Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019 Við gyllinæð og annarri ertingu og óþægindum í endaþarmi Krem Þríþætt verkun - verndar, gefur raka og græðir Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Inniheldur ekki stera Hreinsifroða Froðan hreinsar, róar og frískar óþægindasvæðið Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Fyrir hámarksárangur er mælt með notkun á Procto-ezeTM Hreinsi áður en Procto-ezeTM Krem er notað. Fæst í næsta apóteki. Ósköp þótti mér lítilmannleg framkoma formanns handknatt- leiksráð ÍBV og þar af leiðandi ráðsins í garð landsliðsmark- varðarins í handknattleik kvenna, Guðnýjar Jennyjar Ásmunds- dóttur. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í fyrir viku var Jenny sagt upp samningi við deildina vegna þess að ÍBV hefur ekkert við meiddan markvörð að gera. Jenny sleit krossband í keppn- isferð með landsliðinu í mars. Hún mætir þar af leiðandi ekki á keppn- isvöllinn á ný fyrr en snemma á næsta ári. Hún hefði alveg eins getað meiðst á æfingu eða í kapp- leik með ÍBV. Að segja upp samningi við meiddan íþróttamann er hreinlega siðlaust og má nærri því líkja við það að segja upp samningi við íþróttakonu þegar hún verður barnshafandi. Ég held að allir vel meinandi stjórnendur íslenskra íþróttafélaga hefðu a.m.k. reynt að leysa málið á annan og manneskjulegri hátt. Hart er orðið í ári hjá Eyjamönnum að koma svona fram við íþrótta- menn sína. Lítil er fyrirhyggjan í rekstri deildarinnar þegar ekki er borð fyrir báru þegar áföll eiga sér stað. Það má vera að yngri kyn- slóðir í Eyjum þekki ekki lengur hvað er að hafa borð fyrir báru. Síðan er kapítuli út af fyrir sig hvernig staðið var að uppsögninni og hvar hún fór fram. Þess utan eru afrit samninganna, annars vegar það sem íþróttamaðurinn hefur undir höndum og hinsvegar það sem liggur inni hjá HSÍ, ekki samhljóða. Handknattleiksfólk sem hyggst ganga til liðs við ÍBV hlýtur að hugsa sig um þegar það sér getur átt á hættu að vera sparkað eins og einnota varningi bjáti eitthvað á. BAKVÖRÐUR Ívar Benediktsson iben@mbl.is KÖRFUBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Talsverðar líkur eru á að körfubolta- bræðurnir Jakob Örn og Matthías Orri Sigurðarsynir leiki saman í ís- lensku úrvalsdeildinni á næstu leik- tíð. Til þess stendur alla vega ríkur vilji þeirra beggja. Matthías er án samnings eftir að hafa verið leiðtogi ÍR síðustu ár og Jakob flytur heim í sumar eftir langan atvinnumanns- feril. „Það er ekkert komið á hreint. Það eru nokkur félög á Íslandi búin að hafa samband við mig en það er ekkert ákveðið í þessu, né í raun komið langt,“ segir Jakob við Morg- unblaðið. Þau ár sem þessi 37 ára fyrrverandi landsliðsmaður hefur spilað á Íslandi hefur hann spilað með KR. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2000, áður en hann hélt í háskólakörfuboltann í Banda- ríkjunum, og einnig árið 2009 þegar hann tók eins árs hlé á 14 ára ferli sínum sem atvinnumaður. „Ég er auðvitað uppalinn KR- ingur og allt það, en ég er opinn fyr- ir öllu og ætla að skoða málin vel áð- ur en ég tek ákvörðun. Ég er ekki búinn að ákveða neitt fyrir fram,“ segir Jakob, aðspurður hvort ekki sé sjálfgefið að hann fari í Vesturbæinn og spili með KR. KR varð Íslands- meistari sjötta árið í röð í vor eftir harða baráttu við Matthías Orra og félaga í ÍR. Jakob viðurkennir að hafa rætt við Matthías um næstu leiktíð: Algjör draumur að spila saman „Jú, jú, ég tala reglulega við Matta bróður. Það yrði rosalega gaman fyrir okkur að ná einu tíma- bili saman. Það hefur aldrei verið neitt inni í myndinni hingað til, en það yrði algjör draumur. Við höfum samt ekkert ákveðið,“ segir Jakob. Matthías tekur í svipaðan streng. „Jakob er búinn að spila úti meira og minna frá árinu 2000 þannig að það væri mjög sérstakt ef við gæt- um fundið okkur samastað einhvers