Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Vegan Vítamínúði
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem
eiga erfitt með að taka upp B12 og járn úr fæðunni
og þá sem neyta ekki dýraafurða.
ð
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð ogmikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
• Vegan D3• B12• Járn & Jo
Pepsi Max-deild karla
ÍBV – Grindavík ....................................... 2:2
Valur – ÍA.................................................. 1:2
KR – Fylkir............................................... 1:1
Staðan:
Haukar 22 15 4 3 620:579 34
Selfoss 22 16 2 4 629:578 34
Valur 22 15 3 4 618:529 33
FH 22 11 5 6 605:571 27
ÍBV 22 10 4 8 627:624 24
Afturelding 22 9 5 8 593:583 23
ÍR 22 7 5 10 591:599 19
Stjarnan 22 8 2 12 586:621 18
KA 22 7 3 12 570:591 17
Fram 22 7 1 14 567:595 15
Akureyri 22 5 2 15 562:623 12
Grótta 22 3 2 17 502:577 8
Inkasso-deild karla
Haukar – Víkingur Ó ............................... 0:0
Njarðvík – Þór .......................................... 0:2
Magni – Keflavík ...................................... 1:3
Staðan:
Þór 2 2 0 0 5:1 6
Keflavík 2 2 0 0 5:2 6
Víkingur Ó. 2 1 1 0 2:0 4
Leiknir R. 2 1 0 1 5:3 3
Fjölnir 2 1 0 1 4:4 3
Fram 2 1 0 1 4:4 3
Afturelding 2 1 0 1 3:4 3
Njarðvík 2 1 0 1 3:4 3
Þróttur R. 2 0 1 1 4:5 1
Haukar 2 0 1 1 1:2 1
Grótta 2 0 1 1 2:4 1
Magni 2 0 0 2 2:7 0
2. deild karla
Selfoss – Fjarðabyggð ............................. 3:0
Leiknir F. – Víðir...................................... 2:2
Völsungur – Vestri ................................... 3:1
Tindastóll – ÍR.......................................... 0:2
KFG – Dalvík/Reynir............................... 1:0
Staðan:
Kári 2 1 1 0 5:1 4
ÍR 2 1 1 0 4:2 4
Víðir 2 1 1 0 4:3 4
Selfoss 2 1 0 1 4:2 3
Fjarðabyggð 2 1 0 1 3:3 3
KFG 2 1 0 1 2:2 3
Vestri 2 1 0 1 3:4 3
Völsungur 2 1 0 1 3:5 3
Leiknir F. 2 0 2 0 4:4 2
Þróttur V. 2 0 2 0 3:3 2
Dalvík/Reynir 2 0 1 1 2:3 1
Tindastóll 2 0 0 2 0:5 0
3. deild karla
Höttur/Huginn – Vængir Júpíters ......... 0:2
Augnablik – KF ........................................ 1:3
Sindri – Einherji....................................... 2:1
Staðan:
Kórdrengir 2 2 0 0 6:2 6
KV 2 2 0 0 4:2 6
Álftanes 2 1 1 0 6:2 4
KF 2 1 1 0 4:2 4
Reynir S. 2 1 0 1 4:3 3
Vængir J. 2 1 0 1 3:2 3
Sindri 2 1 0 1 3:4 3
Skallagrímur 2 1 0 1 3:6 3
Augnablik 2 0 1 1 4:6 1
KH 2 0 1 1 4:7 1
Einherji 2 0 0 2 2:4 0
Höttur/Huginn 2 0 0 2 1:4 0
KNATTSPYRNA
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
Kristján Jónsson
Þórður Yngi Sigursveinsson
Fylkismenn voru stálheppnir að
sleppa með stig úr Vesturbænum
þegar liðið heimsótti KR í 3. umferð
úrvalsdeildar karla í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni, í knattspyrnu á
Meistaravöllum í gær. Leiknum lauk
með 1:1-jafntefli en Valdimar Þór
Ingimundarson skoraði jöfn-
unarmark Fylkis í uppbótartíma eft-
ir að hafa komið inn á sem varamað-
ur á 73. mínútu.
