Morgunblaðið - 18.06.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500
Mikil hátíðardagskrá var sem endranær á
Hrafnseyri í Arnarfirði, fæðingarstað Jóns Sig-
urðssonar, í tilefni af þjóðhátíðardeginum í gær.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
flutti hátíðarræðu, auk þess sem sérstök hátíð
var haldin til heiðurs útskrift vestfirskra há-
skólanema. Þá kynnti Kjartan Ólafsson, fyrrver-
andi ritstjóri og þingmaður, vefinn Sagnabrunn
Vestfjarða, sem opnaður var fyrr á árinu.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Mikil hátíð á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar
17. júní á Hrafnseyri í Arnarfirði
Þriggja manna
nefnd sem ætlað
er að taka afstöðu
til kæru Vigdísar
Hauksdóttir um
lögmæti borgar-
stjórnarkosning-
anna í fyrra var
skipuð föstudag-
inn 7. júní síðast-
liðinn. Þetta segir
Vigdís Hauks-
dóttir í samtali við Morgunblaðið.
Þá segist hún hafa staðfestar upp-
lýsingar um að nefndin hafi einnig
til umfjöllunar aðra kæru en þá frá
henni, og að áhugavert verði að
komast að því um hvað sú kæra
snúist. Hún hafi sjálf kært kosning-
arnar í heild.
Nefndin
fjallar um
mál Vigdísar
Segir nefndina
fjalla um aðra kæru
Vigdís
Hauksdóttir
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Nánast hver einasta flugnafæla í Apótek-
aranum á Selfossi hefur selst upp vegna lús-
mýs sem hefur herjað á fólk á Suðurlandi und-
anfarna daga. „Það selst allt upp strax og það
er annar hver maður hérna með fullt af bit-
um,“ segir Hjördís Björk Ólafsdóttir, lyfja-
fræðingur í Apótekaranum. Segir hún starfs-
menn apóteksins ekki hafa verið viðbúna þeirri
sprengingu sem hafi orðið undanfarna daga.
„Við höfum ekki séð annað eins,“ segir Hjör-
dís.
Fá lyf úr öðrum apótekum
„Við kaupum hundrað fælur stanslaust en
þetta hverfur bara um leið,“ segir hún og bætir
við að starfsmenn hafi þurft að flytja töluvert
af lyfjum og fælum úr öðrum apótekum yfir í
Apótekarann á Selfossi. „Þetta er algjör
sprenging hérna. Við erum svo nálægt sum-
arbústaðarlöndunum inni í Grímsnesi þar sem
er mikið um mýið,“ segir Hjördís.
Hún segir að þekktar flugnafælur eins og
lavender- og tea tree olía séu löngu uppseldar í
apótekinu, ásamt sterakreminu Mildison og
Xylocain deyfikremi sem gott þykir að bera á
flugnabitin.
Moskítófæla virki gegn lúsmýinu
Hjördís segir að það sem virðist vera öfl-
ugast gegn lúsmýinu sé moskító- og flugnafæl-
an Moustidose Deet, sem hefur verið sér-
staklega vinsælt hjá ferðafólki á leið til Afríku.
Hún segist auk þess mæla með því að fólk á
svæðum þar sem mikið er um lúsmý setji la-
vender- eða tea tree olíu í glugga og rúmföt og
bætir við að mikilvægt sé að loka gluggum fyr-
ir klukkan sjö á kvöldin þegar lúsmýið fari á
stjá. Ef fólk er bitið mælir Hjördís með því að
bera Mildison sterakrem á bitin og taka inn of-
næmistöflu.
Hildur Björg Ingólfsdóttir, læknir á
læknavaktinni í Reykjavík segist finna fyrir
því að tímabil lúsmýsins hafi byrjað fyrr í ár þó
hún hafi, enn sem komið er, ekki tekið eftir
fjölgun fólks sem leiti læknis vegna bita. Hún
segir að flestir sem leiti læknis virðist vera að
koma af Suðurlandi og bætir við að flestir geri
það í leit að meðhöndlun við einkennum.
