Morgunblaðið - 22.05.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2019
Oster
hárklippur
OSTER PRO3000i
Hárklippur fyrir fagfólk
Fyrir hleðslu – engin snúra
Verð 49.600
OSTER Snyrtir/
skeggsnyrtir
Verð 13.980
0STER C200
Hárklippur
fyrir hleðslu
Verð: 24.900
OSTER A5 PRO
Dýraklippur
Verð: 28.900
60 ára Þuríður ólst
upp á Þórshöfn á
Langanesi. Hún er lög-
fræðingur að mennt og
er sviðsstjóri og stað-
gengill Sýslumannsins
á höfuðborgarsvæðinu.
Maki: Sigurður Skúli
Bergsson, f. 1959, tollstjóri.
Börn: Einar Oddur, f. 1983, og Árni
Bergur, f. 1989.
Barnabörn: Arnar Breki, Elín Sigurbjört,
Ernir Ingimar og Arndís Björk.
Foreldrar: Árni Ingimar Helgason, f.
1935, fv. útgerðarmaður, bús. í Hafnar-
firði, og Þórunn Marín Þorsteinsdóttir, f.
1937, d. 2011, póst- og símstöðvarstjóri á
Þórshöfn.
Þuríður
Árnadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er svo margt að gerast í
kringum þig að þér finnst erfitt að ein-
beita þér að þeim hlutum sem skipta
raunverulega máli. Teldu upp að tíu áður
en þú aðhefst eitthvað.
20. apríl - 20. maí
Naut Að hjálpa öðrum er besta leiðin til
að gleyma eigin áhyggjum. Meiri tími út
af fyrir þig er forsenda hamingju í sam-
bandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú beitir rökhugsuninni um of
missirðu af kraftaverkinu. Reyndu að
sýna þolinmæði og umburðarlyndi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að þora að skera þig úr
og vera djarfur til ákvarðanatöku og mátt
ekki missa sjónar á takmarkinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að hafa alla þræði í hendi
þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir
sem þig dreymir um. Leitaðu jafnvægis
þannig að vinir og samstarfsmenn séu
ánægðir með þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gefðu þínum slæmu venjum gaum
og gerðu það sem þarf til að breyta þeim.
Leitaðu nýrra leiða og nýr stíll fæðist.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú kemur öllum á óvart með lausn á
gömlu vandamáli. Dagurinn hentar vel til
viðskipta, sérstaklega ef það er tengt list-
um og sköpun.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að reyna að komast
eitthvað afsíðis og njóta kyrrðar einver-
unnar um sinn. Njóttu velgengni þinnar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt í mörg horn sé að líta
skaltu ekki gleyma að sinna þeim sem
standa þér næstir. Vertu lítillátur, ljúfur og
kátur. Reyndu að sýna umhyggjusemi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu óragur við að hefja við-
skipti þótt buddan sé létt. Minntu þig á að
þú stjórnar sjálfur huga þínum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt það skilið að fá við-
urkenningu fyrir hæfileika þína – en það
gera líka aðrir. Sýndu lipurð en stattu þó
fast á þínu þegar við á.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú kemst ekki hjá því að hugleiða
vandlega hvaða afstöðu þú átt að taka til
þeirra hluta sem máli skipta. Sambönd
við maka og aðra koma þér að gagni
núna.
Árnason, f. 22.5. 1985; 3) Guðjón, f.
1.8. 1964, framkvæmdastjóri, bú-
settur í Reykjavík. Maki: Ana Iso-
rena Atlason leikskólakennari.
Börn Bryndís María, f. 14.9. 1995,
dóttir hennar er Áróra Dís, f. 22.6.
2018, Sara Ísey, f. 28.7. 1998, og
Hanna Mae, f. 14.8. 2002; 4) Atli, f.
8.10. 1966, viðskiptafræðingur, bú-
settur í Reykjavík. Maki: Elín
1987-1990. Hún átti sæti í trygg-
ingaráði og síðar Tryggingastofnun
í áratugi og hefur auk þess gegnt
fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir
ýmis félög og nefndir. „Núna er ég
aðallega að hafa það rólegt með
fjölskyldunni og barnabörnunum,
ég les og nýt lífsins.“
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar er Atli
Pálsson, f. 18.8. 1933, fyrrverandi
verslunarmaður. Foreldrar hans
voru hjónin Páll Jónsson, f. 10.1.
1890, d. 20.10. 1943, bóndi frá Æg-
issíðu á Rangárvöllum og Sigríður
Guðjónsdóttir, f. 9.8. 1900, d. 26.2.
1988 frá Stóru-Völlum í Landsveit.
Börn Margrétar og Atla: 1) Ein-
ar, f. 5.6. 1958, d. 28.6. 2015, blikk-
smíðameistari, lengst af búsettur í
Reykjavík; 2) Hallgrímur, f. 20.8.
