Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 32
Sigrún Einarsdóttir glerlistamaður
opnar sýningu sína Öðruvísi ólgur í
Handverki og hönnun á Eiðistorgi í
dag kl. 16. „Ólgur eru lífræn form úr
gleri sem dansa á mörkum nytja-
og skúlptúrs. Í þeim virðir listamað-
urinn vilja glersins og leyfir eigin-
leika þess að njóta sín til fulls,“
segir m.a. um verk Sigrúnar á
sýningunni. Sigrún vinnur jöfnum
höndum að myndlist og listiðnaði.
Öðruvísi ólgur í
Handverki og hönnun
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu
karla fögnuðu í gærkvöldi sínum
fyrsta sigri í Pepsi Max-deildinni á
leiktíðinni þegar þeir unnuð Fylkis-
menn í Árbæ, 1:0. KR tapaði í fyrsta
sinn á tímabilinu þegar liðið sótti
Grindavík heim, 2:1. Um var að
ræða fyrsta sigur Grindavíkurliðs-
ins. HK vann sannfærandi sigur á
ÍBV, 2:0, í Kórnum. »26
Fyrsti sigur meist-
aranna kom í Árbæ
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Úlfur Eldjárn heldur tónleika í
Mengi í kvöld kl. 21 undir merkjum
hliðarverkefnis síns, Aristókrasía.
Úlfur mun flytja nýja raftónllist og
verk í vinnslu og er tónlistin, að
hans sögn, endurtekningagjörn og
hreinsandi fyrir líkama og sál, íhug-
ul innri danstónlist
fyrir sálarlífið. Verk-
efnið er óbeint
framhald af plötu
Úlfs, The Ari-
stókrasía Project og
m.a. undir áhrifum
frá þýskri kosmískri
raftónlist frá 8.
áratugnum, sóv-
éskri eróbik-
tónlist, Ítaló-
diskói, Art of
Noise o.fl.
Endurtekningagjörn
og hreinsandi tónlist
AUDI A3 E-TRON SPORT
nýskr. 01/2017, ekinn 16 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Aukabúnaður s.s. Virtual cockpit (stafrænt
mælaborð), Bang & Olufsen hljómkerfi, Matrix led ljós o.fl. Verð 4.240.000 kr. Raðnúmer 259069
VW GOLF GTE
nýskráður 03/2018, ekinn 14 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur. Aukabúnaður t.d. stafrænt
mælaborð, 18“ álfelgur, dráttarkrókur, ACC o.fl.Verð 4.650.000 kr. Raðnúmer 259301
BMW 530E IPERFORMANCE M-SPORT nýskr.06/2018, ekinn 4 þkm. bensín/rafmagn,
sjálfskiptur. M-sport innan og utan.Verð 6.590.000 kr. Raðnúmer 259344
RENAULT GRAND SCENIC BOSE EDITION
nýskr. 11/2018, ekinn 8 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, 7manna. Einkabíll, hlaðinn aukabúnaði!
Verð 4.690.000 kr. Raðnúmer 259171
RENAULT MASTER DCI125 L2H2
nýskr. 08/2015, ek. 52 Þ.km, dísel, 6 gíra. TILBOÐ 2.390.000 kr. + vsk
Raðnúmer 258697 - TVEIR TIL!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Börn sem hefðu annars ekki tök á
því að eignast reiðhjól geta leitað
til Barnaheilla, sem safna saman
reiðhjólum, gera þau upp og gefa
þau. Hjólasöfnun Barnaheilla var
haldin áttunda árið í röð í vor í
samstarfi við IOGT Æskuna og
gekk glimrandi vel að sögn Lindu
Hrannar Þórisdóttur, verk-
efnastýru hjá Barnaheillum.
Sjálfboðaliðar gera hjólin upp
„Við höfum frá því að við byrj-
uðum verkefnið úthlutað rúmlega
tvö þúsund reiðhjólum til barna og
ungmenna sem að öðrum kosti
gefst ekki kostur á að eignast
hjól,“ segir Linda og segir að í ár
hafi borist hátt í 250 umsóknir um
hjól, sem komi frá börnum á öllum
aldri og með
mismunandi bak-
grunn. „Þetta
eru bæði íslensk
börn og börn
sem eru með
stöðu hælisleit-
enda o.fl., svo
þetta er mjög
fjölbreyttur hóp-
ur,“ segir Linda.
Barnaheill er í
samstarfi við Sorpu, sem sér um
að taka á móti hjólum á móttöku-
stöðvum sínum á höfuðborgar-
svæðinu. „Á öllum sex stöðvunum
erum við með sérstaka gáma,“
segir Linda og segir að almenn-
ingur sé svo hvattur til að gefa
hjól, sem ekki eru í notkun, í gám-
ana.
Hjólin eru síðan flutt í húsnæði
sem Barnaheill hefur til afnota þar
sem þau eru gerð upp, m.a. með
aðstoð sjálfboðaliða. „Við höfum
sem dæmi fengið aðstoð frá ein-
staklingum og hjólaklúbbum fyrir-
tækja, sem koma og aðstoða okkur
að gera upp hjólin.“
Hingað til hefur Barnaheillum
tekist að úthluta hjólum til allra
sem hafa sótt um, og er markmiðið
að halda því áfram, að sögn Lindu.
Úthlutun fylgir hjólasala
Úthlutunum hjólanna er nú að
ljúka, sala á afgangshjólum úr
söfnuninni hófst í gær og heldur
áfram í dag og á morgun. „Þannig
fjármögnum við þetta verkefni
meðal annars,“ segir Linda.
Fyrir áhugasama fer hjólasalan
fram í Víkurhvarfi 1 í Kópavogi á
milli þrjú og sex í dag, föstudag,
og á milli ellefu og þrjú á laug-
ardag.
Öll börn sem sóttu um
fengu gefins reiðhjól
Barnaheill stendur fyrir hjólasöfnun áttunda árið í röð
Hjálparhendur Vaskir sjálfboðaliðar gera upp reiðhjól sem gefin hafa verið til verkefnsins.
Linda Hrönn
Þórisdóttir