Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.05.2019, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019 ✝ Jón Einarssontrésmíðameist- ari fæddist á Jarls- stöðum í Aðaldal 28. júlí 1957. Hann lést á Landspítal- anum Fossvogi 11. maí 2019. Foreldrar Jóns voru Einar Jónsson, f. 24. nóvember 1927, d. 10. maí 2009, og Fríða Ey- dís Kristjánsdóttir, f. 2. júlí 1936, d. 19. október 2017, bænd- ur á Hjarðarhaga í Aðaldal. Systkini Jóns eru Kristján, f. 11. maí 1954, Eyþór, f. 19. apríl 1964, d. 17. mars 1995, og Krist- ín Hrönn, f. 8. desember 1965. Jón giftist Guðnýju Báru barnaskólann í Aðaldal við Staðarhól. Eftir fermingu fór Jón í Laugaskóla og þaðan lá leiðin í Iðnskólann á Húsavík að læra smíðar. Hann lauk sveins- prófi og var á samningi hjá Stef- áni Óskarssyni húsasmíðameist- ara í Trésmiðjunni Rein á Húsavík. Jón flutti til Reykjavíkur árið 1983 en bjó lengst af í Hafn- arfirði. Hann starfaði við iðn sína alla tíð og stofnaði árið 2002 sitt eigið fyrirtæki, Staf- gólf, sem sérhæfði sig í lagningu parkets og íþróttagólfa. Jón sat um tíma í stjórn handknattleiks- deildar Hauka. Hann sinnti sauðburði og heyskap í heima- sveit sinni og stundaði veiðar í Laxá. Útför Jóns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 22. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Magnúsdóttur, f. 24. maí 1959, og eignaðist með henni þrjú börn. Þau eru: 1) Íris, f. 31. maí 1980, maki hennar er Har- aldur Örn Sturlu- son. Synir þeirra eru Sturla, Flóki, Torfi og Brynjar. 2) Einar, f. 2. janúar 1987. 3) Alma, f. 18. janúar 1988, maki hennar er Matthías Árni Ingimarsson. Börn þeirra eru Jón Ingi og ný- fædd dóttir. Jón og Guðný Bára slitu samvistum. Jón ólst upp í foreldrahúsum á Hjarðarhaga í Aðaldal og var í heimakennslu þar til hann fór í Mig langar til að kveðja hér kæran lífsförunaut og vin, Jón Einarsson frá Hjarðarhaga í Aðaldal. Jónsi var Þingeyingur með stóru Þ. Hann hafði sterka teng- ingu við sveitina sína og heima- hagana. Var stoltur af sínum frændgarði og naut þess að fara norður og gera gagn. Við kynntumst á dansiballi fyrir rúmum fjörutíu árum og ákváðum fljótlega að rugla sam- an reytum og dansa saman í gegnum lífið. Allir þeir sem alast upp í bændasamfélagi vita hversu mikilvægar afurðir eru, hvers virði þær eru í lífsbaráttunni og hversu mikilvægt er að leggja alúð og natni í vinnuna. Það voru þín einkennisorð. Afurðir sambúðar okkar Jónsa eru þrjú yndisleg börn, Íris, Einar og Alma, sem hvert á sinn hátt hafa gefið okkur tæki- færi til að kynnast því stórkost- lega hlutverki að vera foreldri og svo síðar afi og amma. Lífið okkar saman var skemmtilegt og lærdómsríkt ferli. Við eigum margar frábærar minningar um fjölskyldusamveru sem ég vil þakka þér fyrir. Þú varst alltaf betri dansari en ég þó svo að ég hafi reynt, fram í rauðan dauðann, að taka stjórnina í mínar hendur og ár- angurinn verið eftir því. Ég er ekki sú besta að dansa við. Við dönsuðum ekki alltaf í takt, stundum alveg út og suður og jafnvel ekki sama dansinn. Það kom þó fyrir að við héldum takti og áttum virkilega góða tíma saman sem ég vil þakka þér fyrir, elsku Jónsi minn. Takk fyrir að gera mér kleift að vera mikið heima hjá börnunum okk- ar, taka þátt í lífi þeirra og vera til staðar þegar þau þurftu á að halda. Það var áfall fyrir okkur öll í fjölskyldunni þegar heilsu þinni fór að hraka og þú, kletturinn, þurftir að fá mikla aðstoð við þitt daglega líf. Þá kom svo sannarlega í ljós hvað og hvar þú hafðir lagt inn og áttir góða að. Börnin þín, tengdasynir og barnabörnin sem þú varst svo innilega stoltur af lögðust öll á eitt að gera þér lífið sem best. Það er með trega og sorg sem ég skrifa þessa kveðju til þín, kæri Jónsi. Lítil afastelpa sem kom í heiminn 15. maí