Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Á laugardagskvöldið var lauk í nýja
menningarhúsinu The Shed í New
York-borg átta tónleika röð Bjarkar
Guðmundsdóttur undir heitinu
Cornucopia eða Gnægtahorn, sem
byggði á tónlistinni á síðustu plötu
hennar, Utopia. Tónleikarnir eða sýn-
ingin sem sett var upp var glæsilegt
sjónarspil, veisla fyrir augu sem eyru,
þar sem auk Bjarkar komu fram
hljómsveit hennar skipuð íslenska
flautuseptettinum viibra, Bergi Þór-
issyni á tölvur og ýmis hljóðfæri, Kat-
ie Buckley á hörpu og ásláttarleikar-
anum Manu Delago. Þá var Hamra-
hlíðarkórinn skipaður 52 söngvurum
undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur
í stóru hlutverki.
Tónleikarnir hlutu einróma og há-
stemmt lof gagnrýnenda, jafnt tónlist
og útsetningar Bjarkar sem leik-
stjórn, sviðshreyfingar og stórkostleg
myndvörpunin. Í samtali var Björk
beðin að lýsa hugmyndafræðinni að
baki uppsetningunni, þessum sam-
runa tónlistar, myndlistar, sviðs-
hreyfinga …
„Ég held að hver plata fyrir mér sé
mismunandi staður,“ svarar hún.
„Bíófílía var til dæmis tónlistar-
kennsla í vísindasöfnum, Vúlnikúra
hjartabrots-VR-ópera [virtual rea-
lity] fyrir einn. Útópía er kannski
augljósust af þeim hvað sviðsetningu
varðar því ég vissi frá upphafi að ég
þurfti hefðbundna leikhússviðsmynd
og búninga þar sem mig langaði að
búa til stað sem tónlistin gæti verið
eins konar kvikmyndatónlist fyrir. Þá
myndi það vinna með okkur tónlistar-
fólkinu sem er að flytja lögin.
Mér finnst ég ennþá vera að gera
poppmúsík en bara með framleng-
ingu í allar áttir. Mér finnst tónlistar-
myndbandið ennþá vera eitt besta
tjáningarform sem mannveran hefur
fundið … og ennþá eitt af því mest
spennandi sem ég geri er að finna
myndmál við lögin. Það er eins og að
leysa sakamál að finna litapalletuna,
mismunandi áferð, hvort það er nær-
mynd og „narrasjón“ sem horfir í
augun á hlustandanum eða meira í
fjarlægð, og svo framvegis.
Cornucopia er þess vegna eins kon-
ar framhald af tónlistarmyndbandinu
en líka framhald af 360 gráðu VR-
heiminum sem ég bjó í fyrir Vúlník-
úru. Svo planið var eiginlega að láta
VR-drauminn „rætast“ í raunveru-
leikanum. Að búa til eins konar tal-
rænt leikhús.
Ég var í þrjár vikur úti í Gróttu að
hljóðblanda túrinn í 360 gráðum,
meðal annars með forritum sem við
fundum upp til að „mastera“ 360
gráðu hljóð fyrir Vúlníkúru VR-
plötuna.“
Langt ferðalag
– Flautur rokka! sagðirðu á sviðinu
í The Shed og þú hefur útsett tónlist-
ina frábærlega fyrir viibra-septett-
inn, sem blómstrar í flutningnum.
Geturðu útskýrt hvers vegna þú
kaust að hafa flautur í svo stóru hlut-
verki í Utopia-verkinu og hvort það
hafi komið út eins og þú sást og
heyrðir það fyrir þér“?
„Það er ótrúlegt hve langt ferðalag
við erum búin að fara í,“ svarar Björk
og segist hafa byrjað á að setja saman
flautusveit með 12 konum haustið
2016 „og við æfðum uppi í bústað hjá
mér á föstudögum … kölluðum það
flautu-fössara eða eitthvað á þá leið.
