Morgunblaðið - 17.06.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.06.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is FYRIR BÍLINN FJARLÆGIR MENGUN ÁHRIF AUKA SKILVIRKNI HEMLUNAR KREFST EKKI AÐ TAKA Í SUNDUR BREMSU HREINSIEFNI FYRIR BÍLA Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 VELKOMIN Í URÐARAPÓTEK Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Eftir því sem aðstaða fyrir hjól- reiðafólk verður betri og leiðirnar greiðfærari eykst áhuginn,“ segir Gylfi Ólafsson forstjóri Heilbrigð- isstofnunar Vestfjarða. „Í heilsu- hagfræðinni sést svart á hvítu að gerð hjólastíga og aðrar slíkar framkvæmdir, sem greiddar eru úr samfélagslegum sjóðum, eru fljótar að borga sig. Þetta er til þess að gera ódýr innviða- uppbygging og fólk getur jafn- framt sparað við sig í bílakaupum. Dæmið er svo fullkomnað þegar áhrif á umhverfi og lýðheilsu eru tekin með í reikninginn. Minni út- blástur og góð hreyfing í daglegu amstri er skotheld formúla.“ Rennislétt á Eyrinni Á Ísafirði fer Gylfi flestra sinna ferða hjólandi og er þá gjarnan með börnin sín tvö framan á reiðhjólinu. „Vegalengdir milli helstu staða innanbæjar á Ísafirði eru stuttar og hér á Eyrinni er allt rennislétt. Fjölskyldan býr hér á Eyrinni og þaðan er örstutt fyrir mig að hjóla til vinnu á sjúkrahús- inu og leikskóli barnanna er nán- ast í næsta húsi. Þetta gæti ekki verið þægilegra í samfélagi sem á flestan mælikvarða er streitulítið, sem er uppskrift að því að fólki líði vel,“ segir Gylfi. Nýjar tölurnar sýna að hlut- fall fullorðinna sem ganga eða hjóla til vinnu eða skóla, þrisvar sinnum eða oftar í viku, er 30% á Vestfjörðum. Á landsvísu er þetta hlutfall 21%. Vestlendingar og Norðlendingar eru einnig duglegir við að skilja bílinn eftir heima, en Suðurnesjafólk notar bílinn áber- andi mest. „Aðstæður til hjólreiða á Vestfjörðum eru góðar; byggð- arlögin standa yfirleitt á eyrum niður við sjóinn og allt er renni- slétt,“ segir Gylfi og heldur áfram: Skipulag og framkvæmdir fylgist að „Hér á Ísafirði hefur verið sköpuð frábær aðstaða til hjól- reiða og þar get ég nefnt að útbún- ir hafa verið hjólastígar eftir Skut- ulsfirði endilöngum sem fólk nýtir sér mikið. Núna vantar aðeins lít- inn stubb við Holtahverfið í botni fjarðarins svo kominn sé heild- stæður stígur alla leið út í Bolung- arvík, en þaðan eru um 15 kíló- metrar. En taktu nú samt eftir því að á Suðurnesjunum, þar sem eng- ar eru brekkurnar og aðstæður til hjólreiða góðar af náttúrunnar hendi, notar fólk bíllinn til flestra sinna ferða. Í því sjáum við að í skipulagi þarf að gera ráð fyrir öðrum ferðamátum en bílnum og fara í framkvæmdir samkvæmt því, svo þessi góði samgöngumáti verða almennur.“ Síðan á unglingsárum hefur Gylfi jafnan ferðast mikið á reið- hjóli og líkað vel. „Ég hef alla tíð notað hjólið sem samgöngutæki árið um kring þar sem ég hef búið, það er á Ísafirði, Akureyri og Reykjavík og um skeið erlendis. Þetta er minn ferðamáti í dagsins önn; keppnis- eða utanvega- hjólreiðar hafa aldrei heillað mig. Að renna um göturnar er frábært og fljótlegt og svo má bæta við ýmsum skemmtiferðum. Eft- irminnilegur er leiðangur með börnin síðasta sumar út í Bolung- arvík í sundlaugina sem nefnt er Musteri vatns og vellíðunar. Þá fer maður hrikalegan Óshlíðarveg sem er laus við umferð eftir að Bol- ungarvíkurgöng voru opnuð.“ Sveitarfélög setji hjólreiðastefnu Sem heilsuhagfræðingur og forsvarsmaður heilbrigðisstofn- unar hefur Gylfi látið lýðheilsumál til sín taka og í því sambandi talað hjólreiðum við sveitarstjórn- armenn. „Ég lagði til að sveit- arfélög settu sér hjólastefnu, sem má einföld eða yfirgripsmikil eftir atvikum. Einnig kom ég með hug- myndir um ódýrar framkvæmdir, eins og að fjölga yfirborðsmerk- ingum og fjölga skiltum. Til dæmis ættu hjól að vera boðin velkomin á göturnar svo gangandi hafi þá gangstéttir út af fyrir sig. Loks setti ég fram hugmyndir um um- fangsmeiri framkvæmdir, sem eru þó í sjálfu sér einfaldar, eins og að leggja nokkra vel valda hjólastíga og reisa hjólaskýli við vinnustaði, skóla og fleiri slíka staði. Und- irtektir eru góðar enda tíðarand- inn allur í þessa átt.