Morgunblaðið - 29.05.2019, Page 32
Dægurlagafélagið kemur fram í
Skyrgerðinni í Hveragerði í kvöld kl.
20. Félagið skipa þeir Heimir Ey-
vindarson úr Á móti sól, Ingólfur
„veðurguð“ Þórarinsson, Hreimur
Örn Heimisson úr Landi og sonum
og Einar Bárðarson dægurlagahöf-
undur. Munu félagarnir flytja sín
þekktustu lög og segja sögur sem
tengjast þeim á kvöldskemmtun
sem þeir nefna Saga til næsta bæj-
ar. Næst troða þeir upp í Gamla
kaupfélaginu á Akranesi 7. júní og í
Bæjarbíói í Hafnarfirði 17. ágúst.
Saga til næsta bæjar
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 149. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Topplið ÍA á flesta fulltrúa í liði maí-
mánaðar í Pepsi Max-deild karla í
knattspyrnu að mati Morgunblaðs-
ins. Stefán Teitur Þórðarson er þar
á meðal, en hann hefur fest sig í
sessi í nýrri stöðu á miðjunni. Stef-
án Teitur er með sannkallað fót-
boltablóð í æðum og fær góð ráð
hjá frændum sínum sem jafnframt
halda honum á jörðinni. »24
Skagamenn með fjóra
fulltrúa í úrvalsliðinu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Íslandsmeistarar Breiðabliks gefa
ekkert eftir í kapphlaupinu við Val á
Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni. Breiðablik
vann KR á Kópavogsvelli í gær-
kvöld, 4:2, eftir að hafa lent undir,
1:0, snemma leiks.
Breiðablik hefur þar
með fullt hús stiga eft-
ir fimm umferðir eins
og Valur sem heldur
efsta sætinu vegna örlítið
betri markatölu.
Næstu lið eru sex
stigum á eftir for-
ystuliðunum. KR-ingar
sitja eftir sem áður í
næstneðsta sæti deild-
arinnar með þrjú stig eft-
ir fjóra tapleiki og einn
sigurleik. »26
Íslandsmeistararnir
gefa ekkert eftir
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eigendur veitingastaðarins Jómfrú-
arinnar við Lækjargötu bjóða í sum-
ar upp á djasstónleikaröð 24. árið í
röð og verða fyrstu tónleikarnir
næstkomandi laugardag. Björn Thor-
oddsen gítarleikari og Unnur Birna
Björnsdóttir, söngkona og fiðluleik-
ari, verða í tjaldinu frá klukkan 15 til
17, en þeim til aðstoðar spila Skúli
Gíslason trommuleikari og Sigurgeir
Skafti Flosason bassaleikari.
Veitingamaðurinn Jakob Jakobs-
son byrjaði að bjóða upp á þessa
ókeypis tónleikaröð 1996 og sonur
hans, Jakob Einar, hefur haldið upp-
teknum hætti eftir að hann tók við
rekstrinum haustið 2015. Saxófón-
leikarinn og tónsmiðurinn Sigurður
Flosason hefur verið listrænn stjórn-
andi alla tíð nema fyrsta árið, þegar
Einar Scheving sá um skipulagn-
inguna. „Hann fór í nám erlendis,
boltinn barst til mín og ég hef haldið
honum síðan,“ segir Sigurður.
Eftir að Jakob eldri kom heim frá
námi í Kaupmannahöfn opnaði hann
Jómfrúna, veitingastað að danskri
fyrirmynd, í ársbyrjun 1996. „Strax
fyrsta sumarið stóðum við fyrir djass-
tónleikum í anda Kaupmannahafnar,
sem er hin norræna höfuðborg djass-
ins,“ rifjar hann upp og minnist góðra
tíma í kóngsins Köben, þar sem hann
kynntist djassi á torgum og í veit-
ingahúsaportum.
Tilnefningin gleðiefni
Sonur hans og nafni segir ekki
sjálfgefið að boðið sé upp á fría tón-
leika um hverja helgi á hverju sumri
en það hafi alla tíð skipt þá feðga
miklu máli. „Okkur er annt um nær-
umhverfi okkar, að taka þátt í því að
skapa líf í miðborginni auk þess sem
þetta er ótrúlega gaman og ekki
skemmir fyrir þegar það er líka
ábatasamt,“ segir hann. Minnir samt
á að enginn hafi grætt í fyrrasumar
þar sem veðrið var veitingamönnum
ekki hliðhollt. „Við vorum ákaflega
stolt þegar við vorum tilnefnd til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna fyrir
þetta framlag og við heyrum ekkert
nema ánægju fyrir framtakið, að
tengja saman mat og menningu. Við
vonumst svo bara eftir annarri til-
nefningu á aldarfjórðungsafmælinu,“
segir Jakob Einar og glottir út í ann-
að.“
Sigurður segir starfið gefandi. „Ég
er alltaf boðinn og búinn til að gera
eitthvað fyrir djasstónlist í landinu og
þetta er gott tækifæri fyrir djass-
tónlistarfólk og aðra til að hlusta,“
segir hann. „Það hjálpar okkur eng-
inn ef við hjálpum okkur ekki sjálf.“
Tónleikaröðin hefur gengið mjög
vel, að sögn Sigurðar. „Íslenska veðr-
ið er það eina sem setur stundum
strik í reikninginn,“ segir hann.
Veðurguðirnir hafa oft verið okkur
hliðhollir en það kemur fyrir að það
er mígandi rigning og hífandi vindur.
Þá er erfitt við þetta að eiga.“
Stemningin er svolítið útlensk og
Sigurður segir gaman að fá tækifæri
til þess að skapa hana. Margt tónlist-
arfólk hafi lagt hönd á plóg, jafnt
þekkt sem óþekkt, og gestir hafi ekki
látið sitt eftir liggja. „Tónleikaröðin
er fastur liður, fólk gengur að henni
vísri í borgarlífinu og gestir og gang-
andi fá mikið fyrir sinn snúð, eða
smörrebröd öllu heldur.“
Morgunblaðið/Hari
Djass á Jómfrúnni Jakob Einar Jakobsson veitingamaður og Sigurður Flosason saxófónleikari slá á létta strengi.
Matur og menning
Djasstónleikaröð veitingastaðarins Jómfrúarinnar
við Lækjargötu í 24. sinn Skapa líf í miðborginni