Morgunblaðið - 08.06.2019, Síða 33

Morgunblaðið - 08.06.2019, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019 böllunum heima í stofu. Pönnu- kökurnar þínar verða líka alltaf bestar í heimi. Síðustu árin hafa samveru- stundirnar einkennst af lang- ömmu- og langafaheimsóknum og stelpurnar mínar tvær elsk- uðu ykkur. Langamma og langafi áttu alltaf súkkulaði, þær áttu sér uppáhalds dót sem þið leyfðuð þeim svo að eiga og þeim fannst gott að vera hjá ykkur. Þú elskaðir þær og hrós- aðir mér fyrir hvað þær eru flottar stelpur og hvað þér fannst ég standa mig vel sem mamma. Það mun ég alltaf geyma í hjartanu mínu. Þú varst með hlýjasta faðm- inn, innilegasta hláturinn og stærsta hjartað. Þú og afi skiljið eftir ykkur stóra fjölskyldu og ég lofa að við munum öll passa upp á hvert annað. Ástarkveðj- ur til þín og afa. Þín Dagný Erla. Elsku amma. Takk fyrir alla umhyggjuna, allar góðu stundirnar, útileg- urnar, spilamennskuna og pönnukökurnar. Þegar Björk spurði þig hvaða uppskrift hún ætti að nota þegar hún bakaði pönnukökur hlóstu og svaraðir að það væri engin uppskrift af pönnukökum, þetta væri bara tilfinning. Það er kannski þess vegna sem þær voru svona góð- ar hjá þér. Þú vannst okkur líka alltaf í kana. Það varst nú líka alltaf þú sem skrifaðir en við vissum að þú skrifaðir aldrei þér í hag, þú varst bara svo klár. Það væri hægt að skrifa heila bók með öllum góðu minning- unum sem við eigum með þér og afa, þið hafið alltaf verið til staðar fyrir okkur systkinin og erum við ykkur svo þakklát. Þín ömmubörn. Freyr, Hrafn og Björk. Elsku yndislega amma mín. Það er óhætt að segja það að við barnabörnin þín erum þau allra heppnustu að hafa átt ömmu eins og þig. Þú varst svo sannarlega einstök, og það er þyngra en tárum taki að skrifa þessi orð til þín. Svo hjartahlý og yndisleg varstu. Ég hef oft pælt í því hvað ég var heppin stelpa á Djúpavogi að hafa ömmu og afa í húsinu ská á móti í Borgarlandinu okk- ar góða, en núna sem fullorðin kona sé ég hvað þetta voru ótrúleg forréttindi. Að það hafi verið hluti af daglegu lífi manns að hoppa yfir til ömmu og afa þegar mann langaði til. Án allra spurninga frá þér. Það er það sem gerði þig svo góða við okk- ur, maður var alltaf velkominn, sama hvaða dagur var eða sama hvað klukkan var. Ég man sérstaklega eftir því einn afmælisdaginn minn þegar ég vaknaði að sjálfsögðu fyrir allar aldir og sá að mamma og pabbi höfðu gefið mér það sem ég óskaði mér helst, línuskauta. Ég dreif mig að sjálfsögðu út til að prófa, það var sól og þú varst sko ekki lengi út í dyr til að koma og kyssa stelpuna þína til hamingju með afmælið. Svo fylgdistu með mér skauta fram og til baka allan morguninn. Mikið var gott að vita af þér þarna. Á þessum sorgarstundum er gott að eiga minningarnar með þér, þær eru algjörlega ómetan- legar og svo ótrúlega margar. Ég er mjög þakklát fyrir þær og mun varðveita þær um ókomna tíð. Eins sárt og það er að sakna þín, elsku amma mín, þá hlýnar mér í hjartanu að vita að þið afi séuð saman á ný, að þú hafir loksins fengið að hitta mömmu þína