sl. á eftir að gleðja okkur og verma kalda daga. Sturla, Flóki, Torfi, Jón Ingi og Brynjar taka örugglega vel á móti henni fyrir afa, gæta hennar og leiða út í lífið. Ég vil líka þakka þér enn og aftur fyrir að hafa tekið því þegjandi og hljóðalaust að pabbi minn flytti í kjallarann hjá okk- ur og alltaf varstu boðinn og bú- inn að aðstoða hann. Kæri Jónsi minn, takk fyrir að hafa tekið mér eins og ég er og gefið mér frelsi til að vera ég sjálf, vera þolinmóður, staðfast- ur, heiðarlegur og traustur. Elsku Íris, Einar, Alma, Halli, Matti og barnabörnin okkar. Síðustu tvö ár hafa verið ykkur erfið og krefjandi en á móti koma margar dýrmætar gleði- stundir sem við getum sannar- lega verið þakklát fyrir. Þið eig- ið öll skilið hrós og þakkir. Takk, elsku þið, fyrir að vera fjölskyldan mín sem stendur saman í gleði og sorg. Það er ómetanlegt að eiga ykkur að. Hvíldu í friði, kæri Jónsi minn. Guðný Bára Magnúsdóttir. Elsku pabbi minn, það er ótrúlega erfitt að setjast niður og skrifa þessi orð. Ég stend á skrítnum tímamótum þessa dag- ana. Að kveðja þig er eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera en á sama tíma veit ég að þú heldur áfram að vaka yfir mér og vernda mig. Þú kenndir mér svo margt og það sem situr fastast eftir er að vera dugleg, klára verkefnin mín, vera vinur vina minna og vera ávallt tilbúin að hjálpa öðrum. Ég er svo þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt saman og þá sérstaklega í sveitinni okkar góðu, þú elskaðir Aðaldal- inn þinn og passaðir vel upp á að við systkinin fengjum að njóta hans með þér. Ég var alltaf örugg þegar þú varst með mér því ég vissi að þú varst alltaf til staðar og tilbúinn að grípa mig, sama hversu hátt fallið var. Ég er svo ótrúlega heppin að eiga einn lítinn Jónsa sem minn- ir mig á þig á hverjum degi með sínum einstaka húmor og hjálp- semi. Hann mun fá að heyra all- ar sögurnar af þér, meira að segja þær þar sem þú tókst upp á því að stríða einhverjum sem þér fannst ekki leiðinlegt. Litla afastelpan þín fæddist 15. maí sl. og ég veit fyrir víst að þú varst með mér þennan dag þar sem hún kom í heiminn á ótrúlegum hraða og jarmaði strax eins og lítið lamb frá Hjarðarhaga. Þó svo að þetta hafi ekki verið fæðingardagur- inn sem þú óskaðir er ég alveg viss um að þú ert jafn hamingju- samur með hana og við erum, litla ljósið okkar á þessum erfiðu tímum. Ég gæti haldið endalaust áfram og rifjað upp allar góðu minningarnar en ég ætla geyma það til betri tíma, við munum hittast aftur elsku pabbi minn – bara ekki alveg strax. Takk fyrir allt elsku pabbi, takk fyrir að vera alltaf til stað- ar fyrir mig og standa með mér í gegnum allar þær leiðir og króka sem ég hef farið í lífinu. Ég lofa þér því að ég mun halda áfram að vera sterk og hugsa vel um afabörnin þín sem þú varst svo stoltur af. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu, er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisinn, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Bless, pabbi minn, ég mun ávallt sakna þín. Þín dóttir, Alma. Elsku tengdafaðir og afi. Það er skrítin tilfinning að setjast niður og skrifa þessi orð þar sem maður trúði því svo innilega að við ættum eftir að fá meiri tíma með þér. En þegar sorgin bank- ar upp á horfir maður til baka og fyllist hlýju í hjarta og þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við náðum saman. Sá tími sem nafni þinn hann Jón Ingi fékk með þér er ómet- anlegur og þó svo að litla afa- stelpan þín fái ekki að kynnast þér frá fyrstu hendi mun öll fjöl- skylda þín svo sannarlega sjá til þess að þau bæði fái að heyra sögur af þér og kynnast betur yndislega, fyndna og stríðna afa Jónsa. Við Alma huggum okkur við það að andi þinn vakti yfir okkur á fæðingardeildinni þegar