Morgunblaðið - 17.06.2019, Side 28

Morgunblaðið - 17.06.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Ingibjörg Elsa Turchi tónlistarmaður varð í gær þess heiðurs aðnjótandi að hljóta styrk úr Minningarsjóði Krist- jáns Eldjárns gítarleikara. Ingibjörg segir að það hafi komið henni mikið á óvart að vera valin til að hljóta styrk- inn og segir það jafnframt mikinn heiður. Ingibjörg og blaðamaður ræða saman á íslensku, eins og hefð og venja er fyrir þegar tveir Íslend- ingar ræða saman, þó það hefði lík- lega verið lítið mál fyrir Ingibjörgu að ræða á öðru tungumáli, þar sem hún er bæði með háskólapróf í latínu og forngrísku. Ingibjörg hefur farið um víðan völl í tónlistinni og lært á mörg hljóðfæri. Í dag á þó rafbassinn hug hennar og hjarta. Flakkaði á milli „Aðdragandinn er í rauninni bara sá að ég fékk símtal og var tjáð að ég hefði fengið styrkinn,“ segir Ingi- björg og segir að símtalið góða hafi komið nokkuð á óvart, enda sé ekkert umsóknarferli um styrkinn. „Ég var auðvitað bara mjög hissa og svo er þetta mikill heiður. Skemmtilegt sím- tal,“ segir Ingibjörg glöð í bragði. Samtalið berst að tónlistarferlinum sem hófst eins og hjá svo mörgum í forskóla fyrir börn. „Ég byrjaði bara sem krakki, sex ára, í forskóla. Ég hélt svo áfram á flautu og svo lærði ég á píanó, harmóniku og á gítar. Þannig á þessu árabili, á milli sex og fimmtán ára, var ég í þessu hefð- bundna tónskólanámi,“ segir Ingi- björg sem eins og heyra má hefur bæði prufað mörg hljóðfæri og marga tónskóla. Á ferilskránni er meðal annars píanó- og blokkflautunám í Tónskóla Sigursveins, harmoniku- nám í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Gítarnámskeið hjá GÍS. Þegar hún er spurð að því hvort hún taki ennþá reglulega í hljóðfærin sem hún lærði á í æsku, segist Ingi- björg ekki spila oft á píanóið, en oftar á gítarinn. Til að mynda hafi hún spil- að á gítar á EP-plötunni sem hún gaf út í fyrra. Þá grípur hún einnig í „nikkuna“ í neyðartilvikum. „Ég spil- aði áfram á harmónikkuna en spila ekki mikið á hana nema eitthvað sér- stakt beri undir. „Heyrðu, þú kannt á harmónikku,“ segir einhver og þá tek ég kannski í hana.“ Ingibjörg segir að grunnurinn sem hún fékk af því að læra á hin ýmsu hljóðfæri nýtist henni ótvírætt í dag sem bassaleikari og tónsmiður. „Maður getur frekar sett sig inn í alls kyns hljóðfæri og fleira.“ Listinn af hljóðfærum sem Ingi- björg hefur lært á er þó ekki enn upp- talinn því hún stundaði um tíma stutt nám á bouzouki, grískt hljóðfæri sem er ekki ósvipað gítar í útliti, og minnir hljómur þess nokkuð á mandólín. „Ég hef haft mikinn áhuga á grískri músík. Ég hafði aldrei spilað neitt á bouzouki áður en ég sló til vor- ið 2017 og fór til Aþenu í grískuskóla og fann þar líka bouzouki-kennara. Þetta var því svona mánaðar nám- skeið. Ég hélt svo aðeins áfram hjá Ásgeiri Ásgeirssyni eftir að ég kom heim,“ segir Ingibjörg og bætir við að hún eigi eitt slíkt hljóðfæri sem hún glamri stundum á heima við. „En þetta er meira bara svona áhugamál enn þá.