Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019
5. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Byrjun Valsmanna á Íslandsmóti
karla í fótbolta er orðin að verstu
byrjun ríkjandi Íslandsmeistara í
sautján ár. Eftir ósigur gegn FH í
bráðfjörugum leik í Kaplakrika í
fyrrakvöld, 3:2, situr Hlíðarendaliðið
eftir með aðeins fjögur stig að lokn-
um fimm fyrstu umferðunum og er í
níunda sæti deildarinnar.
Það þarf að fara allt aftur til árs-
ins 2002 til að finna verri byrjun
ríkjandi meistara í deildinni. Eins
merkilegt og það er þá átti núver-
andi topplið deildarinnar, ÍA, þá í
hlut. Skagamenn urðu meistarar í
átjánda skipti árið 2001 en þeir fóru
afar illa af stað vorið eftir. Að fimm
umferðum loknum sátu þeir á botni
deildarinnar með aðeins 2 stig. Þeim
tókst að klifra upp í miðja deild um
mitt mót og enda að lokum í fimmta
sæti en áttu aldrei möguleika á að
verja meistaratitilinn.
Skagamenn halda hinsvegar sínu
striki, unnu Breiðablik 1:0 í Kópa-
vogi og eru áfram í nákvæmlega
sömu stöðu og árið 2012. Þá voru
þeir líka efstir að loknum fimm um-
ferðum með 13 stig og með þriggja
stiga forskot á næstu tvö lið sem þá
voru KR og FH.
Bara tveir „toppleikir“ til þessa
Staðan í deildinni er áhugaverð í
því ljósi hve lítið hefur verið ennþá
um innbyrðis leiki milli fimm efstu
liðanna frá því í fyrra, þeirra fimm
liða sem flestir virtust spá að ættu
efstu sætin frátekin. Það eru Valur,
Breiðablik, Stjarnan, KR og FH. Af
þessum liðum hafa bara Stjarnan –
KR og FH – Valur mæst innbyrðis.
Breiðablik hefur t.d. bara mætt
„lægra skrifuðum“ liðum.
Á hinn bóginn má segja að Vík-
ingur, KA og HK hafi átt erfiðustu
byrjunina á mótinu því þessi þrjú lið
hafa öll þurft að mæta fjórum af
fimm efstu liðunum frá 2018 í fimm
fyrstu umferðum deildarinnar.
Í næstu leikjum fjölgar mjög inn-
byrðis viðureignum „stærri“ og
„minni“ liðanna og þá verður áhuga-
vert að sjá hvernig stigin dreifast. Í
næstu umferð leikur til dæmis Valur
við Breiðablik og þar á eftir mætast
Breiðablik – FH og Stjarnan – Val-
ur.
Klettur í vörn Grindvíkinga
Króatíski miðvörðurinn Josip
Zeba var besti leikmaður 5. umferð-
arinnar að mati Morgunblaðsins en
hann átti stórgóðan leik þegar
Grindvíkingar sigruðu Fylki 1:0.
Zeba var sem klettur í vörn Suður-
nesjaliðsins og átti stóran þátt í að
það hélt hreinu í leiknum og hann
kórónaði frammistöðu sína með því
að skora sigurmarkið með skalla
seint í leiknum.
Zeba skoraði þar sitt fyrsta mark í
deildinni en hann hafði áður skorað í
bikarkeppninni í vor. Þetta er hans
fyrsta tímabil með Grindavík. Zeba
er 29 ára gamall og lék í B- og C-
deildunum í Króatíu en síðan tvö
tímabil með Aluminij í efstu deild í
Slóveníu, hálft tímabil með Con-
cordia Chiajna í efstu deild í Rúmen-
íu og lék síðan í hálft tímabil í Víet-
nam með Hoang Anh Gia Lai áður
en hann kom til Íslands í vetur.
Fótboltaættin á Akranesi
Skagamaðurinn Stefán Teitur
Þórðarson var besti ungi leikmað-
urinn í 5. umferðinni að mati Morg-
unblaðsins. Stefán Teitur var í lykil-
hlutverki á miðjunni þegar ÍA lagði
Breiðablik í toppslagnum á Kópa-
vogsvelli og sigurmarkið í blálokin
kom eftir skot hans að marki. Stefán
Teitur er tvítugur og í fyrra skoraði
hann 10 mörk sem sóknarmaður
þegar ÍA vann 1. deildina en nú er
hann kominn í annað hlutverk á
miðjunni sem hann hefur skilað vel.
Stefán er af stórri fótboltaætt á
Akranesi. Langafi hans, Þórður Þ.
Þórðarson, var mikill markaskorari
í hinu sigursæla gullaldarliði ÍA og
með íslenska landsliðinu, afabræður
hans eru Teitur og Ólafur Þórð-
arsynir, margreyndir landsliðsmenn
og síðan þjálfarar, faðir hans er
Þórður Þórðarson sem varði mark
ÍA um árabil og hefur þjálfað yngri
landslið stúlkna undanfarin ár, föð-
urbróðir hans er Stefán Þór Þórð-
arson sem lék m.a. með ÍA, Norr-
köping, Stoke og íslenska
landsliðinu, og bróðir Stefáns, Þórð-
ur Þorsteinn Þórðarson, leikur með
honum í Skagaliðinu í dag.
Einar Logi Einarsson, sem
skoraði sigurmark ÍA gegn Breiða-
bliki, hafði áður aðeins skorað eitt
mark í efstu deild. Það var fyrir sjö
árum, 2012, þegar hann skoraði í leik
gegn Keflavík.
