Morgunblaðið - 04.06.2019, Page 24

Morgunblaðið - 04.06.2019, Page 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019  Kristján Helgason sigraði Franc- isco Sanchez-Ruiz frá Spáni, 4:1, í úr- slitaleik á alþjóðlegu snókermóti í Bel- grad í Serbíu um síðustu helgi. Hann fékk 1.600 evrur í verðlaunafé og keppnisrétt á Gíbraltar Open. Jón Ingi Ægisson, Pálmi Einarsson og Tryggvi Einarsson kepptu einnig í Belgrad en komust ekki í átta manna úrslit.  Franska knattspyrnukonan Chloé Froment leikur ekki meira með Fylki. Hún kom aðeins við sögu í tveimur leikjum á Íslandsmótinu, í fyrstu og fimmtu umferð, og fór af velli vegna meiðsla í þeim báðum. Froment meiddist illa á hné í leiknum við HK/ Víking í fimmtu umferðinni.  Körfuboltamaðurinn Ingvi Þór Guð- mundsson hefur samið við Grindvík- inga um að leika með þeim næstu tvö árin. Ingvi fór til Bandaríkjanna síð- asta sumar og lék með St. Louis í há- skóladeildinni en kom heim á miðjum vetri og spilaði með Grindavík út tíma- bilið.  Jeongeun Lee frá Suður-Kóreu sigr- aði á Opna bandaríska meist- aramótinu í golfi sem lauk í fyrrakvöld en Ólafía Þór- unn Krist- ins- dóttir lék þar fyrstu tvo hring- ina fyrir helgi. Lee6, eins og hún er auð- kennd á mótaröð LPGA, lék á sex högg- um undir pari og sigr- aði með tveggja högga mun. Eitt ogannað 7. UMFERÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Talsverðar sviptingar urðu í sjöundu umferð úrvalsdeildar karla um helgina því Breiðablik hirti topp- sætið af Skagamönnum og byrjun Íslandsmeistara Vals náði nýjum lægðum þar sem Hlíðarendaliðið sit- ur nú á botni deildarinnar. Blikarnir fóru á kostum í seinni hálfleik gegn FH, skoruðu þá fjögur mörk og þau hefðu getað orðið fleiri, en lokatölur urðu 4:1. Ég minnist þess ekki að hafa séð FH-inga svona grátt leikna á þessari öld eins og á þessum 45 mínútum. Fyrrverandi Valsmaðurinn Guð- mundur Steinn Hafsteinsson skaut uppeldisfélagið niður í 12. og síðasta sæti með sigurmarki Stjörnunnar á 90. mínútu, 2:1, í Garðabæ. Þar átt- ust við tvö lið sem hafa verið undir væntingum en sigurinn fleytti Stjörnunni upp í efri hlutann á ný. Byrjun Valsmanna er að verða að einhverri mestu ráðgátu síðari ára í íslenskum fótbolta. Meistararnir eru með firnasterkan 20 manna hóp og tveggja ára sigurgöngu á bak við sig, en nú er staðan skyndilega sú að byrjun Vals er versta byrjun meist- ara frá því Skagamenn sátu á botn- inum eftir sjö umferðir árið 2002. Endurtekið frá 2012 Sagan endurtekur sig annars merkilega oft í fótboltanum. Byrjun Skagamanna í ár hefur verið eig- inlega nákvæmlega eins og vorið 2012 þegar liðið var líka nýliði í deildinni og var ósigrað á toppnum eftir sex umferðir. Þá gerðist ná- kvæmlega það sama, Skagamenn voru skotnir af toppnum af liði ÍBV sem hafði byrjað mótið illa. Eyja- menn mættu þá til leiks á Akranesi og unnu ótrúlegan stórsigur, 4:0, þar sem Christian Olsen skoraði þrennu á síðustu 25 mínútum leiksins. Á sunnudag unnu tíu Eyjamenn fræk- inn 3:2 sigur á ÍA og komust með því af botni deildarinnar í fyrsta sinn. Damir enn í lykilhlutverki  Damir Muminovic, miðvörður Breiðabliks, var besti leikmaður 7. umferðar að mati Morgunblaðsins. Damir átti enn einu sinni mjög góð- an leik í vörn Kópavogsliðsins, fékk 2 M í annað skipti á tímabilinu, og eins og sést hér fyrir ofan er efstur í M-gjöf Morgunblaðsins með 7 M, jafn þeim Óskari Erni Haukssyni og Tryggva Hrafni Haraldssyni. Damir er 29 ára gamall og fæddur í Serbíu, ólst upp hjá HK og lék með liðinu til 2011. Hann spilaði m.a. 18 ára gamall 16 leiki með liðinu í úr- valsdeildinni árið 2008 en lék auk þess af og til með varaliði HK, Ými, í 3. deildinni og einnig með Hvöt á Blönduósi sem lánsmaður. Damir lék síðan með Leikni í Reykjavík í 1. deild 2012 og með Vík- ingi í Ólafsvík í úrvalsdeildinni 2013 en hefur leikið með Breiðabliki frá 2014 og verið í lykilhlutverki í varn- arleik liðsins nánast frá fyrsta degi. Damir hefur spilað 145 leiki í efstu deild og samtals 215 deildaleiki. Átján ára í vörn KR-inga  Finnur Tómas Pálmason mið- vörður KR var besti ungi leikmað- urinn í umferðinni. Finnur er aðeins 18 ára gamall síðan í febrúar en hef- ur komið sterkur inn í vörn KR, þar sem hann hefur leyst Gunnar Þór Gunnarsson af hólmi í síðustu þrem- ur leikjum og spilað sína fyrstu leiki í efstu deild. Finnur fékk dýrmæta reynslu í fyrra þegar hann lék 12 leiki með Þrótti í 1. deildinni og hann á að baki 20 leiki með yngri lands- liðum Íslands. Gunnleifur Íslandsmethafi  Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, setti Ís- landsmet í umferðinni þegar hann varði mark Blika í stórsigrinum á FH. Hann lék sinn 424. leik í deilda- keppni á Íslandi og sló met Gunnars Inga Valgeirssonar sem lék 423 leiki og spilaði síðast með Sindra á Hornafirði í fyrrasumar. Ítarlega var fjallað um þetta met Gunnleifs á mbl.is/sport/fotbolti á sunnudaginn.  