Morgunblaðið - 17.06.2019, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
2. deild karla
Tindastóll – Þróttur V.............................. 2:2
KFG – Völsungur ..................................... 2:3
ÍR – Fjarðabyggð..................................... 2:0
Víðir – Vestri............................................. 0:1
Leiknir F. – Selfoss .................................. 2:1
Kári – Dalvík/Reynir................................ 2:3
Staðan:
Leiknir F. 7 4 3 0 14:7 15
Selfoss 7 4 1 2 15:6 13
Víðir 7 4 1 2 15:10 13
Völsungur 7 4 1 2 11:11 13
Vestri 7 4 0 3 10:10 12
Dalvík/Reynir 7 2 4 1 10:9 10
Fjarðabyggð 7 3 0 4 10:10 9
Þróttur V. 7 2 3 2 9:10 9
KFG 7 3 0 4 11:13 9
ÍR 7 2 2 3 8:9 8
Kári 7 1 2 4 10:16 5
Tindastóll 7 0 1 6 6:18 1
3. deild karla
Augnablik – Kórdrengir .......................... 1:4
Einherji – Reynir S .................................. 1:2
KF – Höttur/Huginn................................ 3:0
Sindri – KH............................................... 6:3
Staðan:
KV 7 6 0 1 17:8 18
Kórdrengir 7 5 2 0 17:6 17
KF 7 5 1 1 16:6 16
Vængir Júpiters 7 4 0 3 10:9 12
Reynir S. 7 3 2 2 12:10 11
Sindri 7 3 1 3 15:13 10
Álftanes 7 2 2 3 12:13 8
Einherji 7 2 1 4 8:10 7
Augnablik 7 1 3 3 12:15 6
Höttur/Huginn 7 1 3 3 8:11 6
Skallagrímur 7 2 0 5 8:18 6
KH 7 0 1 6 11:27 1
2. deild kvenna
Grótta – Völsungur .................................. 1:2
Sindri – Leiknir R .................................... 1:0
FHL – Leiknir R ...................................... 8:0
Staðan:
Völsungur 4 4 0 0 9:4 12
Grótta 4 2 1 1 9:3 7
Fjarð/Hött/Leikn. 4 2 0 2 12:4 6
Álftanes 3 2 0 1 11:3 6
Hamrarnir 3 1 0 2 3:6 3
Sindri 3 1 0 2 2:9 3
Leiknir R. 5 0 1 4 1:18 1
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Soligorsk ..................... 3:1
Willum Þór Willumsson sat á vara-
mannabekknum hjá BATE.
KNATTSPYRNA
Þýskaland
Fyrsti úrslitaleikur:
Bayern München – Alba Berlín ......... 74:70
Martin Hermannsson skoraði 5 stig, tók
4 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal bolt-
anum tvisvar fyrir Alba.
Staðan er 1:0 fyrir Bayern.
KÖRFUBOLTI
ÞÝSKALAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Martin Hermannsson og sam-
herjar í Alba Berlín misstu niður
forskot á lokamínútunum í fyrsta
úrslitaleiknum gegn Bayern Münc-
hen um þýska meistaratitilinn í
körfuknattleik í München í gær.
Bayern sigraði 74:70 og er því 1:0
yfir en vinna þarf þrjá leiki til að
verða Þýskalandsmeistari. Næsti
leikur liðanna verður í hinni glæsi-
legu Mercedes Benz-höll í Berlín en
Bæjarar fengu gríðarlegan stuðning
á áhorfendapöllunum í gær.
Alba Berlín var átta stigum yfir
þegar rúmar fjórar mínútur voru
eftir af leiknum og fimm stigum yfir
þegar tvær og hálf voru eftir en
lokakaflinn fór illa hjá Berlínarlið-
inu.
Martin skoraði 5 stig í leiknum og
hitti úr tveimur af sex skotum sín-
um. Hann gaf auk þess þrjár stoð-
sendingar á samherja sína, tók 4
fráköst og stal boltanum tvívegis.
Bayern er ríkjandi meistari en
sömu lið mættust í úrslitum fyrir
ári síðan en þá var Martin ekki
kominn í raðir Alba.
Alba Berlín varð síðast meistari
árið 2008 en hefur þrívegis tapað
úrslitarimmu eftir það: 2011, 2014
og 2018. Í fyrra gegn Bayern eins
og áður segir en í þeirri rimmu
komst Alba 1:0 yfir.
Fáir Íslendingar í úrslitum
Fáir Íslendingar hafa verið í
sporum Martins hvað það varðar að
leika til úrslita um meistaratitil í
körfuknattleik erlendis. Sérstaklega
ef farið er út fyrir Norðurlöndin.