staðar og spilað saman svona rétt áður en gamli maðurinn hættir,“ segir Matthías. Það er því ekki ljóst hvort leiðir bræðranna munu liggja saman hjá KR, ÍR eða annars stað- ar, ef þeim á annað borð gefst tæki- færi til að spila saman. Eins og fyrr segir flytur Jakob nú heim eftir langan atvinnumannsferil þar sem hann spilaði fyrst í Þýska- landi, á Spáni og í Ungverjalandi, áður en hann kom heim í eitt ár og fór svo til Svíþjóðar árið 2009. Þar hefur hann leikið við afar góðan orðstír í áratug, fyrst með Sundsvall Dragons og svo Borås frá árinu 2015. Hann varð sænskur meistari með Sundsvall árið 2011 og lauk at- vinnumannsferlinum á að fara með Borås í úrslitaeinvígi við Södertälje Kings nú í maí, þar sem Södertälje hafði betur. Mjög sáttur með minn feril „Ég er mjög sáttur með minn fer- il, sérstaklega árin hérna í Svíþjóð. Toppurinn er þessi tími þegar við unnum titilinn 2011, og svo að kom- ast í úrslitin tvisvar í viðbót. Það er ýmislegt sem maður hefði kannski getað gert betur, sérstaklega í byrj- un þegar mér fannst ég fá góða möguleika með því að fara í þýsku úrvalsdeildina. Maður hefði getað nýtt þá möguleika betur, en á heild- ina litið er ég mjög ánægður þegar ég lít um öxl. Ég spilaði í Evrópu- keppni fyrsta árið mitt með Borås og það var líka mjög eftirminnilegt, því við komumst ágætlega langt. Við unnum lið úr efstu deild á Ítalíu og Frakklandi, spiluðum þarna við mjög góð lið úr stórum deildum og stóðum okkur vel,“ segir Jakob. Ekki munaði svo miklu að hann færi frá Svíþjóð sem sænskur meist- ari, þó að Södertälje virðist við fyrstu sýn hafa unnið úrslitaeinvígið af öryggi. Jakob kveðst ánægður með lokakeppnistímabilið sitt ytra: „Við töpuðum 4:1 svo það er kannski skrýtið að segja að það hafi ekki vantað mikið, en þannig var það samt. Það sem gerði okkur erfitt fyrir var að í fyrstu tveimur leikj- unum voru mikil veikindi í liðinu, þetta var mjög slæm tímasetning fyrir það, og við áttum bara ekki séns í þessum leikjum. Það er erfitt að snúa taflinu við þegar staðan er 2:0, en við vorum mikið betri en þeir á heimavelli í leik fjögur, og leikir þrjú og fimm voru báðir 50:50-leikir. Það hefði ekki þurft mikið til að þessi sería færi í oddaleik. Engu að síður er rosalega gaman að enda þennan tíma á að fara í úrslit, sér- staklega vegna þess að þetta er í fyrsta sinn sem Borås nær í úrslit- in.“ Fjöldi landsliðsmanna lék í Svíþjóð en nú er þar enginn Um tíma, á árunum 2011-2015, átti Ísland yfirleitt á bilinu 4-5 leik- menn í sænsku úrvalsdeildinni. Í þeim hópi voru Jakob, Hlynur Bær- ingsson, Haukur Helgi Pálsson, Ægir Þór Steinarsson, Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Brynjar Þór Björnsson, Pavel Ermolinskij, Logi Gunnarsson, Helgi Már Magnússon og Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Með brotthvarfi Jakobs er enginn Íslendingur eftir í deildinni: „Ég veit ekki alveg hver ástæðan er,“ segir Jakob og bætir við: „Ég er oft spurður út í íslenska leikmenn svo ég veit alveg að félögin hérna úti fylgjast með leikmönnum á Íslandi. Ég held líka að það muni Íslend- ingar spila í þessari deild á næstu árum, og ég vona það, því ég tel að þetta sé ágætis deild fyrir þá sem vilja taka næsta skref fyrir ofan ís- lensku deildina.“ Bræðurnir sameinaðir?  Jakob Örn Sigurðarson er á heimleið eftir 14 ár sem atvinnumaður  Kveðst opinn fyrir öllu  Sérstakt ef við gætum spilað saman, segir Matthías Orri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ísland Matthías Orri Sigurðarson lék með ÍR-ingum gegn KR í úr- slitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn og mátti sætta sig við silfur. Ljósmynd/borasbasket.se Svíþjóð Jakob Örn Sigurðarson lék með Borås gegn Södertälje í úr- slitaeinvíginu um sænska meistaratitilinn og mátti sætta sig við silfur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.