Morgunblaðið - 08.06.2019, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033
Frábært úrval af
herrafatnaði
fyrir útskriftina
frá BERTONI
Flottir
í fötum
Fyrrverandi fjár-
málaráðherra og stofn-
andi Viðreisnar, Bene-
dikt Jóhannesson,
skrifar Pistil blaðsins
fyrir nokkru, 14. maí;
Verum hrædd – verum
mjög hrædd. Þar gerir
hann 5. kynslóð þráð-
lausrar samskipta-
tækni, 5G, að umtals-
efni, en í dag erum við í
þeirri fjórðu eins og kunnugt er.
Pistillinn gengur meira eða minna
út á það að vera með alhæfingar um
þá sem ekki eru tilbúnir að fallast á
„viðurkenndar“ skoðanir og stefn-
ur.
Þar bendir hann á að RT America
(Russia today í Bandaríkjunum)
hafi verið með sjö sjónvarpsþætti
um hættuna af 5G-símkerfum. Höf-
undur gerir enga tilraun til að skoða
málið af einhverri hlutlægni og
sanngirni. Heldur er RT dregin inn
í eitthvert Rússaplott til að vinna
gegn uppsetningu 5G í Bandaríkj-
unum og tefja þannig þróunina þar
meðan þeir vinna sjálfir að uppsetn-
ingu á 5G. Augsýnilega er enginn
greinarmunur gerður á fjölmiðl-
inum og rússneskum stjórnvöldum.
Það er ekki rétt hjá höfundi, að eng-
in vísindaleg rök séu
fyrir hættunni af
geislum frá 5G.
Alþjóðlegt ákall
Nú er í gangi al-
þjóðlegt ákall gegn upp-
setningu á 5G þar sem
allir borgarar heimsins
geta skrifað undir, Int-
ernational Appeal: Stop
5G on Earth and in
Space (https://
www.5gspaceap-
peal.org/the-appeal).
Auk þess hafa vísindamenn og
læknar frá 36 löndum skrifað undir
slíka áskorun, Scientists warn of po-
tential serous health effects of 5G
(http://www.5gappeal.eu). Ætli þeir
séu á móti framförum og uppfullir af
RT-samsæri?
Færðar hafa verið sönnur á skað-
semi rafgeislunar á fólk og umhverfi.
Uppsetning 5G flokkast undir til-
raunir á mannfólki og umhverfi, slíkt
er skilgreint sem glæpur samkvæmt
alþjóðalögum. Vegna þess hversu
stutt bylgjulengd 5G-sendinganna
verður og hversu illa bylgjurnar kom-
ast í gegnum fast efni, þurfa send-
istövar að vera með u.þ.b. 100 m milli-
bili, annar hver ljósastaur þyrfti að
vera með sendi og jafnvel þyrfti tí-
unda hvert hús í þéttbýli að vera með
loftnet. Sérhver 5G-sími verður með
tugi örlítilla loftneta sem nema og
miða geisla að næsta farsímamastri.
5G-sendar út um allt, á jörðu og
í segulhvolfi
Sérhver 5G-grunnstöð verður
með hundruð eða þúsund loftneta
sem beina fjölda leysilegra geislum
samtímis til allra farsíma á viðkom-
andi þjónustusvæði. Þessi tækni er
kölluð „margþætt inntak, margþætt
afköst“ eða MIMO. Auk þessa hafa
minnst fimm fyrirtæki boðist til að
koma fyrir 5G stöðvum á sporbraut
jarðar, með samtals 20.000 gervi-
tunglum sem munu þekja jörðina
með öflugum og nákvæmum, stýr-
anlegum geislum. Sérhvert gervi-
tungl mun senda frá sér millimetra
bylgjur með geislaorku upp að 5
milljónum watta frá þúsundum loft-
neta sem komið verður fyrir í skipu-
lögðu og þéttriðnu neti.
Þó að orkan sem nær til jarðar frá
gervitunglunum verði minni en frá
loftnetum á jörðu niðri, mun hún
hafa áhrif og verða viðbót við millj-
arða 5G-senda á jörðu niðri. Það sem
er jafnvel enn hættulegra er að
gervitungl verða staðsett í seg-
ulhvolfi jarðar sem hefur veruleg
áhrif á rafmagnseiginleika andrúms-
loftsins. Gleymum því ekki að
ómögulegt er að slökkva á þessum
gervitunglum. Breytingin á rafseg-
ulumhverfinu gæti orðið enn meiri
ógn fyrir lífið heldur en geislunin frá
loftnetum á jörðu niðri.
Aðvörun vísindamanna
Árið 2015 sendu 215 vísindamenn
af 41 þjóðerni, viðvörun til Samein-
uðu þjóðanna (UN) og til Alþjóðlegu
heilbrigðisstofnunarinnar (WHO)
(https://emfscientist.org/index.php/
emf-scientist-appeal). Þar fullyrða
þeir að fjöldi nýrra vísindagreina sýni
að rafsegulsvið (EMF) hafi áhrif á líf-
verur langt undir alþjóðlegum við-
miðunum. Meir en 10.000 ritrýndar
vísindarannsóknir sýna að rafgeislun
er skaðleg heislu fólks.
