Morgunblaðið - 18.06.2019, Page 14

Morgunblaðið - 18.06.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Könnun Gall-ups semgerð var meðal stjórnenda fyrirtækja í maí og fram í byrjun júní gefur tilefni til hóflegrar bjart- sýni um þróun efnahagsmála. Samkvæmt könnuninni, sem hafa verður eðlilegan fyrirvara á eins og á öðrum slíkum, eru nú aftur fleiri jákvæðir en nei- kvæðir vegna aðstæðna í efna- hagslífinu eftir neikvæðari svörun fyrr á árinu þar sem fleiri töldu aðstæður slæmar en góðar. Þetta er þó ekki einhlítt um alla geira atvinnulífsins, því að til að mynda í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og bygging- ariðnaði telja fleiri að aðstæður séu slæmar en góðar og er það augljóst áhyggjuefni. Mæling á viðhorfum til þess hvernig stjórnendur sjá að- stæður fyrir sér eftir hálft ár hefur þróast með jákvæðum hætti í síðustu tveimur mæl- ingum, eftir nánast stöðugt versnandi viðhorf til framtíð- arhorfa frá því um mitt ár 2017, og jafnvel fyrr. Þetta felur þó ekki í sér að framtíðarhorf- urnar til sex mánaða séu nú álitnar bjartar, en þær eru minna dökkar en áður og mun- ar miklu. Þróunin er þess vegna í rétta átt þó að efnahagslífið sé enn í öldudal og verði sennilega út þetta ár og jafnvel eitthvað fram á það næsta. Þau högg sem ferðaþjónustan hefur feng- ið á sig spila þarna talsvert hlutverk og hið sama á við um sjávarútveginn. Og ekki verður litið framhjá því að enn telja stjórnendur fyrirtækja hér á landi að starfsfólki muni fækka á næstu sex mánuðum, þó að horfurnar séu sem betur fer ekki jafn slæmar í þeim efnum og þær voru um síðustu áramót. Krónan hefur veikst á síðustu mánuðum og síð- asta árið og mun það draga úr því höggi sem útflutn- ingsgreinar hafa orðið fyrir. Þá er jákvætt að þrátt fyrir mikil högg á ferðaþjónustuna eru þar enn margir jákvæðir um horfur til lengri tíma og um Ísland sem ferðamannaland. Og ef rétt er á málum haldið má nota þá lægð sem nú gengur yfir til að búa landið betur undir þann mikla ferðamannastraum sem útlit er fyrir að haldi áfram. Ef til vill mun sú þróun sem orðið hefur einnig hjálpa til við að ná því markmiði að fá hingað sem mest af ferðamönnum sem hafa fé á milli handanna og sem minnst af þeim sem ganga illa um viðkvæma náttúruna. Þá bárust fyrir helgi jákvæð- ar fréttir af þorskstofninum og ráðgjöf Hafrannsóknastofn- unar, sem skiptir sjávarútveg- inn miklu og gefur von um bjartari tíma í þeirri undirstöð- ugrein. Jákvætt er að sjá að sú svart- sýni sem ríkt hefur í efnahags- lífinu, eftir margra ára upp- gang, sé á undanhaldi. Niðursveiflan sem gengur yfir þessi misserin þurfti ekki að verða jafn djúp og raun ber vitni og var því miður að hluta til heimatilbúin. Mikilvægt er að ekki verði enn bætt í að því leyti og í því sambandi skiptir ekki síst máli að þeir kjara- samningar sem enn eru lausir verði kláraðir hið fyrsta. Þá þarf hið opinbera að stíga fram og létta álögum af fólki og fyr- irtækjum til að flýta efnahags- batanum. Íslenskt efnahagslíf þarf ekki að vera lengi í öldudalnum og ef allir leggjast saman á ár- arnar er hægt að komast upp úr honum hratt og vel. Niðursveiflunni er ekki lokið en það sér fyrir endann á henni} Upp úr öldudalnum Vegna þess hvevafasamur þriðji orkupakkinn er og hve mikil andstaða er við hann, ekki síst inn- an stjórnarflokk- anna þriggja, var rík áhersla lögð á að keyra hann hratt og umræðulítið í gegnum þingið. Það tókst ekki og nú er spurn- ing hversu leiðitamir stjórn- arþingmenn verða hér eftir, ekki síst eftir að þeir hafa séð og fundið andstöðuna í flokk- unum og þjóðfélaginu öllu. Ef Miðflokkurinn er undan- skilinn hefur stjórnarand- staðan á þingi spilað með rík- isstjórnarflokkunum í málinu, sem kemur svo sem ekki á óvart enda er þar að mestu um harða ESB-flokka að ræða. Þó gerðist það fyrir helgi að Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, lýsti því yfir