Morgunblaðið - 17.06.2019, Side 32

Morgunblaðið - 17.06.2019, Side 32
Sveifludansstöðin Sveiflustöðin býður gestum og gangandi til sveifludansveislu í Iðnó í dag frá kl. 15 til 17 og hefst dansgleðin með byrjendakennslu í Lindy hop dansi milli kl. 15 og 15:30. Að því loknu hefst dansleikur í anda Benny Go- odman og annarra sveiflumeistara þar sem Djassband Sigga Swing leikur fyrir dansi til klukkan 17. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og ókeypis aðgangur. Sveifludansveisla Sveiflustöðvar í Iðnó MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 168. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik tryggði sér í gær sæti í lokakeppni EM sem fram fer í jan- úar á næsta ári í Austurríki, Noregi og Svíþjóð. Ísland vann öruggan sigur gegn Tyrklandi í Laugardals- höll 32:22 í síðasta leiknum í und- ankeppninni. Er þetta í ellefta skipti í röð sem Ísland kemst á EM eða frá árinu 2000. »26 Ísland í lokakeppni EM í ellefta sinn í röð ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM KR fór upp fyrir ÍA í toppsæti deildarinnar Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Douglas DC-3 herflutningavélarnar, sem millilentu á Reykjavíkurflugvelli fyrir skömmu, eru væntanlegar aftur á næstunni á leið til Bandaríkjanna, sú fyrsta á morgun. Vélarnar vöktu ekki aðeins athygli heldur rifjaði koma þeirra upp liðna tíma hjá sum- um. „Þetta eru yndislegar vélar og með fallegustu hönnunum enda eru þær enn á flugi,“ segir Aðalsteinn Dal- mann Októsson, verkstjóri á hlað- deild Flugfélags Íslands í um 42 ár, eða þar til hann fór á eftirlaun árið 2000. Dalli, eins og hann er kallaður, seg- ist alla tíð hafa verið með flugdellu. „Ég byrjaði að fara út á flugvöll sem stráklingur strax á stríðsárunum. Þegar ég var 16 ára fékk ég þá flugu í höfuðið að verða flugmaður og fór í nokkra tíma í flugskóla, sem Jóhann- es R. Snorrason, Smári Karlsson og Magnús Guðmundsson stofnuðu.“ Hann segir að sjónpróf hafi gert drauminn að engu. „Úlfar Þórðarson augnlæknir sagði mér að ég væri með meðfæddan sjóngalla og ekki þýddi fyrir mig að halda áfram í flugnámi.“ Hann segir að þetta hafi ekki slegið sig út af laginu enda hafi kunningjar hans haldið áfram og verið í fluginu, þar á meðal Andri Heiðberg. „Þó ég hafi verið settur út af sakramentinu fylgdist ég alltaf með þessum strákum.“ Eftir að hafa verið á vinnumark- aðnum í 12 ár hóf Dalli svo störf hjá Flugfélagi Íslands 14. apríl 1958. „Ég þekkti alla frumherjana í fluginu, bæði strákana hjá Flugfélaginu og Loftleiðum, kynntist þeim, þegar ég byrjaði í flugnáminu og vildi starfa við flugið. Þetta voru allt vinir mínir og ég vann með indælis, ötulu og framsæknu fólki alla tíð hjá Flug- félaginu.“ „Komu okkur á kortið“ Hann á vart til orð til þess að lýsa þristunum. „Við gerðum út fjórar Douglas vélar og þær þjónuðu okkur vel, miklir vinnuhestar og fjölhæfar vélar til allra hluta,“ rifjar hann upp. „Gunnfaxi er enn til í skýlinu, hefur verið notaður í varahluti í gamla Gljá- faxa, sem heitir Páll Sveinsson og er í eigu Landgræðslunnar. Piltarnir, sem flugu þessum vélum eru menn- irnir sem komu okkur á kortið. Ef þeir hefðu ekki sýnt djörfung, dug og framsýni værum við enn langt á eftir öðrum þjóðum. Stjórn og starfsfólk flugfélaganna gerðu okkur að þjóð.“ Hann bætir við að hann hafi látið þessa kappa skrifa nöfn sín og núm- erin á flugskírteinunum þeirra á skrautritað blað og það sé varðveitt í Flugsafninu á Akureyri. „Jóhannes var fyrstur á blaði með skírteini núm- er 5.“ Þristarnir voru á stélhjóli og fragt- hólfin voru frammi í nefi. Dalli segir að þeir hafi ekki haft lyftara til að byrja með og því hafi þurft að lyfta allri fragt með handafli inn í hólfin. „Þær voru erfiðar í umgengni,“ við- urkennir hann með semingi. Dalli segist vera alæta á allt flug og fylgist með því daglega. „Sonarsonur minn er flugmaður hjá Icelandair og ég fylgist sérstaklega með flugi hans í tölvunni. Og svo er ég auðvitað í Þristavinafélaginu.“ Ljósmynd/Erling Aðalsteinsson Á Reykjavíkurflugvelli Aðalsteinn Dalmann Októsson skoðaði þristana á dögunum og rifjaði upp gamla tíma. Fjölhæfir vinnuhestar  Aðalsteinn Dalmann Októsson elskar þristana  „Stjórn og starfsfólk flugfélaganna gerðu okkur að þjóð“ HEYRNARSTÖ‹IN Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust ™ Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafn- vel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikil- vægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnar- tæki lánuð til reynslu. KR-ingar eru komnir á toppinn í Pepsí-Max deild karla í knattspyrnu eftir sigur á ÍA 3:1 á Akranesi á laugardaginn. 8. umferðinni lauk þá með þremur leikjum og tóku Ís- landsmeistararnir í Val hressilega við sér og unnu ÍBV 5:1. KA er fimm stigum á eftir efsta lið- inu, KR, eftir sigur á Grinda- vík 2:1. Breiða- blik og ÍA eru aðeins stigi á eft- ir KR en bæði lið- in töpuðu í þess- ari umferð. »24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.