Mælir með að fólk taki ofnæmistöflu
„Það er svo mismunandi hvað viðbrögðin
verða mikil. Sumir eru að fá stórar bólguhell-
ur, verki, jafnvel vægan hita og síðar rosaleg-
an kláða og því líður mjög illa,“ segir Hildur og
bætir við að sýkingarhætta fylgi bitunum og
biðlar til fólks að fylgjast með merkjum um
sýkingu og leita til læknis séu þau að finna.
Hún mælir með því að þeir sem viti að
þeir séu viðkvæmir fyrir bitum taki fyr-
irbyggjandi ofnæmislyf. „Auðveldara er að
fyrirbyggja ofnæmisviðbrögð heldur en að slá
þau niður. Þeir sem fá slæm bit eiga að taka of-
næmistöflu daginn áður en þeir fara í bústað
og halda áfram að taka töflurnar á meðan þeir
eru þar,“ segir Hildur.
Eftirspurn eftir fælum aldrei meiri
Lúsmý herjar á fólk á Suðurlandi „Annar hver maður hérna með fullt af bitum“
Morgunblaðið/Eggert
Óvinsæl Bit eftir lúsmý getur valdið fólki
miklum óþægindum og kláða.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands verður norðlæg átt í
dag á bilinu 8-13 m/s. Þá verður
rigning eða súld með köflum á
Norðurlandi en dálitlar skúrir
syðra, einkum suðaustanlands.
Áfram verður þurrt vestantil.
Hitinn verður svo á bilinu 4 til 14
stig og svalast fyrir norðan.
Rigning í kortunum
Meirihluti bæjarstjórnar Hvera-
gerðisbæjar neitaði á dögunum að
veita eigendum ísbúðar í bænum
leyfi til þess að nota nafnið Eden.
Bæjarstjórn barst einnig erindi
frá Gísla Steinari Gíslasyni sem
mæltist til þess að nafnið færi ekki
til annars aðila meðan áformað
væri að á lóð tívolísins í Hveragerði
risi verslunar- og þjónustukjarni,
sem haldið gæti nafninu Eden á
lofti.
Eden verði haldið í Hveragerði
Í tillögu meirihlutans segir að frá
árinu 2010 hafi Hveragerðisbær átt
vörumerkið Eden og að það sé
skráð hjá Einkaleyfastofu. „Var það
ávallt ætlunin að þessu vörumerki
væri haldið í Hveragerði og það
notað ef og þegar starfsemi er líkt-
ist sem mest þeirri starfsemi sem
áður var í Eden yrði komið á lagg-
irnar,“ segir meirihlutinn. Þarft og
jákvætt sé að nú hafi á ný verið
opnuð ísbúð í Hveragerði, en sá
rekstur sé ekki í þeim anda sem
fólk almennt tengi við Eden.
Fulltrúar Okkar Hveragerðis
töldu að Hveragerðisbær ætti ekki
að hlutast til um hvað einkafyrir-
tæki í sveitarfélaginu mættu heita.
Það væri ekki hlutverk bæjarins að
eiga vörumerki og úthluta því „til
aðila sem meirihluti bæjarstjórnar
telur þóknanlegt til að bera heitið“.
Fulltrúarnir lögðu til að bærinn
seldi vörumerkið Eden og þeir sem
hefðu áhuga á að kaupa það byðu í
það. jbe@mbl.is
Hveragerðisbær með einkaleyfi
Höfnuðu beiðni ísbúðar
um notkun nafnsins Eden
Þingfundur hefst á Alþingi klukkan
13.30 í dag þar sem meðal mála eru
frumvarp forsætisráðherra um
kynrænt sjálfræði og frumvarp
fjármálaráðherra um sameiningu
Seðlabankans og Fjármálaeftirlits-
ins. Enn hafði ekki verið samið um
þinglok þegar Morgunblaðið hafði
samband við Bergþór Ólason, þing-
mann Miðflokksins, seint í gær-
kvöldi, en Sjálfstæðisflokkur og
Miðflokkur ræddu málið fyrir og
um helgina.
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Þingfundur hefst 13.30. Ekki ligg-
ur fyrir hvenær þingmenn fara í sumarfrí.
Enn ekki búið að
semja um þinglok