Morgunblaðið - 18.06.2019, Side 8

Morgunblaðið - 18.06.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019 Á 75 ára afmæli lýðveldisinsminnist Páll Vilhjálmsson á fornan vísdóm og lifandi runninn frá okkar bestu mönnum. Snorra Sturluson sem lagði orð í munn Ljós- vetningagoðans þegar þegar kristni var lögtekin um að Íslendingar skyldu allir hafa „ein lög ok einn sið. Þat mun verða satt, er vér slítum í sundr lögin, at vér mun- um slíta ok friðinn.“    Svo segir Páll:„Seinni meginforsendan fyr- ir fullvalda lýðveldi er skráð í merkilegustu stjórnmálaritgerð á nýöld. Jón Sigurðsson skrifaði laust fyrir miðja 19. öld þegar Ísland laut dönskum yfirráðum: „Á þessu yrði sami galli og nú er, og hefir lengi verið, að málefni Íslands er ekki stjórnað svo mjög eftir því sem Ís- landi er hagkvæmast, einsog eftir því, hvernig öllu hagar til i Dan- mörku. Danmörk teymir Ísland eft- ir sér í bandi, og skammtar því rétt- indi, frelsi og menntun eftir því, sem henni þykir hagkvæmast og bezt við eiga.“ Ef við setjum ESB inn í texta Jóns í stað Danmörku má ljóst vera hve sígild ráðleggingin er. Forræði eigin mála er forsenda fyrir hag- sæld. Jón sér einstaklinginn og dag- lega reynslu hans í samhengi við landsmálin. „Flestir munu skilja af sjálfs síns reynslu, hversu nauðsynlegt er bæði að hver ábyrgist sjálfs síns verk, og svo hitt, að maður viti að hverjum aðgangurinn er. Þetta er ekki sízt nauðsynlegt í stjórnarmál- efnum.“    Samantekin eru rök Jóns Sig-urðssonar eftirfarandi. Fram- farir verða ekki á Íslandi nema Ís- lendingar hafi forræði eigin mála. Einstaklingar verða að vita hver hin ábyrgu stjórnvöld eru og hafa að þeim aðgang.“ Jón Sigurðsson Í fullu gildi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is Úrval af íslenskri hönnun Unicorn hálsmen frá 5.400,- SEB köttur - gylltur frá 18.600,- Alda hálsmen frá 9.600,- Birki armbands spöng frá 22.400,- Karlmaður á þrítugsaldri var flutt- ur á slysadeild Landspítalans eftir að hafa fallið af mótorhjóli við Mánatorg í Reykjanesbæ. Að sögn brunavarna Suðurnesja barst til- kynning um slysið klukkan 10.45 í gærmorgun. Maðurinn var á leið frá Sandgerði þegar hann missti stjórn á hjóli sínu. Að sögn varð- stjóra hjá brunavörnum Suðurnesja slapp hann ótrúlega vel. Talið er að hann hafi fótbrotnað, auk þess sem hann var með skurð á höfði. Féll af mótorhjóli Forseti Íslands sæmdi í gær sextán Íslendinga heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu. Þeir eru Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir ljósmóðir og hjúkrunarstjóri, Kirkjubæj- arklaustri, riddarakross fyrir fram- lag til heilbrigðis- og björg- unarstarfa í heimabyggð. Bára Grímsdóttir tónskáld og formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, Reykjavík, riddarakross fyrir varð- veislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi. Bogi Ágústsson frétta- maður og formaður Norræna félags- ins, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi fjölmiðlunar og norrænnar samvinnu. Guðrún Ög- mundsdóttir félagsráðgjafi og fyrr- verandi þingkona, Reykjavík, ridd- arakross fyrir framlag í þágu mannúðar og jafnréttisbaráttu hin- segin fólks. Halldóra Geirharðs- dóttir leikkona, Reykjavík, ridd- arakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar. Helgi Árnason skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi skóla og skáklistar ung- menna. Hildur Kristjánsdóttir ljós- móðir og dósent við Háskóla Ís- lands, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu ljósmæðra og skjólstæð- inga þeirra. Hjálmar Waag Árnason fyrrverandi skólameistari, þingmað- ur og framkvæmdastjóri Keilis, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir forystu á vettvangi skólastarfs og menntunar. Jakob Frímann Magn- ússon tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskar tónlistar. Dr. Janus Guð- laugsson íþrótta- og heilsufræð- ingur, Álftanesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar heilbrigðis og íþrótta eldri borgara. Jóhanna Erla Pálmadóttir verkefnastjóri og fyrr- verandi framkvæmdastjóri Text- ílseturs Íslands, Blönduósi, ridd- arakross fyrir störf í þágu safna og menningar í heimabyggð. Jón Ólafs- son fyrrverandi prófessor, Kópa- vogi, riddarakross fyrir rannsóknir, fræðistörf og kennslu á sviði haf- fræði. Skúli Eggert Þórðarson rík- isendurskoðandi, Reykjavík, ridd- arakross fyrir nýjungar í stjórnun og mannauðsmálum hjá hinu op- inbera. Tatjana Latinovic deild- arstjóri, formaður Kvenréttinda- félags Íslands og formaður Innflytjendaráðs, Reykjavík, ridd- arakross fyrir framlag til atvinnu- lífs, jafnréttis og málefna innflytj- enda. Þórður Guðlaugsson vélstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir lífs- starf á vettvangi sjávarútvegs og björgunarafrek í mannskaðaveðri. Þórunn Jarla Valdimarsdóttir sagn- fræðingur og rithöfundur, Reykja- vík, riddarakross fyrir framlag til sagnfræða og íslenskra bókmennta. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Athöfn Forsetahjónin og þeir einstaklingar sem hlutu fálkaorðuna á Bessastöðum í gær. Sextán voru sæmd fálkaorðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.