Svo tókum við það upp í ólíku
„reverb“-magni í Reykjavík, í ýmsum
kirkjum og stúdíóum. Síðan lærði ég
heilmikið á því að hljóðblanda plötuna
og það að það væri líklegast ástæða
fyrir því að ekki eru margir flautu-12-
tettar á sveimi,“ segir hún og hlær.
„Ég ákvað þess vegna að fyrir túr-
inn væri betra að þær væru sjö. Betra
hlutfall. Síðan er stelpunum búið að
fara svo rosalega fram á þessu ári
sem við erum búin að spila, þær eru
alveg búnar að gera þetta að sínu.
Eru mjög sterkar á sviðinu . Við Mar-
grét Bjarnadóttir danshöfundur lögð-
um mikla áherslu á að þær væru allar
sterkar og ólíkar og mér finnst það
koma mjög vel fram.“
Dreymdi um að hafa kórinn
– Þú setur kastljósið fallega á ís-
lenska tónlistarmenn og flytjendur í
verkefninu. Hvers vegna? Og hvers
vegna að leggja í það mikla verkefni
að flytja Hamrahlíðarkórinn, 52 ung-
menni, til New York að syngja í mán-
uð?
„Þau sungu á plötunni og mig
dreymdi náttúrlega um að fá þau með
en vissi ekki hvernig í ósköpunum ég
ætti að fjármagna það. Því hlutfallið
milli sætanna í salnum og fólksins á
sviðinu og sviðsmyndarinnar er ekki
beint fjárvænt … Það er mikilvægt
fyrir þessa hugmynd með talræna
leikhúsið að það sé mjög „immersive“
svo það nái betri „penetration“. Á síð-
ustu stundu fengum við svo styrk
[fyrir kórinn]og það var mikil gleði!
Það er æðisleg orka sem kemur með
kórnum inn í verkefnið og svo náttúr-
lega er Þorgerður Ingólfsdóttir al-
gerlega einstök. Hún er búin að vera
kraftmikill „katalisti“ í þessu öllu
saman síðan við komum út. Það var
eins og hún skildi hvaða náttúru-
lögmálum ég var að falast eftir. Þótt
við höfum reynt að hafa orkuna í tal-
ræna leikhúsinu og sviðsmyndinni
fágaða og fútúríska, þá þarf orkan í
tónlistarfólkinu að vera mjög hrá og
„íslensk“.“
Alltaf að bralla eitthvað
Greint hefur verið frá því að
Cornucopia verði næst sett upp í
Mexíkóborg, í ágúst í sumar. Stendur
til að fara víðar með þessa flóknu og
viðamiklu uppsetningu – og verður ís-
lenskur kór nokkuð með í för?
„Hmmm,“ svarar Björk og hugsar
sig um. Svarar svo: „Jú, þetta er mik-
ið fyrirtæki sem við getum ekki farið
hvert sem er með … og ég hugsa að
eftir þetta verðum við að fá kóra frá
hverri borg. “
– En hvað svo? Er áherslan öll á
Cornucopiu núna eða er ný tónlist að
verða til?
„Maður er náttúrlega alltaf að
bralla eitthvað en það er of snemmt
að segja hvað það er …“
Ljósmynd/Santiago Felipe
Metnaðarfullt „Það er ótrúlegt hve langt ferðalag við erum búin að fara í,“ segir Björk um samstarfið við flautuseptettinn viibra og hina listamennina.
Hún birtist á sviðinu í þessum búningi en hönnun búninganna var í höndum Oliviers Rousteings og Iris Van Herpen, James Merry gerði grímurnar.
Orkan mjög hrá og „íslensk“
Rómaðri tónlistarsýningu Bjarkar Guðmundsdóttur, Gnægtarhorni, lauk í New York um helgina
„Mér finnst ég ennþá vera að gera poppmúsík en bara með framlengingu í allar áttir,“ segir Björk
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.