Morgunblaðið - 17.06.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.06.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Smáauglýsingar ✝ Einar PállStefánsson fæddist í Reykjavík 13. mars 1948. Hann lést 25. maí í Gautaborg. For- eldrar hans voru Stefán Lýður Jóns- son námsstjóri og Lovísa Margrét Þorvaldsdóttir hús- móðir. Einar Páll kvæntist 20. des- ember 1975 eftirlifandi Guð- finnu Ingólfsdóttur, fædd 15. desember 1944. Börn þeirra eru 1) Stefán Lýður, fæddur 14. jan- úar 1976. 2) Lovísa Margrét, fædd 14. febrúar 1978, sam- býlismaður Urban Rönnqvist. Dætur þeirra eru: Inez Alda Alegria fædd, 3. júní 2000, Cor- delia Dís fædd, 20. júlí 2005, Fe- licia Katla fædd, 15. júní 2011, Nellie Guðfinna Ann-Christin fædd, 29. júlí 2018. 3) Ingólfur Helgi, fæddur 12. nóvember 1981, sambýliskona Siri Vento, barn: Torbjörn Brynjar, fæddur 13. október 2015. Einar Páll ólst upp í Reykjavík. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík, útskrif- aðist sem rafvirki og síðan rafvirkja- meistari. Hann lauk atvinnuflug- mannsprófi árið 1972 og starfaði um tíma sem flug- maður hjá Vængjum. Hann starfaði sem rafvirki í Reykja- vík hjá Rafmagnsverkstæði SÍS. Síðan vann hann hjá Kröflu- virkjun i Mývatnssveit 1977 til 1980 og við byggðalínu á Rang- árvöllum á Akureyri til 1990, þá fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Gautaborgar og starf- aði hjá rafmagnsverkstæði Póstsins þar, þangað til hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki í Gautaborg. Útförin fer fram frá Västra Frölunda kyrka, Gauta- borg, í dag 17. júní 2019, klukk- an 11. Elskulegur bróðir minn, Einar Páll, lést í Gautaborg 25. maí sl. Það tekur á að setjast niður og skrifa minningargrein. Þó það hafi verið langt á milli okkar þá hittumst við reglulega. Þið Guð- finna voruð dugleg að ferðast og komuð þið þá alltaf við hjá okkur, eða við fórum til ykkar. Við ólumst upp saman á góðu heimili, mamma og frænka alltaf heima og pabbi líka eftir að hann fór á eftirlaun, þá sat hann við skrifborðið og skrifaði. Það fór víst mikið fyrir þér þegar þú varst lítill en ég man ekki eftir því, það var fyrir mína tíð, þú varst farinn að róast þegar ég man fyrst eftir þér, en mamma sagði mér oft sögur af þér, t.d. þegar þú hljópst í þig hita, svo mikill var hamagangurinn í þér og að þau þrjú fullorðin hefðu átt fullt í fangi með að sinna þér og passa þig, þú varst uppátækja- samur og fjörugur strákur. Fyrsta sem ég man eftir var þegar við bjuggum á Hringbraut- inni og þú og vinir þínir komuð hlaupandi heim með Pétur Hoff- mann á hælunum, hann ætlaði að setja ykkur í strigapoka og henda ykkur í sjóinn. Ég man hvað ég var hrædd, en mamma huggaði mig, sagði að Pétur væri góður maður en hann væri bara svo hræddur um ykkur strákana, þið voruð alltaf að þvælast í fjörunni og hann hafði áhyggjur af því að þið færuð ykkur að voða, þess vegna var hann að hræða ykkur, sagði mamma og mér létti mikið. Ég man líka þegar þið fóruð yfir götuna á róló og ég stóð og horfði á eftir ykkur en fór ekki með því það var búið að banna mér að fara yfir götuna, en mikið langaði mig að fara með ykkur. Árin liðu, þú varst alltaf farinn snemma á vorin í sveitina á Snorrastöðum á Snæfellsnesi, þar undir þú hag þínum vel, komst aldrei í bæinn fyrr en