Pálmi Rafn Pálmason fékk upp-
lagt tækifæri til þess að koma KR
yfir strax á 16. mínútu þegar KR
fékk vítaspyrnu en Aron Snær í
marki Fylkis varði frá Pálma. Á 33.
mínútu átti Óskar Örn Hauksson
frábæra fyrirgjöf frá vinstri á Tobi-
as Thomsen sem var einn og óvald-
aður í markteig Fylkismanna og
hann skoraði af stuttu færi, hans
fyrsta mark í sumar fyrir KR. Það
virtist allt stefna í sigur KR þegar
Valdimar Þór fékk frábært færi til
að jafna metin í uppbótartíma en
Beitir Ólafsson í marki KR varði
meistaralega frá honum og bjargaði
í horn. Daði Ólafsson tók hornspyrn-
una sem fór beint á fjærstöngina þar
sem Valdimar var einn á auðum sjó.
Valdimar gerði engin mistök og setti
boltann yfir marklínuna af stuttu
færi og liðin skiptu með sér stig-
unum.
KR-ingar gerðu mjög vel í 88.
mínútur í leiknum í gær. Þrátt fyrir
að þeir hafi fært sig aftar á völlinn í
síðari hálfleik og leyft Fylk-
ismönnum að vera með boltann voru
þeir með fulla stjórn á leiknum.
Fylkismenn sköpuðu sér ekki mark-
tækifæri í 88. mínútur. Pressa KR í
leiknum var mjög vel útfærð og leik-
menn liðsins voru mjög samstiga,
allan leikinn. Þeir ýttu Fylk-
ismönnum í erfiðar stöður á vell-
inum og neyddu þá í langa og leið-
inlega bolta fram völlinn, sem
varnarmenn KR áttu auðvelt með að
eiga við enda vindasamt í Vest-
urbænum í gær. Vesturbæingar
fengu nokkur góð tækifæri til þess
að gera út um leikinn með álitlegum
skyndisóknum en alltaf klikkaði síð-
asta sendingin. KR-ingar misstu
hins vegar einbeitinguna í nokkrar
mínútur í gær, kannski vegna þess
að yfirburðir þeirra í leiknum sjálf-
um voru það miklir, og það kostaði
þá tvö stig.
Fylkismenn mættu ekki vel
stemmdir til leiks en hvort það var
leikmönnum liðsins að kenna eða
þjálfarateyminu skal látið ósagt.
Eftir á að hyggja stillti Helgi Sig-
urðsson, þjálfari Fylkismanna, upp
vitlausu liði í gær. Fylkisliðinu gekk
ekkert að spila sig út úr pressu KR-
inga, þrátt fyri að þeir Ólafur Ingi
Skúlason og Helgi Valur Daníelsson,
djúpir miðjumenn Fylkis, hefðu ver-
ið mjög hreyfanlegir í leiknum. Kol-
beinn Birgir Finnsson átti ekki góð-
an leik á hægri kantinum og var ekki
í neinum takti við leikinn og sókn-
arleikur liðsins var eftir því. Geoff-
rey Castillion var rangur maður á
röngum stað, mestallan leikinn, en
hann var mikið í því að falla til baka
og reyna að fá boltann í lappir í stað
þess að koma sér inn í teiginn í þau
fáu skipti sem Árbæingar fóru upp
kantana og freistuðu þess að senda
boltann fyrir.
KR-ingar mega ekki misstíga sig
svona á lokamínútunum ef liðið ætl-
ar sér að að blanda sér í alvörutopp-
baráttu en vinnuframlag leikmanna
liðsins var til fyrirmyndar í gær.
Fylkismönnum fór að ganga betur
þegar að þeir breyttu til og fóru í 3-
5-2 leikkerfið og þjálfarar liðsins
þurfa að bregðast hraðar við þegar
liðið er undir á öllum sviðum leiksins
eins og í Vesturbænum í gær því
með réttu hefði KR átt að vera löngu
búið að gera út um leikinn.
