Morgunblaðið - 17.06.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
Í klípu
„HVERNIG GET ÉG VITAÐ HVORT
EINHVERJUM ER UMHUGAÐ UM MIG EÐA
BARA Á EFTIR PENINGUNUM MÍNUM?”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VAR BÚIN AÐ VARA ÞIG VIÐ ÞVÍ AÐ
REYNA AÐ SNERTA Á ÞÉR TÆRNAR!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hún hjálpar
þér að greiða yfir
skallann.
ÉG FÉKK BRÉF FRÁ
LEYNDUM AÐDÁANDA!
KEMUR MÉR
EKKI Á ÓVART …
EF ÉG VÆRI AÐDÁANDI
JÓNS MYNDI ÉG LÍKA VILJA
HALDA ÞVÍ LEYNDU
HVAÐ ER Í
POKANUM?
HNETUR! ÉG TÓK ÞÆR
MEÐ EF ÉG SKYLDI VERÐA
SVANGUR …
… EÐA EF MÉR
SKYLDI LEIÐAST!
miðla með ýmsum hætti og hef aldrei
fengið leiða á því. Ég er haldin
óstjórnlegri forvitni um fólk sem er
lykilatriði þegar maður er blaða-
maður.“
Haldið var upp á stórafmælið í gær
en vanalega er Helga dugleg að halda
upp á afmælið á sjálfum þjóðhátíðar-
deginum. „Ég er alltaf með 17. júní
kaffi og fólk hefur verið duglegt að
kíkja til mín í rigningunni. Ég held
mikið upp á daginn og stefnan er að
koma mér upp fánastöng svo ég geti
flaggað á þjóðhátíðardaginn.“
Fjölskylda
Maki Helgu er Bragi Þór Hinriks-
son, f. 8. júní 1974, kvikmyndaleik-
stjóri. Foreldrar hans eru Erna
Norðdahl og Hinrik Þórhallsson.
Fyrri maki Helgu er Reynir Örn
Þrastarson, f. 15. október 1971, mat-
reiðslumaður.
Dóttir Helgu er Margrét Júlía
Reynisdóttir, f. 13. nóvember 2013,
og stjúpbörn hennar eru Hinrik
Huldar Bragason, 14. febrúar 2008,
Erna Ísabella Bragadóttir, 20. maí
1998, og Þórður Örn Reynisson, 2.
október 1996.
Hálfsystkin Helgu eru Ingunn
Björg Arnardóttir, f. 17. desember
1970, kennari í Norðlingaskóla, og
Snæbjörn Áki Friðriksson, f. 8. októ-
ber 1990, starfsmaður í Hagkaup.
Foreldrar Helgu Arnardóttur eru
Margrét Ákadóttir, f. 23. október
1950, leikkona og listmeðferðarfræð-
ingur, og Örn Þorláksson, f. 21. júní
1948, d. 17. febrúar 2002, rekstrar-
hagfræðingur og sölumaður hjá
Hampiðjunni. Þau skildu.
Úr frændgarði Helgu Arnardóttur
Helga
Arnardóttir
Skafti Þorláksson
verkamaður í Viðey
Anna Katrín Jónsdóttir
húsmóðir í Viðey
Þorlákur Skaftason
framkvæmdastjóri Þ. Skaftasonar hf.
Örn Þorláksson
rekstrarhagfræðingur og
sölumaður hjá Hampiðjunni
Gyða Vestmann Einarsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Einar Vestmann Ólafsson
vélstjóri í Reykjavík
Guðbjörg Gunnlaugsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Svava Skaftadóttir
húsmóðir á Laxalóni í Rvík
Sveinn Skúlason fyrrv.
forstjóri Hrafnistu
Geirlaug Ottesen
húsmóðir í Hveragerði
Auður I. Ottesen
garðyrkjufr. og ritstjóri
Bergþór Jónsson
bóndi í Fljótstungu
Guðrún Pétursdóttir húsmóðir
í Fljótstungu í Hvítársíðu
Páll Bergþórsson
fv. veðurstofustjóri
Gísli Ó. Pétursson héraðslæknir á HúsavíkJakob Gíslason orkumálastjóri
Jón Ármann Jakobsson
kaupmaður og bókari á Húsavík
Valgerður Pétursdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Áki Jakobsson
lögmaður í Reykjavík og ráðherra
Helga Guðmundsdóttir
tónlistarkennari og húsmóðir í Reykjavík
Guðmundur Jörundsson
stýrimaður í Hrísey, faðir hans var Hákarla-Jörundur
Sigríður Sigurðardóttir
klæðskeri og bakari á Siglufi rði
Margrét Ákadóttir
leikkona og listmeðferðarfræðingur
Mér finnst fara vel á því aðopna Vísnahornið á þjóðhá-
tíðardaginn með þessari stöku
Davíðs Hjálmars í Davíðshaga á
Leir:
Lóa syngur, léttist spor,
lifna blóm um svörðinn.
Í þriðja skipti þetta vor
þá er vor um fjörðinn.
Ólafur Stefánsson tekur undir:
Lifnar Davíð, léttist sporið
lofar gæsku skaparans,
sem að núna sjötta vorið
sendir yfir fjörðinn hans.
Ég er í hópi þeirra stúdenta sem
útskrifuðumst 17. júní fyrir 60 ár-
um frá Menntaskólanum á Akur-
eyri. Það er margs að minnast, sem
ekki er efni til að rifja upp hér,
nema nokkrar vísur frá þessum ár-
um. Heimir Steinsson orti undra-
vel. Hér er „Næturregn á vori“:
Vindblæ vestan
vef ég fagnandi
að vitum mér.
Veit ég, varir hans
vætu struku
af vöngum þér.
Maður sat gegnt stúlku á kaffi-
húsi og kvað:
Augun laus við leiðan kvíða
lífsins hlýða æðaslætti.
Varir rauðar vona og bíða,
vakir þrá í hverjum drætti.
Einhvern tíma orti Ari Jósefsson:
Þótt kæti okkur konurnar
er kólna fer í rúminu
vil ég drekka veigarnar
og vísur yrkja í húminu.
Ari birti í Munin „nonsens po-
ems“. Þar á meðal var „Inngangur
að matreiðslubók“:
Lífið er réttur
sem allir verða
að eta.
Uppskriftin er einföld:
Sorg og gleði
- sitt pundið af hvoru.
Nokkrir nautnadropar
og draumar eftir smekk.
Hjörtur Pálsson íslenskaði
„Döðlur“ eftir Piet Hein:
Að eiga fulla döðludós
er draumur niðrí tær.
Fyrst etur sérhver eins margar
og í hann framast nær
og fær
og getur.
Svo fer hann til að þvo sér
og því næst EINA etur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sól í suðri og mennta-
skólaskáldskapur