eftir réttir. Ég fór líka að Snorrastöð- um á sumrin en í styttri tíma, fór með frænku og svo komu mamma og pabbi að sækja mig, þú áttir það til að stríða mér aðeins í sveitinni, hræða mig með nautinu í útihúsunum o.fl., tókst það að- eins út á mér, því ég gat stundum verið óþolandi litla systir, sér- staklega þegar ég vildi hanga inni í herbergi hjá þér þegar þú varst með vini þína í heimsókn. Þegar þú rakst mig út átti ég það til að henda mér í gólfið og grenja og segja að þú hafðir hrint mér í gólfið, þá varst þú skammaður og ég fékk að vera áfram inni hjá þér, ég skammast mín þegar ég hugsa um þetta. Já, það eru margar minningar sem renna í gegnum hugann, en ég mun minnast þín með þakk- læti í huga, þú varst góður bróðir og góður drengur og vildir öllum vel, þú varst mjög áhugasamur um allt milli himins og jarðar og það var alltaf gaman að ræða málin við þig, maður kom aldrei að tómum kofunum hjá þér. Þú sýndir öllum óskiptan áhuga, þú varst heiðarlegur og mjög réttlátur maður. Synir okk- ar þrír héldu mikið upp á þig, þeir voru alltaf mjög spenntir þegar von var á ykkur, við áttum börn á svipuðum aldri, svo það var oft fjör í kotinu þegar allir komu saman. Elsku bróðir, ég kveð þig með söknuði en minningin um þig mun lifa um ókomna tíð. Elsku Guðfinna og fjölskylda, við Snorri, Stefán, Styrmir, Snorri yngri og fjölskyldur þeirra send- um ykkur innilegar samúðar- kveðjur, megi Guð vaka yfir ykk- ur og gefa ykkur styrk. Þín systir, Sólveig Stefánsdóttir, Lúxemborg. Einar Páll Stefánsson var hálf- bróðir móður okkar, Bjarghildar Stefánsdóttur, fyrrum blaða- manns, en hún og Davíð Stefáns- son, fyrrum starfsmaður Nor- rænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn, voru börn Stef- áns afa af fyrra hjónabandi. Ein- ar Páll og Sólveig alsystir hans voru þó á svipuðum aldri og við bræðurnir, svo við hittumst oft í æsku, en samskiptin minnkuðu eftir að kom fram á unglingsárin. Einar Páll var mikill grúskari og hafði mikinn áhuga á öllu tæknilegu. Hann varð rafvirki og síðar rafvirkjameistari. Hann hafði líka mikinn áhuga á flugi og varð atvinnuflugmaður 1972 hjá Flugfélaginu Vængjum. Hann var aðstoðarflugmaður á tveggja hreyfla Beechcraft B-18 flugvél Vængja, er henni hlekktist á í flugtaki í slæmu vetrarveðri og endaði í Vatnsmýrinni nálægt vegamótum Hringbrautar og Njarðargötu. Vélin var full af far- þegum og eldur kom upp í öðrum hreyflinum. Einar Páll greip handslökkvitæki og tróð sér út um ótrúlega lítinn hliðarglugga og slökkti eldinn á örskots- stundu. Þá vorum við bræðurnir stoltir af frænda. Meðal áhugamála Einars Páls voru fjarskipti, og var hann fé- lagsmaður í félagi radíóamatöra í marga áratugi, félagsmaður nr. 163, með kallmerki TF5EP. Fé- lagið sendi út fallega orðaða til- kynningu til félagsmanna um að kallmerkið TF5EP væri endan- lega þagnað. Hafi þeir þökk fyrir. Einar Páll flutti norður með fjölskyldu sína og vann við ný- reista Kröfluvirkjun og síðar hjá RARIK við rekstur Byggðalín- unnar. Hann hleypti síðan heim- draganum og flutti fjölskyldan til Gautaborgar, þar sem þau hafa dvalist síðan, síðustu áratugina rak hann sítt eigið rafverktaka- fyrirtæki. Við bræðurnir vottum fjöl- skyldu Einars Páls, og fjölskyldu Sólveigar systur hans, okkar innilegustu samúð. Gylfi, Birgir