Morgunblaðið - 17.06.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
SÉRHÖNNUÐ TENGISTYKKI
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið nýju heimasíðuna
islandshus.is
ÖFLUGAR
UNDIRSTÖÐUR
HM kvenna í Frakklandi
E-RIÐILL:
Holland – Kamerún ................................. 3:1
Vivianne Miedema 41., 85., Dominique Blo-
odworth 48. - Gabrielle Onguene 48.
Kanada – Nýja-Sjáland ........................... 2:0
Jessie Fleming 48., Nichelle Prince
79.
Staðan:
Holland 6 stig, Kanada 6, Kamerún 0,
Nýja-Sjáland 0.
F-RIÐILL:
Svíþjóð – Taíland..................................... 5:1
Linda Sembrant 6., Kosovare Asllani 19.,
Fridolina Rolfo 42, Lina Hurtig 81., Elin
Rubensson 90. (víti). - Kanjana Sung-Ngo-
en 90.
Bandaríkin – Síle ..................................... 3:0
Carli Lloyd 11., 35., Julie Ertz 26.
Staðan:
Bandaríkin 6 stig, Svíþjóð 6, Síle 0, Taíland
0
Noregur
Bodö/Glimt – Strömsgodset .................. 2:0
Oliver Sigurjónsson sat á varamanna-
bekk Bodö/Glimt.
Lilleström – Viking ................................. 0:2
Arnór Smárason kom inn á eftir 74 mín-
útur hjá Lilleström.
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn fyrir Víking.
Mjöndalen – Kristiansund ...................... 1:1
Dagur Dan Þórhallsson sat á vara-
mannabekk Mjöndalen.
Rosenborg – Vålerenga.......................... 3:0
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
með Vålerenga.
Staðan:
Molde 12 8 1 3 28:12 25
Odd 10 7 1 2 15:8 22
Bodø/Glimt 10 6 2 2 21:13 20
Brann 12 5 3 4 15:14 18
Kristiansund 11 5 3 3 12:11 18
Viking 10 5 2 3 15:13 17
Vålerenga 11 5 2 4 17:16 17
Haugesund 11 4 4 3 17:10 16
Rosenborg 11 4 3 4 11:14 15
Ranheim 11 4 1 6 13:17 13
Lillestrøm 11 3 3 5 10:17 12
Sarpsborg 10 2 4 4 9:11 10
Mjøndalen 11 2 4 5 16:22 10
Strømsgodset 11 2 3 6 12:17 9
Stabæk 8 2 1 5 6:13 7
Tromsø 10 2 1 7 10:19 7
B-deild:
HamKam – Aalesund .............................. 1:2
Aron Elís Þrándarson og Daníel Leó
Grétarsson léku allan tímann með Aale-
sund og Hólmbert Aron Friðjónsson lék
fyrstu 67 mínúturnar en Davíð Kristján
Ólafsson sat á varabekknum.
Notodden – Sandefjord........................... 0:2
Viðar Ari Jónsson kom inn á eftir 61 mín-
útu en Emil Pálsson er meiddur.
Kongsvinger – Start................................ 4:2
Aron Sigurðarson lék allan leikinn fyrir
Start. Kristján Flóki Finnbogason kom inn
á eftir 75 mínútur. Jóhannes Harðarson er
þjálfari liðsins.
KNATTSPYRNA
HM 2019
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Það breytti litlu fyrir Bandaríkin
að Jill Ellis, landsliðsþjálfari, hafði
gert sjö breytingar á byrjunarliðinu
fyrir leikinn gegn Síle í riðlakeppni
HM kvenna í fótbolta í gær. Banda-
ríska liðið setti nýtt met með að
skora þrettán mörk í fyrsta leik á
móti Taílandi, en liðið lét þrjú mörk
nægja gegn Síle. Lokatölur urðu 3:0
og átti Christiane Endler í marki
Síle stórleik. Hún kom hins vegar
ekki í veg fyrir að Bandaríkin
tryggðu sætið sitt í sextán liða úr-
slitum.
Carli Lloyd skoraði tvö mark-
anna og varð hún fyrsti leikmað-
urinn í sögunni til að skora í sex
leikjum í röð á lokamóti HM. Hún
skoraði í öllum leikjunum í útslátt-
arkeppninni árið 2015 og átti stóran
þátt í að Bandaríkin tryggðu sér
heimsmeistaratitilinn. Með öðru
markinu varð hún svo elsti leik-
maður sögunnar til að skora tvö
mörk í sama leiknum á lokamóti
HM en Lloyd er 36 ára gömul. Með
sigrinum fóru Bandaríkin upp í sex
stig og toppsæti F-riðilsins. Liðið er
með markatöluna 16:0 og lítur gríð-
arlega vel út. Bandaríkin og Svíþjóð
eigast við í hreinum úrslitaleik um
efsta sætið á fimmtudaginn kemur.