að hann styddi ekki þriðja orkupakkann. Hann sagðist ætla að láta stjórn- arskrána njóta vafans, og vísaði þar til efasemda sem fram hafa komið hjá æ fleiri lögfræð- ingum, meðal annars þeim Stef- áni Má Stefánssyni, prófessor, og Friðriki Árna Friðrikssyni Hirst, landsréttarlögmanni, sem rituðu álitsgerð fyrir utan- ríkisráðuneytið. Þetta er virðingarverð af- staða hjá Jóni Þór og vonandi að fleiri þingmenn beri sömu virðingu fyrir stjórnarskránni. Þriðji orkupakkinn kallar ekki á þann ákafa sem stuðn- ingsmenn hafa sýnt} Stjórnarskráin njóti vafans L esandi góður, fyrirsögn þessa pistils er lýsing Silju Daggar Gunnars- dóttur þingmanns Framsókn- arflokksins á fyrirvörum rík- isstjórnar Katrínar Jakobsdóttur við þriðja orkupakkann s.k. Sumir gætu haft gaman af samlíkingunni væri hún ekki svona heimskuleg. Samþykkt þriðja orkupakkans er allavega þeim hluta þingheims sem haldið hefur uppi andófi, svo og meirihluta þjóðarinnar, það mikið áhyggjuefni að þeim finnst hún ekki haf- andi í flimtingum. Það er samt sannleikskorn í lýsingu þingmannsins vegna þess að í henni kristallast að ríkisstjórnarflokkarnir og samfylk- ingarflokkarnir virðast ekki gera sér nokkra grein fyrir haldleysi s.k. fyrirvara þrátt fyrir varnaðarorð sístækkandi hóps sérfræðinga. Hinn möguleikinn er að ríkisstjórnarflokkarnir og samfylkingarflokkarnir kjósi að skella skollaeyrum við vegna hagsmuna sem eru í þeirra augum stærri en brot á stjórnarskrá eða framsal valds af áður óþekktri stærð. Nú ber þess að geta að hefði andóf Miðflokksfólks (og Flokks fólksins fyrstu klukkutímana) ekki komið til væri þegar búið að samþykkja þingsályktunartillöguna. Sú samþykkt hefði þá farið fram áður en innihald fjórða orkupakkans var kynnt opinberlega, áður en fréttir bárust af fjármögnun lagningar sæstrengs í Bretlandi, áður en hver lögspeking- urinn af öðrum steig fram í viðbót við þá sem áður höfðu varað við. Þá liggur næst við að spyrja hvaða hagsmunir eða hverra séu það stórir að þeir trompi ákvæði stjórnarskrár eða fullt vald Íslendinga á orkuauðlindum sínum? Svar ósk- ast! Það liggur ekki heldur fyrir hvers vegna svo mjög liggur á að afgreiða þriðja orkupakk- ann vegna þess „að hann skiptir engu máli“ eins og fylgismenn hans hafa haldið fram í ræðu og riti. Áður hefur komið fram að „sameiginlegur skilningur“ sé milli orkumálastjóra ESB og ut- anríkisráðherra Íslands um s.k. fyrirvara. Hvort sá „skilningur“ varð til yfir kaffibolla í símtali eða í öðru almennu spjalli liggur heldur ekki fyrir enda skiptir það engu máli. „Sameig- inlegi skilningurinn“ heldur ekki vatni að mati hæfustu lögspekinga. Nú síðast stigu fram Arn- ar Þór Jónsson héraðsdómari og fimm nafn- kunnir hæstaréttarlögmenn og vara við að sam- þykkt orkupakkans „skapi lagalega óvissu og áhættu.“ Athyglisvert er að framangreindir lög- spekingar deila síður en svo pólitískum skoð- unum sem dregur enn á ný fram þá staðreynd að afstaða til þriðja orkupakkans er hafin yfir pólitík. Áhyggjur, varnaðarorð og framlögð rök þeirra sem haft hafa sig í frammi markast af þekkingu reynslu og mati á framtíðaráhrifum samþykktar orkupakkans á íslenska þjóð. Það væri fylgjendum orkupakkans þörf lesning að hlusta á varnaðarorð og ekki síður að gaumgæfa þær miklu upp- lýsingar sem samtökin „Orkan okkar“ hafa tekið saman og skoða síðan hug sinn um hví ekki má fresta afgreiðslu þriðja orkupakkans og nýta tímann sem þá gefst til að gaumgæfa nauðsynlega stefnubreytingu. Þorsteinn Sæmundsson Pistill „Með belti og axlabönd...“ Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Rannsókn sem Vífill Karls-son hagfræðingur hefurunnið fyrir Samtök sveit-arfélaga á Vesturlandi (SSV), leiðir í ljós að fyrirtæki sem höfðu átt velgengni að fagna um lengri tíma virtust í vetur vera ólík- legri til að ráða fólk en þau sem gekk verr. Ung fyrirtæki voru líklegri til fjárfestinga en eldri. Þá var afkoma fyrirtækja til skemmri tíma mark- tækt verri eftir því sem fjær dró frá höfuðborgarsvæðinu. Við vinnslu rannsóknarskýrslunnar var í nóv- ember í fyrra lögð spurningakönnun fyrir fyrirtæki allra landshluta nema höfuðborgarsvæðisins, og stóð könn- unin yfir til loka janúar á þessu ári. Ríflega 2000 fyrirtæki tóku þátt en þrátt fyrir að höfuðborgarsvæðið hafi ekki verið með í könnuninni tóku nokkuð mörg fyrirtæki af höf- uðborgarsvæðinu þátt vegna þess að þau starfa á landsbyggðinni. Veikleikar fyrirtækja á höf- uðborgarsvæðinu voru m.a. að þau voru einna líklegust til að ráðast í uppsagnir á fólki og ólíklegust til að ráðast í fjárfestingar. Fyrirtæki á Suðurnesjum voru aftur á móti lang- líklegust til að ráða fólk, og hvergi var meiri fjárfestingarhugur. Þó ber að hafa í huga að könnunin var lögð fyrir áður en Wow air hvarf af flug- markaði. Fækkun líklegust í sjávarútvegi Í greiningu skýrslunnar um starfsmannamál kemur fram að 22% þátttakenda hafi sagst ætla að fjölga starfsmönnum lítið eitt eða mikið, en 13% hafi sagst ætla að fækka mikið eða lítið eitt. Eins og áður segir voru fyrirtæki á Suðurnesjum, og einnig á Norðurlandi vestra, langlíklegust til að ráða fólk á næstunni. Fyrir- tæki á Austurlandi og af höfuðborg- arsvæðinu voru hins vegar ólíkleg- ust til að ráðast í ráðningar. Þegar afstaða fyrirtækja til starfsmannamála var greind eftir starfsemi kom í ljós að fyrirtæki í sjávarútvegi væru líklegust til að fækka fólki, en ferðaþjónustan líkleg til að bæta við sig. 24% þátttakenda töldu sig vanta starfsfólk með ákveðna menntun, og var sú þörf heldur meiri í þjónustu- en framleiðslugreinum. Í greiningu skýrslunnar eftir landshlutum kemur m.a. fram að styrkleikar Vestfjarða hafi helst fal- ist í hug þeirra til að fjölga menntuð- um á vinnumarkaði. Strandir og Reykhólar komu oft illa út í sam- anburði landsvæða hvað varðaði fjölgun eða fækkun starfsfólks, fjár- festingar, afkomu til skemmri tíma og tekjuþróun fyrirtækja. Listir dafna langt frá Reykjavík Hugur fyrirtækja til mannaráðn- inga var einnig á meðal styrkleika Norðurlands vestra en veikleikarnir voru þó fleiri en styrkleikarnir í þessum landshluta. Þar var þörfin minnst fyrir menntað vinnuafl og sérstaka færni. Vinnuaflsvægi var einnig lægst í landshlutanum sem og viðskipti við ferðaþjónustufyrirtæki. Þá voru tekjur af skapandi greinum á Norðurlandi vestra næstlægstar meðal landshluta. Fyrirtæki sem byggja afkomu sína á skapandi greinum dafna betur í stærri sveitarfélögum en þeim minni. Athygli vekur að hlutfall menningar og lista af tekjum fyr- irtækja á landsbyggðinni var hæst í landshlutum sem eru mjög fjarlægir höfuðborgarsvæðinu. „[...] Fjarlægð frá Reykjavík hefur ekki marktæk áhrif á [hlutfall skapandi greina af tekjum fyrirtækja] en oft hefur því verið haldið fram að nálægð við borgir geti bæði örvað menningu eða latt hana,“ segir í skýrslunni. Afkoman verri í fjar- lægð frá Reykjavík Morgunblaðið/Eggert Löndun Fyrirtæki í sjávarútvegi voru líklegust til að fækka starfsfólki. Í kafla sem höfundur skýrsl- unnar nefnir „athyglisvert í niðurstöðum og óvænt“ kemur m.a. fram að það hafi komið á óvart hvað jákvæðni var mikil meðal fyrirtækja á landsbyggðinni þrátt fyrir efnahagshorfurnar. Það hafi m.a. sést á því að 22% hafi sagst ætla að ráða nýtt starfsfólk en einungis 13% hafi sagst ætla að fækka því. Þá vakti það einnig athygli höfundar skýrslunnar að fyrirtæki af höfuðborg- arsvæðinu sem starfa á landsbyggðinni ætli sér að „pakka í vörn“, þrátt fyrir að afkoma þeirra sé einna best til lengri og skemmri tíma. Þau hafi m.a. verið einna lík- legust til að ráðast í upp- sagnir. „Ekki er alveg aug- ljóst hvort aðrir þættir en horfur í efnahagsmálum leiki þarna stórt hlutverk og erf- itt að átta sig á því,“ segir í skýrslunni. Athyglisvert og óvænt JÁKVÆÐNI MIKIL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.