Morgunblaðið - 04.06.2019, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019
Anton Ari Einarsson, markvörður
Vals í fótbolta, blæs á þær sögusagnir
að hann sé á leið til Breiðabliks.
Fréttablaðið birti frétt þess efnis í gær
að Anton myndi ganga í raðir Breiða-
bliks í júlí en hann hefur verið vara-
markvörður Vals eftir komu Hannesar
Þórs Halldórssonar landsliðsmark-
varðar. Í samtali við Fótbolta.net í
gærkvöld kvaðst Anton hins vegar
ekki hafa fengið neitt samningstilboð
frá Breiðabliki og að hann vissi ekki til
þess að Valur hefði samþykkt tilboð í
sig. Gunnleifur Gunnleifsson hefur
þótt leika vel í marki Breiðabliks en
þessi 41 árs gamli markvörður setti á
sunnudag Íslandsmet með því að leika
sinn 424. deildarleik á Íslandi.
Jordan Henderson og félagar í Liv-
erpool verða í efsta styrkleikaflokki
þegar dregið verður í riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu
á næstu leiktíð en þetta staðfesti
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, í
gær. Liverpool vann Meistaradeild Evr-
ópu um helgina og tryggir það liðinu
sæti í styrkleikaflokki 1, líkt og
Chelsea sem fór með sigur af hólmi í
Evrópudeildinni. Alls
verða þrjú ensk lið í
styrkleikaflokki 1 en
Englandsmeistarar
Manchester City
verða einnig í
efsta
styrkleikaflokki
eftir að hafa
unnið ensku úr-
valsdeildina.
Bayern Münc-
hen, Juventus,
PSG og Zenit frá
Pétursborg verða
einnig í efsta
flokki.
Eitt
ogannað
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta var mjög erfiður tími. Það
hafa nú ekki margir spurt mig um
hvernig mér leið. Fólk vill bara ein-
hverjar brjálæðislegar sögur en
þannig var þetta ekki,“ segir Gary
Martin, nýjasti liðsmaður knatt-
spyrnuliðs ÍBV. Eftir skamma dvöl
hjá Val, sem leysti enska framherj-
ann undan þriggja ára samningi á
dögunum, vonast Gary til þess að
finna hamingjuna í fótboltanum á
nýjan leik fjarri höfuðborginni á eyj-
unni grænu.
Gary segir „sápuóperuna“ varð-
andi það hve snöggan enda dvöl
hans hjá Val tók ekki eiga sér flókn-
ari skýringu en þá að Ólafur Jó-
hannesson þjálfari hafi ekki talið
lengur að Gary hentaði liðinu. Hann
spilaði aðeins þrjá deildarleiki fyrir
Val og skoraði í þeim tvö mörk áður
en hann gerði starfslokasamning við
félagið, eftir að hafa verið settur út
úr leikmannahópnum og meinaður
aðgangur að æfingum.
„Óli tók þessa ákvörðun og ég
virði hana. Fólk fattar ekki að ég er
í raun og veru sammála því sem
hann sagði. Mér fannst ég ekki spila
vel. Þetta var ekki auðvelt, en þetta
sýndi mér bara að sama hvað þá
geta hlutirnir breyst mjög hratt í
fótbolta. Við áttum að rúlla upp
deildinni og ég held að það hafi haft
áhrif á okkur alla. Ég kvaddi alla hjá
Val með handabandi, við hlógum og
skildum í góðu. Mér er létt að fá
þetta tækifæri hjá ÍBV, ég vissi svo
sem að ég myndi alltaf fá nýtt félag,
og vonandi skora ég mörk fyrir liðið.
Núna vil ég bara fá að vera í friði því
síðustu vikur hafa tekið sinn toll,“
segir Gary við Morgunblaðið. Hann
vill ekki taka undir það að úr honum
hafi verið gerður blóraböggull vegna
slæms gengis Vals, og það að sjá lið-
ið í neðsta sæti Pepsi Max-deild-
arinnar gleður Englendinginn ekki
vitund:
„Það er ekki gaman, því ég á góða
vini í liðinu. En ég veit að þetta er
gott lið sem mun koma sér úr þess-
um vandræðum. Fyrir mér er þetta
besti leikmannahópur í deildinni.
Auðvitað er ég ekki ánægður með
hvernig komið var fram við mig en
það er ekkert sem ég get gert við
því. Núna fæ ég tækifæri til að af-
sanna margt sem fólk hefur sagt.
ÍBV er með gott lið og þetta er gott
tækifæri fyrir mig,“ segir Gary.
Gott að komast frá Reykjavík
Gamlir vinir framherjans úr
Middlesbrough, Jonathan Franks
sem nú leikur með ÍBV og David
Atkinson sem lék með liðinu í tvö ár,
gáfu félaginu góð meðmæli. Gary
stóð einnig til boða að fara til HK
eða KA og þá ræddi hann við sinn
gamla þjálfara Rúnar Kristinsson,
sem stýrði Gary hjá KR, Lilleström
og Lokeren.
„Þetta er góð áskorun fyrir mig
og eitthvað sem ég þurfti, eitthvað
gjörólíkt því sem ég hef verið í. Ég
tel það gott fyrir mig að búa í Vest-
mannaeyjum, í burtu frá Reykjavík
þar sem allt er á 100 km/klst. Þetta
var langbesti kosturinn fyrir mig.
Ég gat verið áfram í Reykjavík en
ég vil fá að vera aðeins í friði núna
og einbeita mér að fótboltanum aft-
ur,“ segir Gary, sem fyrst kom til Ís-
lands til að leika með ÍA í 1. deild ár-
ið 2010, lék með KR 2012-2015 og
Víkingi 2016, og sneri svo aftur til
Íslands í byrjun þessa árs.