eftir öll þessi ár og litlu systur þínar. Þær hafa tekið vel á móti Erlu sinni, ég er alveg klár á því. Elsku amma mín, ég mun sakna þín á hverjum degi svo lengi sem ég lifi, verð þakklát fyrir að hafa haft þig í lífi mínu í 33 ár og að ég hafi getað verið til staðar fyrir þig þegar þú þurftir á mér að halda. Ég mun heiðra minningu þína á hverjum degi, þú varst mér svo kær og ég mun alltaf elska þig af öllu hjarta. Þú ert ljósblik á lífshimni mínum, þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld. (Magnús K. Gíslason) Takk fyrir ástina sem þú sýndir mér, takk fyrir faðmlög- in, takk fyrir alla kossana. Takk fyrir allt, elsku besta amma mín, ég mun sakna þín meira en orð fá lýst. Þín elskandi sonardóttir, Urður Arna. Hún Erla systir átti hálfan annan mánuð í tólf ára aldur þegar snjóflóð féll á heimili okk- ar í Goðdal á Ströndum sunnu- daginn 12. desember 1948. Hún var á farskóla í Asparvík, átti von á pabba þá um helgina að sækja sig fyrir jólin. Þegar hann kom ekki á tilsettum tíma fór hún að hringja og hringja heim næstu dagana, enginn svaraði og henni var sagt að þetta væri ekki til neins, síminn hefði bilað í óveðrinu. Hún var úti að leika sér við krakkana síðdegis á fimmtudag þegar kennarinn kallaði hana inn og sagði við hana: „Erla mín, það varð slys heima hjá þér. Það fórust allir nema pabbi þinn og hann er helsærður. Farðu nú aftur út að leika þér.“ Það kom enginn og hélt utan um hana og huggaði hana. Erla segir frá þessum átak- anlegu atburðum í prýðilegri endursögn Önnu Kristine Magnúsdóttur í „Milli mjalta og messu“ sem kom út hjá bókaút- gáfunni Hólum 2009. Erla kvað sér aldrei á ævinni hafa orðið jafn mikið um og þegar hún sá fallega andlit mömmu sinnar í hinsta sinni. Eftir jarðarförina var hún send aftur í Asparvík þar sem hún átti góða vist, en var næsta vet- ur í skóla á Kaldrananesi. Ein- hverju sinni kunni hún ekki svar við spurningu kennarans, sem þá sagði: „Ég skil nú ekk- ert í þér Erla hvað þú ert heimsk, eins og þú átt gáfaða bræður.“ Þessi orð sátu í henni alla tíð, og þarna sagði hún að sér hefði liðið einna verst á æv- inni. Síðan var hún á Drangs- nesi hjá Ingibjörgu föðursystur sinni og hefði gjarnan viljað vera áfram, en nú lá leiðin til Reykjavíkur þar sem Bjarni föðurbróðir okkar var búinn að reisa hús, og áttu þeir bræður saman efri hæð og ris. Eftir komuna til Reykjavíkur var hún fyrst hjá Önnu frænku systur pabba, og þrátt fyrir umhyggju Önnu fannst henni hún einmana stúlka á framandi slóðum. En hún fór í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og undi sér vel, þar eignaðist hún sína bestu vinkonu, Lilju Bögeskov. Pabbi útvegaði Erlu vist á bæ í Húnaþingi sumarið 1951. Þar leið henni illa, hefði frekar vilj- að vera hjá frændfólki sínu á Ströndum. Síðan bjuggum við saman á Flókagötu 58 um skeið. En sumarið 1953 sá Erla í fyrsta skipti á balli í Breiðfirð- ingabúð piltinn frá Djúpavogi, hann Boga Ragnarsson. Þau giftust ári seinna. Fyrst bjuggu þau við þröngan kost á Álfhóls- vegi í Kópavogi, en fluttust síð- an á Djúpavog. Erlu fannst þar