Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Stútfull búð af
Nýjum
vörum
Taska kr. 4.990
Bolur
kr. 4.990
Buxur
kr. 6.990
Kimono
kr. 7.990
Buxur
kr. 8.990
Toppur
kr. 4.990
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að treysta á
útkomuna.
ÉG MUN
GERA …
ÞAÐ SEM
ÞARF …
TIL AÐ GERA
EKKI ÞAÐ SEM
ÞARF
ÉG ER FARINN Á
KRÁNA!
REYNDU NÚ AÐ
SKEMMTA ÞÉR!
EKKI HUGSA UM NÖLDRIÐ OG RÖFLIÐ SEM MUN
TAKA Á MÓTI ÞÉR ÞEGAR ÞÚ KEMUR HEIM!
„ÞÚ ERT HELDUR EKKI JAFNÞUNGUR
OG ÞÚ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA Á
PRÓFÍLMYNDINNI ÞINNI.”
„HVERS VEGNA GETUR ÞÚ EKKI HORFT Á
PRÚÐULEIKARANA ÞEGAR ÉG ER BÚINN AÐ
HORFA Á FRÉTTIRNAR?”
stjórn aftur sem ritari. Hann var
formaður frá 2012 til 2015.
„Ég er fyrst og fremst áhuga-
maður um útivist og allt sem við-
kemur íslenskri náttúru, hef mikið
sinnt sjókajak, en fer líka á skíði,
hjóla og labba á hálendinu.“
Fjölskylda
Sambýliskona Rúnars er Bjarney
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, f. 10.9.
1966, tónlistarkennari. Foreldrar
hennar eru hjónin Anna Lóa Guð-
mundsdóttir, f. 15.11. 1945 og
Gunnlaugur Einarsson, f. 16.5.
1946, bús. á Ísafirði. Fyrrverandi
eiginkona Rúnars er Unnur Kon-
ráðsdóttir, f. 16.12. 1972, leikskóla-
kennari.
Dóttir Rúnars er 1) Emma Rún-
arsdóttir, f. 11.6. 1997, háskólanemi,
og stjúpbörn eru 2) Hrund Árna-
dóttir, f. 26.4. 1985, óperusöngkona
í Berlín; 3) Daði Már Guðmundar-
son, f. 7.7. 1990, rakari í Reykjavík.
Maki: Katarina Inga Leoniraki.
Dóttir þeirra er Dagbjört Amalía, f.
9.10. 2018; 4) Brynja Sólrún Árna-
dóttir, f. 30.1. 1997, verslunarmaður
á Ísafirði. Maki: Daði Arnarson; 5)
Hlynur Ingi Árnason, f. 26.11. 2001,
framhaldsskólanemi í Reykjavík.
Systkini Rúnars eru Skarphéðinn
Haraldsson, f. 18.2. 1964, slökkvi-
liðsmaður í Reykjanesbæ, og Har-
aldur Þorsteinn Haraldsson, f.
13.10. 1973, starfsmaður Alcoa, bús.
á Reyðarfirði.
Foreldrar Rúnars: Hjónin Mál-
fríður Haraldsdóttir, f. 9.2. 1944, d.
20.4. 2017, hárgreiðslumeistari,
lengst af á Gunnarsbraut 36 í
Reykjavík, og Haraldur Þórðarson,
f. 13.5. 1943, lögreglumaður, lengst
af á Gunnarsbraut 36 í Reykjavík,
nú búsettur í Reykjanesbæ.
Rúnar Helgi Haraldsson
Jóhanna Gísladóttir
húsfreyja í Kolsholti og Rvík
Margrímur Gíslason
bóndi í Kolsholti í Flóa,
síðan lögregluþjónn í Rvík
Guðrún Margrímsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Málfríður Haraldsdóttir
hárgreiðslumeistari í Reykjavík
Haraldur Jóhannesson
lögreglumaður í Reykjavík
Málfríður Ólína Lára Ólafsdóttir
húsfreyja í Rvík
Jóhannes Kristjánsson
skósmiður og
bifreiðarstjóri í Rvík
Kristgerður Eyrún
Gísladóttir vinnukona og
saumakona í Kolsholti
Guðrún
Símonardóttir
kjólasauma-
meistari í Rvík
Gerður
Unndórsdóttir
húsfreyja í
Reykjavík
Rúnar
Vilhjálmsson
prófessor í
félagsfræði
við hjúkrunar-
fræðideild HÍ
Margrét Guðmundsdóttir
húsfreyja í Rifshalakoti
Guðjón Einarsson
bóndi í Rifshalakoti
í Holtum, Rang.
Skarphéðinn Guðjónsson
verksmiðjustjóri á Stöðvarfirði,
stjúpfaðir Haraldar
Ingveldur Haraldsdóttir
húsfreyja á Stöðvarfirði
Sigurborg Guðmundsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Haraldur Þórðarson
sjómaður, fórst með togaranum Sviða frá Hafnarfirði
Úr frændgarði Rúnars Helga Haraldssonar
Haraldur Þórðarson
fv. lögreglumaður og tækjafræðingur
við HÍ, faðir Haraldar: John P. Bacon,
frá Bandaríkjunum
Páll Jónasson, Hlíð, Langanesi,orti sumar 2018 þessa fallegu
stöku:
Á Langanesi sumarsólin blíð,
úr suðri kyssti grasið mjúkt við il,
golan milda bærði blóm í Hlíð
– og bara heldur gott að vera til.
Í upphafi kreppunnar, 21. októ-
ber 2008, orti Páll og kallaði „Litlu
andarungarnir“:
Þeir ætluðu að hald’út á haf
og höndla með perlur og raf,
en hafið svo blátt
er hrekkjótt og flátt,
og færði þá flesta í kaf.
Páll Imsland heilsar leirliði á aft-
urgengnu vori með þessum orðum:
„Vorvísurnar blómstra nú sem fyrr
en ekki eru öll vorin eins. A.m.k.
voru þau öðru vísi hér áður“:
Segin var saga, er vorið
settist upp minnkaði horið
og allt stóð í blóma
og efldist með sóma
því sjósóknin færði’ okkur slorið.
Sól og vor var í huga Davíðs
Hjálmars í Davíðshaga á þriðjudag-
inn: „Þá er hretið liðið hjá og aftur
er komin blíða.“
Sé ég aftur sól er brást,
sé ég þröst og blóm og for.
Vorar nú með yl og ást
í annað skipti þetta vor.
Um Evrósjóvfarana segir Helgi
Zimsen á Leir: „Nú fara vorir
elskulegu Hatarar að láta að sér
kveða þar syðra og verða eflaust til
mikillar prýði þótt einhverjum
kunni að þykja þeir helst til hnúsk-
óttir kynjakvistir í gamalkunnri
glysblómsturbreiðunni“:
Sumarblómasælureiti
sveit í mætir kaktusa,
kræfir minna í kjaftateiti
á Karíusa og Baktusa.
Helgi R. Einarsson er um sauð-
burðinn á Burstarfelli í Vopnafirði
og veltir fyrir sér „leti“:
Tómas liggur í leti
nær líflaus í sínu fleti.
Hann er svo latur
að liggur þar flatur.
um 200 kg af keti.
Indriði Aðalsteinsson á Skjald-
fönn er veðurglöggur, – „Von um
vor“:
Um kindur mínar kuldahrollur fer
því kannski rekur vorið upp á sker
en sunnanáttin skilar sér sem skot
og skútu vorsins aftur nær á flot.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Frá Langanesi, afturgeng-
ið vor og Evrósjóvfarar