“ BA-gráða í hvoru tveggja Eins og áður segir hefur Ingibjörg ekki aðeins látið til sín taka á sviði tónlistarinnar. Að grunnskólanámi loknu lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík, hvar Ingibjörg stundaði nám við fornmálabraut og hélt síðan áfram í nám í latínu og forngrísku. „Ég var í MR og var þar á forn- málabraut I, var í grísku og latínu. Það lá mjög vel fyrir mér og mér fannst það skemmtilegt. Svo ég hélt bara áfram eftir MR og fór í grísku og latínu í háskólanum og tók BA- próf í báðum greinum,“ segir Ingi- björg. Árið 2012 útskrifaðist hún úr latínunámi við HÍ og ári seinna úr forngrísku við sama skóla. Spurð hvort henni hafi aldrei hugn- ast að gera fornmálin að ævistarfi svarar Ingibjörg: „Það var ekkert endilega planið. Ég kenndi aðeins við MR og hef aðeins verið að þýða gríska heimspekitexta en svo hefur það ekki verið mikið meira. En ég á þetta auðvitað alltaf inni og get tekið þetta upp aftur síðar ef mig langar að kenna eða þýða, en þetta hefur aðeins legið á hillunni síðustu ár.“ „Nóg að gera“ Í dag stundar Ingibjörg tónsmíða- nám við Listaháskóla Íslands með rafbassanámi og rytmískum kennslu- fræðum. Ásamt því leikur Ingibjörg í hinum ýmsu hljómsveitum og verk- efnum og semur sína eigin tónlist. „Þetta gengur vel. Það koma vissu- lega álagspunktar en þetta er svo fjölbreytt og skemmtilegt,“ segir hún um hvernig það sé að stunda námið og sinna öllum hinum verkefnunum samhliða. Þau verkefni sem Ingibjörg hefur sinnt á síðustu árum eru ótal mörg. Sem dæmi hefur hún frá því í haust verið bassaleikari í hljómsveit Ronju Ræningjadóttur í Þjóðleikhúsinu, bassaleikari Stuðmanna frá því í fyrravor og hóf að flytja eigin tónlist með hljómsveit á ýmsum tónleikum eftir útgáfu EP-plötu sinar Wood/ work í fyrra. Þá hefur hún verið bassaleikari í bandi Teits Magnús- sonar, lék á Bræðslunni 2014 og Drangey festival 2015 með Emilíönu Torrini. Hún var bassaleikari á plötu Bubba Morthens, 18 konur, sem tek- in var upp haustið 2015 og að síðustu má nefna að Ingibjörg er einn stofn- enda og umsjónarkvenna Stelpur rokka!, samtaka sjálfboðaliða sem starfa af femínískri hugsjón við að efla ungar stelpur, trans stráka, kyn- segin og intersex ungmenni í gegnum tónlistarsköpun og jafnréttisstarf. Þar sinnir Ingibjörg kennslu og um- sjón. En hvað varð til þess að hún tók upp bassann? „Ég var í hljómsveit sem ég stofn- aði með vinum mínum í MR, Rökk- urró. Þar spilaði ég fyrst á harm- ónikku en svo vantaði bassaleikara og ég ákvað bara að prófa. Ég heillaðist bara af rafbassanum. Svo það var kannski frekar seint, svona miðað við allt, sem ég byrjaði að leika á bass- ann,“ segir Ingibjörg en áður en hún hóf nám við LHÍ stundaði hún raf- bassanám við tónlistarskóla FÍH og lauk þar miðprófi. Eins og áður segir er sýningum á Ronju Ræningjadótt- ur í Þjóðleikhúsinu, hvar Ingibjörg lék á bassa, nýlokið. Það er þó „nóg að gera,“ eins og Ingibjörg orðar það sjálf, hún mun halda áfram að leika eigin tónlist í sumar og með fjölmörgum hljóm- sveitum að vanda og koma að mörg- um verkefnum. Bassaleikari liðugur í latínu  Ingibjörg Elsa Turchi hlaut styrk úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns  Hefur lært á sex hljóð- færi og er með háskólapróf í forngrísku og latínu  Brátt bætist svo enn ein háskólagráðan við Morgunblaðið/Valli Bassakona Ingibjörg Elsa Turchi er meðal fremstu bassaleikara Íslands. Ferilskrá hennar vitnar um það. Morgunblaðið/Eggert Fyrir 12 árum Rökkurró árið 2007, Ingibjörg lengst til vinstri. ÞÓR FH REYKJAVÍK: Krókháls 16 Sími 568-1500 AKUREYRI: Baldursnes 8 Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Hozelock Slanga 12,5 - 20m 3700 kr GARÐSLÖNGUR Hozelock Slanga 12,5 - 20m með tengjum 4300 kr Hozelock Slanga 12,5 - 50m 6900 kr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.