Morgunblaðið - 04.06.2019, Page 1

Morgunblaðið - 04.06.2019, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. J Ú N Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  130. tölublað  107. árgangur  FYRSTU VERÐLAUN Í FIÐLUKEPPNI ENGEY RE 91 TIL NÝRRA EIGENDA SUMARTÓN- LEIKAR Í LANG- HOLTSKIRKJU SMÍÐUÐ ÁRIÐ 2017 12 N-AMERÍKA NÆST 10EMILÍA 11 ÁRA 29 Lífeyrisþegar á faraldsfæti  Fleiri vilja lífeyri inn á erlenda bankareikninga  33% fleiri erlendir reikningar  Vinnsla og eftirfylgni hjá Tryggingastofnun flóknari vegna flutninga milli landa eru erlendis. Af þessum sökum er vinnsla og eftirfylgni mála hjá Tryggingastofnun orðin flóknari að því er fram kemur í ávarpi Sigríðar Lillyar Baldursdóttur, forstjóra stofnunarinnar, í ársskýrslunni. Hún segir að víða um lönd hafi regluverki vegna búsetu í öðru landi verið breytt og í ljósi nýlegs álits umboðsmanns Alþingis og umræðna vetrarins þurfi að fara vel yfir ís- lenska löggjöf til þess að tryggja jafnræði og gagnkvæman rétt. Félagsleg réttindi eins og upp- bætur, bifreiðakostnaður, maka- og umönnunarbætur og endurhæfing- arlífeyrir falla niður við flutning en misjafnar reglur gilda milli landa um félagsleg réttindi. Eftir sex mánaða búsetu erlendis ber lífeyris- þega að flytja lögheimili sitt frá Ís- landi. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Lífeyrisgreiðslum Tryggingastofn- unar inn á erlenda reikninga fjölgaði um 47% milli áranna 2017 og 2018. Þá varð fjölgun í hópi viðskiptavina með erlendan reikning um 33%. Þetta kemur fram í ársskýrslu Tryggingastofnunar fyrir árið 2018, en um 3,5 milljarðar króna á ári eru greiddir til lífeyrisþega sem búsettir Lífeyrisgreiðslur » 593 fengu lífeyri greiddan inn á erlenda reikninga. » 371 einstaklingur af 593 er eldri en 67 ára. » Réttindi í almannatrygg- ingakerfinu miðast við lengd búsetu en ekki ríkisfang. MLífeyrir á erlenda reikninga … »4 Hann tókst hressilega á við aflið í Kára, dreng- urinn sem í gærkvöldi varð á vegi ljósmyndara Morgunblaðsins skammt frá Gróttuvita á Sel- tjarnarnesi. Eftir nokkra viðureign var úlpunni sleppt og tók sá stutti því næst á rás. Ævintýrin geta leynst víða í kvöldsólinni. Morgunblaðið/Eggert Í ævintýraleit á sólríku sumarkvöldi  Rafhjól seljast um þessar mundir sem aldrei fyrr, en samkvæmt upp- lýsingum frá reiðhjólaverslunum hér á landi hefur á þessu ári orðið sprenging í sölunni. Líkur eru á því að í Evrópu seljist rafhjól betur en hefðbundin hjól áður en langt um líður. Þetta segir Jón Þór Skafta- son, sölustjóri í Erninum, en þar hefur sala á rafhjólum fjórfaldast á þessu ári samanborið við síðasta ár. Ragnar Kristinn Kristjánsson, eigandi verslunarinnar Rafmagns- hjóla, segir marga hafa uppgötvað hversu stórkostlegt það sé að hjóla á rafmagnshjóli. Algengt sé að fólk losi sig við annan bílinn og kaupi sér rafmagnshjól í staðinn. »4 Landsmenn virðast ólmir vilja rafhjól Morgunblaðið/Valli Rafhjól Sölumenn segja sprengingu hafa orðið í sölu rafhjóla á þessu ári. „Það er ótrúlegt hve langt ferðalag við erum búin að fara í,“ segir Björk Guðmundsdóttir um samstarf henn- ar, hóps hljóðfæraleikara og Hamra- hlíðarkórsins en á laugardaginn var lauk átta tónleika röð þeirra, sem stóð í tæpan mánuð í hinu nýja menningarhúsi The Shed í New York. Yfirskrift tónleikanna var Cornucopia og hafa rýnar vestan- hafs verið ósparir á lofið en í raun var um að ræða margbrotna marg- miðlunarsýningu með nýstárlegri mynd- og hljóðvörpun. Flautuseptettinn viibra, skipaður nokkrum helstu flautuleikurum Ís- lands, var í stóru hlutverki rétt eins og á síðustu plötu Bjarkar en grunn- urinn liggur í flautusveit skipaðri 12 konum sem hún setti saman 2016. Íslenskir listamenn skipuðu því langflestar stöðurnar í hljómsveit og kór Bjarkar sem segir orkuna í sviðsmyndinni og umgjörð tón- leikanna hafa verið fágaða og fútúr- íska en orkan í tónlistarfólkinu hafi hins vegar þurft að vera mjög hrá og „íslensk“. Cornucopia verður sett upp í Mexíkóborg í ágúst en Björk segir að það væri of dýrt að fá Hamrahlíð- arkórinn þangað; „eftir þetta verð- um við að fá kóra frá hverri borg“, segir hún. »28 Ljósmynd/Santiago Felipe Glæsisýning Björk á sviði The Shed ásamt íslensku flautuleikurunum í sept- ettinum viibra. Hamrahlíðarkórinn kom fram á tónleikunum í New York. Búin í New York en ferðast áfram  Gagnrýnendur jusu tónlistarsýningu Bjarkar lofi  Orkan hrá og „íslensk“  Reglur stefnu- yfirlýsingar um gervigreind, sem samþykkt var á ráðherrafundi OECD-ríkja, eru of almennar að mati Kristins Rúnars Þór- issonar, prófess- ors við tölvunar- fræðideild HR. Í reglunum kemur m.a. fram að kerfi sem styðjist við gervigreind ættu að vera hönnuð með það að leiðarljósi að virða réttarríkið og mannrétt- indi. Hann segir reglurnar góðra gjalda verðar en ekki hafa mikið gildi fyrir þá sem t.d. vinna að sjálf- virknivæðingu. »6 Reglur of almennar en góðra gjalda verðar Vélmenni Nýjar reglur samþykktar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.