Svíþjóð vann 5:1-sigur á Taílandi
í Nice og tryggði sér einnig sæti í
sextán liða úrslitum. Bjuggust
margir við öðrum risaskell hjá taí-
lenska liðinu, þar sem staðan var
orðin 2:0 eftir aðeins 19 mínútur.
Þær sænsku slökuðu hins vegar ör-
lítið þegar leið á leikinn og Taíland
skoraði sitt fyrsta mark á mótinu í
uppbótartíma. Sænska liðið lék bet-
ur en í 2:0-sigrinum á Síle og skutu
þær sænsku 34 sinnum á mark Taí-
lands. Þrátt fyrir tapið var Nueng-
rutai Srathongvian, þjálfari taí-
lenska liðsins, himinlifandi eftir
leikinn. „Þetta mark gefur okkur
mikið. Það er erfitt að skora á móti
liði eins og Svíþjóð og það sýnir að
undirbúningurinn okkar hefur verið
góður. Markið fékk okkur til að
brosa, hlæja og gleðjast,“ sagði
hann við fjölmiðla eftir leik.
Sú markahæsta aðeins 22 ára
Holland og Kanada tryggðu sér
efstu tvö sæti E-riðils og sæti í sex-
tán liða úrslitum með sigrum á
laugardaginn var. Vivianne Mie-
dema skoraði tvö mörk fyrir Hol-
land í 3:1-sigri á Kamerún og varð í
leiðinni markahæsti leikmaður í
sögu hollenska liðsins, þrátt fyrir að
vera aðeins 22 ára. Miedema er bú-
in að skora 60 sinnum í 77 lands-
leikjum. Kamerúnska liðið lagði upp
með að vera þétt og lék með fimm
manna vörn. Það gekk vel þangað
til Miedema skoraði með skalla á
41. mínútu og kom hollenska liðinu
yfir. Kamerún jafnaði hins vegar
strax í næstu sókn er Gabrielle On-
guene skoraði af stuttu færi. Hol-
lenska liðið reyndist hins vegar
mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik
og vann að lokum öruggan og verð-
skuldaðan sigur.
Kanada þurfti að láta sér nægja
að skora tvö mörk á móti Nýja-
Sjálandi, þrátt fyrir gríðarlega yf-
irburði. Kanada var mikið sterkari
aðilinn allan tímann og hefði sig-
urinn getað orðið töluvert stærri.
Nýja-Sjáland hefur nú leikið 14
leiki á lokamóti HM án þess að
fagna sigri. Kanada hefur aftur á
móti ekki fengið á sig mark í 256
mínútur á HM og gæti liðið náð
langt. Kanada og Holland mætast í
úrslitaleik um efsta sætið á fimmtu-
dag.
Markavélarnar settu met
Carli Lloyd setti tvö markamet Miedema 22 og orðin markahæst Hol-
land, Kanada, Bandaríkin og Svíþjóð komin áfram Úrslitaleikir um efstu sætin
AFP
Sögubækur Carli Lloyd skráði nafn sitt í sögubækurnar með tveimur mörkum gegn Síle á HM í Frakklandi.
Þór frá Akureyri fór upp í toppsæti Inkasso-deildar
karla í fótbolta, 1. deildarinnar, með öruggum 3:0-
útisigri á Leikni á laugardag. Þórsarar eru búnir að
vinna fimm leiki og tapa aðeins tveimur í fyrstu sjö um-
ferðunum.
Spánverjinn Álvaro Montejo var sterkur fyrir Þór og
skoraði tvö mörk og Ármann Pétur Ævarsson komst
einnig á blað. Montejo er búinn að vera drjúgur síðan
hann gekk í raðir Þórs fyrir síðasta sumar og er nú með
23 mörk í 28 deildarleikjum.
Með sigrinum fór Þór upp í 15 stig og er liðið með
tveimur stigum meira en Víkingur Ó. og Fjölnir. Vík-
ingur á hins vegar leik til góða og getur komist upp í toppsætið með sigri á
Keflavík á heimavelli í dag.
Leiknir er með níu stig og í áttunda sæti eftir þrjá sigra og fjögur töp í
fyrstu sjö leikjunum.
Þórsarar upp í toppsætið
Alvaro
Calleja
Anthony Davis er að ganga til
liðs við Los Angeles Lakers í
bandarísku NBA-deildinni í
körfuknattleik en félagaskiptin
hafa legið í loftinu. Davis hefur
verið einn besti leikmaður deild-
arinnar undanfarin ár en hann er
samningsbundinn New Orleans
Pelicans.
Þeir Lonzo Ball, Brandon Ing-
ram og Josh Hart eru allir á leið
til Pelicans í skiptum fyrir Davis
og þá fær New Orleans þrjá val-
rétti í fyrstu umferð nýliðavalsins
sem getur reynst dýrmætt.
Lakers að
landa stórlaxi
AFP
Eftirsóttur Davis vildi ekki semja
við New Orleans á ný.