Morgunblaðið - 17.06.2019, Page 13

Morgunblaðið - 17.06.2019, Page 13
AFP Öryggi Með öryggishjálm á höfði leiðir Michel Aupetit erkibiskup af París fyrstu messuna í Notre Dame kirkjunni eftir brunann mikla fyrr á árinu. Prestar voru með harða örygg- ishjálma á höfði er messað var í Frúarkirkjunni í París í fyrsta sinn eftir eldsvoðann sem olli miklu tjóni á kirkjunni fyrir tveimur mánuðum. Erkibiskupinn af París, Michel Aupetit, leiddi messuna sem um þrír tugir manna voru viðstaddir. Bein útsending var frá messunni á sérstakri sjónvarpsstöð kaþólsku kirkjunnar í Frakklandi. Prestum sem og öðrum við- stöddum var gert að vera með ör- yggishjálma á höfðinu til að vernda þá gegn braki sem mögulega hefði getað fallið niður á þá. Messan var sungin í kapellu inn af kór kirkj- unnar sem byggingatæknar höfðu metið örugga fyrir samkomuhaldið. Af öryggisástæðum voru ein- ungis 30 manns viðstaddir, að- allega prestar, kanúkar, starfs- menn kirkjunnar og nokkrir menn sem vinna að endurbyggingu Notre Dame. Messan var sungin í Maríukapellunni svonefndu upp á dag tveimur mánuðum eftir að kviknaði í kirkjunni. Patrick Chauvet, rektor Notre Dame, sagði daginn trúarlega mik- ilvægan og kvaðst ánægður með að geta sýnt fram á að kirkjan væri „sannlega lifandi“. Enn er með öllu óljóst hvenær kirkjan verður opn- uð almenningi. agas@mbl.is Með hjálma í messunni FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019 Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is STIMPILPRESSUR Loftpressur af öllum stærðum og gerðum Mikið úrval af aukahlutum Donald Trump veittist að Sadiq Khan, borg- arstjóra London, eina ferðina enn í gær og sagði hann vera „þjóð- arskömm“ á hraðri niðurleið með borgina. Með þessu brást Trump við fréttum af ofbeld- isverkum í borginni á innan við sól- arhring sem kostuðu þrjá menn lífið og þrjá særða. Sagði hann London þurfa á nýjum borgarstjóra að halda. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði það „al- gjörlega hræðilegt“ að Trump skyldi nota morðharmleik í borginni til að veitast að borgarstjóranum. Alls hafa 56 verið myrtir í London frá síðustu áramótum. Á sama tíma í fyrra höfðu 77 morð verið framin í borginni, þar af 48 með hnífum. agas@mbl.is BRETLAND London þarf nýjan stjóra Eiginkona Ben- jamins Netan- yahu, forsætis- ráðherra Ísraels, þarf að borga 15.000 dollara sekt, ígildi 1,9 milljóna króna, fyrir að misfara með opinbert fé í eigin þágu. Sara Netanyahu viðurkenndi að hafa brotið af sér en hún var ákærð í júní í fyrra fyrir að hafa greitt fyr- ir veisluþjónustu upp á 99.300 doll- ara, eða hátt í 13 milljónir króna, eftir að hafa logið til um að engir kokkar væru í húsnæði forsætisráð- herra til að sjá um veisluna. Í sátt- argjörð eftir að hún játaði brot sín segir að Sara Netanyahu skuli end- urgreiða 12.490 dollara og sæta 2.777 sekt fyrir brotið. Þrátt fyrir að ákæruatriði hafi verið milduð fer hún inn á sakaskrá fyrir brotið, að sögn Jerusalem Post. Um tvær milljónir manna tóku þátt í mótmælum í Hong Kong og munu það hafa verið umfangsmestu and- mælaaðgerðir í sögu landsins. Beindust mótmælin gegn umdeild- um lögum um framsal sakamanna. Lögreglan sagði aftur á móti að þátttakendur hefðu verið 338.000 þegar mest var. Mótmælin héldu áfram í gær þrátt fyrir að frumvarpið að fram- salslögunum hefði verið dregið til baka. Að lögum orðið hefði það heimilað framsal fólks frá Hong Kong til Kína. Leiðgoti Hong Kong, Carrie Lam, baðst um helgina afsökunar á því að hafa mælt með frumvarpinu. Meðal mótmælenda ríktu efasemdir um ákvörðun Lam að stöðva frum- varpið í þinginu. „Carrie Lam hefur leitt tilfinningar íbúanna hjá sér,“ sagði herra Ma, 67 ára mótmælandi, við BBC-stöðina. Hún hefði látið eins og þetta væri ekki stórmál þrátt fyrir að milljónir manna hafi streymt á götur út og mótmælt frumvarpinu í síðustu viku. „Í öðru lagi erum við að ganga í þágu stúd- enta sem lögregla beitti harðýðgi. Réttlætið verður með þeim.“ Tvítugur mótmælandi að nafni Chloe Yim sem gekk í fyrsta sinn í gær, sagði: „Sjái Carrie allan skar- ann á götunum en hlusti engu að síður ekki er hún að sönnu einræðis- herra. Það sætta íbúar Hong Kong sig ekki við. Hætt verði við Margir göngumenn sem óttast áhrif Kínverja í Hong Kong kröfð- ust afsagnar Lam í mótmælunum í gær. Þeir kröfðust þess einnig að frumvarpið umdeilda yrði alfarið kippt til baka og fleygt, en ekki lagt í salt um stundarsakir. Mótmælin í gær voru að mestu friðsæl, að sögn lögreglu sem hélt sig meira til baka en í mótmælum sl. miðvikudag en þar kom til harðra átaka milli lögreglu og mótmæl- enda. Klæddust margir mótmæl- enda svörtum fötum og báru hvít blóm í virðingarskyni við mótmæl- anda sem féll til bana af syllu þar sem hann kom fyrir borða gegn framsali. agas@mbl.is Mestu mótmæli í áratugi  Mótmælendur í Hong Kong krefjast þess að fallið verði í eitt skipti fyrir öll frá áformum um að setja lög sem heimili framsal manna til Kína  Fjölmenni mótmælti AFP Mannhaf Eins og lygnstreym á líður mannskarinn hægt fram við mótmælin miklu gegn framsalsfrumvarpinu í Hong Kong í gær. Margir vildu afsögn. ÍSRAEL Sektuð og látin endurgreiða Sara Netanyahu Rafmagnslaust varð í nærri allri Argentínu og Úrúgvæ í gær. Hluti af Paragvæ varð einnig fyrir barðinu á biluninni sem átti sér stað á hádegi að íslenskum tíma. Lestir stöðvuðust og flugumferð lamaðist er bilunin varð. Hermt var að rafmagni hefði slegið út vegna bilunar í samtengingum í dreifi- kerfinu. Jafn víðtækar bilanir hafa aldrei átt sér stað áður í Argentínu og Úrúgvæ. Að sögn orkuráðherra Argent- ínu, Gustavo Lopetegui, hafa upp- tök bilunarinnar ekki verið leidd í ljós. Vonast var til að koma mætti rafmagni á hluta dreifikerfisins í gærkvöldi, eftir sjö til átta tíma raf- magnsleysi. Argentína og Úrúgvæ myrkvuð AFP Sadiq Khan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.