afa- stelpan kom í heiminn fyrir viku og að þið hafið náð að hitta hvort annað á miðri leið, þó ekki nema í skamma stund. Og þó svo að á þessari stundu sé stórt skarð í hjörtum okkar munu hlýjar og góðar minningar um þig fylla það með tímanum og minning þín mun lifa um ókomna tíð. Þinn tengdasonur, Matthías Árni og barnabörn. Við kveðjum í dag Jón Ein- arsson, eða Jónsa tengdó eins og ég kallaði hann iðulega. Jónsi minn hafði glímt við erfiðan sjúkdóm síðustu tvö árin sín sem að endingu tók hann frá okkur. Mig langar að minnast Jónsa sem yfirburða góðmennis sem gerði allt fyrir fólkið sitt og meira til. Hann tók mér strax opnum örmum inn í fjölskylduna og var okkur Írisi sannkölluð stoð og stytta í lífi okkar allt til æviloka. Jónsi var góður afi sona okkar Írisar og það er mikill söknuður að honum á heimilinu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna með honum á sumrin í nokkur ár við parketlagningu og lærði heilmikið til verka á þeim tíma. Þótt margir minnist hans sem þrælduglegs og ráðagóðs fagmanns var hann mér ekki síður góður vinur og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Jónsi hafði sérstakt dálæti á ættfræði og ekki leið á löngu þar til hann gat rakið ættir mínar með töluvert meiri vissu en ég sjálfur. Tímarnir í Aðaldalnum voru í sérstöku uppáhaldi. Þar var okkar maður í essinu sínu. Við fengum að kynnast búskap, heyskap og veiðiskap þar sem hann lagði mikið upp úr að allir fengju hlutverk, stórir sem smá- ir. Í sveitinni var hann aðalmað- urinn, þekkti alla, spjallaði við alla og hjálpaði öllum. Allir í kringum hann nutu góðs af þekkingu hans í faginu og hann var alltaf boðinn og búinn að að- stoða og gefa góð ráð. Það var í raun sama hvað maður bar upp við hann, alltaf var hann lausna- miðaður og ef hann gat ekki leyst málið sjálfur þekkti hann alltaf einhvern sem var hluti af lausninni og átti jafnvel inni greiða þar. Við deildum dálæti á íþróttum og gátum rætt þær út í hið óendanlega. Jónsi var mikill Haukamaður og fylgdist vel með allt til hins síðasta. Við kveðjum góðmennið, afann og tengdaföð- ur minn sem fór allt of snemma frá okkur. Hans verður sárt saknað en jafnframt minnst fyr- ir allar góðu stundirnar sem hann gaf okkur. Ég veit að Jónsi er á góðum stað núna, ef ein- hver. Þinn tengdasonur, Haraldur Örn Sturluson. Jónsi frændi minn fæddist daginn sem ég var skírð og for- eldrar mínir giftu sig, þann 28. júlí, sem einnig er afmælisdagur móður minnar, Jennýjar Karls- dóttur. Þessi merkisdagur árið 1957 skapaði sérstök tengsl sem voru okkur öllum dýrmæt. Það var alltaf gaman að heilsa upp á frændfólkið í Aðaldalnum og á hverju hausti var farið þangað í berjamó. Mér þótti aldrei gaman að tína ber og dall- arnir mínir fylltust seint. Jónsi frændi var hins vegar mikill berjakall og mun fljótari að tína. Hann var fjörmikill strákur, alltaf hress og kátur en voðalega stríðinn. Það var miklu skemmtilegra í berjamónum þegar hann var með. Jónsi lærði smíðar, flutti suð- ur og haslaði sér völl í lagningu parkets og var eftirsóttur til þeirra starfa. En hann var mikill sveitamaður og sleppti aldrei takinu á bernskuslóðunum og þangað sótti hann mikið. Það er sárt til þess að hugsa að hann skyldi ekki fá að njóta efri ár- anna í sveitinni sinni með fjöl- skyldunni. Þegar kom að því að ráðslaga um lagningu parkets hjá okkur Binna nutum við góðra ráða og reynslu Jónsa. Ég hafði hugsað mér dökkt parket. En þá sagði frændi: „Þú vilt ekki dökkt parket, það sér svo mikið á því þar sem mikið er gengið um og þú nennir ekki alltaf að vera með kústinn á lofti.