Morgunblaðið - 08.06.2019, Qupperneq 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2019
Í klípu
„SAMKVÆMT SÓNARNUM ER ÞETTA
STRÁKUR – EN ÉG VEIT EKKI ENN
HVORT HANN ER TRANS.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG GAF ÞÉR ALDREI LEYFI TIL AÐ LEIKA
ÞÉR MEÐ BÁTINN MINN!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hið óbrigðula
leiðsögukerfi.
SMÁ RÁÐLEGGINGAR,
GRETTIR …
ÞÓ ÞÚ SJÁIR EINHVERN
GERA EITTHVAÐ Í BÍÓMYND …
ÞÝÐIR ÞAÐ EKKI
AÐ ÞÚ GETIR ÞAÐ HVERS VEGNA HALTRARÐU?
ÞÚ LOFAÐIR AÐ MÁLA
LOFTIÐ FYRIR HÁDEGI!
EN ÉG VIL
EKKI FARA
Á FÆTUR!
ÞÚ
ÞARFT
ÞESS
EKKI!
UNGBARNA-
FÖT
KEYRÐU HÆGAR …
VARAÐU ÞIG Á BÍLNUM …
BEYGÐU TIL HÆGRI …
tæpa fjóra mánuði báðum megin við
sundið. Afar fróðlegur og skemmti-
legur tími með góðum samstarfs-
mönnum.
Að Kanadaárinu 2009-2010 loknu
vann ég við lokaundirbúning fyrir
Vaðlaheiðargöng og í kjölfar þess
komu óvænt upp eftirlitsstörf með
jarðgangagerð fyrir Búðarháls-
virkjun þar sem ég var í góðum fé-
lagsskap árin 2011-2013. Samhliða og
í kjölfar þess vann ég á Sprengisandi
árin 2013-2016 við undirbúning
Skrokkölduvirkjunar sem ætlað er að
nýta fall vatnsins fá Hágöngulóni nið-
ur í vatnsveg Kvíslaveitu. Samhliða
vinnu við undirbúning Skrokköldu-
virkjunar vann ég árin 2013-2017 að
undirbúningi jarðganga undir Fjarð-
arheiði til Seyðisfjarðar.
Stundum hafa dottið inn áhuga-
verð og mjög skemmtileg verk er-
lendis, svo sem í Norður-Noregi og í
sunnanverðum Kákasusfjöllum þar
sem maður fer aftur í aldir í djúpum
dölum Kákasusfjalla. Síðustu árin
hafa svo snúist í vaxandi mæli um
ferðalög erlendis með því markmiði
að sjá sem mest af náttúru jarðar, -
stórborgir eru ekki mitt áhugasvið.
Ævin líður áfram, nú hafa öll fimm
börn mín eignast afkomendur sem
samtals eru orðin 13 að tölu. Þar af
eru fjögur barnabörn á vesturströnd
Bandaríkjanna og hef ég varið drjúg-
um og góðum tíma þar vestra síðustu
árin.
Fjölskyldan
Börn Ágústs eru Ásthildur, f. 1971,
Þórlaug, f. 1973, Steinvör, f. 1985,
Finnbogi, f. 1987 og Ásrún, f. 1989.
Systkini Ágústs eru Sesselja, f.
1948, Gunnjóna, f. 1951, Þórir Örn, f.
1952, Bjarni, f. 1962, og Halldór Ingi,
f. 1964.
Foreldrar Ágústs voru hjónin Guð-
mundur Bjarnason, f. 1910, d. 1991,
og Þórlaug Finnbogadóttir, f. 1925, d.
2001.
Ágúst
Guðmundsson
Ingibjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Meirahrauni
Sturla Guðmundsson
bóndi á Meirahrauni í Skálavík
Sesselja Sturludóttir
húsfreyja í Bolungavík
Finnbogi Bernódusson
sjómaður og rithöfundur
í Bolungavík
Guðrún Jensdóttir
húsfreyja í Bolungavík
Bernódus Örnólfsson
formaður í Bolungavík
Sigríður Gunnarsdóttir
húsfreyja á Leiti
Gunnjóna Vigfúsdóttir
húsfreyja á Fjallaskaga
og í Innri-Lambadal
Bjarni Sigurðsson
bóndi á Fjallaskaga og í Innri-Lambadal
Vigfús Nathanelsson
bóndi á Leiti í Dýrafi rði
Guðrún Bjarnadóttir
húsfreyja í Botni og Felli
Sigurður Bjarnason
bóndi í Botni og Felli í Dýrafi rði
Úr frændgarði Ágústs Guðmundssonar
Þórlaug Finnbogadóttir
húsfreyja í Innri-
Lambadal og Rvík
Guðmundur Bjarnason
bóndi í Innri-Lambadal í Dýra-
fi rði og verslunarmaður í Rvík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Í höggleik þykir happafengur.
Harla vel oft syngja má.
Karl með hann í klofi gengur.
Kyndugur er fýrinn sá.
Baldur Hafstað á þessa lausn:
Stundum yrki ég eintómt rugl,
en oftast borga ég skattinn minn.
Lausnarorðið er víst „fugl“,
ef ekki, ét ég hattinn minn.
Eysteinn Pétursson svarar:
Fugl er í golfi gott að fá.
Gargar á himni soltinn örn.
Skrítinn fýr er fuglinn sá
er fastur í klofi getur börn.
„Þá er það ráðningin,“ segir
Harpa á Hjarðarfelli:
Holuna hann fór á fugli.
Fuglar syngja að degi.
Forðar sínum fugli úr rugli
fuglinn skringilegi.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Í golfi, flýgur, um getnað sér,
gaur sem fer með rugl.
Hér allt að sama brunni ber
því best að skjóta’ á fugl.
Sjálfur skýrir
Guðmundur gátuna svona:
Í höggleik gott er fugl að fá.
Fuglinn dável syngja má.
Með fugl í klofi karlinn er.
Kyndugur fugl sá þykir mér.
Þá er limra:
Fuglinn í fjörunni syngur,
flautar hann spóalingur,
háfleygur tjaldur
og heldur við aldur
á hæstu tónunum springur.
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Á suðurhimni sólin skín,
sendir geisla inn til þín,
lóan kveður ljóðin sín
og létt að vanda er gátan mín:
Heppinn þann á færið færðu.
Frestur merkir eða bið.
Með sogi upp í nefið nærðu.
Nætur einnar gamanið.
Kristján Ólason orti á hvítasunnu
5. júní 1949:
Norðurstranda neyð og vá
nú vill blanda geðið:
Heilagsanda hátíð má
horfa á landið freðið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af kvaki best
má kenna fugla
Árið 1896 flutti Björn Þorláksson bóndi áVarmá inn vélar til að
vinna ull og notaði til þess vatnsorku úrÁlafossi. Verksmiðjan
átti stóran þátt í stofnun og vexti byggðar íMosfellsbæ
Álafoss , Álafossvegi 23 Mosfellsbæ, Laugavegi 4-6, alafoss.is