Að búa til samþykki
Mér finnst afskaplega ábyrgð-
arlaust af Benedikt Jóhannessyni, fv.
ráðherra og stofnanda nýs stjórn-
málaafls, að falla í gryfju rétthugs-
unar og forskriftasamþykkis, ef svo
má að orði komast, sbr. bókina,
Manufacturing consent, eftir þá
Edward S. Herman og Noam
Chomsky frá árinu 1988, þar sem
vald bandarískra fjölmiðla er gert að
umtalsefni og höfundar færa rök fyrir
kerfisbundnum áróðri þeirra sem öfl-
ugum hugmyndafræðilegum stofn-
unum. Tvær þeirra stærstu hér á
landi berja sér á brjóst sem öflugir og
trúverðugir alvörufjölmiðlar og vara
okkur við falsfréttum, en áður þurfa
þessir sömu fjölmiðlar að geta greint
hvað eru falsfréttir og hvað ekki.
Ekki veit ég hvernig franska þjóð-
þingið ætlaði að fara að en þar hugðu
menn á bann við slíkum fréttaflutn-
ingi. Væri gaman að vita hvert yrði
fyrsta fórnalambið, CNN? Í það
minnsta kallaði Herdís Þorgeirs-
dóttir þann fjölmiðil ómerkilegan í
viðtali á RÚV, ef ég man rétt. Ég
minni á að hún er doktor frá lagadeild
háskólans í Lundi; þar sem umfjöll-
unarefnið var, tjáningarfrelsi fjöl-
miðla og ritstjórnarlegt sjálfstæði
þeirra. Nei, risunum í íslenskum fjöl-
miðlaheimi hefur ekki tekist að
greina á milli þess hvað eru falsfréttir
og hvað ekki, heldur virðast þeir vera
hluti af forskriftinni. Ætíð eru tvær
hliðar á öllum málum eða helgar til-
gangurinn meðalið, hvað sem það
kostar? Velkomin í útópíu Aldous
Huxley og George Orwell.
Verum varkár – verum mjög varkár
Eftir Ara
Tryggvason » Skaðlegar afleið-ingar 5G geislunar
er enginn hræðsluáróð-
ur af hendi rússneskra
fjölmiðla. Nú er í gangi
ákall um að stöðva upp-
setningu 5G stöðva.
Ari Tryggvason
Höfundur er fv. stuðningsfulltrúi.
arit54@gmail.com
Margir stjórnmála-
menn hér á landi lifa
eftir þeirri lífsskoðun
sinni að hlutverk þeirra
sé að vernda hagsmuni
almennings. Setja alls
kyns skorður þeim sem
vilja auka skaða og
koma í veg fyrir að ein-
staklingar nái fram
sínu besta. Þessi hópur
stjórnmálamanna hef-
ur trú á skynsemi al-
mennings og setur því lög og reglur,
höft og takmarkanir. Dæmi um þetta
er viðhorf þessa göfuga hóps gagnvart
sölu á bjór og léttvíni í matvöruversl-
unum. Þeir sjá fordæmi þess og gögn
sem styðja ákvarðanir þeirra um að
standa gegn meira frjálsræði í sölu
áfengis og annarra vímuefna. Nokkrir
þjóðþekktir einstaklingar hafa kallað
þá sem huga að lýðheilsu, barnavernd,
sjálfbærni og forvörnum mörgum ill-
um nöfnum, borið upp á þá dómsdags-
spár. Það sýnir staðreyndafátækt
þegar sendiboðum málefnis er úthúð-
að. Staðreyndin er að margt hefur
breyst í neyslumynstri þjóðarinnar,
alvarlegast þó að neysl-
an er orðin meiri og al-
mennari. Að sjálfsögðu
lyftir aukinn ferða-
mannastraumur sölu-
tölum upp en það er að-
eins brot af
aukningunni. Með sam-
stilltu átaki í for-
varnageiranum með
foreldrasamfélaginu,
hækkun forræðisald-
urs, tókst að draga úr
neyslu ungmenna og
koma í veg fyrir að
þjóðin yrði afvelta á
fylliríi og að æska landsins færi í
hundana. Í dag þarf að bretta upp
ermarnar því allt hjal um frjálslyndi
ýtir undir neyslu. Það er beinlínis
rangt þegar sömu aðilar segja að
ekkert af þeim varnaðarorðum og
spám hafi ræst. Dagbækur lögreglu,
fréttir úr heilbrigðisgeiranum og
langir biðlistar eftir meðferð sanna
það.
Það er eðlilegt að halda því fram
að íslenska þjóðin sé annarrar gerð-
ar en aðrar þjóðir og allt sem tíðkast
erlendis geti ekki hentað hér. Rökin
eru skýr og hafa Íslendingar valið
sér ýmsar reglur og lög sem má
kalla forræðishyggju eða verndandi
þátt gegn utanaðkomandi þrýstingi
áfengisiðnaðarins um að fá leyfi til að
selja meira til að auka sinn hagnað án
tillits til afleiðinganna.