Auk Josips Zeba skoruðu tveir
leikmenn í fyrsta sinn í deildinni í 5.
umferð. Kári Pétursson sem gerði
stórglæsilegt mark fyrir HK gegn
KR og Ólafur Aron Pétursson sem
skoraði fyrra mark KA í 2:0 útisigr-
inum á Stjörnunni.
Eini nýliði umferðarinnar var
Finnur Tómas Pálmason, 18 ára
miðvörður sem lék í vörn KR gegn
HK. Hann spilaði sem lánsmaður
með Þrótti í 1. deild í fyrra en þetta
var hans fyrsti leikur í efstu deild.
KR varð með sigrinum gegn
HK, 3:2, fyrsta félagið til að ná sam-
anlagt 1.900 stigum í efstu deild
karla. KR er 114 stigum á undan Val
sem er í öðru sæti.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 6
Guðmundur Kristjánsson, FH 5
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 5
Óskar Örn Hauksson, KR 5
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 5
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 5
Almarr Ormarsson, KA 4
Ásgeir Marteinsson, HK 4
Damir Muminovic, Breiðabliki 4
Einar Logi Einarsson, ÍA 4
Einar Karl Ingvarsson, Val 4
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 4
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 4
Jónatan Ingi Jónsson, FH 4
Leikmenn með þrjú M: Alex Þór
Hauksson, Stjörnunni, Aron Jóhannsson,
Grindavík, Árni Snær Ólafsson, ÍA, Ásgeir
Eyþórsson, Fylki, Birkir Valur Jónsson,
HK, Björgvin Stefánsson, KR, Björn Berg
Bryde, HK, Björn Daníel Sverrisson, FH,
ÍA 33
KA 27
FH 25
Breiðablik 24
KR 24
Víkingur R. 23
Grindavík 22
HK 22
Stjarnan 21
Valur 19
Fylkir 18
ÍBV 14
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
5. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
3-4-3
Beitir Ólafsson
KR
Brandur Olsen
FH
Björgvin Stefánsson
KR
Stefán Teitur
Þórðarson
ÍA
Víðir
Þorvarðarson
ÍBV
Ólafur Karl
Finsen
Val
Elfar Árni
Aðalsteinsson
KA
Marc McAusland
Grindavík
Josip Zeba
Grindavík
Tryggvi Hrafn Haraldsson
ÍA
Torfi Tímoteus
Gunnarsson
KA
2
2
4
2
Brandur Olsen, FH, Daði Ólafsson, Fylki,
Elias Tamburini, Grindavík, Eyjólfur
Héðinsson, Stjörnunni, Finnur Orri
Margeirsson, KR, Guðjón Baldvins-
son, Stjörnunni, Gunnar Þorsteinsson,
Grindavík, Gunnleifur Gunnleifsson,
Breiðabliki, Haukur Heiðar Hauksson, KA,
Hjörtur Logi Valgarðsson, FH, Höskuldur
Gunnlaugsson, Breiðabliki, Josip Zeba,
Grindavík, Júlíus Magnússon, Víkingi,
Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki, Marcus
Johansson, ÍA, Matt Garner, ÍBV, Ólafur
Örn Eyjólfsson, HK, Pálmi Rafn Pálma-
son, KR, Rick ten Voorde, Víkingi, Sam
Hewson, Fylki, Sölvi Geir Ottesen, Víkingi
og Víðir Þorvarðarson, ÍBV
Ríkjandi meistarar hafa ekki byrjað jafn illa frá 2002 Zeba bestur í 5. um-
ferð og Stefán besti ungi leikmaðurinn Fáir innbyrðis leikir „bestu“ liðanna
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Bestur Josip Zeba lék mjög vel með
Grindvíkingum gegn Fylki.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ungur Stefán Teitur Þórðarson
leikur vel á miðjunni hjá ÍA.
Versta byrjunin í 17 ár
HANDKNATTLEIKUR
Fjórði úrslitaleikur karla:
Hleðsluhöllin: Selfoss – Haukar (2:1) . 19.30
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Samsung-völlur: Stjarnan – Fylkir..... 19.15
3. deild karla:
Framvöllur: Kórdrengir – Reynir S ........ 20
Í KVÖLD!
Kvennalandslið Íslands í knatt-
spyrnu mætir Finnlandi í tveimur vin-
áttulandsleikjum í næsta mánuði.
Báðir leikirnir fara fram í Finnlandi, sá
fyrri í Turku 13. júní og sá seinni í
Espoo á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Þetta verða síðustu leikirnir fyrir und-
ankeppni EM þar sem Ísland mætir
Ungverjalandi og Slóvakíu 29. ágúst
og 2. september.
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik skipað leikmönnum 21 árs og
yngri leikur í D-riðli heimsmeistara-
mótsins á Spáni 16.-28. júlí en dregið
var í riðla í gær. Íslensku strákarnir
mæta Danmörku, Þýskalandi, Noregi,
Síle og Argentínu í riðlakeppninni.
Elías Már Ómarsson sóknarmaður
Excelsior var í gær útnefndur besti
leikmaður maímánaðar í hollensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu. Elías skor-
aði fjögur mörk í þremur síðustu leikj-
um liðsins en hann og Dusan Tadic hjá
Ajax urðu markahæstir í deildinni í
maí. Excelsior er nú í umspili um sæti í
deildinni. Liðið tapaði þar fyrri leik sín-
um gegn RKC Waalwijk, 2:1, og þarf að
snúa því við á heimavelli í kvöld, að
öðrum kosti er liðið fallið.
Eitt
ogannað