Morgunblaðið - 04.06.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.06.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég fékk bakteríuna fyrir Íslend- ingaslóðum í Vesturheimi þegar ég fór þangað fyrir þremur árum með danshópnum Sporinu. Þá fórum við á slóðir Stephans G. Stephanssonar skálds í Klettafjöllunum og það var alveg einstakt að koma þarna og upplifa áhuga fólks á öllu sem teng- ist Íslandi. Ættjarðarástin er engu lík, fólk keyrir mörg hundruð kíló- metra til að sjá menningarviðburði með Íslendingum. Í Gimli er skóli þar sem kennt er um íslenskan menningararf, enda var eitt það dýrmætasta sem vesturfarar fóru með vestur um haf íslenskur menn- ingararfur. Í þessari ferð kviknaði hjá mér hugmyndin að fara með kórinn minn út,“ segir Rósa Jóhann- esdóttir, stjórnandi ungmennakórs- ins Graduale Futuri, sem verður með sumartónleika í kvöld í Lang- holtskirkju, en leggur svo í næstu viku land undir fót og fer til Am- eríku og Kanada til að syngja fyrir Vestur-Íslendinga. „Þessi ferð er hugsuð sem ferð inn í hinn einstaka heim afkomenda íslensku vesturfaranna. Við munum koma víða við, ætlum m.a. að syngja á þjóðhátíðinni hinn 17. júní í Winni- peg við styttu af Jóni Sigurðssyni og strax um kvöldið höldum við tón- leika í listasafni í Winnipeg. Daginn eftir syngjum við í Gimli í grunn- skóla sem heitir Sigurlaug Stef- ansson Early School. Ætlunin er að fara síðan að leiði Káins og syngja Baggalútssmellinn góða,“ segir Rósa og bætir við að þau muni heim- sækja fleiri staði og tilhlökkun í hópnum sé mikil. „Krakkarnir í Graduale Futuri eru fjölhæf, þau munu ekki aðeins syngja heldur ætla nokkrir kór- félagar einnig að kveða rímur. Í hópnum eru líka flautu- og fiðluleik- arar sem hafa æft í röddum ættjarð- arlögin og innanborðs er fiðluleik- ari sem ætlar að spila Lóan er komin. Ekki má gleyma saxófón- leikaranum, svo þetta verður fjöl- breytt og lifandi. Þau ætla líka að sjá sjálf um að kynna hvert lag og hafa kynnt sér til dæmis söguna á bak við þjóðsönginn og hvað fim- mundarsöngur er og munu segja áheyrendum frá.“ Einn kórbróðir syngur með Rósa segir að 17 söngvarar skipi kórinn Graduale Futuri og þau séu á aldrinum 10-14 ára. „Þetta eru allt stelpur, utan einn kórbróðir sem kemur með okkur og ætlar að syngja með okkur, en hann er 16 ára og er í söngnámi. Hann er bróðir stelpu sem var áður í kórnum hjá mér, en ég bauð nokkrum þeirra með í ferðina,“ segir Rósa sem hef- ur stjórnað Graduale Futuri í tólf ár. „Ég vann með Jóni Stefánssyni á sínum tíma í kórstarfinu í Lang- holtskirkju, en hugmyndin hjá Jóni var að þetta væri kórskóli. Jón stofnaði Gradualekórinn fyrir um þrjátíu árum en það vatt upp á sig og aldursbilið var orðið svo mikið að hann þurfti að skipta þessu niður í nokkra kóra eftir aldri. Krúttakór- inn er fyrir 4-6 ára, næsti kór fyrir 6-10 ára og minn kór er fyrir þau sem eru 10-14 ára. Svo tekur Gra- duale-kórinn við eftir það. Þau fær- ast mörg til á milli kóra eftir því sem þau eldast,“ segir Rósa, sem hlakkar til að bjóða Frónbúum að koma í kvöld, þriðjudagskvöld, á tónleikana í Langholtskirkju að njóta þess sem Vestur-Íslendingar munu fá að heyra og sjá. „Þetta verða léttir og skemmti- legir tónleikar þar sem kórinn mun syngja nokkrar lagaperlur íslenskr- ar tungu og kveðnar verða rímur.