Morgunblaðið - 04.06.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.06.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Á ráðherrafundi OECD-ríkja í síð- asta mánuði var samþykkt stefnu- yfirlýsing samtakanna um svokall- aða gervigreind, þar sem m.a. er kveðið á um að öll kerfi sem styðjast við hana ættu að vera hönnuð með það að leiðarljósi að virða réttarrík- ið, mannréttindi, lýðræðisleg gildi og fjölbreytni. Þau eigi einnig að hafa innbyggðar viðeigandi öryggisráð- stafanir, svo sem að tryggja að mannlegt inngrip sé mögulegt þar sem þess kann að vera þörf. Þá skuli gagnsæi og ábyrg upplýsingagjöf gilda um öll gervigreindarkerfi svo almenningur skilji hvernig þau virka og hvernig hægt sé að hafa áhrif á þau. Ennfremur segir að fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar sem vinni að þróun og hagnýtingu gervigreind- ar beri ábyrgð á því að kerfin vinni í samræmi við þessi markmið. Góðra gjalda verðar Kristinn Rúnar Þórisson, prófess- or við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, segir að samþykktir og leiðbeiningar eins og þessar frá OECD séu góðra gjalda verðar, en enn sem komið er hafi þær ekki mik- ið gildi fyrir þá sem vinna að hlutum eins og sjálfvirknivæðingu verk- fræðilega eða vísindalega. Til þess séu þær of almennar og svari ekki spurningum um hvað raunverulega beri að gera í ferlinu. Hugtakið gervigreind sé notað mjög frjálslega í þessum umræðum og oft erfitt að festa hönd á hvað sé verið að tala um það. Þá séu leiðbeiningarnar yfirleitt þess eðlis að þær gæti í raun átt við mörg svið önnur, t.d. hefðbundna mannvirkjagerð. Ekki verið að skoða áhrifin hér „Það eru ekki margir að vinna að gervigreind en þeim fjölgar,“ segir Kristinn, „en enn færri sem vinna að því að átta sig á því hvernig gervi- greind tengist þjóðfélaginu og hefur áhrif félagslega, sálfræðilega og sið- ferðilega.“ Hann segir að hér á landi sé góð þekking á gervigreind í vís- indasamfélaginu en engir séu að skoða sérstaklega stefnumótun og reglusetningu á þessu sviði. Reglurnar þykja of almennar  OECD markar stefnu um rannsóknir og tækni á sviði gervigreindar AFP Tækni Vélmenni blandar kokteil á sýningu sem nú er í Barbican Centre í London. Þsar er reynt að varpa ljósi á gagnsemi gervigreindar. Verð á eldsneyti lækkaði töluvert á nokkrum sjálfsafgreiðslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir að Atlantsolía tilkynnti að verð á stöð við Sprengisand í Reykjavík hefði verið lækkað. Frá því í fyrra hefur lægsta elds- neytisverðið á landinu verið á stöð Atlantsolíu í Kaplakrika í Hafnar- firði ef undan er skilin stöð Costco en þar geta einungis meðlimir versl- að. Almennt verð á bensínlítra hjá Atlantsolíu var 241,7 krónur og 231,4 krónur á dísellítra en var lækkað í 211,4 krónur á fyrir bens- ínlítra og 202 krónur fyrir dísellítra við Sprengisand. Stuttu eftir að Atlantsolía til- kynnti verðlækkunina sendi Orkan frá sér fréttatilkynningu með yf- irskriftinni „Orkan í verðstríð“ þar sem hún tilkynnti að á tveimur stöðvum, við Dalveg og Reykjavík- urveg, væru bensín- og dísellítri á 0,1 krónu lægra verði en lægsta verð Atlantsolíu. Skömmu síðar bættist Dælan í hópinn og tilkynnti að verð á öllum fimm stöðvum fyrirtækisins yrði 0,1 krónu lægra en það sem Orkan bauð. Síðdegis sendi ÓB síð- an frá sér tilkynningu um að lítra- verðið hefði verið lækkað um 30 krónur á tveimur stöðvum fyrir- tækisins. Í samtali við Morgunblaðið segir Rakel Björg Guðmundsdóttir, mark- aðsstjóri Atlantsolíu, að ástæðan fyrir því að fyrirtækið ákveði nú að bæta stöðinni á Sprengisandi við þá í Kaplakrika sé að viðtökurnar hafi verið frábærar í Hafnarfirði, og nú sé tími til kominn að taka næsta skref. „Það er ekkert launungarmál að það var ákveðið svar við sam- keppni frá vinum okkar í Costco. Viðtökurnar hafa bara verið fram- úrskarandi,“ segir Rakel spurð um stöðina í Kaplakrika. Vilja bjóða fleiri möguleika Spurð hvers vegna fyrirtækið bjóði ekki bara upp á sama lága verðið á öllum bensínstöðvum þess segir Rakel að það sé eðlilegt að neytendur spyrji slíkra spurninga og segir: „Við byrjuðum á þessu í Kaplakrika til að mæta þessari sam- keppni með talsvert mikill lækkun miðað við almennt lista- og markaðs- verð. Það er hinsvegar styttra á Sprengisand fyrir stóran hluta við- skiptavina okkar á höfuðborg- arsvæðinu en í Kaplakrika og því viljum við koma til móts við þann hóp og stytta þeim ferðina með því að gefa þeim kost á að fylla á tank- inn fyrir sama verð og í Kaplakrika.