Morgunblaðið - 18.06.2019, Page 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
50 ára Álfheiður er
Hornfirðingur og ólst
upp á Höfn og í Garða-
bæ. Hún býr á Selfossi
og er varabæjarfulltrúi
í Árborg og varaþing-
maður fyrir Pírata. Hún
er stjórnmálafræðingur
frá HÍ og tók framhaldsnám í stjórn-
málaheimspeki við Edinborgarháskóla.
Maki: Hlynur Arnórsson, f. 1968, stærð-
fræðingur og aðjunkt við HR.
Börn: Sigyn Christaansdóttir-Ryall, f.
2003, og Eymar Willam Christaansson-
Ryall, f. 2005, og stjúpsonur er Helgi
Hlynsson, f. 1991.
Foreldrar: Eymar Yngvi Ingvarsson, f.
1941, fyrrv. skipstjóri, og Guðrún S.
Gísladóttir, f. 1941, bókasafnsfræðingur.
Þau eru búsett í Hafnarfirði.
Álfheiður
Eymarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver vinnufélagi þinn getur ekki
hætt að angra þig, þótt þú hafir ítrekað
rætt við hann. Þú ert potturinn og pannan í
skipulagningu ættarmóts.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú yfirgefur fortíðina endanlega og
heldur á vit nýs lífs. Slakaðu á, þú getur
ekki gert öllum til geðs og getur bara verið
á einum stað í einu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú færð stuðning við málstað
þinn úr óvæntri átt og má segja að hann
skipti sköpum fyrir þig. Það rignir yfir þig
boðum í brúðkaup.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er merkilegt hvað eitt lítið
bros getur glatt. Þú átt það til að gera úlf-
alda úr mýflugu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þín á tilhneigingunni til þess
að sanka að þér algerlega óþörfum hlut-
um. Einhver stillir þér upp við vegg en það
kann ekki góðri lukku að stýra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sambönd þín við vinnufélaga eða
aðra sem þú átt samskipti við gegnum
vinnuna batna nú og á næstu dögum.
Vertu maður til að viðurkenna það sem þú
hefur gert á hlut annarra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er rétti tíminn til þess að strengja
þess heit að fara betur með peninga.
Reyndu að komast hjá miklu álagi með því
að skipuleggja tíma þinn og takmarka
verkefnaskrána.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur unnið mikið að und-
anförnu og þarft því á einveru og hvíld að
halda. Þú bíður í ofvæni eftir fréttum af
fjölgun í fjölskyldunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skilaboð sem þér berast kunna
að reynast áhrifamikil ef þú ákveður að
fara eftir þeim. Mundu að þiggja aðstoð
með jákvæðum huga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú finnur til samkenndar með
öðrum og vilt leggja þitt af mörkum. Þú ert
sólarmegin í lífinu þetta árið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það sitja allir um þig og vilja
hafa áhrif á ráðagerðir þínar. Það er allt í
lagi að gera ekki neitt, æfðu þig í því.
19. feb. - 20. mars
FiskarMundu að deila velgengni þinni
með þeim sem standa þér næst. Dagurinn
í dag er ekki góður til þess að leggjast í leti.
en þá var leitað til mín frá Ís-
lensku óperunni hvort ég hefði
ekki áhuga á að sækja um starf
óperustjóra. Þótt starfið sé mjög
líkt leikhússtjórastarfinu fannst
mér freistandi að takast á við þá
nýju vídd sem öll tónlistin býður
upp á. Auðvitað er tónlist í svo til
hverri leiksýningu og ég hafði
unnið mikið með tónlist og sett
upp nokkra söngleiki. En ég sló til
og óperustjóraárin urðu átta, gríð-
arlega skemmtilegur tími, við
fluttum inn í Hörpu og nýir mögu-
leikar opnuðust.“
Stefán hefur tekið mikinn þátt í
sem ég hef fengist við, þar fær
sköpunarþörfin útrás og þar skap-
ast náin og gjöful kynni við leik-
arana og aðra þá sem að sýning-
unum koma. Ég er mjög sáttur við
að hafa helgað ævistarfið leiklist-
inni, því hún er samfélaginu bæði
mikilvæg og nauðsynleg.“
Þegar Stefán hætti í Þjóðleik-
húsinu, stofnuðu hann og Hilmir
Snær Guðnason leikhúsið Skámána
og settu upp sýningar sem urðu
geysivinsælar, einleikinn Ég er
mín eigin kona og leikritið Killer
Joe. „Ég hafði ekki ætlað mér að
stjórna fleiri sviðslistastofnunum
S
tefán Baldursson fæddist
18. júní 1944 á Hjalteyri
við Eyjafjörð en fluttist
með foreldrum sínum til
Reykjavíkur þriggja
ára. Hann ólst upp í Kópavogi frá
sex ára aldri og fram yfir tvítugt
og er nú aftur fluttur í Kópavog.
