Morgunblaðið - 29.05.2019, Side 25

Morgunblaðið - 29.05.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2019 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 - G Ó LFMOTTUR - Marvel 170x240 kr. 61.200Marvel 170x240 kr. 61.200 Rugged 170x240 kr. 52.700 Magic 160x230 kr. 71.400Ravi 170x240 kr. 116.300 Stark 160x230 kr. 99.900 Það er sorglegt að hugsa til þess að pólitísk átök skuli koma í veg fyrir að Henrikh Mkhitaryan geti spilað með Ars- enal gegn Chelsea í kvöld í úr- slitaleik Evrópudeildarinnar í fótbolta. Mönnum, jafnvel þeim sem hafa hæfileikana og hafa lagt eins mikið á sig á ferlinum og Mkhitaryan, gefst ekki oft og jafnvel aldrei kostur á að spila úrslitaleik í Evrópukeppni. Fyrir þá sem ekki vita þá er Mkhitaryan armenskur og raun- ar fyrirliði landsliðs Armeníu. Samkvæmt ákvörðun UEFA fer úrslitaleikur Evrópudeildarinnar fram í Bakú, höfuðborg Aserba- ídsjan. Þessi tvö lönd, Armenía og Aserbaídsjan, hafa lengi deilt hatrammlega um yfirráð yfir Na- gorno-Karabakh-landsvæðinu. Vegna þessara deilna er fólki frá Armeníu vanalega ekki hleypt inn fyrir landamæri Aserbaíd- sjan. Þess vegna er kannski ekki skrýtið að Mkhitaryan, í samráði við fjölskyldu sína, vilji ekki taka þá áhættu að ferðast á leikinn. Í október sleppti hann því einnig að ferðast til Aserbaídsjan þeg- ar Arsenal fór þangað í leik við Hannes Þór Halldórsson og fé- laga í Qarabag. Leikurinn er ekkert lítið mikilvægur fyrir Mkhitaryan og Arsenal, því auk þess að geta unnið sinn fyrsta titil í Evr- ópukeppni í 25 ár fær liðið verð- mætt Meistaradeildarsæti með sigri. Þessi ákvörðun Armenans er því á engan hátt auðveld. Það hlýtur að mega setja þá kröfu að UEFA vandi betur valið á staðsetningu úrslitaleikja. Sambandið telur aftur á móti fullvíst, eftir samskipti sín við þarlend yfirvöld, að öryggis Mkhitaryan yrði gætt kæmi hann til Aserbaídsjan. Tæki Ce- ferin sénsinn? BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Víkingur Reykjavík, Grindavík og Njarðvík voru í gærkvöldi fyrstu lið- in til þess að tryggja sér sæti í 16- liða úrslitum Mjólkurbikarsins í knattspyrnu karla. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Njarðvík nær svona langt í bikarkeppninni. Víkingar unnu KA-menn, 6:5, eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni á Eimskipsvellinum í Laugardal þar sem Sölvi Geir Ottesen skoraði úr síðustu vítaspyrnu Víkinga í kjölfar þess að Almari Ormarrssyni brást bogalistin úr fjórðu vítaspyrnu KA- liðsins. Í hefðbundnum leiktíma kom Nikolaj Hansen Víkingum yfir eftir klukkustundarleik. Steinþór Freyr Þorsteinsson jafnaði metin fyrir KA sjö mínútum fyrir leikslok. Ekkert var skorað í framlengingu og þess vegna varð að grípa til þess ráðs að knýja fram úrslit með vítaspyrnu- keppni. Grindavík vann sannfærandi sig- ur á 2. deildar liðinu Vesta, 3:1, á Grindavíkurvelli. Gunnar Þor- steinsson, fyrirliði Grindvíkinga, skoraði fyrsta markið á 12. mínútu. Aukaspyrna hans af kantinum sigldi í netið en markvörður Vestramanna, Giacamo Ratto, hugðist grípa bolt- ann en misreiknaði sig illilega og greip í tómt. Josip Zeba bætti við öðru marki fyrir heimamenn á 40. mínútu með skoti af stuttu færi eftir klafs í vítateignum. Bolvíkingurinn Pétur Bjarnason klóraði í bakkann fyrir Vestra áður en Aron Jóhanns- son innsiglaði sigur heimamanna 14 mínútum fyrir leikslok. Kenneth Hogg skoraði eina mark leiksins á annarri mínútu í uppbót- artíma þegar Njarðvík sendi granna sína úr Keflavík úr keppni á Nettó- vellinum í Keflavík. Þrjú fyrstu liðin komin í 8-liða úrslit Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Barátta Atli Hrafn Andrason og Al- marr