“ Spurð hvort búast megi við að fleiri stöðvar Atlantsolíu bjóði upp á svo hagstætt eldsneytisverð svarar Rakel: „Nei. Engin áform eru uppi um það.“ teitur@mbl.is Berjast um að bjóða best verð Morgunblaðið/Hari Á Sprengisandi Eldsneytisneytandi pumpar á glansandi vagninn í gær.  „Orkan í verðstríð“ sagði í tilkynningu  Dælan með ódýrasta eldsneytið Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Þingsályktunartillaga um stofnun ráðgjafarstofu innflytjenda var samþykkt á Alþingi í gær. Flutn- ingsmaður tillögunnar var Kolbeinn Óttarsson Proppé, þing- maður Vinstri grænna. Tillagan felur í sér að félags- og barnamálaráð- herra vinni áætl- un um stofnun ráðgjafarstofu fyrir innflytjend- ur. Hlutverk hennar yrði að bjóða upp á ráðgjöf, leiðbeiningar og upplýsingar fyrir innflytjendur um nauðsynlega þjónustu, réttindi þeirra og skyldur. Samkvæmt til- lögunni verður áætlunin unnin í samvinnu við innflytjendaráð, opin- berar stofnanir, sveitarfélögin, fé- lagasamtök og aðila vinnumarkað- arins. Vildu ekki nýja stofnun Gert er ráð fyrir því að ráðgjaf- arstofan verði samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga og innflytj- endur geti þar sótt sér upplýsingar þvert á sveitarfélög. Frestur ráðherra til að kynna Al- þingi áætlunina er til 1. janúar 2020. 48 þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni en sjö þingmenn Mið- flokksins greiddu atkvæði gegn henni. Fram kom í máli Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, við atkvæðagreiðsluna, að afstaða flokksins væri sú að skynsamlegra væri að styðja við Fjölmenningar- setrið á Ísafirði og hugsanlega stofna útibú þess á höfuðborgar- svæðinu frekar en að búa til nýja ríkisstofnun. Rök Miðflokksins undarleg Kolbeinn Óttarsson Proppé segir í samtali við Morgunblaðið að hon- um hafi fundist rök Miðflokksins heldur undarleg. „Það kemur fram í upphaflegu til- lögunni minni að sérstaklega sé horft til þess [Fjölmenningarseturs- ins] og í vinnu velferðarnefndar hef- ur verið horft til þess líka. Ráðherra sem fær málið í hendur mun að sjálfsögðu skoða þau mál öll,“ segir Kolbeinn. Hann leggur áherslu á að tillagan sé byggð á skýrslum og úttektum sem bendi til að það vanti sam- ræmda þjónustu af þessu tagi. „Að- alatriðið er að þessi þjónusta standi innflytjendum til boða, sama af hvaða ástæðu þeir koma til landsins. Að þetta verði hugsað út frá þeim.“ Aðalatriðið að þjón- ustan standi til boða Kolbeinn Óttarsson Proppé Árekstrarhætta varð suður af flug- vellinum við Hellu 13. október 2017 milli flugvélar og þyrlu. Þetta kem- ur fram í bókun rannsóknar- nefndar samgönguslysa (RNSA). Í vélinni voru kennari og nemandi sem fóru frá Reykjavík og áætluðu þeir að fara í snertilendingar við Hellu. Þyrlan fór frá Hótel Rangá og stefndi til Reykjavíkur. Flug- maður þyrlunnar tilkynnti flugtak og leið sína yfir Suðurland. Gerði hann ekki ráð fyrir umferð þar sem hann fékk ekki svar. RNSA telur líklegt að flugmaður flugvélarinnar hafi kallað áður en þyrlan fór á loft og þyrluflugmað- urinn því ekki vitað um umferðina. Þá hafi flugmaður flugvélarinnar ekki áttað sig á því að tilkynning um umferð þyrlunnar hefði áhrif á sitt flug enda hafi hann ekki tengt hana við umferð við flugvöllinn á Hellu. Beinir RNSA því til flug- manna að haga flugi við flugvelli þannig að það hafi ekki áhrif á um- ferðarhringi þeirra. Þá eru flug- menn hvattir til þess að tilkynna um staðsetningu oftar en ekki og þá sérstaklega í grennd við flug- velli. Árekstrarhætta við flugvöllinn við Hellu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.