og Kári Jónssynir. Einar Páll Stefánsson Í daglegu dægurþrasi um mannlíf og pólitík heyrir maður oftar en ekki talað um hvunn- dagshetjur, jafnvel sannar hvunndagshetjur. Er verið að lýsa einhverjum einstaklingum Guðríður Guðmundsdóttir ✝ Guðríður fæddist í Reykja-vík 17. janúar 1915. Hún lést 8. maí 2019. Foreldrar hennar voru hjónin Ágústa Finnbogadóttir, f. 1891, d. 1927, og Guðmundur Jónsson, f. 1874, d. 1943. Guðríður starfaði sem sauma- kona stærstan hluta starfs- ævinnar, lengst af hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga. Útförin fór fram í kyrrþey 16. maí að ósk hinnar látnu. sem taldir eru hafa lagt sitt af mörkum, borgað sína skatta og aðrar skyldur til þess að lýðveld- ið næði þroska og þegnarnir þá lífvænlegum viðurgjörningi. Einhvern tíma þegar Bubbi Morthens var hjá mér á Hrafna- þingi spurði ég hann hvort hann hefði nokkurn tíma samið lag og texta um saumakonu hjá Sam- bandinu? Ekki enn, svaraði kóngurinn og brosti við. Ástæð- an fyrir spurningunni var að ég þekkti saumakonu hjá Samband- inu sem var ein af mínum hvunn- dagshetjum og var að kveðja þetta jarðlíf, 104 ára gömul og tæpum fjórum mánuðum betur, aðeins sólarhring eftir andlát bróðurdóttur hennar, Hrefnu Harðardóttur, fv. flugfreyju í Memphis í Tennessee í Banda- ríkjunum, sem hún hafði gengið í móðurstað barnungri. Guðríður Guðmundsdóttir, eða Dadda eins og hún var jafn- an kölluð, var ein af þessum ótrúlegu Íslandsdætrum. Hún varð ung ekkja, ól upp tvær dæt- ur, eignaðist skuldlausa þriggja herberga íbúð og vann stóran hluta ævinnar sem saumakona hjá Sambandinu á taxtalaunum, og meira að segja Sólveig Anna hefði svitnað við lestur á launa- seðli hennar. Dadda eignaðist aldrei bíl, tók sennilega aldrei bílpróf, en aldrei vanhagaði hana eða dæturnar um nokkurn skap- aðan hlut og báðum kom hún til manns og mennta og það sem var undarlegast af öllu var að hún átti afgang, t.d. fyrir píanói, sem hún ákvað að þyrfti að prýða heimili annarrar dóttur- innar. Ég vissi aldrei hvar Dadda var í pólitík, hún bara hlýtur að hafa verið vinstra megin í litróf- inu, en hún kvartaði aldrei, lét stundum svolítið hryssingsleg vel valin orð falla um blessað fólkið sem lagði stjórnmál fyrir sig og fengu ef ég man rétt flest- ir sinn skammt. Hún gaf Arnbjörgu dóttur sinni skýr fyrirmæli um útförina, engin minningarorð, tvær eða þrjár lesnar bænir og annað eins af sálmum, að öðru leyti vildi hún skrá sig út úr þessu jarðlífi í algerri kyrrð. Það er merkilegt hve skrýtnir hlutir gerast stund- um er dregur að andláti. Deg- inum áður vaknaði uppáhaldið hennar og nafna, ömmustelpan Gurrí í Noregi, pantaði snarlega far til Íslands og hélt rakleiðis að hvílu ömmu sinnar. Arnbjörgu og fjölskyldu sendi ég samúðarkveðjur, sem og fjöl- skyldu Hrefnu. Döddu sam- gleðst ég og bið fararheilla. Ingvi Hrafn Jónsson. Í dag kveðja starfsmenn Fella- skóla góðan sam- starfsmann og fé- laga, Halldór Jón Sigurðsson. Halldór starfaði í Fellaskóla Halldór Jón Sigurðsson ✝ Halldór JónSigurðsson fæddist 6. nóv- ember 1947. Hann lést 17. maí 2019. Útför Halldórs fór fram 31. maí 2019. stærstan hluta kennsluferilsins eða allt frá árinu 1975. Hann var lengst af umsjónarkennari en kenndi einnig ákveðin fög og sinnti sérkennslu. Halldór lét formlega af