Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 32
Vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans lýkur með tónleikum bassaleik- arans Tómasar R. Einarssonar og saxófónleikarans Óskars Guðjóns- sonar í kvöld kl. 21 á Björtuloftum í Hörpu. Þeir hafa leikið saman í um aldarfjórðung og þá m.a. í latín- tónlistarverkefnum Tómasar. Nú ætla þeir að spila sveiflukenndari tónlist, bæði ný lög eftir Tómas og klassísk djasslög. Ómar Guðjóns- son gítarleikari verður gestur þeirra á tónleikunum. Óskar, Ómar og Tómas MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 142. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Breiðablik og Valur hafa náð sex stiga forskoti eftir leiki sína í fjórðu umferð Pepsí-deildar kvenna í knattspyrnu. Hafa þau unnið alla fjóra leiki sína til þessa. Stjarnan og Fylkir mætast í kvöld. Þá mun þetta forskot minnka þar sem þau eru bæði með 6 stig. Keflavík er eitt liða án stiga en var nálægt stigi á Selfossi í gær. »26-27 Breiðablik og Valur með fullt hús stiga ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Ég hef það á tilfinningunni eftir þrjá fyrstu leikina að um leið og menn byrja að verja forskot þá komi það í bakið á þeim. Menn sigri á ákafanum,“ sagði Rúnar Sigtryggs- son, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í handknattleik, meðal annars þegar Morgunblaðið spurði hann út í leik- inn mikilvæga á Selfossi í kvöld. Selfyssingar og Haukar mætast í fjórða leik í úrslitarimmunni í hand- knattleiknum. »25 Ákefðin getur skipt sköpum á Selfossi Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Systkinin Gestur, Eiríkur Logi og Guðbjörg Vala, börn Guðrúnar Gestsdóttur og Gunnars Skúlasonar, urðu samtals fimmfaldir Íslands- meistarar í borðtennis á dögunum. Skúli og Pétur, eldri bræður þeirra, hafa einnig fagnað Íslandsmeistara- titlum í greininni, móðirin líka, en hún gat sér gott orð í körfuboltanum og faðirinn í fótboltanum á árum áð- ur. Íþróttaáhuginn leynir sér ekki á heimilinu í Vesturbænum og vel fer um borðtennisborðið, þar sem systk- inin æfa sig reglulega fyrir utan hefðbundnar æfingar hjá KR. Þau hafa verið í ýmsum íþróttum, en nú á borðtennis nær allan hug þeirra. „Þetta er svo gaman,“ segja þau nánast í kór, þegar spurt er um valið. Eiríkur er á 14. ári, en hann byrj- aði að æfa borðtennis 10 ára. „Mér fannst mjög gaman að spila hérna heima en bræður mínir voru að æfa svo ég ákvað að fylgja þeim eftir.“ Gestur, sem er nær 18 ára, segist reyndar ekki hafa byrjað að æfa borðtennis fyrr en hann var 13 ára. „Ég hafði ekki áhuga á íþróttinni og gaf henni ekki tækifæri, en þegar ég byrjaði féll ég fyrir henni og hef ver- ið í borðtennis síðan.“ „Ég byrjaði eiginlega á síðasta ári bara vegna þess að fjölskylda mín var í borðtennis,“ segir Guðbjörg, sem er átta ára og sennilega yngsta stúlkan sem kemst í 1. flokk kvenna, að því er fram kemur á vef Borð- tennissambands Íslands. „Þetta er frétt fyrir mig, en ég hafði alltaf mik- inn áhuga á borðtennis og einn dag- inn langaði mig bara að byrja að æfa.“ Eiríkur áréttar að borðtennis sé mjög gefandi íþrótt. „Félagsskap- urinn er góður, það er alltaf gaman á æfingum, þjálfararnir eru skemmti- legir og síðast en ekki síst er mjög gaman að spila borðtennis,“ segir hann. „Ég er eiginlega alveg sam- mála honum,“ segir Guðbjörg. Gest- ur tekur í sama streng. „Það jafnast fátt á við það að hitta góða bolta á borðið, það verður aldrei leiðinlegt. Það verður líka einfaldara eftir því sem maður verður betri og mín upp- lifun er sú að það verður alltaf skemmtilegra að æfa eftir því sem getan eykst.“ Skýr markmið Guðbjörg æfir tvisvar í viku, en er líka að læra á píanó og gítar. „Mér fannst svolítið skrýtið þegar ég varð fyrst meistari, en gaman, og ég ætla að halda áfram. Fyrirmyndirnar mínar eru fjölskyldan mín.“ „Ég ætla að verða bestur á Ís- landi,“ segir Eiríkur, sem varð þre- faldur Íslandsmeistari undanfarin tvö ár og tapaði aðeins tveimur lot- um, en vann annars allar viðureignir 3:0. Gestur hækkaði mest íslenskra borðtennisspilara á styrkleikalist- anum í fyrra og er með um 1.640 stig. Hann segist hafa sett sér mark- mið og náð þeim. „Ég hef unnið markvisst að sigri, æft vel og und- irbúið mig andlega fyrir hverja keppni. Ég ætla að ná eins langt og ég kemst, tryggja mér sæti í lands- liðinu og vonandi næ ég að spila með erlendu félagsliði einhvern daginn.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borðtennis Systkinin Gestur, Eiríkur Logi, Guðbjörg Vala og Gestur með hluta verðlaunasafnsins. Borðtennis í blóðinu  Fimm systkini hafa orðið Íslandsmeistarar í borðtennis  Foreldrarnir gátu sér gott orð í körfubolta og fótbolta BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 SKAPAÐU ÞINN EIGIN STÍL MEÐ EDGE SKÁPAEININGUNUM FRÁ HAMMEL. ótal möguleikar á uppröðun og útfærslum. Þú velur hvort þú hengir skápana upp eða setur fætur undir. nokkrir litir og litasamsetningar í boði. Dönsk hönnun og framleiðsla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.