Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 8. júní 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.7 124.3 124.0 Sterlingspund 156.99 157.75 157.37 Kanadadalur 92.18 92.72 92.45 Dönsk króna 18.598 18.706 18.652 Norsk króna 14.182 14.266 14.224 Sænsk króna 13.094 13.17 13.132 Svissn. franki 124.21 124.91 124.56 Japanskt jen 1.1426 1.1492 1.1459 SDR 170.99 172.01 171.5 Evra 138.91 139.69 139.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.9156 Hrávöruverð Gull 1336.65 ($/únsa) Ál 1765.5 ($/tonn) LME Hráolía 60.4 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Fallist var á tillögu tilnefningar- nefndar um stjórnarkjör á aðalfundi Haga sem fram fór í gærmorgun. Stjórnin hélst óbreytt frá hluthafa- fundi fyrirtækisins frá því í janúar fyrr á þessu ári. Þar var Jón Ásgeir Jóhann- esson m.a. í framboði, en hlaut ekki kosningu. Framgang í kjörinu í gær hlutu Eirík- ur S. Jóhannsson, forstjóri Slippsins á Akureyri, Erna Gísladóttir, forstjóri og eigandi BL ehf., Davíð Harðarson, fjár- málastjóri Nordic Visitor, Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskipta- ráðs Íslands, og Stefán Árni Auðólfs- son, lögmaður hjá LMB Mandat. Aðrir í framboði til stjórnar voru Björgvin Halldór Björnsson, lögmaður, Guðrún Ólafsdóttir, gæðastjóri VHE ehf., og Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við HR. Ársreikningur fyrirækisins var sam- þykktur á fundinum, en auk þess var fallist á að greiða helming hagnaðar til hluthafa í formi arðs. Engar breytingar í stjórnarkjöri Haga STUTT FRÁ AMSTERDAM Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Það var stór stund fyrir íslenskt við- skiptalíf er Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, sló í gongið og opn- aði þar með fyrir viðskipti með bréf félagsins í Euronext-kauphöllinni í Amsterdam í gær. Talið var niður frá 10 og mikil fagnaðarlæti brutust út er Árni Oddur sló í gongið. Einnig á meðal starfsmanna þeirra fyrirtækja sem nú hafa komið sér fyrir á kaup- hallargólfinu þar sem viðskiptin fóru áður fram á upp gamla mátann. Mikið fjölmenni lagði leið sína til Amsterdam frá Marel, öll fram- kvæmdastjórnin var mætt á svæðið, stjórnarformaðurinn, Ásthildur Mar- grét Otharsdóttir, ásamt stórum kjöl- festufjárfestum í fyrirtækinu, sem fögnuðu þessum merka áfanga í sögu fyrirtækisins. Sagan var raunar allt um kring í þessari gömlu kauphöll sem stofnuð var árið 1602 af hollenska Austur-Indíafélaginu í byrjun 17. ald- ar. Reyndar er húsið sem hýsir kaup- höllina reist á 2. áratugi 20. aldar en að sögn forsvarsmanna Euronext er upprunalega kauphöllin steinsnar frá. Í kjölfar hlutafjárútboðs Samhliða skráningu Marels í Euro- next-kauphöllina fór fyrirtækið í hlutafjárútboð en samtals voru boðnir til sölu 100 milljón nýir hlutir sem samsvara 15% af útgefnu hlutafé. Verð á hlut í útboðinu nam 3,7 evrum og nam heildarfjárhæð útboðsins 336,36 millljónum evra. Þar af voru 90,9 milljónir nýrra hluta og 0,1 millj- ón hlutir sem voru gefnir út í tengslum við hefðbundinn valrétt sem mættu þeirri umframeftirspurn sem var eftir bréfum félagsins. Sé byggt á því nemur heildarmarkaðsvirði Marel um 2,82 milljörðum evra. Hækkaði fyrst um 8% Vel var tekið í viðskipti með bréf Marels í upphafi dags og fljótlega var gengið farið upp fyrir fjórar evrur og hækkað um rúm 8% sem þykir nokk- uð gott. Í lok dags reyndist hækkunin 5,4%. Í samtali við Morgunblaðið skömmu eftir húllumhæið í kauphöll- inni við Beursplein í miðborg Amst- erdam var hljóðið gott í Árna Oddi. „Mér líður bara vel vegna þess að þetta er svo eðlilegt og náttúrlegt skref. Ég lýsti í ræðu minni yfir þakk- læti við núverandi og fyrrverandi starfsmenn og viðskiptavini. Saman Marel skráð í Amsterdam og metið á 421 milljarð króna Hringt inn Marel var tekið til viðskipta í Amsterdam í gær, elstu kauphöll heims. Árni Oddur Þórðarson sló í gong. Hækkaði og lækkaði » Dagslokagengið í Amst- erdam reyndist 3,9 evrur á hlut. » Veltan þar nam 30,8 millj- ónum evra, jafnvirði 4,3 millj- arða króna. » Útboðsgengið endaði í 3,7 evrum og því nam hækkun dagsins 5,4%. » Á Íslandi lækkuðu bréfin hins vegar og náðu jafnvægi við Amsterdam. » Nam lækkunin þar 3,7%.  