Morgunblaðið - 08.06.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
Til sölu eru veiðileyfi í Reykjadalsá í Reykholtsdal í
Borgarfirði, sumarið 2019. Veiðitímabilið er frá 20. júní til
30. september og rennt er fyrir laxi og urriða.
Í boði eru ýmist einn eða fleiri dagar og veitt er
á tvær stangir.
Auðvelt er að komast að ánni, ágætt veiðihús er á staðnum
og liðlega klukkutíma akstur frá höfuð- borgarsvæðinu.
Mjög góð veiði hefur verið í ánni undanfarin ár. Verð eru
frá 14.400 kr á stöng fyrir daginn. Frekari upplýsingar um
verð og lausa daga gefur Hörður Guðmundsson í gegnum:
reykjadalsa@hotmail.com
Veiði í Reykjadalsá
FRÉTTASKÝRING
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær formlega af
sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins.
Ellefu þingmenn flokksins hafa gef-
ið kost á sér í embættið til þessa, en
framboðsfrestur rennur út klukkan
fimm að breskum tíma á mánudag.
May mun áfram gegna embætti for-
sætisráðherra þar til leiðtogakjöri
flokksins er lokið, en gert er ráð
fyrir að það verði í lok júlí.
Af þeim sem gefið hafa kost á sér
er Boris Johnson, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra og borgarstjóri Lund-
únaborgar, talinn sigurstrangleg-
astur. Reynslan af fyrri
leiðtogakjörum innan Íhaldsflokks-
ins hefur þó sýnt að sá aðili sem
leiðir í upphafi hefur sjaldan eða
aldrei náð að bera sigur úr býtum.
Skrifast það að einhverju leyti á
ferlið í kosningunum, en þingmenn
flokksins, sem nú eru 313 talsins,
kjósa á milli frambjóðendanna í
nokkrum umferðum. Eftir hverja
umferð heltist einn frambjóðandi úr
lestinni þar til að lokum tveir
standa eftir. Þá fá almennir flokks-
menn Íhaldsflokksins, sem eru um
100.000 talsins, að kjósa á milli
þeirra tveggja í póstkosningu, en
kannanir benda til að Johnson njóti
yfirgnæfandi stuðnings meðal
þeirra. Áskorunin fyrir Johnson
verður því að tryggja sér nægan
stuðning meðal þingmanna flokks-
ins, svo að hann verði annar af þeim
tveimur sem grasrót flokksins fær
að velja á milli.
Ein hindrunin, sem talin var
myndu standa í vegi Johnsons, var
dómsmál, sem stuðningsmenn Evr-
ópusambandsaðildar höfðuðu á
hendur honum fyrir að hafa farið
vísvitandi með rangt mál í kosn-
ingabaráttunni í aðdraganda
þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Dóm-
ari hafði úrskurðað að Johnson
bæri að gefa réttinum skýrslu svo
að hægt væri að skera úr um hvort
halda ætti réttarhöld í málinu.
Áfrýjunardómstóll ákvað hins vegar
í gær, að vísa bæri málinu end-
anlega frá dómi.
Brexit er grundvallarmálefnið
Helsta, ef ekki eina, málefnið sem
leiðtogabaráttan mun snúast um er
hver afstaða Íhaldsflokksins eigi að
vera til væntanlegrar útgöngu
Breta úr Evrópusambandinu, en nú
er stefnt að því að hún verði 31.
október næstkomandi.
Það sem helst hefur tafið fyrir
framgangi málsins er skortur á
samkomulagi við Evrópusambandið
um útgönguna sem breska þingið
getur fellt sig við, en samkomulag
það sem May náði við sambandið
var fellt í þrígang af neðri deildinni.
Þeir frambjóðendur sem harðastir
eru í afstöðu sinni segja að Bret-
land eigi beinlínis að stefna að
samningslausri útgöngu. Andrea
Leadsom, sem nýlega sagði af sér
sem leiðtogi neðri deildarinnar
vegna Brexit-málsins, hefur þar
verið fremst í flokki, en hún gaf
einnig kost á sér í embættið árið
2016 eftir að David Cameron sagði
af sér.