fyrst grýtt og hrjóstrugt og enginn sem hún þekkti nema Bogi, en þar bjuggu þau í 43 ár og undu sér vel, börnin sjö kom- ust á legg og Erla vann í nær 30 ár í kaupfélaginu. Eftir það ráku þau Bogi í nokkur ár ferðaþjónustu á Eyvindará við Egilsstaði við góðan orðstír. Erla hafði gaman af að dansa og Bogi var í essinu sínu með nikkuna. Þau létu sér annt um Goðdal alla tíð, og hálfri öld eft- ir snjóflóðið beittu þau sér fyrir því að reistur var minningar- steinn við Skarð þar sem mótar fyrir mynni Goðdalsins. Það er ljúft að minnast Erlu. Haukur Jóhannsson. Við kveðjum Erlu Jóhanns- dóttur, kæra mágkonu og mikla uppáhaldsfrænku, með söknuði og þakklæti fyrir þær góðu stundir sem við áttum með henni í áratugi. Kæti og glað- værð voru áberandi í fari Erlu og þeir sem ekki vissu betur hefðu vel getað ályktað sem svo að lífshlaup hennar hlyti að hafa verið áfallalaust. Svo var sannarlega ekki því Erla og bræður hennar Berg- þór og Haukur upplifðu á unga aldri meiri sorg en lögð er á flesta. Ekki kom þó til greina að láta bugast heldur skyldi lífið halda áfram. Það er engan veg- inn sjálfgefið að ellefu ára stúlka sem missir móður og tvær ungar systur í skelfilegu slysi og föður sinn nokkrum ár- um síðar varðveiti lífsgleði sína. Eiginlega ætti það að vera ómögulegt, en Erlu tókst það samt á aðdáunarverðan hátt. Um leið leyndist engum að hún var viðkvæm, og svo sannarlega var hún umhyggjusöm og hjartahlý manneskja. Á fjölskyldusamkomum var Erla hrókur alls fagnaðar, ásamt lífsförunaut sínum, Boga, sem þá spilaði á nikkuna við mikinn fögnuð. Þau Bogi kynntust kornung og voru einstaklega lánsöm að eiga hvort annað, eins og þau gerðu sér sjálf glögga grein fyr- ir. Þau eignuðust sjö börn og fleiri barnabörn og barnabarna- börn en við kunnum tölu á og ljómuðu ætíð af stolti þegar tal- ið barst að afkomendunum. Það varð stutt á milli Erlu og Boga sem lést á síðasta ári, og þannig hafa þau örugglega bæði viljað hafa það. Við, mágkona Erlu og frænkur hennar, erum ekki á einu máli um tilvist ann- ars heims, en þær bjartsýnustu í hópnum eru sannfærðar um að nú sé Erla komin í ástríkan faðm Boga, móður sinnar, systra og föður. Það getur ekki annað en verið góð vist. Dóra Jakobsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Brynhildur Bergþórsdóttir, Ásdís Bergþórsdóttir, Anna Bergþórsdóttir. Elsku besta vinkona mín, hún Erla frá Goðdal, hefur nú kvatt þessa jarðvist. Við hittumst fyrst í Gagn- fræðaskóla Austurbæjar og urðum fljótt mjög góðar vinkon- ur. Hún bar ekki á torg þá miklu lífsreynslu og sorg eftir að snjó- flóðið féll á Goðdal 1948. Þar missti hún móður sína og tvær yngri systur og fleira heimilis- fólk. Faðir hennar lifði af snjó- flóðið mikið slasaður. Erla og tveir eldri bræður hennar voru í skóla þegar flóðið féll á heimili þeirra. Nokkur sumur unnum við saman sem leiðbeinendur hjá Skólagörðum Reykjavíkur sem voru á Klambratúni. Það voru mjög mörg börn send í skóla- garðana á þeim árum. Sextán ára gamlar fórum við að kíkja á „dansmenninguna“ í Reykjavík. Þá var dansað í Iðnó, Gúttó, Breiðfirðingabúð