Morgunblaðið - 18.06.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 18.06.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019 MANDUCA BURÐARPOKINN Manduca burðarpokinn er hannaður með það markmið að leiðarljósi að barn geti viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma. Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 75 ára afmæli lýðveldisins Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Þingfundur ungmenna var haldinn í Alþingishúsinu í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins í gær. Mark- miðið með fundinum var að gefa ungu fólki á aldrinum 13-16 ára rödd og tækifæri til að koma eigin málefnum á framfæri við ráða- menn þjóðarinnar ásamt því að gefa þeim færi á að kynna sér störf Alþingis. Þrír málaflokkar voru teknir til umfjöllunar á fundinum; umhverf- is- og loftslagsmál, jafnréttismál og heilbrigðismál. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í lok þing- fundar við ályktunum ungmenna- þingsins og sagði að þær yrðu tekn- ar til umfjöllunar á Alþingi í haust. Þór Ástþórsson var einn þeirra ungmenna sem töluðu á þingfund- inum. Hann talaði um umhverfis- og loftslagsmál og lagði áherslu á mikilvægi þess að endurheimta vot- lendi og minnka þannig framræst land, stærstu uppsprettu gróð- urhúsalofttegunda á landinu. „Að fylla upp í skurði og endurheimta þar með votlendi er einstakt tæki- færi til þess að bæta stöðu okkar í loftslagsmálum,“ sagði Þór meðal annars á fundinum. Ungmenni ályktuðu á Alþingi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framtíðin Þór Ástþórsson talar á ungmennaþingi um leiðir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og bæta stöðu landsins í loftslagsmálum. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Fjölbreytt dagskrá var víða um land á þjóðhátíðardegi Íslendinga í gær. Mikill fögnuður var vegna 75 ára af- mælis lýðveldisins og margt um manninn, en hátíðargestum bauðst af því tilefni að smakka 75 metra langa lýðveldisköku í miðbæ Reykjavíkur. Hátíðardagskráin í Reykjavík hófst formlega í sól og blíðu á Aust- urvelli þegar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, lagði blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar. Í kjölfarið flutti Katrín Jakobsdóttir, forsætis- ráðherra, hátíðarávarp sitt þar sem hún minntist meðal annars á þær framfarir sem hefðu orðið á öllum sviðum landsins á síðustu 75 árum. Opið hús var hjá nokkrum stofn- unum í miðbæ Reykjavíkur í tilefni dagsins en gestum og gangandi bauðst að heimsækja Stjórnarráð Ís- lands, Alþingi, Hæstarétt, Hér- aðsdóm Reykjavíkur, Seðlabankann, Hafrannsóknastofnun og Þjóðminja- safn Íslands. Sérstakt ungmenna- þing var haldið í Alþingishúsinu og fengu ungmenni þar tækifæri til að koma málefnum sem á þeim brunnu á framfæri við ráðamenn þjóð- arinnar. Ekki voru hátíðarhöld einskorðuð við höfuðborgina því skemmtidagská var víða um land. Líf og fjör var á Akureyri þar sem hátíðarhöldin hófust með skrúð- göngu úr Lystigarðinum niður í miðbæ þar sem boðið var upp á fjöl- skylduskemmtun. Dagskránni lauk með marseringu nýstúdenta Menntaskólans á Akureyri. Í Kópavogi var skemmtidagskrá á Rútstúni þar sem met var sett í þátt- töku í hátíðarhöldum. Meðal þeirra sem skemmtu gestum voru Ronja ræningjadóttir, Ingó Veðurguð og JóiP og Króli. Páll Óskar lokaði kvöldinu með tónleikum á túninu. Fjöldi Metþátttaka var í hátíðarhöldum á Rútstúni í Kópavogi þar sem ýmsar fígúrur og tónlistarfólk skemmtu áhorfendum. Skrýmsli Gríðarstór, svartur og gylltur, ormur sem gerður var úr blöðrum sást í mannmergðinni í Hljómskálagarðinum Afmæli Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson leggur blóm- sveig að styttu Jóns Sigurðssonar í tilefni dagsins. 75 ára afmæli lýðveldisins  Fjölbreytt dagskrá víða um landið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjör Börn nutu þjóðhátíðardagsins í sumarblíðunni og skemmtu sér í hoppukastala í Hljómskálagarðinum. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Gleði Skrúðganga var frá Lystigarðinum á Akureyri niður í miðbæ þar sem boðið var upp á skemmtidagskrá og tóku margir þátt í hátíðarhöldunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Efnileg 13-16 ára ungmenni héldu þingfund í Alþing- ishúsinu í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Girnileg 75 metra löng kaka stóð hátíðargestum til boða í miðbænum í tilefni af 75 ára afmælis lýðveldisins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.