Flestir frambjóðenda vilja þó
stefna að því að útgangan úr Evr-
ópusambandinu verði gerð í sam-
komulagi við sambandið, en bæði
Boris Johnson og Dominic Raab,
fyrrverandi ráðherra útgöngumála,
hafa lýst því yfir að þeir myndu
yfirgefa Evrópusambandið án
samnings ef nýtt samkomulag sem
þingið getur stutt liggur ekki fyrir
þegar 31. október rennur upp. Raab
er talinn vera næstsigurstrangleg-
astur í kjörinu á eftir Johnson.
Jeremy Hunt utanríkisráðherra
er einnig talinn eiga möguleika á
embættinu, en honum er það helst
fjötur um fót að hann greiddi líkt og
May atkvæði með því að Bretar
yrðu áfram innan Evrópusam-
bandsins. Hefur Hunt einnig sagt
að það væri ígildi „pólitísks sjálfs-
morðs“ að yfirgefa sambandið án
samnings.
Undir þrýstingi frá Farage
Það sem einkum hefur hert af-
stöðu væntanlegra leiðtogakandí-
data er hin óvænta velgengni Brex-
it-flokksins, sem Nigel Farage
stofnaði nýlega. Flokkurinn sópaði
til sín atkvæðum í nýafstöðnum
Evrópuþingkosningum í Bretlandi,
og hefur Farage sagt að næsta
markmið sé að ná einnig meirihluta
í neðri deild breska þingsins.
Brexit-flokkurinn varð þó fyrir
áfalli á fimmtudaginn, þar sem
frambjóðandi flokksins tapaði
naumlega fyrir frambjóðanda
Verkamannaflokksins í aukakosn-
ingum í borginni Peterborough.
Munaði einungis 700 atkvæðum á
frambjóðendunum tveimur, en at-
hygli vakti að fylgi Verkamanna-
flokksins í kjördæminu minnkaði
um 17% frá þingkosningunum 2017
og fylgi Íhaldsflokksins um 25%.
Kapphlaupið hafið
Theresa May steig formlega til hliðar sem leiðtogi Íhalds-
flokksins Johnson með mest fylgi í skoðanakönnunum
AFP
Helsta ógnin Nigel Farage, formaður Brexitflokksins, afhenti May „upp-
sagnarbréf“ í gær. Farage hefur helst sótt fylgi til óánægðra íhaldsmanna.
Mögulegir arftakar May
Styður útgöngu án samnings
Afstaða til Brexit-málsins
Opinn fyrir að yfirgefa ESB
án samnings 31. október nk.
Vill ekki fara án samnings,
en útilokar ekkert
Leggst gegn útgöngu án
samnings
Vill aðra þjóðar-
atkvæðagreiðslu
MATT HANCOCK
SAJID JAVID
ESTHER MCVEY
MARK HARPER
SAM GYIMAH
BORIS JOHNSON
54
52
Fyrrv. utanríkis-
ráðherra
RORY STEWART
Ráðherra alþjóð-
legrar þróunar
JEREMY HUNT
Utanríkis-
ráðherra
51
MICHAEL GOVE
Umhverfis-
ráðherra
45
46
Fyrrv. ráðherra
Brexitmála
DOMINIC RAAB
56
Fyrrv. leiðtogi
neðri deildar
þingsins
ANDREA LEADSOM
AFP
Fremstur Boris Johnson nýtur nú
mests stuðnings í könnunum.
Xi Jinping, for-
seti Kína og Vla-
dimír Pútín
Rússlandsforseti
gagnrýndu
Bandaríkjastjórn
harðlega á ráð-
stefnu um efna-
hagsmál í St.
Pétursborg í
gær. Gagnrýndi
Pútín það sem
hann kallaði „orðbragð við-
skiptastríða og refsiaðgerða“ sem
kæmi frá Washington. Sagði hann
jafnframt að taka ætti til skoðunar
hlutverk bandaríkjadals í alþjóða-
viðskiptum. Sagði Pútín það vera
gagnrýnivert hvernig Bandaríkja-
stjórn reyndi bæði að koma í veg
fyrir Nord-2 olíuleiðsluna frá Rúss-
landi til Evrópu og að ýta kínverska
fyrirtækinu Huawei af fjarskipta-
markaði.
