Morgunblaðið - 04.06.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Verð 8.995
Stærðir 40-46
Verð 9.995
Stærðir 40-46
Bio Comfort
leðursandali
Bio Comfort
leðursandali
Kíktu á verðið
Í óundirbúnum fyrirspurnatíma áAlþingi í gær innti Þorsteinn Sæ-
mundsson, þingmaður Miðflokksins,
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð-
herra eftir fyrirhuguðum aðgerðum
ríkisstjórnarinnar til
að sporna gegn
þeirri vaxandi skipu-
lögðu glæpastarf-
semi sem lýst er í ný-
legri skýrslu
ríkislögreglustjóra.
Svör forsætisráð-herra voru eins
og búast mátti við,
en því miður ekki
meira en það. Þau
voru almenns eðlis
og áherslan töluvert
á heilbrigðis- og fé-
lagsmálaþáttinn en
hefðu að ósekju mátt vera skýrari
um löggæsluþáttinn.
Þorsteinn varð eins og við var aðbúast fyrir vonbrigðum með
svarið og benti á að efla þyrfti „lög-
gæsluna, sérstaklega á höfuð-
borgarsvæðinu, bæði hvað varðar
mannafla, tæki og úrræði,“ og lagði
áherslu á að þetta þyrfti að gerast
núna.
Sú ábending er hárrétt, enda kem-ur fram í skýrslu ríkislög-
reglustjóra að skipulagðir glæpa-
hópar verði þeim mun erfiðari
viðureignar sem þeir fái rýmri tíma
og svigrúm til að skjóta rótum.
Það er út af fyrir sig ágætt að rík-isstjórnin ætli að skoða þessi
mál „með heildstæðum hætti“ eins
og forsætisráðherra sagði í svörum
sínum.
Enn betra væri þó ef gripið yrðitafarlaust til þeirra aðgerða
sem líklegt er að dugi gegn yfirvof-
andi vá.
Þorsteinn
Sæmundsson
Aðgerðir
í stað orða
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kaupmaðurinn á horninu í Vest-
mannaeyjum gafst upp fyrir lág-
verðsverslunum á laugardag þegar
versluninni Vöruvali, sem hefur verið
í kúluhúsi í miðbæ Vestmannaeyja,
var lokað.
Ingimar Heiðar Georgsson og
Hjördís Inga Arnarsdóttir hafa rekið
Vöruval í tæp 20 ár. Ingimar segir að
hallað hafi undan fæti eftir að verslun
Bónuss var opnuð 2016 en fyrir var
Krónan með verslun í bænum. Hann
segir 1.400 heimili ekki geta haldið
uppi tveimur lágverðsverslunum og
kaupmanninum á horninu. Þar á ofan
bætist við ótryggar samgöngur og
loðnubrestur. Ingimar segir Vöruval
hafa verið með lengri afgreiðslutíma
og lagt áherslu á ýmsa sérþjónustu
sem nú hverfi úr Eyjum.
Kúluhúsið setti óneitanlega svip á
miðbæinn þegar það var byggt 1983.
Fyrst var þar rekin raftækjaverslun,
því næst verslunin Matvöruval í tvö
ár og eftir að hún hætti stóð húsið
autt í einhver ár. Tísku- og raftækja-
verslunin Adam og Eva var opnuð
1990 og sólbaðsstofa tekin í notkun á
efri hæðinni, þar sem nú er íbúð. Mat-
vöruverslunin Vöruval hóf rekstur í
kúluhúsinu 1993 sem stóð samfellt í
26 ár.
Verslun Raftæki, tískuvörur, hljómtæki og matvörur hafa verið seld í kúlu-
húsinu, eins og það er kallað, í miðbæ Vestmannaeyja í 36 ár nær samfellt.
Vöruval hætt rekstri
Kaupmaðurinn á horninu ræður ekki
við tvær lágverðsverslanir í Eyjum
Vegagerðin stefnir að því að bjóða út
síðar í þessum mánuði byggingu
tveggja nýrra brúa í Suðursveit í
Austur-Skaftafellssýslu, það er yfir
Steinavötn og Fellsá. Áformað er að
bjóða smíði beggja brúnna út í einum
pakka með hagkvæmni í huga. Miðað
er við að framkvæmdir hefjist í haust
og ljúki að ári.
Í miklum vatnavöxtum í september
2017 gróf undan einum stöpli brúar-
innar yfir Steinavötn svo burðarþol
og styrkur laskaðist. Brúin var metin
ófær bílum og á örfáum dögum var
reist bráðabirgðabrú yfir ána, sem
enn er í notkun. Ný og varanleg brú
mun koma í hennar stað og verður sú
102 metra löng og tvíbreið.
Nokkru vestar er Fellsá og á að
byggja 50 metra tvíbreiða brú í stað
þeirrar sem nú stendur – og er barn
síns tíma, eins og gjarnan er komist
að orði um mannanna verk sem eru
frá fyrri tíð. sbs@mbl.is
Ný brú yfir Steinavötn senn í útboð
102 metrar og tvíbreið Fellsárbrú í sama pakkanum Barn síns tíma
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hringvegurinn Steinavatnabrú skemmdist haustið 2017 og er ófær bílum.