Ormarsson, KA, eigast við. Eftir setningarathöfn í fyrrakvöld hófst keppni í hinum ýmsu greinum á Smáþjóðaleikunum í Svartfjalla- landi í gær. Landsliðin í körfuknatt- leik voru þar meðal annars í eldlín- unni, en óhætt er að segja að íslenska kvennalandsliðið hafi upp- skorið ríkulega í fyrsta leik Bene- dikts Guðmundssonar sem landsliðs- þjálfari. Ísland mætti þá Möltu, sem fagn- aði sigri á Smáþjóðaleikunum fyrir tveimur árum. Ríkjandi meistarar komust hins vegar hvorki lönd né strönd gegn sterkum varnarleik Ís- lands. Þóra Kristín Jónsdóttir og Hallveig Jónsdóttir skoruðu báðar 11 stig fyrir Ísland, sem vann örugg- an 26 stiga sigur, 61:35. Alls komust tíu leikmenn Íslands á blað, en næsti leikur liðsins er gegn gestgjöfum Svartfjallalands í dag. Karlalandsliðið mátti hins vegar sætta sig við tap í fyrsta leik sínum á leikunum, 77:67 fyrir Lúxemborg. Ísland komst tíu stigum yfir snemma í seinni hálfleik, en þá fór að síga á ógæfuhliðina og tíu stiga tap staðreynd. Elvar Már Friðriksson var stiga- hæstur í íslenska liðinu með 16 stig og gaf 6 stoðsendingar. Gunnar Ólafsson kom næstur með 13 stig og Kristinn Pálsson skoraði 9 stig. Töp hjá blakliðunum Karla- og kvennalandsliðið í blaki töpuðu bæði fyrstu leikjum sínum í gær. Karlalandsliðið tapaði fyrir Svartfjallalandi, 3:1, eftir að hafa unnið fyrstu hrinuna 25:23. Þar var Theódór Óskar Þorvaldsson stiga- hæstur með 14 stig. Kvennalands- liðið tapaði svo 3:0 fyrir Kýpur þar sem Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir skoraði 14 stig og fór fyrir íslenska liðinu. Bæði liðin mæta San Marínó í dag. Íslenskir sundmenn unnu ein gull- verðlaun og ein bronsverðlaun í keppni gærdagsins. Eygló Ósk Gústafsdóttir vann einu gull- verðlaun Íslands í 200 m baksundi þar sem hún kom vel fyrst í mark á 2.17,36 mín., sem er nokkuð frá Ís- landsmetinu sem hún á. Sveit Íslands í 4x100 m skriðsundi karla hafnaði í þriðja sæti á 3.29,60 mín. og var rúmum þremur sek- úndum á eftir sigursveitinni sem kom frá Lúxemborg. Sundsveit Íslands á mótinu er skipuð mörgum ungum og lítt reyndum sundmönnum. Draumabyrjun kvennalandsliðsins  Frumraun nýs þjálfara í körfubolta  Fyrsti keppnisdagur Smáþjóðaleika Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stigahæst Hallveig Jónsdóttir skoraði 11 stig fyrir Ísland. Ljósmynd/GSSE Blak Karlalandsliðið sem mætti Svartfjallalandi í gær. Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðsins í hand- knattleik, hefur valið 19 manna æf- ingahóp fyrir leikina gegn Grikkj- um og Tyrkjum í undankeppni EM sem fram fara í næsta mánuði. Björgvin Páll Gústavsson er ekki í landsliðshópnum en markverð- irnir þrír sem eru í hópnum eru Ágúst Elí Björgvinsson, Grétar Ari Guðjónsson og Viktor Gísli Hall- grímsson. Þá fær línumaður Ís- landsmeistara Selfoss, Atli Ævar Ingólfsson, tækifæri. Hópinn í heild sinni er að finna á mbl.is/sport. Björgvin ekki í landsliðshópnum Morgunblaðið/Hari Tækifæri Grétar Ari Guðjónsson er í landsliðshópi Guðmundar. Heimsmeistaramót kvenna í ís- hokkíi fer að hluta fram á Íslandi á næsta ári, eða nánar tiltekið á Ak- ureyri dagana 23.-29. febrúar. HM er skipt niður í deildir og svo riðla innan deildanna. Riðill Íslands verður sem sagt leikinn á Akureyri, en það er B-riðill 2. deildar. Auk Ís- lands eru þar Ástralía, Nýja- Sjáland, Tyrkland, Króatía og Rúmenía. Sigurlið riðilsins vinnur sér sæti í A-riðli 2. deildar árið 2021. Þetta er í annað sinn sem HM er haldið á Akureyri en þar fór mótið einnig fram árið 2017. Akureyringar gestgjafar á ný Ljósmynd/Þórir Heimavöllur Íslensku landsliðskon- urnar fagna marki á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.