Margar leiðir eru farnar til að
glepja einstaklinga. Nýleg könnun
Maskínu sýnir að fleiri eru hlynnt
sölu bjórs og léttvíns í matvöruversl-
unum, en samfélagið er andvígt
auknu aðgengi að áfengi samkvæmt
mörgum öðrum könnunum. Nánast
allar umsagnir um breytingar á
áfengislögum eru á móti tilslökunum
með góðum rökum. Við hvetjum al-
menning og stjórnmálamenn til að
kynna sér þau rök vel áður en þau
taka ákvarðanir um aukið frelsi
áfengisiðnaðarins til að ýta hér undir
aukna neyslu https://www.althingi.is/
thingstorf/thingmalin/erindi/
?ltg=149&mnr=110.
Stórum hópi landsmanna finnst
flestir stjórnmálamenn standa sig vel í
að verja samfélagið. Þeir hafa óspart
vísað til þess að vilji þjóðarinnar sé
skýr, hún vilji hafa þessa vernd og
ekki draga úr þeirri stoð sem for-
varnir hafa í skýrum áfengislögum.
Ungt fólk í dag sem er vel upplýst er
líklegra til að hafna neyslu áfengis eða
annarra vímuefna. Þetta unga fólk vill
búa í opnu þjóðfélagi og kemur auga á
rökin fyrir því að ekki sé verið að
hvetja til aukinnar neyslu áfengis.
Ungt fólk í dag er meðvitaðra um þau
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
sem við ætlum að ná. Áfengi vinnur
gegn 13 af 17 markmiðum. Hama-
gangur talsmanna áfengisiðnaðarins
er mikill núna því sannleikurinn er
alltaf að koma betur í ljós um óholl-
ustu áfengis á einstaklinga og neikvæð
áhrif á samfélög. Það er kominn tími
til að stjórnmálamenn sem vilja frelsa
áfengisiðnaðinn vippi sér yfir í nú-
tímann og vinni að samþykktum
Heimsmarkmiðum um að auka sjálf-
bærni.
Vegna þess
Eftir Aðalstein
Gunnarsson
Aðalsteinn
Gunnarsson
» Það er kominn tími
til að þeir sem vilja
frelsa áfengisiðnaðinn
vippi sér yfir í nútímann
og vinni að samþykktum
heimsmarkmiðum um
að auka sjálfbærni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
IOGT á Íslandi.
Nú virðist margir
þeirrar skoðunar að
fjárlög á næsta ári stefni
í 40 milljarða halla eða
þar um bil. Þykir það
slæmt til afspurnar og
raunveru að fjár-
málaáætlun standist
ekki, þrátt fyrir að það
felist bæði í orðinu og
innihaldinu að áætlun
hverfist um hið ókomna
og getur brugðist til beggja átta. Tala
stjórnmálamenn og fleiri að taka þurfi
með einhverjum hætti á aðsteðjandi
halla og vanda. Þeir sem eru með
vinstri slagsíðu tala helst um hækkun
skatta en þeir sem eru með hægri
slagsíðu tala um samdrátt í útgjöldum,
nú telja sjálfsagt sumir að viðbrögðin
eigi að vera sambland niðurskurðar
útgjalda og aukning skattheimtu. Sá
sem hér skrifar telur að
nefnd úrræði séu röng
og myndu örugglega
auka niðursveifluna ef
einhver verður og auka
atvinnuleysi sem sjálf-
sagt allir hvar sem þeir
standa í hinu pólitíska
litrófi hljóta að sam-
þykkja að sé af hinu
vonda.
Nær er lagi fyrir hið
opinbera annað hvort að
taka innlend lán eða
auka peningamagn í um-
ferð með peningaprentun til að dekka
hallann. Sjálfsagt yrði blanda þessara
tveggja lausna ofan á að bestu yfirsýn
og skynsemi þeirra sem kallaðir yrðu
til a stoppa í gatið. Vel má vera að
auka þurfi umsvif hins opinbera meira
en gert ráð fyrir í núverandi áætlun,
þ.e. auka þurfi hallann til að vega upp
á móti samdrætti í einkageiranum.
Lántaka og peningaprentun yrði þá
Skondið – eða hvað?
Eftir Þorbjörn
Guðjónsson » Það er algeng mein-
loka að halda að
halla á fjárlögum verði
einungis mætt með
lækkun útgjalda eða
hækkun skatta eða
blöndu af hvoru tveggja.
Þorbjörn Guðjónsson
Höfundur er cand oecon.
á gamals aldri.
meiri en ella. Forðast ber líkt og heit-
an eldinn að taka erlend lán. Gæta
verður að verðbólgu, það er að hún
magnist ekki svo af verði stór vand-
ræði. En það er til mikils til vinna að
halda fólki í vinnu fremur en á at-
vinnuleysisbótum. Atvinnuleysið, auk
þess að vera versta böl þeirra sem í því
lenda, felur í sér þjóðhaglegt tap, að
nauðsynjalausu, sem aldrei verður aft-
ur tekið.
Móttaka að-
sendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl.
8-18.