Morgunblaðið - 04.06.2019, Side 29

Morgunblaðið - 04.06.2019, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019 Aladdin (2019) 1 2 Godzilla 2: King of the Monsters Ný Ný Rocketman Ný Ný John Wick: Chapter 3 – Parabellum 2 3 Pokémon Detective Pikachu 3 4 Avengers: Endgame 4 6 Brightburn 5 2 UglyDolls 7 4 Booksmart Ný Ný The Hustle 6 4 Bíólistinn 31.maí–2. júní 2019 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Bíóaðsókn helgarinnar Tónlistarhóp- urinn Umbra flytur Rauðu bókina, þ.e. Llibre Vermell handritið frá Katalóníu, á tón- leikum á Kirkju- listahátíð í Hall- grímskirkju í kvöld kl. 21. Umbra hefur fengið til samstarfs við sig gestaleikara, m.a. hina katalónsku Marinu Albero sem mun leika á psalterium eða saltara sem er sjaldséð hér á landi. Albero hefur komið fram um allan heim með hinum ýmsu tónlistarhópum, m.a. L’Arpeggiata, Ars Longa og La Folata og aðrir tónlistarmenn sem fram munu koma með Umbru eru Eggert Pálsson slagverksleik- ari, Þórdís Gerður Jónsdóttir selló- leikari og Kristófer Rodrigues Svönuson slagverksleikari og einn- ig verður nýstofnaður karla- sönghópur með í flutningnum, Cantores Islandiae, sem sérhæfir sig í miðalda- og gregorsöng. „Rauða bókin eru einstakar menn- ingarminjar og veitir okkur innsýn í bæði trúarlega og veraldlega til- veru pílagríma á 14. öld sem höfðu viðdvöl í klausturbænum Montser- rat,“ segir í tilkynningu um tón- leikana. Á tónleikunum mun Umbra einn- ig flytja brot úr dönsku handriti frá 15. öld, maríuvers úr Grall- aranum frá 16. öld og tvísöngsbrot sem finna má í íslenskum hand- ritum frá 17. öld. Frekari upplýsingar má finna á kirkjulistahatid.is. Rauða bókin á Kirkjulistahátíð Marina Albero Söngleikurinn We Will Rock You, sem byggður er á lögum hljóm- sveitarinnar Queen, verður settur á svið í Háskólabíói í ágúst á þessu ári. Ragnhildur Gísladóttir mun fara með hlutverk Killer Queen í sýningunni og á móti henni, í hlutverki Kashoggis, verð- ur Björn Jörundur Friðbjörnsson en opnar áheyrnarprufur verða haldnar fyrir önnur hlutverk. Vignir Rafn Valþórsson leik- stýrir sýningunni, Karl Olgeirsson verður tónlistarstjóri og Chantelle Carey danshöfundur. Axel Hall- kell Jóhannesson hannar sviðs- mynd, Rebekka Jónsdóttir bún- inga, ljósahönnun er í höndum Freys Vilhjálmssonar og um hljóð- hönnun sér Aron Þór Arnarsson. Prufur fyrir kór og dansara fara fram á morgun, 5. júní, og fyrir önnur hlutverk degi síðar og má finna allar frekari upplýsingar um áheyrnarprufurnar á facebooksíðu söngleiksins: „We Will Rock You – Ísland“. Söngleikurinn var saminn af enska rithöfundinum Ben Elton og frumsýndur á West End í London árið 2002. Þar var hann sýndur fyrir fullu húsi í 12 ár og var á þeim tíma m.a. tilnefndur til ensku leiklistarverðlaunanna Oli- vier. Hann hefur verið settur upp víða, m.a. á Broadway í New York, Ástralíu, Spáni, Rússlandi og Japan. Ragga og Björn í We Will Rock You  Queen-söngleikur í Háskólabíói Ragnhildur Gísladóttir Björn Jörundur Friðbjörnsson Sögur, verðlaunahátíð barnanna, fór fram í sjónvarpssal RÚV í fyrra- kvöld og var sýnt frá henni í beinni útsendingu. Á hátíðinni verðlaun- uðu íslensk börn það sem þeim fannst standa upp úr í menningar- lífinu, veittu verðlaun fyrir tónlist, leiklist, sjónvarpsefni og barnabók- menntir. Börn á aldrinum 6-12 ára um allt land kusu sín uppáhalds- verk og -höfunda og voru einnig veitt heiðursverðlaun Sagna en þau hlaut rithöfundurinn og lagasmið- urinn Ólafur Haukur Símonarson. Lag ársins varð „Hatrið mun sigra“ og Hatari, sem flytur lagið, var val- inn tónlistarflytjandi ársins. Af öðr- um verðlaunum má nefna að Gunn- ar Helgason hlaut bókaverðlaun barnanna fyrir Sigga sítrónu og í flokki þýddra bóka var það Helgi Jónsson sem hlaut þau fyrir þýð- ingu á Dagbók Kidda klaufa. Heiðraður Ólafur Haukur Símonarson. Ólafur hlaut heiðursverðlaun