og á mörgum fleiri stöðum. Við höfðum gaman af að dansa t.d. skottís, ræl og polka en rokkið og „tjúttið“ heillaði okkur mest, það var toppurinn á tilverunni. Á balli eitt kvöldið í Breið- firðingabúð birtist hress og kát- ur „dansherra“. Þar var kominn Bogi frá Djúpavogi. Erla, þá að- eins sautján ára gömul, hitti þar sinn lífsförunaut. Frá þeim er kominn mikill fjöldi afkomenda. Erla var dugleg, góð, heiðarleg og mjög skemmtileg vinkona og héldust vinatengsl okkar í tæp 70 ár. Innilegar samúðarkveðjur frá mér til allra ættingja og vina Erlu og Boga sem sárt sakna þeirra. Lilja Bögeskov. Hún vakti athygli mína strax í fyrstu ferðinni í Kaupfélagið. Þessi ógnar kraftmikla og ákveðna kona sem gekk í verkin eins og hamhleypa. Ég var „nýja kennslukonan“, á Djúpa- vogi, rétt tæplega tvítug, með stúdentspróf upp á vasann. Áð- ur en langt um leið var Laufás orðið mitt annað heimili og þau Erla og Bogi farin að kalla mig fósturdótturina. Smátt og smátt raðaðist sag- an hennar upp, eftir því sem við kynntumst betur. Saga konunn- ar sem prjónaði og saumaði á börnin sín sjö, saga konunnar sem varð móðir 17 ára og var komin með sex börn 25 ára gömul. Saga stúlkunnar sem 11 ára gömul missti móður og tvær yngri systur, ásamt fleiri heim- ilismönnum, í snjóflóði í Goðdal. Atvik sem mótaði hana fyrir lífstíð, enda lá henni á að stofna sína eigin fjölskyldu. Við Erla unnum saman í sjoppunni eitt sumar. Þó að hún væri ákveðin og stjórnsöm, upp- lifði ég það aldrei þannig að ég yrði minni af. Þvert á móti, var það mikill kostur hvað Erla kom hreint fram, þú vissir alltaf hvar þú hafðir hana. Og hún sagði mér hiklaust til syndanna ef því var að skipta og það gerði mér gott. Þær eru dýrmætar minning- arnar um stundirnar við eldhús- borðið í Laufási. Oftar en ekki greip Bogi í nikkuna og við Haf- dís sungum langt fram á kvöld, stundum með fleiri gestum. Einstaka sinnum var eitthvað í glasi, sem hvorug okkar Erlu vildi þiggja. Með einni undan- tekningu þó og það var á þriðju- dagskvöldi. Og þó að við drykkjum báðar hóflega, þá og ævinlega, varð það að viðkvæði, að við fengjum okkur aldrei í glas nema á þriðjudagskvöld- um. Í fyrra, eftir andlát Boga, dvaldi ég í tæpar tvær vikur heima hjá Erlu. Heilsan hennar þá orðin léleg og sjónin tæp. Hann var þó þarna enn, þessi kraftur og einbeiting sem snýst um að gera það sem gera þarf. Þó að viðfangsefnin væru ekki mikið flóknari en svo að fara í sturtu og á fætur, biðja sonar- dóttur að fara í búð og svo bara að lifa í gegnum daginn og kannski hlusta á hljóðbók, þá gekk hún til þeirra verka af æðruleysi og auðmýkt. Já, það var ævinlega mannbætandi að vera nærri Erlu, þá sem fyrr. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt skjól hjá þeim Boga og eiga vináttu þeirra og barnanna þeirra. Þeim og fjölskyldum þeirra sendum við Ingi Hans innilegar samúðarkveðjur. Með kveðju frá „fósturdótt- urinni“. Sigurborg Kristín Hannesdóttir. Erla Jóhannsdóttir var mikil fyrirmyndarkona í alla staði. Erlu kynntist ég fyrir 21 ári þegar Hafdís Erla yngsta dóttir hennar sendi mér bréf og upp- lýsingar um það sem mamma hennar hafði gengið í gegnum og aldrei treyst sér til að segja frá. Mér finnst stórkostlegt hvernig Erla tókst á við líf sitt sem tók stakkaskiptum hinn 12. desember árið 1948. Þá féll snjóflóð á heimili hennar í Goð- dal í Bjarnarfirði, þar sem mamma hennar og tvær ungar systur létu lífið ásamt fleira heimilisfólki, ættingjum Erlu. Þegar pabbi hennar, sem ætlaði að sækja hana í jólaleyfi í skól- ann í Asparvík, kom ekki á til- skildum tíma reyndi Erla að hringja heim til sín en fékk ekkert svar. Þá lá Jóhann pabbi hennar grafinn í snjó í Goðdal þar sem hann heyrði litlu dætur sínar deyja. Erla vissi ekki hvað hafði gerst fyrr en fjórum dög- um seinna. Frá þeim tíma og fram að fimmtán ára aldri bjó Erla víða en þegar hún varð fimmtán ára flutti hún í hús sem pabbi henn- ar og Bjarni bróðir hans höfðu byggt á Flókagötu. Þar hélt hún heimili fyrir föður sinn og bræð- ur en líf hennar breyttist að nýju þegar hún fór á ball í Breiðfirðingabúð. Þar bauð henni upp í dans ungur og glæsilegur maður að nafni Bogi Ragnarsson frá Djúpavogi, sem hét því að annast hana þegar hann vissi sögu hennar. Og við það stóð Bogi allt til dauðadags í ágúst í fyrra. Saman eignuðust þau sjö börn og skilja eftir sig fjölda barnabarna og lang- ömmu- og -afabarna. Saga Erlu var ótrúlega sorgleg og sterk, en þegar við settumst í hljóð- stofu Rásar 2 og græna ljósið kom á, sem þýddi að við værum „í loftinu“, var engu líkara en Erla hefði starfað sem fyrirles- ari um sorg og sorgarviðbrögð. Einlægni hennar og hlýja varð til þess að ég falaðist eftir kafla frá henni í bókina „Milli mjalta og messu“ árið 2009. Hún lagði alltaf ríka áherslu á að börnum væri sinnt vel og þau mættu ekki gleymast þegar sorgin berði að dyrum. Ég þakka þér elsku Erla mín fyrir einstök kynni og einstaka vináttu sem átti engan sinn líka. Ég kveð þig með Ferðabæn Hallgríms Péturssonar og ég er sannfærð um að Bogi þinn hafi beðið þín þegar þú komst til hans í eilífðarríkið. Blessuð sé minning ykkar, elsku Erla og Bogi. Ég byrja reisu mín, Jesús, í nafni þín, höndin þín helg mig leiði, úr hættu allri greiði. Jesús mér fylgi í friði Með fögru englaliði. (Hallgrímur Pétursson) Anna Kristine. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Okkar ástkæri sonur, eiginmaður og faðir, GÍSLI KRISTJÁNSSON HEIMISSON verkfræðingur, Hverafold 31, Reykjavík, lést heima að morgni fimmtudagsins 6. júní. Útförin verður auglýst síðar. María Gísladóttir Þorgerður Ragnarsdóttir María, Grímur og Ragnar Gíslabörn Okkar elskulegi bróðir, ÁRMANN HAUKSSON frá Vestmannaeyjum, lést laugardaginn 1. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Guðmar Þór Hauksson Elín Hauksdóttir Magni F. Hauksson Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Klausturhólum 3, Kirkjubæjarklaustri, lést sunnudaginn 12. maí Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Guðmundur Guðjónsson Lára Bergsveinsdóttir Agnar Georg Guðjónsson Örn Ómar Guðjónsson Seble Work Mamo barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.