“ Svo benti hann mér á annað og fór með mig í nálægt hús þar sem hann hafði lagt þannig parket og auð- vitað leist mér miklu betur á það. Svo þegar kom að því að ákveða hvort það ætti að vera ol- íuborið eða lakkað og ég sagðist vera spennt fyrir olíubornu sagði frændi: „Þú vilt ekki olíu- borið parket, það verður alltaf eins og það sé skítugt og svo nennir þú ekki að bera á það einu sinni á ári.“ Ég lét því lakka og sé ekki eftir því. Þegar ég spurði Jónsa hvernig parket- sápu ég ætti að nota til að þvo nýja fína parketið mitt sagði hann: „Þú átt aldrei að þvo park- et og alls ekki með parketsápu.“ Sjálfsagt hef ég sett upp undr- unarsvip því hann hélt áfram: „Ef þér finnst endilega að þú þurfir að skúra, notaðu þá bara volgt vatn.“ Svo bætti frændi við: „En ef þér finnst endilega að þú þurfir að nota sápu, hafðu það þá bara nokkra dropa af mildum uppþvottalegi.“ Kannski var hann bara að stríða frænku sinni en þessum ráðum hef ég fylgt og parketið er enn eins og nýtt. Jónsi tók sjúkdómi sínum af miklu æðruleysi, hann tapaði aldrei húmornum og sýndi á sér mýkri manninn í ríkari mæli en áður. Þótt talsvert hefði dregið af frænda síðan við ræddum saman síðast var skyndilegt andlát hans mikið högg. Jónsi átti miklu barnaláni að fagna og var stoltur af börnum sínum. Þau önnuðust föður sinn af mikilli umhyggju í veikindun- um. Við mamma vottum þeim Ír- isi, Ölmu, Einari og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð. Einnig vottum við systkinum Jónsa, þeim Kristjáni og Krist- ínu Hrönn og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Minningin um kæran frænda lifir. Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir. Kæri Jónsi mágur. Svona er lífið. Minningarnar lifna við þegar það slokknar. Á kveðjustund langar mig fyrir hönd okkar kotbúa að þakka fyrir margar skemmtileg- ar samverustundir á liðnum ár- um. Skötuveisla stórfjölskyld- unnar verður áfram í heiðri höfð og tileinkuð þér. Vonandi gefur birkisafinn líka töfraorku í sum- arlandinu. Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Blessuð sé minning þín. Margrét Magnúsdóttir. Jón Einarsson Okkar ástkæra PETREA GUÐMUNDSDÓTTIR, Peta á Sigurðsstöðum, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 24. mai klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á að leyfa sumarbúðum Reykjadals að njóta þess. K. Guðmundur Skarphéðinsson, Ósk Axelsdóttir Alda B. Skarphéðinsdóttir Guðlaugur Sigurðsson Sigrún B. Skarphéðinsdóttir Ingi Þór Yngvason Hugrún P. Skarphéðinsdóttir Hörður Björgvinsson Skarphéðinn E. Skarpheðinsson, Áslaug I. Kristjánsdóttir Hulda B. Skarphéðinsdóttir Þorsteinn Finnbogason barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR ÞÓRÐARSON, Bjarkargrund 9, Akranesi, lést á heimili sínu aðfaranótt 15. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 27. maí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast hans láti Hjartaheill njóta þess. Ragnheiður Eyrún Magnúsdóttir Guðný Sverrisdóttir Gunnar Kr. Sigmundsson Magnús Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA JÚLÍUSDÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi miðvikudaginn 15. maí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 23. maí klukkan 13. Eygló Einarsdóttir Sigríður Snorradóttir Þorsteinn Sigurðsson og ömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HILMAR E. GUÐJÓNSSON bókari, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 15. maí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 24. maí klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Kristniboðssambandið. Magnús Guðjón Hilmarsson Haukur Hilmarsson Helga María Finnbjörnsdóttir og barnabörn Elskulegur bróðir okkar, ÞÓRÓLFUR ÖRN HELGASON, lést mánudaginn 13. maí. Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 24. maí klukkan 15. Guðmundur Óli Helgason Guðrún Lára Helgadóttir Hulda Hrönn M. Helgadóttir Kjartan Orri Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.