Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Stærðir 38-46. Til í svörtu, hvítu og húðlit. Verð 5.990 kr. Æðislegir micro-fiber toppar DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Skemmtiferðaskipið Spitsbergen frá Noregi kom til Patreksfjarðar á mánudag með um 150 manns um borð. Patreksfjarðarhöfn hefur unnið að því í nokkurn tíma að fá skemmtiferðaskipin til að koma til hafnar á Patreksfirði. Spitsbergen er fyrsta skipið í ár, en gert er ráð fyrir að um 24 skip komi í sumar. Síðasta ár komu 18 skemmti- ferðaskip til Patreksfjarðar. Gest- ir skipanna eru ánægjuleg viðbót við heimamenn og setja svip á bæ- inn. Spitsbergen kom til Ísafjarðar í gær og hélt síðan áfram norður fyrir land. Von er á því á morgun til Hríseyjar og Akureyrar og síð- an heldur það til Grímseyjar. Skip- ið kemur aftur til Íslands í júní og verða viðkomustaðirnir þeir sömu. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Í höfn Skemmtiferðaskipið Spitsbergen í höfn á Patreksfirði í byrjun vikunnar. Skipið verður á Akureyri í dag. Von á 24 skemmti- ferðaskipum til Patreksfjarðar í sumar Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegna lengingar Skarfabakka til austurs yfir í Kleppsbakka í Sunda- höfn og landfyllingu í Vatnagörðum verður ekki hægt að landa korni til Fóðurblöndunnar og Kornax sem eru með starfsemi á Korngörðum. Faxaflóahafnir keyptu fyrir 12 ár- um eignir Líflands sem þar voru og viðræður eru hafnar við Fóður- blönduna um aðferðafræði við mat á ástandi eigna fyrirtækisins og verð, samkvæmt upplýsingum Faxaflóa- hafna. Gísli Gíslason hafnarstjóri segir að Kleppsbakki sé orðinn gamall og Korngarðabryggjan úr sér gengin. Ekki svari kostnaði að endurnýja þessi mannvirki. Þess vegna standi til að lengja Skarfabakka yfir í Kleppsbakka. Það verði næsta stór- verkefni Faxaflóahafna í Sunda- höfn. Landfylling verður gerð þar fyrir innan og verður kornbryggjan því óvirk. Nokkurra ára verkefni Korni hefur verið dælt þaðan beint í verksmiðju Fóðurblönd- unnar. Gísli segir að þegar fram- kvæmdir hefjist verði löndun á korni erfið. Þá getur hann þess að farið sé að þrengja að þessum gömlu byggingum með fram- kvæmdum við vöruhús sem eru að rísa hinum megin götunnar. Mikil- vægt sé að nýju lóðirnar og svæðið sem Fóðurblandan og áður Lífland voru á falli undir sama skipulag. Þessi gömlu hús muni á endanum þurfa að víkja. Gísli segir að fyrsta skref fram- kvæmda sé að senda Skipulags- stofnun fyrirspurn um þörf á um- hverfismati og semja við Fóður- blönduna um kaup á eignum hennar. Það geti tekið eitt til tvö ár og verkefnið í heild fjögur til sex ár. Bíða niðurstöðu viðræðna Eyjólfur Sigurðsson, forstjóri Fóðurblöndunnar, segir ekki komið á hreint hvenær fyrirtækið þurfi að flytja starfsemi sína annað. Málið hafi verið í umræðunni í áratug. Hann segir ekki hægt að huga að nýjum stað fyrr en vitað sé hvað verði um núverandi eignir í Sunda- höfn. Faxaflóahafnir hafa boðið Fóðurblöndunni lóð á Grundartanga en þar byggði Lífland upp sína fóð- urverksmiðju. Ljósmynd/Faxaflóahafnir Sundahöfn Framlenging Skarfabakka mun loka fyrir bugtina sem Eimskip hefur aðstöðu við og fóðurverksmiðjurnar á Korngörðum, lengst til hægri. Þrengt að korninu á Korngörðum  Fóðurblandan þarf að fara annað Efling hefur krafist fundar með framkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífsins, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, í húsakynnum rík- issáttasemjara vegna vanefnda á nýundirrituðum kjarasamningi. Óskað er eftir að fundurinn fari fram í næstu viku. Málið kemur til vegna hóp- uppsagnar hótelstjórans Árna Vals Sólonssonar á launakjörum starfs- fólks síns umsvifalaust eftir sam- þykkt kjarasamninganna. „Þetta er blaut tuska í andlitið, að bregðast við með því að fella niður kjör sem starfsmenn hafa notið. Það er engu líkara en verið sé að refsa félags- mönnum fyrir að hafa samið um launahækkun,“ er haft eftir Viðari Þorsteinssyni framkvæmdastjóra Eflingar, í tilkynningu. Efling krefst fundar með SA um vanefndir Morgunblaðið/Hari Efling Óánægja með kjör á hótelum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.