Jón Arnór Stefánsson lék til úr-
slita á Ítalíu með Lottomatica Roma
árið 2008 en tapaði. Jón er sá leik-
maður sem mest hefur afrekað í
Evrópu og varð Evrópumeistari og
ítalskur bikarmeistari. Hvað deilda-
keppni varðar fór hann einnig í und-
anúrslit á Ítalíu með Napolí og tví-
vegis í undanúrslit á Spáni, annars
vegar með Málaga og hins vegar
Valencia.
Pétur Guðmundsson lék með Los
Angeles Lakers í undanúrslitum í
NBA árið 1986 eða í úrslitum Vest-
urdeildarinnar. Helena Sverr-
isdóttir varð í tvígang meistari með
Good Angels Kosice 2012 og 2013.
Haukur Helgi Pálsson lék í undan-
úrslitum í Frakklandi á dögunum
og hafa hann og Martin því náð
mjög langt á íslenskan mælikvarða í
vetur.
Súr niðurstaða hjá Martin
Bayern München tók forystuna gegn Alba Berlín í úrslitarimmunni
Ljósmynd/http://www.eurocupbasket.com
Í úrslitum Martin Hermansson lék í tæpar 27 mínútur í gær.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir gerði
sér lítið fyrir og bætti eigið Íslands-
met í 200 metra hlaupi á ung-
mennamóti MÍ í frjálsum íþróttum
sem fram fór á Selfossi um helgina.
Guðbjörg kom fyrst í mark í úrslit-
um í 200 metra hlaupi í flokki
stúlkna, 20-22 ára, og hljóp á tím-
anum 23,45 sekúndum.
Fyrra met Guðbjargar í greininni
var 23,47 sekúndur sem hún náði í
Buenos Aires á Ólympíuleikum
æskunnar. Er þetta í fjórða sinn
sem Guðbjörg bætir metið en hún
er aðeins 17 ára gömul.
Íslandsmet í 200
metrunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Methafi Guðbjörg Jóna.
Óljóst er hvar miðherjinn Tryggvi
Snær Hlinason leikur körfuknatt-
leik á næsta keppnistímabili.
Tryggvi er á leið frá Valencia á
Spáni eftir tvö ár hjá félaginu.
Hann gerði fimm ára samning sum-
arið 2017 en í samningnum var
ákvæði um að hann yrði endurskoð-
aður sumarið 2019.
Tryggvi er ágætlega kynntur og
fær sjálfsagt einhver tilboð frá at-
vinnumannaliðum í sumar. Flestir
njósnarar í bransanum fylgdust
með honum á EM U20 2017 og í
sumardeild NBA í fyrra.
Tryggvi laus allra
mála hjá Valencia
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sterkur Hver verður næsti áfanga-
staður Tryggva Hlinasonar?
Íslandsmeistararnir Elvar Örn
Jónsson hjá Selfossi og Íris Björk
Símonardóttir úr Val voru valin
leikmenn ársins í úrvalsdeildunum
í handknattleik í hófi hjá HSÍ í
gær. Þau spiluðu stórt hlutverk í
sigri sinna liða á Íslandsmótinu í
vetur. Fengu þau einnig Sigríð-
arbikarinn og Valdismarsbik-
arinn.
Elvar var einnig valinn bestur í
fyrra. Samherji hans Haukur
Þrastarson var valinn efnilegastur
annað árið í röð og Lena Margrét
Valdimarsdóttir úr Fram var val-
in efnilegust í kvennaflokki.
Bestu þjálfararnir voru Gunnar
Magnússon hjá deildarmeisturum
Hauka og Ágúst Jóhannsson,
þjálfari Íslands-, bikar- og deild-
armeistara Vals í kvennaflokki.
Steinunn Björnsdóttir Fram og
Daníel Þór Ingason Haukum
voru valin bestu varnarmennirnir.
Í sókn þóttu Valsararnir Lovísa
Thompson og Magnús Óli Magn-
ússon bera af.
Íris Björk var að sjálfsögðu
einnig besti markvörðurinn og hjá
körlunum var það Daníel Freyr
Andrésson Val.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas
Elíasson þóttu skara fram úr í
dómgæslunni.
Leikmenn ársins í Grill 66
deildunum eru Þóra María Sig-
urjónsdóttir Aftureldingu og
Breki Dagsson Fjölni. sport@mbl.is
Elvar Örn og Íris Björk kjörin
leikmenn ársins í efstu deild
Ljósmynd/HSÍ
Best Íris Björk ásamt Guðmundi B. Ólafssyni formanni HSÍ.