Xi sagði að það þyrfti að yfirstíga
ójafnvægi í alþjóðahagkerfinu, og
vísaði þar til stöðu Bandaríkjanna.
Sagði Xi að Kínverjar horfðu til
Rússlands með gagnkvæma sam-
vinnu á grundvelli jafnræðis og
virðingar.
Gagnrýndu Banda-
ríkin fyrir yfirgang
Vladimír
Pútín
RÚSSLAND
Bandaríska
geimferðastofn-
unin NASA til-
kynnti í gær að
hún hygðist
bjóða almenningi
upp á geimferðir
í alþjóðlegu
geimstöðina frá
og með næsta
ári. Yrði boðið
upp á allt að tvær
geimferðir á ári, og gætu þeir sem
vildu dvalið í geimstöðinni í allt að
30 daga.
Eins og gefur að skilja verður
farmiðinn frekar dýr, en áætlað er
að hann gæti kostað um 7 milljarða
króna. Munu einkafyrirtækin Spa-
ceX og Boeing sjá um að koma
ferðalöngum til geimstöðvarinnar.
Þá hyggst NASA rukka fyrir gist-
inguna um 35.000 bandaríkjadali,
eða sem nemur rúmlega fjórum
milljónum króna, fyrir hvern dag
sem gist er í geimstöðinni.
Auðkýfingurinn Dennis Tito var
fyrsti ferðalangurinn til að heim-
sækja geimstöðina. Greiddi hann
Rússum um 20 milljónir banda-
ríkjadali fyrir ferðina árið 2001.
Bjóða upp á ferða-
lög í geimstöðina
Dennis
Tito
NASA
Allt bendir til að fullvalda ríki hafi
staðið að baki árásunum á fjögur
olíuflutningaskip hinn 12. maí síðast-
liðinn, en engin sönnunargögn hafa
enn komið fram sem bendla Írani við
málið. Þetta er frumniðurstaða rann-
sóknar Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna í málið, en árásirnar áttu
sér stað innan lögsögu þeirra.
Frumniðurstöðurnar voru kynnt-
ar öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í
vikunni af fulltrúum furstadæm-
anna, Sádí-Arabíu og Noregs, en
skipin fjögur sem urðu fyrir árásinni
tilheyrðu þeim ríkjum.
Samkvæmt niðurstöðunum voru
árásirnar framkvæmdar rétt undan
ströndum borgarinnar Fujairah af
köfurum sem notuðust við hraðbáta
til þess að sigla inn fyrir lögsögu
furstadæmanna. Settu kafararnir
segulmagnaðar sprengjur á skrokk
skipanna. Ekkert mannfall varð þó í
árásinni.
Sagði í sameiginlegri yfirlýsingu
ríkjanna þriggja, að sterkar vísbend-
ingar væru um að árásirnar hefðu
verið hluti af háþróaðri aðgerð, og að
allar líkur bentu til að ríkisvald hefði
staðið að baki framkvæmd hennar.
Fulltrúi Rússa í öryggisráðinu
sagði eftir fund ráðsins, sem haldinn
var fyrir luktum dyrum, að engin
sönnunargögn hefðu verið lögð fram
gegn Írönum þar. Fulltrúar Banda-
ríkjanna og Sádi-Arabíu hafa hins
vegar þegar sagt Írani ábyrga. Sagði
John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafi
Bandaríkjanna, í síðustu viku að það
væri „enginn vafi í huga nokkurs
manns í Washington hver beri
ábyrgðina á þessu.“
„Ríki“ ber ábyrgðina
Skýrsla um árásina á olíuflutningaskipin beinir spjótum
óbeint að Íran Engin bein sönnunargögn sögð fyrir hendi
AFP
Árás Eitt af olíuflutningaskipunum fjórum sem urðu fyrir árásinni.