Morgunblaðið - 18.06.2019, Page 13

Morgunblaðið - 18.06.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019 Sumarútsalan er hafin 30% afsláttur af öllum vörum Opið virka daga kl. 11-18, lokað á laugardögum í sumar Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 LISTHÚSINU AFP Aðgerðasinninn Joshua Wong kallaði í gær eftir því að Carrie Lam, héraðsstjóri Hong Kong, segði af sér vegna umdeilds fram- salsfrumvarps, sem vakið hefur mikla reiði- og mótmælaöldu að undanförnu. Wong var í gær sleppt úr fang- elsi, en hann sat inni í mánuð fyrir þátt sinn í „regnhlífarmótmæl- unum“ 2014. Lofaði Wong því að hann myndi taka virkan þátt í mót- mælunum til þess að koma í veg fyrir samþykkt framsalslaganna. Krefst afsagnar Carrie Lam Mohamed Morsi, fyrrverandi for- seti Egyptalands, lést í gær á sjúkrahúsi í Kaíró. Morsi var að tala máli sínu fyrir dómara þegar hann hneig óvænt nið- ur, að sögn sjón- arvotta. Morsi var fluttur þegar í stað á sjúkrahús, en lífgunartilraunir báru engan árangur. Morsi var kjörinn forseti Egypta- lands árið 2012 eftir að forvera hans, Hosni Mubarak, var steypt af stóli í arabíska vorinu. Morsi var síðan sjálfum steypt af stóli í júlí 2013 af hernum og varpað í fang- elsi, en hann var meðal annars sak- aður um njósnir. EGYPTALAND Morsi lést í miðjum réttarhöldum Mohammed Morsi Xi Jinping Kínaforseti mun heim- sækja Norður-Kóreu síðar í vik- unni, en hann verður fyrsti forseti Kína til þess að sækja landið heim síðan Hu Jintao gerði það árið 2005. Mun hann ræða þar við Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, en þeir hafa hist fjórum sinnum á síðastliðnu ári, en alltaf í Kína. Samskipti Kínverja og Norður- Kóreumanna hafa lagast mjög að undanförnu, en þau höfðu kólnað nokkuð þegar Kínverjar tóku þátt í refsiaðgerðum, sem beint var gegn kjarnorkuvopnum Norður-Kóreu. NORÐUR-KÓREA Fyrsta heimsókn Kínaforseta í 14 ár Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Íran tilkynntu í gær, að þau hygðust fara fram yfir það magn auðgaðs úrans, sem þeim er leyft að eiga samkvæmt kjarnorkusam- komulaginu frá 2015 eftir tíu daga, eða hinn 27. júní næstkomandi. Sagði talsmaður írönsku kjarnorku- stofnunarinnar að hætt yrði við áformin ef aðrar þjóðir „stæðu við skuldbindingar sínar,“ en Banda- ríkjamenn drógu sig úr samkomu- laginu fyrir rúmu ári vegna meintra vanefnda Írana á því. Fulltrúar Breta, Frakka og Þjóð- verja, Evrópuríkjanna þriggja sem einnig eiga aðild að samkomulaginu, hvöttu Írana til þess að hætta við þessi áform sín. Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði að mikil- vægt væri að Íranar sýndu þolin- mæði og ábyrgð vegna þeirrar spennu sem nú ríkir við Persaflóa. Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, krafðist þess að Íranar drægju úrslitakosti sína til baka og stæði við samkomulagið. Þá sögðu bresk stjórnvöld að evrópsku ríkin þrjú hefðu staðfastlega gert Írönum ljóst að þeir yrðu að standa við sinn þátt, en Bretar, Frakkar og Þjóð- verjar reyndu á síðasta ári að finna leiðir framhjá refsiaðgerðum Banda- ríkjastjórnar, en án árangurs. Krefst að Íran verði refsað Benjamín Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísraels, kallaði eftir því að alþjóðasamfélagið myndi aftur hefja refsiaðgerðir sínar gegn Írönum ef þeir gerðust brotlegir við skilmála kjarnorkusamkomulagsins. Sagði Netanyahu að Ísraelar myndu aldrei leyfa Írönum að komast yfir kjarn- orkuvopn, og að ljóst væri að Íranar hefðu ekki sagt satt um áform sín. Morgan Ortagus, talskona banda- ríska utanríkisráðuneytisins sagði að tilkynningin kæmi ekki á óvart, en að heimurinn mætti ekki láta undan „kjarnorkufjárkúgun“ Írana. Sagði hún að hverri tilraun Írans til að verða sér úti um kjarnorkuvopn yrði mætt með „hámarksþrýstingi“. Antonio Guterres, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær Írana til þess að standa áfram við skuldbindingar sínar í kjarnorku- málum. Þá áréttaði Guterres nauð- syn þess að önnur ríki stæðu einnig við samkomulagið og forðuðust skref sem gætu ýft ástandið upp. Hyggjast auðga meira úran  Bandaríkjamenn segjast ekki munu láta undan „kjarnorkufjárkúgun“ Írana  Bretar, Frakkar og Þjóðverjar segja nauðsyn að Íranar fylgi samkomulaginu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.