Morgunblaðið - 04.06.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
Donald Trump Bandaríkjaforseti tekur hér í hönd
Elísabetar Bretlandsdrottningar á fyrsta degi
opinberrar heimsóknar forsetahjónanna til Bret-
lands.
41 fallbyssuskoti var hleypt af til heiðurs forseta-
hjónunum og bauð Elísabet þeim til hádegisverðar í
Buckingham-höll, auk þess sem hún sýndi þeim list-
muni í eigu krúnunnar.
AFP
Forsetinn kominn til Bretlands
Sænskur dómstóll komst að þeirri
niðurstöðu í gær að ekki væri ástæða
til þess að veita saksóknurum hand-
tökuheimild á hendur Julian Ass-
ange, stofnanda Wikileaks, vegna
nauðgunar sem hann á að hafa fram-
ið árið 2010, þar sem Assange væri
nú þegar í haldi breskra stjórnvalda.
Sagði í niðurstöðu dómstólsins að
hann væri sammála því mati sak-
sóknarans að grunur lægi fyrir um
sekt Assange og að hætta væri á því
að hann myndi ekki mæta fyrir dóm
eða reyna að koma sér hjá því að
greiða fyrir rannsókn málsins. Hins
vegar hefðu saksóknarar nú aðrar
leiðir færar við rannsókn málsins,
þar sem Assange
situr í bresku
fangelsi. Tók
dómstóllinn því
undir með Per E.
Samuelson, verj-
anda Assange,
sem hélt því fram
að handtökuskip-
un hefði enga
þýðingu lengur,
þar sem Assange
gæti ekki flúið, en hann afplánar nú
50 vikna dóm í Bretlandi fyrir að
hafa rofið skilorð í tengslum við fyrri
framsalsbeiðni Svía. Sagði Samuel-
son að hann væri ánægður með nið-
urstöðuna, þar sem hún sýndi að Sví-
þjóð væri réttarríki. Hann hefði hins
vegar efast, vegna þess að mikill
þrýstingur væri gegn Assange í Sví-
þjóð.
Úrskurðurinn þýðir að saksóknar-
ar geta ekki krafist evrópskrar
handtökuheimildar, sem hefði verið
fyrsta skrefið til að fá Assange fram-
seldan. Var óvíst hvort niðurstöð-
unni yrði áfrýjað, en Eva-Marie
Persson vararíkissaksóknari sagði
að rannsókn málsins myndi halda
ótrauð áfram. Bandarísk stjórnvöld
hafa einnig krafist framsals Ass-
ange, en hann hefur verið ákærður
fyrir að birta leyniskjöl í leyfisleysi.
Kröfu saksóknara hafnað
Julian
Assange
Sænskur dómstóll neitar að gefa út handtökuskipun á
hendur Julian Assange Óvíst um framhald málsins
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Herstjórnin í Súdan sat undir ámæli í
gær eftir að hún lét með ofbeldi brjóta
á bak aftur setumótmæli, sem höfðu
staðið yfir í höfuðstöðvum hersins í
Khartoum undanfarnar vikur. Að
minnsta kosti 13 manns voru sagðir
látnir og fjöldi annarra særður í kjöl-
far aðgerða hersins, sem setti upp
vegatálma og lokaði öðrum mikilvæg-
um stöðum í Khartoum í aðdraganda
aðgerðanna.
Götur höfuðborgarinnar voru
mestmegnis tómar í gærkvöldi, en al-
menningssamgöngur lágu niðri.
Sagði fréttaritari AFP-stofunnar að
margir hermenn væru á götunum, en
ekki var formlegt útgöngubann í gildi.
Herforingjastjórnin mótmælti því
að hún hefði beitt ofbeldi, en fregnir
af aðgerðunum leiddu til þess að mót-
mælendur fóru út á götur í öðrum
borgum og bæjum Súdans. Sagði tals-
maður stjórnarinnar að tjöld mót-
mælenda væru enn á staðnum og að
hermenn heftu ekki frjálsa för fólks.
Aðstandendur mótmælanna héldu
því hins vegar fram að hundruð
manna hefðu særst í aðgerðum hers-
ins auk þeirra þrettán sem létust, en
átta ára stúlka var sögð á meðal
þeirra látnu. Þá væri ástand margra
hinna særðu alvarlegt og kölluðu
samtök mótmælenda eftir því að
Rauði krossinn og önnur mannrétt-
indasamtök kæmu og veittu aðstoð.
Krefjast rannsóknar á atvikum
Ríkisstjórnir Bandaríkjanna og
Bretlands kröfðust þess að herinn léti
af ofbeldisverkum gegn mótmælend-
unum, en meginkrafa þeirra var sú að
herforingjastjórnin, sem steypti for-
seta landsins, Omar al-Bashir, af stóli
fyrr á árinu, afhenti völd sín í hendur
borgaralegum öflum. Jeremy Hunt,
utanríkisráðherra Bretlands, sagði að
aðgerðir hersins gegn mótmælendum
væru „svívirðilegt skref“ og að al-
þjóðasamfélagið myndi draga herfor-
ingjastjórnina til ábyrgðar fyrir það.
Sendiráð Bandaríkjanna í Khart-
oum sagði sömuleiðis að herinn yrði
að láta af árásum sínum gegn óbreytt-
um borgurum, og að herforingja-
stjórnin gæti ekki stýrt Súdan.
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi
beitingu óhóflegs valds gegn mót-
mælendum og sagði að óháðir aðilar
þyrftu að rannsaka hvað þar hefði far-
ið fram. Moussa Faki, forseti fram-
kvæmdastjórnar Afríkusambandsins,
kallaði sömuleiðis eftir rannsókn á því
sem gerst hefði og að þeir sem bæru
ábyrgð á ódæðinu myndu svara til
saka fyrir það.
Segja viðræðum slitið
Helstu forvígismenn mótmælenda
lýstu því yfir í gær að þeir vildu ekki
halda áfram viðræðum við herfor-
ingjastjórnina í kjölfar aðgerða gær-
dagsins, þrátt fyrir að stjórnvöld í
Egyptalandi byðust til þess að miðla
málum. Snerust viðræðurnar um það
hvernig og hvenær herforingjarnir
myndu láta völd sín af hendi til borg-
aralegra stjórnvalda, en aðila greindi
á um hvort tilvonandi bráðabirgða-
stjórn, sem ætti að sjá um kosningar í
landinu, yrði leidd af fulltrúa hersins
eða mótmælenda.
Herinn tók völdin í Súdan í apríl
síðastliðnum eftir að fjölmenn mót-
mæli gegn Omar al-Bashir, þáverandi
forseta, höfðu staðið í meira en tvo
mánuði. Bashir hafði þá verið við völd
í meira en þrjá áratugi.
Mótmælin leyst upp með ofbeldi
Að minnsta kosti 13 látnir eftir að súdanski herinn braut setumótmæli í Khartoum á bak aftur
Vesturveldin og Sameinuðu þjóðirnar fordæma aðgerðir hersins Krefjast borgaralegrar stjórnar
AFP
Mótmæli Súdanskir mótmælendur hlóðu götuvígi eftir að hermenn höfðu farið með óhóflegu valdi gegn þeim.