Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 25
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég hef það á tilfinningunni eftir
þrjá fyrstu leikina að um leið og
menn byrja að verja forskot þá komi
það í bakið á þeim. Menn sigri á
ákafanum,“ sagði Rúnar Sigtryggs-
son, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í
handknattleik, sem eins og fleiri bíð-
ur spenntur eftir fjórða úrslitaleik
Selfoss og Hauka um Íslandsmeist-
aratitilinn í handknattleik karla sem
fram fer á heimavelli Selfoss,
Hleðsluhöllinni á Selfossi, í kvöld.
Flautað verður til leiks klukkan
19.30. Búist er við troðfullu húsi
áhorfenda.
Selfoss hefur tvo vinninga en
Haukar einn. Með sigri í kvöld verð-
ur Selfoss-liðið Íslandsmeistari í
fyrsta sinn. Takist Haukum að vinna
kemur til oddaleiks á heimavelli
þeirra, Schenkerhöllinni á Ásvöllum,
á föstudagskvöld.
Selfoss hefur aldrei orðið Íslands-
meistari í handknattleik karla.
Haukar eru hinsvegar eitt sigursæl-
asta handknattleikslið sögunnar og
hafa ellefu sinnum unnið titilinn, þar
af í tíu skipti frá árinu 2000. Síðast
urðu Haukar Íslandsmeistarar fyrir
fjórum árum með Patrek Jóhann-
esson, núverandi þjálfara Selfoss,
við stjórnvölinn.
Leikirnir þrír hafa verið hníf-
jafnir. Í öll skiptin hefur gestaliðið
farið með sigur af hólmi. Rúnar seg-
ir segist ekki sjá fram á annað en
viðureignin í kvöld verði keimlík
þeim fyrri í rimmunni, þ.e. hnífjöfn.
Hvernig liðin koma í leikinn
„Það var gaman að sjá hvernig
síðasti leikur þróaðist. Þá skiptust
liðin á að hafa yfirhöndina og greini-
legt var að liðið sem lék af meiri
ákefð hverju sinni hafði yfirhöndina,
bæði framan af leiknum þegar
Haukar voru yfir og þegar kom fram
undir lokin þegar Haukar ætluðu að
verja forskot sitt og ákefðin færðist
yfir til Selfoss-liðsins sem sneri við-
ureigninni sér í hag,“ sagði Rúnar.
„Fyrirfram skiptir mestu máli
hvernig liðin koma inn í leikinn,
hvort annað hafi yfirhöndina þegar
kemur að andlegu hliðinni. Sú hefur
ekki verið raunin til þessa. Margir
hafa velt fyrir sér hvort Selfoss-liðið
geti staðið undir pressunni. Ég velti
því frekar fyrir mér hvernig lið
Hauka er stemmt til að fara í leik
upp á allt eða ekkert.
Eins og staðan er núna þá finnst
með lengra í góðu þættina sem hafa
einkennt Haukaliðið en hjá Selfossi.
Selfoss-liðið hefur leikið betur til
þessa þótt leikur þess sé borinn uppi
af færri leikmönnum en hjá Hauka-
liðinu,“ sagði Rúnar og bendir á að í
þriðja leiknum á sunnudaginn hafi
Haukar lengst af leikið eitt leikkerfi
sem hafi gengið vel. Þegar á leikinn
leið hafi Haukar brotið sig út úr
skipulaginu og reynt aðrar leik-
aðferðir sem hafi alls ekki skilað ár-
angri og varð þess valdandi að Sel-
foss-liðið komst inn í leikinn á nýjan
leik. „Haukar fóru í hnoð sem kann
aldrei góðri lukku að stýra.“
Vinstri vængur Haukanna
Rúnar segir að sóknarleikur
Hauka byggist mjög mikið upp á
vinstri vængnum þar sem annað-
hvort Adam Haukur Baumruk eða
Daníel Þór Ingason eru í aðal-
hlutverki. Fram til þessa hafi hægri
vængurinn verið afar hættulítill
nema á lokasprettinum í annarri við-
ureigninni. „Selfoss-liðið náði að
setja undir lekana í þriðja leiknum. Í
síðasta leik var línuspilið mikið betra
hjá Selfossi. Línuspilið hefur verið
eitt aðalsmerki Haukanna um árabil.
Selfoss-liðið hefur náð að loka á
seinni bylgju sóknarleik Hauka með
því að stöðva menn fram við miðju
og leyfa Ásgeiri Erni Hallgrímssyni
að leika lausum hala á hægri vængn-
um. Í kvöld er spurningin sú hvort
Ásgeiri tekst að nýta plássið sem
hann fær þannig að Haukar komi
seinni bylgjunni inn í sinn leik á ný,“
sagði Rúnar.
Markvarslan skiptir máli
Markvarslan skiptir miklu máli í
jöfnum leikjum. Sölvi Ólafsson reið
baggamuninn fyrir Selfoss-liðið í
fyrstu viðureigninni við Hauka.