“ Hjólreiðar eru daglegur samgöngumáti 30% Vestfirðinga Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ísafjörður Forstjórinn Gylfi Ólafsson á reiðhjólinu með börnin sín tvö á leiðinni í leikskólann og svo til vinnu. Aðstaða skapar áhuga  Dr. Gylfi Ólafsson er fæddur árið 1983. Hann er giftur Tinnu Ólafsdóttur og eiga þau tvö ung börn. Stúdent frá Mennta- skólanum á Ísafirði og lærði til grunnskólakennara við Háskól- ann á Akureyri. Nam síðar hag- fræði og heilsuhagfræði í Sví- þjóð. Varði doktorsritgerð sína í heilsuhagfræði í febrúar sl.  Forstjóri Heilbrigðisstofn- unar Vestfjarða frá júlí á sl. ári. Hann var áður meðal annars aðstoðarmaður Benedikts Jó- hannessonar fjármála- og efnahagsráðherra. Hver er hann? Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Isavia hefur ákveðið að leyfa hliðar- vindsprófanir á Keflavíkurflugvelli að nýju, en þær hafa ekki verið leyfðar þar síðan 2013, með einni undantekn- ingu árið 2018. „Það voru samverkandi ástæður fyrir því að hliðarvindsprófanirnar voru lagðar af hjá okkur eftir að það kom upp atvik árið 2013. Önnur ástæðan fyrir því að þetta fór ekki af stað aftur er sú að frá 2016 og þar til í fyrra vorum við í miklum fram- kvæmdum á flugbrautum og rafkerfi flugvallarins, sem var líka ástæðan fyrir því að við gátum ekki farið aftur í þessar prófanir,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia. Vorið 2018 var ákveðið að heimila einum flugvélaframleið- anda hliðarvindsprófanir á Keflavík- urflugvelli, en það var kínverski flug- vélaframleiðandinn COMAC. „Þegar þeim prófunum var lokið ákvað Isavia að vinna endurskoðað verklag um prófanaflugin. Þannig að fleiri próf- anaflug yrðu heimiluð eftir að þeirri endurskoðunarvinnu væri lokið og henni er lokið. Nú byggist þetta þann- ig upp að prófanaflugið takmarkast einungis við hliðarvindsprófanir fyrir hámarkshliðarvind. Allt prófflug sem hægt er að framkvæma annars staðar verður ekki leyft á Keflavíkurflug- velli,“ segir Guðjón. Hliðarvindsprófanir verða tak- markaðar við ákveðnar tímasetningar út frá m.a. hávaða og tímamörkun, en leyfilegt verður að framkvæma þær frá kl. 9 til 13 og svo frá kl. 18 til 22 á kvöldin. Þá verður ekkert sérstakt tímabil fyrir prófanaflug að þessu sinni en áður fyrr voru þau leyfð frá október og út mars. Fall WOW Air hafði ekki áhrif Spurður hvort gjaldþrot félagsins WOW Air og möguleikinn til að auka tekjur flugvallarins hafi haft einhver áhrif á þessa ákvörðun, segir Guðjón svo ekki vera. „Nei, í rauninni ekki þar sem við vorum búin að heimila hliðarvindsprófanir vorið í fyrra eftir að þessum framkvæmdum var lokið. Síðan var farið í vinnu við að endur- skoða verklagið, það tók ákveðinn tíma þannig að þetta er ferli og ákvörðun sem var búið að taka í fyrra.“ Flugvélaframleiðendur fagna Fulltrúar frá bæði Airbus og Bo- eing hafa þegar lýst yfir ánægju sinni með ákvörðun Isavia í samtölum við fulltrúa þeirra, segir Guðjón. „Þá höfum við verið í góðu sam- bandi við samtök flugvélaframleið- enda sem Airbus, Boeing, Bombar- dier og fleiri félög tilheyra. Þeir eru vel upplýstir um þetta sem við erum að bjóða upp á og hafa einnig lýst yfir ánægju með þetta.“ Isavia heimilar hliðarvindsprófanir  Prófanaflug verður leyft á ákveðnum tímum í Keflavík Airbus og Boeing fagna ákvörðun Isavia Guðjón Helgason Samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytið er með erindi Rannsóknar- nefndar samgönguslysa til skoð- unar, en það snýr að álagningu vanrækslugjalds ef skráð ökutæki er ekki fært til lögmætrar skoðunar innan tilskilins tíma. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyr- irspurn Morgunblaðsins. Í skýrslu rannsóknarnefndar- innar um banaslys sem varð á Mikla- braut við Skeiðarvog 25. nóvember 2017 er gerð tillaga í öryggisátt og er það mat nefndarinnar að taka ætti til skoðunar hvernig hægt sé að gera kerfið skilvirkara. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu barst erindi frá rannsóknarnefndinni varðandi þessa tillögu með bréfi 29. maí og ber ráðuneytinu að upplýsa nefndina innan þriggja mánaða um það með hvaða hætti brugðist verði við tillögunni. Þann 11. júní sl. sam- þykkti Alþingi ný umferðarlög sem taka munu gildi 1. janúar 2020. Í þeim hafa verið gerðar breytingar á gildandi ákvæðum um fjárhæð, álagningu og innheimtu vanrækslu- gjalds, en hún skal að hámarki vera 100.000 krónur. mhj@mbl.is Ráðuneytið með ör- yggisátt til skoðunar  Vanrækslugjald á ökutæki hækkar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.