„Mig langaði að vera áfram á Ís-
landi [eftir brotthvarfið frá Val]. Það
voru mörg lið áhugasöm en ég þurfti
að ákveða mig fljótt. Það komu þrjú
tilboð en valið mitt var á milli HK og
ÍBV. Mér fannst að ég myndi ekki
losna við þessa Valssögu ef ég yrði
áfram í Reykjavík. Ég skildi við Val
á góðum nótum, ber virðingu fyrir
þjálfaranum og tel hann ennþá góð-
an þjálfara, ber virðingu fyrir öllum
leikmönnunum, og ég vildi ekki búa
við að fólk væri að búa til einhverjar
sögur áfram. Þess vegna fannst mér
best að ég færi til Vestmannaeyja.
Fyrir fimm árum hefði Gary Martin
aldrei getað búið þar en núna held
ég að þetta sé gott fyrir mig,“ segir
hinn 28 ára Gary léttur í bragði.
„KA var möguleiki líka, ég fékk
tilboð þaðan, en þeir vildu gera
lengri samning. Ég vildi ekki skuld-
binda mig lengi því maður veit aldr-
ei hvað gerist. Ég er nýkominn frá
Val þar sem ég hélt að ég yrði alla
vega í þrjú ár og yrði Íslandsmeist-
ari og myndi vinna gullskó. Núna
hef ég sex mánaða verkefni fyrir
höndum og svo sjáum við til,“ segir
Gary.
Talaði við Rúnar Kristins
„Ég talaði við Rúnar [Kristins-
son], ég hef þekkt hann svo lengi, en
ég vil ekki fara nánar í þær samræð-
ur. KR hentar mér ekki núna. Liðið
er gott, í 2. sæti deildarinnar og fékk
góðan drátt í bikarnum. Rúnar er
ekki bara góður þjálfari heldur frá-
bær manneskja og það er gott að
tala við hann um allt, en tíminn
hentaði ekki núna. Í staðinn ætla ég
mér að skora gegn honum í fyrsta
leiknum fyrir ÍBV,“ segir Gary létt-
ur í bragði en fyrsti leikur hans með
ÍBV gæti orðið gegn KR á Hásteins-
velli 6. júlí. Félagaskipti hans ganga
í gegn þegar „glugginn“ opnast 1.
júlí og Gary flytur til Eyja 20. júní.
Fæ frið í Eyjum til að
einbeita mér að fótbolta
Gary Martin segir síðustu vikur hafa verið erfiðar Tilboð frá HK og KA
Morgunblaðið/Ómar
Vistaskipti Gary Martin á ferðinni í leik gegn ÍA hinn 11. maí. Það reyndist
vera síðasti leikur Englendingsins fyrir Val og næst leikur hann með ÍBV.
Óskar Örn Hauksson, fyrirliði og leikjahæsti leikmaður
KR-inga, mætir uppeldisfélagi sínu í átta liða úrslitum
bikarkeppninnar í fótbolta, Mjólkurbikarsins, en dregið
var til þeirra í gær. Óskar er frá Njarðvík, lék þar fyrstu
fimm árin í meistaraflokki, frá 14 ára aldri, og faðir
hans, Haukur Jóhannesson, er leikjahæsti leikmaður fé-
lagsins frá upphafi.
KR fékk heimaleik gegn Njarðvík, sem er eina liðið ut-
an úrvalsdeildar í átta liða úrslitum. Breiðablik mætir
Fylki á Kópavogsvelli, ÍBV fær Víking R. í heimsókn til
Eyja og FH tekur á móti Grindavík í Kaplakrika. Leikið
er 26. og 27. júní.
Í átta liða úrslitum kvenna mætast tvö sterkustu liðin sem eftir eru í
keppninni, Þór/KA og Valur, á Akureyri. Lillý Rut Hlynsdóttir kemur því í
heimsókn með Val á sinn gamla heimavöll. KR fær 1. deildarlið Tindastóls í
heimsókn, Selfoss tekur á móti HK/Víkingi og 1. deildarlið ÍA fær Fylki í
heimsókn. Fylkir sló Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks út í sextán liða
úrslitunum. Leikið er 28. og 29. júní í átta liða úrslitum. vs@mbl.is
Óskar mætir Njarðvíkingum
Óskar Örn
Hauksson
Hin 18 ára gamla Ragnhildur Helga Kjartansdóttir,
landsliðskona í íshokkí, er gengin til liðs við sænska fé-
lagið Färjestad. Färjestad leikur í næstefstu deild og
komst í umspil um sæti í úrvalsdeild nú í vor en féll þar
úr leik. Ragnhildur kemur til félagsins frá Íslandsmeist-
urum SA sem fengu afar litla samkeppni í vetur.
„Ég var að klára skólann og hef ekki ákveðið hvaða
frekara nám ég vil fara í. Þá kom þessi spennandi kostur
upp. Þetta er stórt ævintýri fyrir mig, að flytja frá Ís-
landi og spila með Färjestad á öðru stigi en ég er vön.
Það eru bara þrjár íshokkíhallir á Íslandi og tvö félög.
Hér er allt svo stórt að ég veit varla hverju ég á von á,“
sagði Ragnhildur við heimasíðu Färjestad.
Þar segist hún ekki koma til með að sakna Akureyrar, mömmu eða
pabba mest: „Nei, það verður án efa erfiðast að vera í burtu frá hundinum
mínum,“ sagði Ragnhildur sem flytur til Karlstad í ágúst. sindris@mbl.is
Mun sakna hundsins mest
Ragnhildur Helga
Kjartansdóttir