Bjarni Ólafur Eiríksson varn- armaðurinn reyndi í Val náði einnig stórum áfanga, en hann lék gegn Stjörnunni sinn 400. leik í deilda- keppni á ferlinum, heima og erlend- is, sem nánar er fjallað um á bls. 25.  Almarr Ormarsson miðjumað- ur KA spilaði líka áfangaleik en hann lék sinn 200. leik í efstu deild þegar Akureyrarliðið tapaði 1:0 fyrir KR. Almarr hefur leikið 114 leiki fyrir Fram, 39 fyrir KR, 27 fyrir KA og 20 fyrir Fjölni.  Steinþór Freyr Þorsteinsson úr KA, Ásgeir Eyþórsson úr Fylki og Andri Adolphsson úr Val léku allir sinn 100. leik í efstu deild hérlendis í 7. umferðinni. Steinþór hefur það framyfir hina að hafa líka spilað 106 leiki í efstu deild í Noregi og sam- anlagt 316 deildaleiki á ferlinum.  Helgi Valur Daníelsson er elsti útispilari deildarinnar, verður 38 ára í júlí. Hann gerði bæði mörkin í mik- ilvægum 2:1 útisigri Fylkis á HK og er kominn með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum Árbæinga.  Breki Ómarsson úr ÍBV skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild þegar Eyjamenn lögðu ÍA 3:2.  Sigurður Bjartur Hallsson úr Grindavík lék sinn fyrsta leik þegar lið hans gerði 0:0 jafntefli við Víking. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Damir Muminovic, Breiðabliki 7 Óskar Örn Hauksson, KR 7 Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 7 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 6 Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 6 Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 6 Ásgeir Marteinsson, HK 5 Einar Logi Einarsson, ÍA 5 Eyjólfur Héðinsson, Stjörnunni 5 Guðmundur Kristjánsson, FH 5 Hannes Þór Halldórsson, Val 5 Helgi Valur Daníelsson, Fylki 5 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 5 Jónatan Ingi Jónsson, FH 5 Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki 5 Leikmenn með 4 M: Alex Þór Hauksson, Stjörnunni, Almarr Ormarsson, KA, Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki, Aron Bjarnason, Breiðabliki, Atli Arnarson, HK, Ásgeir Eyþórsson, Fylki, Björn Berg Bryde, HK, Björn Daníel Sverrisson, FH, Brandur Olsen, FH, Einar Karl Ingvarsson, Val, Elfar Árni Aron Bjarnason, Breiðabliki, Björgvin Stefánsson, KR, Brandur Olsen, FH, Halldór Orri Björnsson, FH, Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA, Helgi Valur Daníelsson, Fylki, Hilmar Árni Halldórs- son, Stjörnunni, Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki, Nikolaj Hansen, Víkingi, Pálmi Rafn Pálmason, KR, Thomas Mikkelsen, Breiðabliki, Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA Markahæstir með 3 mörk Breiðablik 42 ÍA 41 KR 35 KA 35 Stjarnan 32 FH 30 Víkingur R. 29 Grindavík 28 Fylkir 28 HK 28 Valur 27 ÍBV 22 Lið: Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 7. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019 5-4-1 Aðalsteinsson, KA, Elias Tamburini, Grinda- vík, Finnur Orri Margeirsson, KR, Guðjón Baldvinsson, Stjörnunni, Gunnar Þorsteins- son, Grindavík, Gunnleifur Gunnleifsson, Breiðabliki, Kennie Chopart, KR, Marcus Johansson, ÍA, Ólafur Karl Finsen, Val, Sölvi Geir Ottesen, Víkingi, Víðir Þorvarðarson, ÍBV Arnór Sveinn Aðalsteinsson KR Helgi Valur Daníelsson Fylki Hannes Þór Halldórsson Val Víðir Þorvarðarson ÍBV Aron Bjarnason Breiðabliki Damir Muminovic Breiðabliki Óskar Elías Zoëga ÍBV Brynjar Gauti Guðjónsson StjörnunniMarinó Axel Helgason Grindavík Andri Rafn Yeoman Breiðabliki Eyjólfur Héðinsson Stjörnunni 3 2 2 2 2 2 Ráðgátan á Hlíðarenda  Steinn sendi uppeldisfélagið á botninn  Blikar fóru á kostum og veltu ÍA af toppnum  Damir besti leikmaðurinn  Finnur besti ungi leikmaðurinn Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Breiðablik Damir Muminovic lék best allra í sjöundu umferðinni. Ljósmynd/KR KR Finnur Tómas Pálmason hefur spilað þrjá sigurleiki með liðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.