Sagna Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Hin ellefu ára Emilía Árnadóttir hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegu Oskar Rieding-fiðlusamkeppninni fyrir unga fiðluleikara sem haldin var í Celje í Slóvakíu um helgina. Auk þess hlaut Emilía verðlaun frá styrktaraðila keppninnar, strengja- framleiðandanum Thomastik – In- feld í Vínarborg. Þar spilaði Emilía tvo konserta, annan eftir Oskar Rieding og hinn eftir Joseph Haydn. „Auðvitað var ég smá stressuð en ég var meira spennt að keppa. Það er alltaf mjög gaman,“ segir Emilía um upplifun sína af keppninni. Þar tóku 130 börn þátt, frá 24 löndum, bæði einleikarar og kammerhópar. Sigurvegararnir í keppninni voru víða að úr heiminum, auk Íslands frá Belgíu, Rússlandi, Singapúr, Sviss, Tékklandi, Úkraínu og Bandaríkjunum. Skemmtilegt að spila fyrir aðra Emilía keppti einnig í fiðlukeppn- inni F. Janiewicz á vegum pólska sendiráðsins í mars síðastliðnum, þar sem leikin var tónlist eftir pólsk tónskáld. Samhliða þeirri keppni var píanókeppnin F. Chopin haldin. Í heild voru þátttakendur tæplega fimmtíu talsins. Þar hlaut Emilía fyrstu verðlaun í fiðlukeppninni í sínum aldursflokki. „Ég fékk mína fyrstu fiðlu þegar ég var um þriggja ára.“ segir Em- ilía sem hóf fiðlunám sitt hjá Þórdísi Stross og lærði síðar hjá Lilju Hjaltadóttur í Suzuki-tónlistarskól- anum Allegró. Nú lærir Emilía hjá Auði Hafsteinsdóttur í Mennta- skólanum í tónlist. Það fer mikill tími í æfingar en Emilía segist reyna að finna jafnvægi milli fiðl- unnar, skólans og þess að skemmta sér. Hún segir það skemmtilegasta við fiðlunámið vera að spila á tón- leikum eða í keppnum, eða þá fyrir framan vinkonur sínar. „Það er eig- inlega besti parturinn,“ segir Emilía kát. Ætlar að verða verkfræðingur Það er spennandi sumar í upp- siglingu hjá Emilíu þar sem hún mun leiða breskan kammerhóp í byrjun júlí í St Peter’s-kirkju í Notting Hill í London. Emilía segist einnig taka þátt í alþjóðlegu tónlist- arakademíunni í Hörpu á hverju ári en akademían hefur veitt fiðluleik- aranum unga styrk til þátttöku í tónlistarhátið í Atlanta í Georgíuríki Bandaríkjanna í júlí næstkomandi. Ljóst er að nóg er að gera fyrir Emilíu í tónlistarheiminum og að framtíðin er björt en hún segist þó ekki ætla að gera fiðluleik að at- vinnu sinni. „Ég ætla alltaf að spila á fiðlu en ég er að hugsa um að verða verkfræðingur af því mér hef- ur alltaf þótt stærðfræði rosalega skemmtileg.“ „Alltaf gaman að keppa“  Emilía Árnadóttir, ellefu ára, hlaut fyrstu verðlaun í al- þjóðlegri fiðlusamkeppni  Fékk fyrstu fiðluna þriggja ára Fiðlustelpa Emilía Árnadóttir á framtíðina fyrir sér í tónlistarheiminum. IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Limited Litur: Svartur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 440 Hö, 925 ft of torque með FX4 off-road pakka, upphituð/ loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 12.350.000 m.vsk 2019 Ford F-350 Lariat Litur: Ruby red/gray, svartur að innan. (Ath. Myndin er af eins bíl en neðri litur er meira út í grátt). 6-manna bíll. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque með FX4 off- road pakka, quad beam headlights, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 10.970.000 m.vsk 2018 Ford F-150 Platinum Ekinn 10.000 km. Litur: Platinum white/svartur að innan. Upphækkaður, tölvubreyting 431 hö, lok á palli, Ceramic húðaður. Quad-beam LED hedlights, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20” felgur. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 431 hestöfl 470 lb-ft of torque. VERÐ 11.790.000 m.vsk 2019 GMC Denali 3500 Litur: Silver, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel. Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, geymsla undir aftursæti, heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira. VERÐ 11.360.000 m.vsk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.