1959, blikksmíðameistari, búsettur í
Hafnarfirði. Maki: Guðbjörg Jóns-
dóttir bankastarfsmaður. Börn
Margrét Thelma, f. 12.9. 1993, son-
ur hennar er Evert Krummi, f.
6.12. 2018, og Einar Atli, f. 18.3.
1996. Stjúpsynir Hallgríms og syn-
ir Guðbjargar eru Jón Árni Árna-
son, f. 11.6. 1981, og Gísli Már
M
argrét S. Einars-
dóttir fæddist 22.
maí 1939 í Reykja-
vík og bjó lengst af
í Garðastræti 47 í
Reykjavík. „Við hjónin keyptum
húsið af systkinum mínum þegar
mamma dó. Síðan var húsið orðið
of stórt fyrir okkur og við fluttum í
Sjálandshverfið í Garðabæ.“
Margrét lauk landsprófi 1955 frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, námi
frá Húsmæðraskólanum á Laugum
í Reykjadal 1956 og sjúkraliðanámi
frá Sjúkraliðaskóla Íslands 1981.
Auk heimilisstarfa og verslunar-
starfa var Margrét móttökuritari á
læknastofunum Laugavegi 42 og
læknaritari á Heilsugæslustöðinni í
Árbæ. Hún starfaði síðar á Landa-
kotsspítala um hríð uns hún tók við
stöðu forstöðumanns við þjónustu-
íbúðir aldraðra á Dalbraut 27 árið
1985 þar sem hún starfaði til
starfsloka árið 2005.
Margrét var formaður kven-
félags Árbæjarsóknar 1968-1975,
sat í stjórn hverfafélags
sjálfstæðismanna í níu ár og í
stjórn Hvatar í 12 ár. Hún var í
stjórn Landssambands sjálfstæð-
iskvenna í 10 ár og formaður þess
1978-1982. Margrét átti sæti í und-
irbúningsnefnd fyrir fyrsta
kvennafrídaginn 1975. Sat í stjórn
Kvenfélagasambands Íslands í 10
ár og í stjórn Kvenréttindafélags
Íslands í sex ár, í stjórn Hús-
mæðrafélags Reykjavíkur í átta ár,
í stjórn Sjúkraliðafélags Íslands í
fjögur ár, þar af formaður 1984-
1986, og varaformaður í stjórn heil-
brigðisstétta 1983-1985. Margrét er
heiðursfélagi í Sjúkraliðafélagi
Íslands.
Margrét var varaborgarfulltrúi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1974-1986
og átti þá m.a. sæti í heilbrigðis-
ráði, félagsmálaráði, stjórn Borg-
arspítalans, stjórnarnefnd Vogs,
leikvallanefnd og stjórn dagvist-
unar. Margrét var fyrst kvenna
formaður þjóðhátíðarnefndar
Reykjavíkurborgar, átti sæti í sex-
mannanefnd búvöruverðs, sat í
stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur í
12 ár, þar af formaður stjórnar
Svarrer Wang tannlæknir. Börn
Elvar Wang, f. 18.11. 1998, Eva
Margit Wang, f. 18.6. 2001, og Atli
Wang, f. 10.9. 2011.
Alsystkini Margrétar: Anna Lísa
Einarsdóttir Sandholt, f. 11.11.
1928, d. 13.6. 2016, húsmóðir,
lengst af búsett á Írafossi; Hrafn
Einarsson, f. 8.11. 1929, d. 26.4.
2010, kaupmaður búsettur í
Margrét S. Einarsdóttir, sjúkraliði og fyrrverandi forstöðumaður – 80 ára
Hjónin Margrét og Atli á 60 ára brúðkaupsafmæli sínu 30. nóvember 2018.
Hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa
Ríkidæmi Margrét og Atli með barnabörnunum árið 2013.
50 ára Hólmfríður
er Reykvíkingur,
söngkona, söngkenn-
ari og dáleiðari og
rekur Andlega setrið.
Hún heldur tónleika í
Skálholtskirkju í til-
efni afmælisins laug-
ardaginn 25.5. kl. 15. Ítölsk barokk-
tónlist verður á dagskrá og
undirleikarar verða Julian Hewlett org-
elleikari og Victoria Tarveskaia selló-
leikari.
Sonur: Jökull Kristinsson, f. 2003.
Foreldrar: Jóhannes Þór Ellertsson, f.
1941, vélvirki og fv. kennari í Bænda-
skólanum á Hvanneyri, bús. í Borg-
arnesi, og Inga Þorsteinsdóttir, f.
1943, d. 2011, hárgreiðslukona.
Hólmfríður
Jóhannesdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Máni Snær Erlingsson
fæddist 27. september 2018 kl. 13.31 á
Landspítalanum í Reykjavík. Fæðing-
arþyngdin var 3.150 g og hann var 49
cm á lengd. Foreldrar hans eru Ólafía
Lilja Sævarsdóttir og Erlingur
Sverrisson.
Nýr borgari