Morgunblaðið - 18.06.2019, Side 11

Morgunblaðið - 18.06.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Verð 4.900.- Str. 40/42-56/58 Fleiri litir Bolir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdirnar sem nú er unnið að í Landeyjahöfn snúast annars vegar um það að búa til aðstöðu á enda hafnagarðanna til að hægt sé að flytja þangað dælubúnað til að dýpka hafnarmynnið og hins vegar að minnka ókyrrð við ferjubryggj- una. Kostnaður við verklegar fram- kvæmdir í sumar fer í tæpan millj- arð fyrir utan kostnað við árstíða- bundna dýpkun og kaup á dælu- búnaði. Ókyrrð er við ferjubryggjuna í Landeyjahöfn. Sett hefur verið upp tunna með grjóti framan við innri hafnargarðinn til þess að skýla höfninni fyrir öldunni. Eftir er að raða grjóti að henni. Jafnframt er verið að stækka innri höfnina til að draga úr sogshreyfingum sem nú rugga skipinu til og frá við bryggj- una. Lagður vegur á garðinum Nú vinnur verktakinn, Ístak, að því að leggja veg út eystri hafn- argarðinn. Hann er innan við nú- verandi garð. Það er í sjálfu sér mikil framkvæmd því flytja þarf efni í veginn og raða síðan grjót- vörn utan á. Aðaltilgangurinn með veginum er, að sögn Jóhanns Þórs Sigurðssonar, tæknifræðings hjá Vegagerðinni, að skapa aðgengi fyrir krana sem flytur dælubún- aðinn út á hafnarhausinn og til baka. Þar verður rekið niður stálþil í lagi tunnu og fyllt af stóru grjóti og síðan verður steypt þekja ofaná. Jóhann segir að tilgangurinn sé einnig að hafa góðan aðgang til að reka ljós og annan búnað á hafn- arhausnum og laga til grjót ef á þarf að halda. Þá er vegurinn hugsaður sem björgunarvegur ef slys verða. Samskonar vegur var lagður út eystri hafnargarðinn fyr- ir nokkrum árum og þar verður samskonar aðstöðu komið fyrir á hafnarhausnum. Mikið grjót þarf í þessar fram- kvæmdir og það er sótt í námur í Seljalandsheiði. Verður að ljúka í haust Jóhann segir að eftir breytingar á hafnarhausunum virðist hafn- armynnið þrengra. Það muni þó aðeins örfáum metrum. Hausarnir halla nú inn og því er ekki hægt að sigla við þá. Tunnurnur verða hins vegar beinar og hægt að sigla alveg við þær. Samið var við Ístak um fram- kvæmdirnar í sumar. Jóhann Þór segir að þær gangi þokkalega vel og séu nokkurn veginn á áætlun. Samkvæmt samningum á verkinu að vera lokið um miðjan sept- ember. Jóhann segir mikilvægt að það standist því í lok september megi búast við því að veður fari að versna og eftir það verði ekki hægt að vinna. Takist það ekki verði að fresta framkvæmdum til næsta sumars. Dæling frestast Vegagerðin hefur keypt búnað til að dæla upp sandi úr hafn- armynninu og er hann að mestu leyti kominn til Vegagerðarinnar. Ætlunin er að nota hann að vetr- inum þegar ekki er hægt að nota dæluskip til dýpkunar. Hug- myndin er að taka krana á leigu til að aka með búnaðinn út á hafn- arhaus og nota til að stýra dæl- unum, tilheyrandi slöngum og öðr- um búnaði. Jóhann segir að þótt búnaður- inn sé kominn verði ekki hægt að nota hann í vetur. Ekki sé hægt að steypa þekjuna á tunnurnar sem mynda hafnarhausana fyrr en grjótið í þeim hefur skorðast í öld- unni í einn vetur. Hann segir þó að reynt verði að prófa búnaðinn innan hafnar í haust. Talið er að leigja þurfi 300 tonna krana í þetta verk. Það er með allra stærstu krönum sem hér eru starfræktir. Framkvæmt fyrir tæpan milljarð  Innri höfn Landeyjahafnar lagfærð  Sett upp aðstaða til að dýpka hafnarmynnið frá landi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Landeyjahöfn Tunnan sem sett er framan við innri garðinn er 11 metrar að þvermáli. Tunnurnar sem settar verða við báða ytri garðana eru tvöfalt stærri. Framkvæmdir Ístak notar stóra gröfu við framkvæmdirnar. Vegagerðin þarf svo að leigja 300 tonna krana til að nota við dælubúnaðinn. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Rannsóknir hafa sýnt að fordóma- full ummæli og óábyrg umfjöllun um geðræn vandamál geti valdið því að fólk sem glímir við geðræn- an vanda leiti sér síður hjálpar, eigi erfiðara uppdráttar og fái síð- ur vinnu við hæfi. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu und- irbúningshóps á vegum heilbrigð- isráðuneytisins um viðmið í um- fjöllun geðheilbrigðismála í fjölmiðlum sem birtist í samráðs- gátt stjórnvalda í síðustu viku. Er skýrslan liður í fjögurra ára að- gerðaáætlun stjórnvalda í geðheil- brigðismálum. Ekki að hefta fjölmiðla Starfshópurinn var skipaður í desember á síðasta ári til að setja fram viðmið um það hvernig draga megi úr fordómafullri umræðu um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar og formaður starfshópsins, segir að hópurinn hafi síður en svo viljað binda hendur fjölmiðla og því gert ráð fyrir viðmið- um fyrir fjöl- miðla fremur en leiðbeiningum eða reglum. „Okkar fólk hef- ur orðið vart við það að fjölmiðla- fólk er oft óör- uggt um hvernig eigi að bera sig í þessum málum.“ Anna leggur áherslu á að að- almarkmið viðmiðanna í skýrslunni sé að stuðla að vandaðri umfjöllun, vekja athygli á geðrænum vanda og vinna gegn fordómum. Anna segir að viðmiðin hafi verið unnin í góðu samstarfi við blaða- mannafélagið og fjölmiðlafólk. Þar að auki hafi heilbrigðisstarfsfólk, notendur geðheilbrigðiskerfisins og aðstandendur þeirra komið að gerð viðmiðanna. Varúð í umfjöllun um sjálfsvíg Viðmiðunum er skipt í tvo kafla, annars vegar viðmið vegna al- mennrar umfjöllunar um geðheil- brigðismál almennt og hins vegar viðmið vegna umfjöllunar um sjálfsvíg. Í fyrri kaflanum er áhersla lögð á að ljá notendum geðheilbrigðisþjónustu rödd í fjöl- miðlum og faglega umfjöllun sem ýti ekki undir staðalímyndir þessa hóps. Í seinni hlutanum er áhersla lögð á að vinna gegn svo- kölluðum hermiáhrifum í umfjöll- un um sjálfsvíg. „Það þarf að sýna mikla varúð varðandi umfjöllun um sjálfsvíg,“ segir Anna. Hún bætir við að meta þurfi vel hvort það sé ástæða til að fjalla um sjálfsvíg og að frekar sé mælt með að fjalla um þau á breiðum grundvelli með tilvísun til samfélagslegra þátta sem skipt geti máli til að fækka sjálfsvígum. Mikilvægt sé að að taka fram upplýsingar um hvert fólk geti leitað ef það er haldið sjálfsvígshugsunum. Anna tekur fram að sérstaka varkárni þurfi að sýna í umfjöllun um sjálfsvíg frægs fólks sem hún segir að rati oft í íslenska fjölmiðla. Hún segir slíka umfjöllun geta haft mikil áhrif á viðkvæman hóp ungs fólks sem oft er áhrifagjarnara en ann- að fólk. „Fjölmiðlafólk oft óöruggt“  Birta viðmið í umfjöllun geðheilbrigðismála í fjölmiðlum  Vinna gegn hermiáhrifum vegna umræðu um sjálfsvíg Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Töluverð möl hefur safnast saman á veginum við Vífilsstaðavatn. Árni Friðleifsson, varðstjóri umferðar- deildar lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is í gær að ábendingu um þetta yrði komið til skila til veghaldara, sem er annað hvort Vegagerðin eða Garða- bær. Svo virðist sem mölin hafi kom- ið úr nýlegum viðgerðum á hjólför- um en Árni segir slíkar viðgerðir geta verið hættulegar hjólreiðafólki og bifhjólamönnum. Mikið sé um hjólreiðar á svæðinu og því nauðsyn- legt að ráðast í úrbætur. Árni segir að lögreglan fái reglulega ábend- ingar um vafasamar viðgerðir sem þessa, sem ávallt sé komið til skila til veghaldara sem bregðist jafnan vel við ábendingum. Mikil möl á vegi við Víf- ilsstaðavatn Morgunblaðið/Árni Sæberg Möl á veginum Umtalsverð hætta getur skapast af mölinni á veginum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.