Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Platinum Litur: Magma red, svartur að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í belti í aftursæti. VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Chrysler Pacifica Hybrid Limited Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél, Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl. o.fl. 3,6 L Hybrid. VERÐ 8.490.000 m.vsk 2019 GMC Denali 3500 Litur: Silver, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel. Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, geymsla undir aftursæti, heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira. VERÐ 11.360.000 m.vsk 2018 Ford F-150 Platinum Ekinn 10.000 km. Litur: Platinum white / svartur að innan. Upphækkaður, tölvubreyting 431 hö, lok á palli, Ceramic húðaður. Quad-beam LED hedlights, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20” felgur. 3,5 L Ecoboost (V6). 10-gíra, 431 hestöfl 470 lb-ft of torque. VERÐ 11.790.000 m.vsk Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Poppkórinn Vocal Project heldur vortónleika sína í Guðríðarkirkju á morgun, 23. maí, kl. 20 og segir á miðasöluvefnum tix.is að lögin sem flutt verða séu í fjölbreyttum, skemmtilegum og krefjandi út- setningum. Gunnar Ben, stjórnandi kórs- ins, segir kórinn njóta fulltingis þriggja hljóð- færaleikara sem verði þó allir „unplugged“, þ.e. leiki ekki á raf- magnshljóðfæri. „Það er stuð í kirkjunni. Þetta er órafmagnað stuð,“ segir Gunnar kíminn. Blaðamaður ræddi líka við Gunn- ar í fyrra um vortónleikana þá sem voru með ákveðnu þema, „Goðsagn- ir“, en á tónleikunum nú verður önnur áhersla. „Þemað er í rauninni núna það sem okkur langar að syngja. Ég ætla ekki alveg að kalla þetta óskalög kórfélaga en nú ákváðum við bara að syngja svolítið hressilegt prógramm og hress popplög eru í miklum meirihluta,“ segir Gunnar. Sem dæmi nefnir hann að kórinn muni syngja lög úr kvikmyndum, m.a. The Greatest Showman og teiknimyndinni Sing!, A Star is Born og lög með Pink og Hosier. Ekki þrúgað af hátíðleik –En er eitt af markmiðum kórs- ins að tónleikarnir séu fjöl- skylduvænir? Nú er eitt lag úr teiknimynd á efnisskránni. „Ég held að við séum alltaf með eitt teiknimyndalag, ég held að það sé samt óvart en langoftast laumast það með,“ svarar Gunnar. „Aðallega er þetta fjölskylduvænt af því það er svo mikið stuð og þetta er ekki þrúgað af hátíðleik. Við skemmtum okkur á tónleikum og þá á yngri kynslóðin auðvelt með að hrífast með því og auðvitað bara allir.“ –Það er snúið við poppkór að þurfa að útsetja öll lög fyrir fjórar raddir eða fleiri því lögin voru ekki samin með kór í huga upphaflega, ekki satt? „Það er rétt. Ég útset alltaf reglulega en ég á enga útsetningu á þessum tónleikum og það er í fyrsta skipti, að ég held,“ svarar Gunnar. Hann finni nótur að lögum í vef- verslunum. „Það eru merkilega margir í þessum bransa, að út- setja.“ –Það hlýtur að vera snúið að setja saman efnisskrána og margra klukkustunda leit þar að baki? „Jú og það vill svo til að ég er með lagavalsnefnd, það eru alltaf fjórir kórfélagar í þessu með mér og þá deilast þessir klukkutímar mjög fallega jafnt niður. Þau taka við hugmyndum og ábendingum frá kórfélögum og þá dreifist þetta ennþá meira.“ Tvennir tónleikar –Leggurðu mikið á fólkið í kórn- um? „Alltaf,“ svarar Gunnar og hlær við. „Aðalpressan núna á vorönninni hefur samt verið að við erum að undirbúa í raun tvenna tónleika í einu. Við erum með tónleika í sept- ember sem við höfum verið að vinna í meðfram þessum og erum að fara strax núna eftir tónleika út á land í upptökubúðir að taka upp þrjú lög.“ –Er þetta samviskusamur kór? Er fólk búið með heimanámið þegar það kemur á æfingu eða stendur einhver úti í horni og veit ekkert hvað er að gerast? „Það er mjög sjaldgæft að fólk standi og viti ekki hvað það á að gera. Við hittumst vikulega og þau hittast þess utan og halda raddæf- ingar. Þegar styttist í tónleika eru raddirnar farnar að hittast alla vega vikulega fyrir utan æfingarnar okkar,“ svarar Gunnar. Kórliðar hugsi vel hver um annan og gæti þess að allir séu vel með á nót- unum. Blaðlaust og skemmtilegt Blaðamaður spyr hvort kórinn syngi með möppur og segir Gunnar nei, öll lög og textar séu lærð utan- bókar og sungin. „Það er aaaaalveg bannað og ein af reglum kórsins,“ segir Gunnar um möppuleysið. „Tvær mikilvægustu reglur kórsins eru að við syngjum blaðlaust og það er gaman að syngja,“ ítrekar hann. Gunnar er spurður að því hvaða lag eða lög hafi verið hvað erfiðust