Veltan í Kauphöllinni í Amsterdam nam 30,8 milljónum evra á fyrsta viðskiptadegi höfum við virkilega verið að umbreyta hvernig matvæli eru unnin. Það er svona langt svar við einfaldri spurn- ingu, við því hvernig mér líður, en við verðum að rifja upp hvað við erum að gera. Við vorum skráð í Kauphöllina á Íslandi árið 1992. Þá vorum við með 45 starfsmenn, sex milljónir evra í veltu. Nú erum við 6.000 starfsmenn með 1.200 milljónir evra í veltu. Það hefur alltaf verið á dagskránni að vera alþjóðlegur leiðtogi. Þetta er náttúrlegt skref að fara í alþjóðlega kauphöll sem endurspeglar líka myntina sem við gerum upp í. Við er- um áfram skráð á Íslandi þannig að við erum að slá tvær flugur í einu höggi. Hluthafar okkar hafa stutt við vöxt okkar og nú erum við að fara í al- þjóðlega kauphöll,“ segir Árni Oddur. Umsvif íslenska fluggeirans hafa snarminnkað eftir fall WOW air í lok mars síðastliðins og Icelandair hefur aðeins að litlu leyti tekist að fylla það skarð sem myndaðist í kjölfar þess. Um það vitna nýjar farþegatöl- ur sem fjallað var um í Morgun- blaðinu í gær. Samkvæmt upplýs- ingum Icelandair Group flutti félagið 419 þúsund farþega í maí- mánuði og fjölgaði þeim um 14% milli ára. Sé hins vegar litið til fólksflutn- inga Icelandair og WOW air í maí í fyrra kemur í ljós að samanlagt fluttu félögin tæplega 696 þúsund farþega í þeim mánuði eða ríflega 66% fleiri en Icelandair flutti í ný- liðnum mánuði. Þessar tölur segja þó ekki nema hálfa söguna þegar lit- ið er til fólksflutninga til og frá Ís- landi. Það skýrist af þeirri staðreynd að hátt hlutfall farþega beggja fé- laga hefur aðeins örstutta viðkomu á Keflavíkurflugvelli þar sem þeir nýta sér svokallað tengiflug milli Evrópu og Norður-Ameríku. Nýlega tók Icelandair að birta niðurbrot á farþegatölum sínum og sýna þær fjölda farþega sem koma til landsins og fara frá því, ásamt fjölda þeirra sem aðeins „fara um Ís- land“ eins og það er orðað en það vísar til fyrrnefndra tengifarþega. Í tölum Icelandair fyrir maímánuð sést að farþegum sem koma til Ís- lands í mánuðinum fjölgar um 33% frá fyrra ári, farþegum sem fara frá landinu fjölgar um 15% en fjölgunin meðal tengifarþega er aðeins 4%. Niðurfærð farþegaspá Isavia birti nýja farþegaspá fyrir árið 2019 í gær. Þar kemur fram að félagið telur að ferðamenn sem heimsækja muni landið í gegnum Leifsstöð verði 1.927 þúsund talsins eða 388 þúsundum færri en í fyrra. Það jafngildir ríflega 17% fækkun milli ára. Í spá fyrirtækisins frá því í janúar var gert ráð fyrir að 2,26 milljónir ferðamanna myndu leggja leið sína hingað til lands. Þá gerir fyrirtækið ráð fyrir því að skiptifarþegum muni fækka um 43% og fara úr 3,9 milljónum í tæpar 2,2 milljónir. Tölur Isavia benda jafnframt til að Íslendingar verði minna á far- aldsfæti nú en í fyrra. Þannig muni 631 þúsund Íslendingar fara um völlinn og jafngildir það fækkun upp á 37 þúsund manns frá fyrra ári. ses@mbl.is 40% færri flug- farþegar í maí  Ferðamönnum fækkar um 388 þúsund 49.800.000,- Melabraut 14, 170 Seltjarnarnes Falleg og vel skipulögð 4ra herb. hæð Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja efri hæð við Melabraut á Seltjarnarnesi. Eignin skiptist í samliggjandi stofur með útgengi á svalir með fallegu útsýni, eldhús með hvítri innréttingu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar. ✆ 585 8800 Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800 Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515 Laugarnesvegur 58, 105 Reykjavík 2ja herb. með sérinngangi Tveggja herbergja íbúð með sérinngangi í kjallara. Íbúðin skipist í, rúmgóða og bjarta stofu, svefnherbergi með fataskáp, eldhús og baðherbergi. Sameiginlegt þvottahús í sameign. 31.500.000,- 54.900.000,- Mikið endurnýjuð 3ja-4ra herb. Falleg og mikið endurnýjuð 3ja-4ra herbergja hæð í þríbýlishúsi við Greni- mel. Stór og björt stofa. Tvö stór svefnherbergi. Þvottahús innan íbúðar. Baðherbergi nýlega endurnýjað. Eldhús með nýlegri innréttingu. Góð hæð á frábærum stað. Grenimelur 29, 107 Reykjavík 69.700.000,- Sérhæð í hlíðunum Falleg og vel skipulögð neðri sérhæð í reisulegu steinhúsi við Úthlíð 5. Eigninni fylgir 25 fm bílskúr með jafnstórri (25 fm) geymslu undir bílskúr- num.Tvær samliggjandi stofur með útgengi á svalir. Þrjú svefnherbergi. . Úthlíð 5, 105 Reykjavík Opið hús miðvikud. 12. júní 17:00 til 17:30 Opið hús þriðjud. 11. júní 16:45 til 17:15 Opið hús þriðjud. 11. júní 17:30 til 18:00 Opið hús þriðjud. 11. júní 17:00 til 17:30

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.