fuglar, liggur enginn bakk,
lóur syngja, stelkarnir sig bukka
og hrossagaukur segir tikki-takk
tímum saman eins og pendúlklukka.
Baldur Hafstað skrifaði mér og
sagði að það mætti kalla þetta um-
hverfisvísu:
Út frá málstað umhverfis
ætti að teljast hæpið
að fljúga á örfund erlendis.
Oft má nota skæpið.
Síðan bætti Baldur við: „Skæpið
(Skype) er merkilegt fyrirbæri,
maður sér viðmælendur eins og
þeir séu í komnir í kaffi og þarf
ekkert að borga fyrir þjónustuna.
Gott t.d. fyrir þá sem eiga börn og
barnabörn í útlöndum. Ég er einn
slíkur.“
Ýmsum til ánægju segist Páll
Imsland á Leir hafa látið lítið bera
á limrugerð undanfarið – hér sé þó
ein að tilefnislausu.
Frækinn hann Torfi á Tjörn
með tilþrifin aldrei í vörn.
Hann geystist að Ökrum
á góðhesti vökrum
og gerði’ henni Lóu tvö börn.
Ármann Þorgrímsson telur að
takmarka þurfi barneignir:
Ef menn vilja áfram „spreða“
ætti að viðurkenna það,
fækka verðum fólki eða
finna annan samastað.
Og síðan spyr Ármann: „Heims-
endir?“:
Mengar græðgin lög og láð
um loftið fúlir straumar berast.
Heimsendi menn hafa spáð
ég held það núna sé að gerast.
Palestínumenn semja og Ólafur
Stefánsson yrkir:
Vonarglætu víða finn,
– varpa frá mér leiða,
því fisktitt líkt og frelsarinn
fá þeir nú að veiða.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir í
vorblíðunni:
Gullin sindra sólarblik,
sveipa tindinn háa,
gróa rindar, kát og kvik
kliðar lindin bláa.
Þar sem áin ljúflingslög
leikur á bláa strengi,
og við sjávar ölduslög
una má ég lengi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hrossagaukur, pendúl-
klukka og skæpið