störf- um vegna aldurs ár- ið 2008 en við nutum liðsinnis hans sem stundakennara í mörg ár þar á eftir. Halldór sinnti störfum sínum af alúð og fagmennsku, var hlýr og umhyggjusamur í garð nemenda sinna og bar hag þeirra ætíð fyrir brjósti. Hann var þolinmóður í garð þeirra og studdi þá á allan hátt í námi og leik. Halldór var vin- sæll kennari sem naut trausts og virðingar nemenda sinna og spyrja gamlir nemendur hans gjarnan frétta af honum þegar þeir heim- sækja Fellaskóla. Halldór naut ekki aðeins trausts meðal nemenda heldur líka foreldra. Til marks um það lýsti móðir eins fyrrverandi umsjónarnemanda Halldórs því hversu vel hann hefði reynst syni sínum þegar einn starfsmanna skólans hitti hana nýlega. Halldór var einstakt ljúfmenni sem hafði mikinn húmor. Hann reyndist samstarfsfólki sínu vel, var sérlega hjálpsamur og alltaf tilbúinn til að leggja sitt af mörk- um svo skólastarfið gengi sem best. Halldór tók að sér margvís- leg verkefni í skólanum, hvort sem var kennsla eða önnur verk sem þurfti að vinna. Halldór var líka góður félagi og tók hann virkan þátt í félagslífi starfsmanna. Hann lagði sitt af mörkum við að byggja upp jákvæðan anda á vinnustaðn- um og minnumst við hans í glað- legum samræðum við félaga sína á kaffistofunni. Um leið og við þökkum Halldóri samstarfið og þá tryggð sem hann sýndi skólanum sendum við fjöl- skyldu hans og vinum samúðar- kveðjur. Fyrir hönd samstarfsmanna í Fellaskóla, Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, skólastjóri. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hildur Magnúsdóttir ✝ Hildur Magn-úsdóttir fædd- ist 7. febrúar 1942. Hún lést 25. maí 2019. Útförin fór fram 7. júní 2019. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Elsku Hildur systir, með þessum orðum kveð ég þig. Ég segi bara, ef ég hefði mátt velja mér systur, þá hefði ég valið þig, því þú varst allt sem ég hefði getað óskað mér í systur. Takk fyrir allt, elsku Hildur og hittumst í Draumalandinu. Erla Magnúsdóttir. Elsku Drengur. Það er alltaf sárt þegar komið er að kveðjustund, en minningarnar um Dreng eru margar og verða ávallt geymdar í hjörtum okkar. Drengur hafði einstaklega góða og hlýja nærveru, var alltaf hress og kátur og var mjög stutt í grínið þegar við hittum hann, ásamt því að vera mesti barnakall í heimi, öll börn dýrkuðu hann og hann þau. Þegar við báðum son okkar að Drengur Helgi Samúelsson ✝ Drengur HelgiSamúelsson fæddist 21. febrúar 1960. Hann lést 3. júní 2019. Útförin fór fram 7. júní 2019. lýsa honum í einu orði, þá var svarið „skemmtilegur“. Hann var einstak- ur persónuleiki, dæmdi ekki, traust- ur og alltaf tilbúinn að hjálpa. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, Þeim svefni enginn ræni þig. (Steinn Steinarr) Við kveðjum þig með söknuði, elsku Drengur, og vitum að þú ert umvafinn birtu og ljósi. Guð geymi þig elsku besti. Ágúst Kristinn, Harpa, Almar Óli. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS MAGNÚSSON frá Höskuldarkoti, Ytri Njarðvík, lést á Stony Brook sjúkrahúsi á Long Island 25. apríl s.l. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 21. júní kl 14. Þórhildur Sylvía Magnúsdóttir Jón Einar Kjartansson Edda Magnúsdóttir Sonja Margrét Magnúsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.