Grétar Ari Guðjónsson fór á kostum
í marki Hauka í öðrum leiknum með-
an kollegar hans í marki Selfoss áttu
erfitt uppdráttar. Grétar Ari varði
vel framan af þriðja leiknum en
missti dampinn á lokasprettinum á
sama tíma og Sölvi vaknaði heldur
betur til lífsins í marki Selfoss. Rún-
ar segir markvörsluna vissulega
hafa talsvert að segja. Hinsvegar sé
eins og Selfoss-liðið muni meira um
markvörsluna. „Selfoss-liðið virðist
þurfa færri varin skot til þess að
vinna leiki heldur en Haukar.“
Rúnar segir erfitt að spá um úrslit
leiksins. „Mín tilfinning er sú að
Haukar nái heilsteyptari og jafnari
leik í 60 mínútur og vinni. Þess
vegna komi til oddaleiks um Íslands-
meistaratitilinn. Haukar hafa fleiri
vopn í sínu búri, eru með fleiri skytt-
ur og leikmenn sem geta leikið aðra
uppi. Leikur Selfoss-liðsins er bor-
inn uppi af færri leikmönnum en hjá
Haukum. Kannski er þetta bara
blanda af köldu mati og þeirri von
minni að fá úrslitaleik um Íslands-
meistaratitilinn frekar en nokkuð
annað. En auðvitað munu leikmenn
Selfoss gera allt til þess að vinna
leikinn á fá bikarinn afhentan á
heimavelli. Þeir hafa sýnt það með
ákafaleik sínum að þeir geta alveg
leikið Hauka út í horn,“ sagði Rúnar
Sigtryggsson, þjálfari karlaliðs
Stjörnunnar í handknattleik.
Ákefðin skilar liðum sigri
Fer Íslandsbikarinn á loft í leikslok á Selfossi í kvöld eða verður fjórði útivallar-
sigurinn raunin í rimmunni? Rúnar segir Hauka hafa fleiri vopn í sínu búri
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Selfoss Nökkvi Dan Elliðason skorar fyrir Selfyssinga í fyrri heimaleik
þeirra í úrslitaeinvíginu. Verða þeir meistarar á heimavelli í kvöld?
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Nýr stór humar
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa
Eitt er víst að ég mun sitja
límdur fyrir framan sjónvarpið í
kvöld þegar Selfoss og Haukar
leiða saman hesta sína í fjórða
úrslitaleik liðanna um Íslands-
meistaratitilinn í handbolta
karla á Selfossi.
Úrslitarimma þessara
tveggja bestu liða landsins hef-
ur verið frábær og hefur svo
sannarlega verið góð auglýsing
fyrir íslenskan handbolta.
Selfoss getur brotið blað í
sögu félagsins en með sigri í
kvöld verður liðið Íslandsmeist-
ari í fyrsta sinn. Strákarnir hans
Patreks Jóhannessonar hafa
heillað mig með frábærri spila-
mennsku, seiglu, áræði og
stemningu.
Þeir öðluðust mikla
reynslu á síðustu leiktíð þegar
þeir töpuðu fyrir FH í mögnuðu
undanúrslitaeinvígi og nú er
spurning hvort þeir fari alla leið
og kveðji Patta sinn með titli en
hann yfirgefur Selfoss í sumar
og tekur við starfi danska liðs-
ins Skjern.
Þótt ferskleikinn og hungrið
séu til staðar hjá Selfyssingum
eru reynslan og sigurhefðin
Haukamegin en þeir hafa landað
10 Íslandsmeistaratitlum frá
árinu 2000. Það kæmi mér ekk-
ert á óvart ef Haukunum tækist
að knýja fram hreinan úrslitaleik
á heimavelli sínum á föstudag-
inn. Þeir eru ólseigir og harðir í
horn að taka.
Allir leikirnir í úrslitaeinvíg-
inu hafa unnist á útivelli. Það er
hætt við að ungu strákarnir frá
Selfossi kikni svolítið í hnjánum
þegar þeir berja bikarinn augum
á hliðarlínunni í kvöld. Ég ætla
að spá Haukum sigri og við
fáum þar með oddaleik í troð-
fullri Schenker-höll þar sem
ómögulegt verður að spá um úr-
slit.
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
Sävehof tókst ekki að komast í 2:0 á heimavelli í úr-
slitarimmunni um sænska meistaratitilinn í handknatt-
leik í gær. Ágúst Elí Björgvinsson landsliðsmarkvörður
stóð fyrir sínu í marki Sävehof þegar liðið tók á móti Al-
ingsås í öðrum leik liðanna en Alingsås vann hins vegar
leikinn af öryggi, 22:16. Staðan í rimmunni er því 1:1 og
hafa báðir leikirnir unnist á útivelli.
Ágúst Elí var með 32% markvörslu í marki Sävehof
þar sem hann varði átta af 25 skotum sem hann fékk á
sig, þar af eitt víti. Liðsfélögum hans gekk hins vegar
bölvanlega að skora en staðan var 9:8 fyrir Alingsås að
loknum fyrri hálfleik. Sävehof skoraði ekki mark í tæp-
ar tíu mínútur um miðjan seinni hálfleik. Var það vendipunktur leiksins en
Alingsås komst meðal annars í 17:12 og 20:13.
Liðin mætast í þriðja sinn á föstudaginn á heimavelli Alingsås en vinna
þarf þrjá leiki til að verða meistari. Þar vann Sävehof fyrsta leikinn 33:30
síðasta laugardag. sport@mbl.is
Jafnt í úrslitarimmunni
Ágúst Elí
Björgvinsson
Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur verið
ráðinn þjálfari karlaliðs Keflavíkur
í körfuknattleik en hann tekur við
af Sverri Þór Sverrissyni sem
ákvað að hætta vegna annara
starfa. Hjalti, sem er 36 ára gamall,
var aðstoðarþjálfari Íslandsmeist-
ara KR í vetur en var áður þjálfari
Þórs á Akureyri og Fjölnis. Hjá
Keflavík hittir hann fyrir bróður
sinn, landsliðsmanninn Hörð Axel
Vilhjálmsson. Keflavík endaði í 4.
sæti í vetur en féll út gegn KR í átta
liða úrslitum. vs@mbl.is
Hjalti tekur
við Keflavík
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Keflavík Hjalti Þór Vilhjálmsson
tekur við af Sverri Þór Sverrissyni.