Risi rumskar
Knattspyrnurisinn ÍA rumskar nú
svo hressilega í upphafi Íslandsmóts
að það heyrist vel á höfuðborgar-
svæðinu. Skagamenn fóru á Hlíð-
arenda á laugardagskvöldið og unnu
Íslandsmeistarana síðustu tvö ár
2:1. Valsmenn hafa ekki lagt það í
vana sinn að tapa heimaleikjum und-
ir stjórn Ólafs Jóhannessonar. ÍA
varð fyrsta liðið til að vinna Val á
Hlíðarenda í deildinni síðan Breiða-
blik gerði það 15. september 2016.
Valur hafði leikið tuttugu og fjóra
deildarleiki á Hlíðarenda í röð án
þess að tapa.
Valur hefur aðeins náð í eitt stig í
fyrstu þremur umferðunum. Fyrir
lið sem ætlar sér að berjast um tit-
ilinn setur þessi staða lið í talsverðan
vanda í jafn stuttu móti og Íslands-
mótið er. Hins vegar eru menn ekki
búnir að spila frá sér Íslandsmótið
með því að tapa tveimur leikjum að
því gefnu að liðið finni taktinn og nái
góðri sigurgöngu til að rétta sig af.
Eins og staðan er núna eru engar
sérstakar vísbendingar um slíkt. Er
það væntanlega vægt til orða tekið í
ljósi þess að Valur hefur tapað
þremur leikjum í röð í deild og bikar.
Mér finnst liðið vanta útsjónar-
saman og skapandi leikmann sem
getur brotið upp varnir og gefið úr-
slitasendingar. Ekki síst í leikjum
eins og gegn ÍA sem spilaði með
fimm manna vörn. Valsmönnum
gekk illa að opna þá vörn en liðið
saknar auðvitað Kristins Freys Sig-
urðssonar og Sigurðar Egils Lár-
ussonar í sókninni.
Liðið fékk á sig bæði mörkin eftir
hornspyrnur Tryggva Hrafns Har-
aldssonar frá vinstri. Sá erfði
spyrnugetu úr báðum ættum og get-
ur matað samherjana við slíkar að-
stæður. Skagamenn nýttu föstu leik-
atriðin vel og löng innköst Stefáns
Teits Þórðarsonar sköpuðu einnig
hættu. Flottur liðsbragur var á
Skagaliðinu í leiknum og sigurinn
var eftir atvikum sanngjarn.
ÍA er ekkert venjulegur nýliði í
efstu deild. ÍA er risi í íslenski knatt-
spyrnu hvort sem horft er til árang-
urs liðsins í gegnum áratugina eða
alls þess fjölda Skagamanna sem
spilað hafa landsleiki og orðið at-
vinnumenn. Á hliðarlínunni eru Jó-
hannes Karl Guðjónsson og sjálfur
Sigurður Jónsson. Samanlagt búa
þeir yfir aldarfjórðungsreynslu úr
atvinnumennsku og þar er þekking
sem vegur upp á móti því að leik-
Rán á
Meistara-
völlum
Varamaðurinn gerði gæfumuninn
Annað tap Vals Fyrsta stig ÍBV
Morgunblaðið/Ómar
Skoraði Miðvörðurinn Óttar Bjarni með boltann í leiknum.
1:0 Tobias Thomsen 33.
1:1 Valdimar Þ. Igmundarson 90.
I Gul spjöldBjörgvin Stefánsson (KR)
Daði Ólafsson (Fylki)
Ólafur Ingi Skúlaon (Fylki)
Ragnar Bragi Sveinsson (Fylki)
I Rauð spjöldEngin.
KR – FYLKIR 1:1
M
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Ari Leifsson (Fylki)
Valdimar Þór Ingimundars. (Fylki)
Daði Ólafsson (Fylki)
Finnur Orri Margeirsson (KR)
Gunnar Þór Gunnarsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Björgvin Stefánsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 3.