fyrir kórinn að æfa. Hann hugsar sig vel um og nefnir svo „brjál- æðislega flókna“ a capella útsetn- ingu af Queen-laginu „You Take My Breath Away“. Útsetningu fyrir sjö raddir þar sem raddirnar gegna m.a. hlutverkum hljóðfæra og bak- radda. „Lagið er í rauninni fyrir hausttónleikana en við ætlum að lauma því að, gefa dálítinn for- smekk. Útsetningin er svakalega flókin en óhemjufalleg,“ segir Gunnar um Queen-slagarann. Raddirnar fari upp og niður og út um allt og útsetningin bjóði upp á skemmtileg og óvænt hljóma- sambönd sem reyni mjög á eyru gesta og raddbönd kórsöngvara. Úr mörgum áttum Flest lögin eru með undirleik, að sögn Gunnars. Kjartan Valdemars- son leikur á flygil, Ingólfur Magn- ússon á kontrabassa og Jón Geir Jóhannsson, trommari og félagi Gunnar í hljómsveitinni Skálmöld, leikur á cajón. Það er því valinn maður í hverju rúmi, eins og oft er sagt. En má segja eitthvað meira um efnisskrána? „Nei, ég held bara ekki, nema að eins og okkar er von á vísa eru lögin úr mjög mörgum áttum en fjölbreytt og áheyrileg engu að síður,“ svarar Gunnar. Frekar upplýsingar um kórinn má finna á Facebook-síðu hans og miðasala á tónleikana fer eingöngu fram á tix.is. Ljósmynd/Ólafur Már Svavarsson Poppkór Vocal Project flytur kunna poppsmelli í kórútsetningum í Guðríðarkirkju annað kvöld kl. 20. „Órafmagnað stuð“  Vocal Project syngur ýmsa góðkunna smelli á vortón- leikum sínum  Hress popplög í miklum meirihluta Gunnar Ben Úthlutað var úr nýjum barna- og ungmennabókasjóði í fyrsta sinn í gær. Stofnun sjóðsins er liður í að- gerðaáætlun mennta- og menning- armálaráðherra um eflingu íslensk- unnar og er ætlað að styrkja útgáfu vandaðs efnis fyrir yngri lesendur. Miðstöð íslenskra bókmennta sér alfarið um rekstur sjóðsins, en sjóð- urinn hefur hlotið nafnið Auður. Útgefendur sóttu um styrki til út- gáfu 60 bóka en þær 20 sem hljóta styrki að þessu sinni eru af ýmsu tagi, allt frá myndskreyttum smá- barnabókum upp í langar texta- bækur fyrir ungmenni. Styrkirnir eru frá 250 til 500 þúsund krónur hver, en heildarstyrkupphæðin nemur sjö milljónum króna. Verkin sem hljóta styrki eru Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur; Hús- ið í september (vinnutitill) eftir Hilmar Örn Óskarsson; Þriggja heima saga #5 (titill ókominn) eftir Kjartan Yngva Björnsson og Snæ- björn Brynjarsson, myndhöfundur Bergrún Íris Sævarsdóttir; Kopar- eggið eftir Sigrúnu Eldjárn; Ungfrú fótbolti 1980 (vinnuheiti) eftir Brynhildi Þórarinsdóttur; Veröld vættanna – Bergrisinn vaknar eftir Margréti Tryggvadótt- ur, myndhöfundar M74. Studio (Guðmundur Bernharð og Silvia Pérez); Nei, nei, nei! eftir Birtu Þrastardóttur; Randalín, Mundi og leyndarmálið eftir Þórdísi Gísla- dóttur, myndhöfundur Þórarinn M. Baldursson; Nornasaga eftir Krist- ínu Rögnu Gunnarsdóttur; Sjáðu! eftir Áslaugu Jónsdóttur; Nær- buxnaverksmiðjan 2 eftir Arndísi Þórarinsdóttur, myndhöfundur er Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson; Miðbæjarrottan eftir Auði Þórhalls- dóttur; Vigdís F. eftir Rán Flygen- ring; Hvíti ásinn eftir Jóhönnu Sveinsdóttur; Langelstur að eilífu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur; Álfarannsóknin eftir Bennýju Sif Ísleifsdóttur, myndhöfundur er El- ín Elísabet Einarsdóttir; Fjalla- verksmiðja Íslands eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur; Draumaþjóf- urinn eftir Gunnar Helgason; Ys og þys út af ... ÖLLU! eftir Hjalta Halldórsson og Leitin að vorinu (vinnuheiti) eftir Sigrúnu Elíasdótt- ur, myndhöfundur Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson. Barna- og ungmennabækur styrktar Bergrún Íris Sævarsdóttir Þórdís Gísladóttir Arndís Þórarinsdóttir Hildur Knútsdóttir Söngvararnir Kristján Jóhannsson og Geir Ólafsson koma fram með Þóri Baldurssyni píanóleikara og flytja lög úr ítölsku og amerísku söngbókunum á sýningu í Hótel Grímsborgum en kynnir og gest- gjafi er Ebba Guðný Guðmunds- dóttir. Fyrsta sýning var 18. maí og þær næstu verða 8., 15. og 22. júní. Meðal sígildra og sívinsælla laga sem þeir félagar flytja eru „Vol- are“, „My Way“, „Torna a surri- ento“, „New York, New York“, „O sole mio“, „Blue Spanish Eyes“, „Nella fantasia“, „Love Me Ten- der“, „Wonder of You“, „Con te partiró“, „I’ve Got You Under My Skin“ og „Fly Me To The Moon“ sem ýmsir heimskunnir ssöngv- arar hafa spreytt sig á í gegnum tíðina. Kristján, Geir og Þórir flytja lög úr amerísku og ítölsku söngbókunum Vinir Söngbræðurnir Kristján og Geir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.