“ Tónleikarnir hefjast kl. 20. Ætla að syngja við leiði Káins  Rósa Jóhannesdóttir féll fyrir Íslendingaslóðum í Vesturheimi Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Gaman Rósa utan við Langholtskirkju með krökkunum í Graduale Futuri að æfa fyrir tónleikana sem verða í kvöld. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Hækkun fasteignamats íbúðarhús- næðis á höfuðborgarsvæðinu er öllu hóflegri en í fyrra, þótt hún sé almenn og nái yfir sex sveitar- félög. Þetta má ráða af nýju fast- eignamati fyrir árið 2020 á vef Þjóðskrár Íslands. Ekki fengust upplýsingar hjá Þjóðskrá um nýtt fasteignamat aðrar en þær sem finna má á vef- síðu stofnunarinnar, en nýja matið verður formlega kynnt síðar í vik- unni. Blaðamaður gerði óformlega könnun og reiknaði út prósentu- hækkun 30 fasteigna í sex sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu sem valdar voru af handahófi úr gagnagrunni Þjóðskrár. Hækkaði fasteignamat helmings fast- eignanna um fimm til átta prósent. Meðaltalið var í takt við þetta, tæp 6,5 prósent. Mikill munur í sömu götu Eins og áður segir bendir þetta til þess að hækkun á fasteignamati sé nokkru minni en í fyrra en þá hækkaði íbúðarhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu um 10,3 prósent. Heildarhækkun fasteignamats var þá að meðaltali 12,8 prósent og 11,6 prósent á höfuðborgarsvæð- inu. Í einu tilviki fann blaðamaður lækkun fasteignamats en það var á fjórum íbúðum í fjölbýlishúsi á Seltjarnarnesi. Lækkaði fasteigna- matið á einni þeirra íbúða um 3,5 prósent. Athygli vekur að í sömu götu hækkaði fasteignamat rað- húss um rétt rúm 17%. Gjöldin hafa hækkað verulega Í samtali við Morgunblaðið segir Garðar Hannes Friðjónsson, for- stjóri fasteignafélagsins Eikar, að þó að fasteignamat eignasafns fé- lagsins fyrir 2020 hækki sé hækk- unin umtalsvert minni en í fyrra, þegar hún var tæp 17% að jafnaði á eignasafni fyrirtækisins. Garðar segir það fagnaðarefni að hægt hafi á hækkun fasteigna- mats enda séu fasteignagjöld, sem m.a. eru reiknuð með tilliti til fast- eignamats, langstærsti kostnaðar- liður félagsins. „Gjöldin hjá okkur hafa hækkað um hundruð milljóna, í engum takti við annað sem er að gerast. Allir þeir sem eiga fasteignir og eins þeir sem leigja hafa þegar þurft eða munu þurfa að taka skellinn, svo við fögnum því að það sé að komast einhver ró á þetta,“ segir Garðar spurður um áhrifin sem hækkun fasteignamats síðast- liðin ár hafa haft á rekstur Eikar. Hann bætir við að fasteigna- gjöldin séu orðin langhæst á Ís- landi miðað við hinar Norður- landaþjóðirnar þegar horft er á hlutfall þeirra af landsframleiðslu. Félagið hvetur til hugmyndafræði- legrar breytingar á þeirri aðferð sem beitt er við fasteignamatið. Núverandi aðferðafræði sé ógagnsæ og leiði til skorts á fyr- irsjáanleika. Hún feli ekki í sér pólitíska ábyrgð á hækkun skatta og myndi hvata fyrir sveitarfélögin til að takmarka lóðaframboð sér til tekjuaukningar. Hægir á hækkun fasteignamats  Hækkunin virðist almenn og ná yfir öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðis Morgunblaðið/ÞÖK Reykjavík Útlit er fyrir að hægt hafi á hækkun fasteignamats.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.