„Ég bar út blöð, var sendill í
Kron, spilaði fótbolta og var árum
saman í skátunum.“
Stefán gekk í Kópavogsskóla
sem var eini barnaskólinn í Kópa-
vogi, fór í Menntaskólann í
Reykjavík og varð stúdent úr
máladeild 1964. Á mennta-
skólaárunum vann hann á sumrin
hjá Lindu-umboðinu og síðar á
skrifstofum ÁTVR. Hann hélt ári
síðar til Svíþjóðar og nam við
Stokkhólmsháskóla: leikhúsfræði
og leikstjórn með sálfræði og hag-
nýta heimspeki sem aukafög.
Hann lauk prófi 1971 og starfaði
um hríð sem fréttamaður hjá
Sænska sjónvarpinu en hann hafði
samhliða háskólanáminu verið
fréttaritari Rúv í Stokkhólmi og
vann á fréttastofu útvarps hér
heima öll sumur.
Að loknu námi starfaði Stefán á
leiklistardeild útvarps í tvö ár og
gerði leikhúsþætti fyrir sjónvarp
en strax 1972 fór hann að leikstýra
í atvinnuleikhúsunum, bæði Leik-
félagi Reykjavíkur og Þjóðleikhús-
inu og hefur starfað sem leikstjóri
síðan eða í tæplega hálfa öld. Stef-
án var fastráðinn leikstjóri og leik-
húsritari við Þjóðleikhúsið 1974-80
en tók þá við starfi leikhússtjóra
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó,
sem hann gegndi í sjö ár. Hann
fór svo að starfa sem leikstjóri er-
lendis, mest á Norðurlöndunum.
Stefán var ráðinn þjóðleikhússtjóri
1991 og gegndi því starfi í fjórtán
ár.
„Leikhússtjórastörfin voru bæði
krefjandi og ánægjuleg og í báðum
leikhúsunum var gert ráð fyrir því
strax við ráðningu að ég myndi
líka leikstýra. Ég leikstýrði því
nokkrum sýningum í Iðnó og einu
verkefni annað hvert ár í Þjóðleik-
húsinu. Leikstjórnin hefur alltaf
gefið mér mest af þeim verkefnum
norrænu samstarfi tengdu ævi-
starfinu. Hann sat lengi í Norrænu
leikhúsnefndinni Teater och dans í
Norden og sat sex ár í stjórn Nor-
ræna menningarsjóðsins.Hann sat
í ótal ráðum og nefndum tengdum
sviðslistum og í dómnefnd um
byggingu, hönnun og rekstur
Hörpu. Stefán hefur hlotið fjöl-
mörg verðlaun og viðurkenningar
fyrir list sína og störf, m.a. Menn-
ingarverðlaun DV, Stefaníustjak-
ann, Riddarakross Íslensku fálka-
orðunnar og Konunglega sænska
riddarkrossinn. Hann er heið-
ursfélagi Leikfélags Reykjavíkur
og hlaut Heiðursverðlaun Grím-
unnar 2016.
Stefán hefur leikstýrt yfir 80
sýningum á leiksviði auk fjöl-
margra útvarps og sjónvarpsverk-
efna. Nokkrar af íslensku sýning-
unum hans hafa verið sýndar á
leiklistarhátíðum erlendis auk þess
sem hann hefur leikstýrt á annan
tug sýninga á erlendri grund.
Spurður um eftirlætissýningarnar
segir hann erfitt að gera upp á
milli en þær sem eru honum einna
hjartfólgnastar eru Stundarfriður,
Sumargestir, Allir synir mínir,
Villiöndin og ekki síst Veislan, all-
ar í Þjóðleikhúsinu; Dagur vonar,
Salka Valka og Draumur á Jóns-
messunótt hjá LR, áðurnefndar
sýningar í eigin leikhúsi að
ógleymdri óperunni Ragnheiði sem
var tilnefnd til tíu Grímuverðlauna
og var valin sýning ársins 2014.
„Eftir að ég lét af föstu starfi
höfum við Þórunn konan mín
reynt að ferðast sem mest síðustu
ár, oft með vinahópi, ekki síst á
framandi slóðir, til Indlands, Mið-
Ameríku og erum nýkomin úr mik-
illi ferð til Brasilíu og inn í Ama-
zonfrumskóginn. Ég hef tekið þátt
í félagstarfi af ýmsu tagi, verið fé-
lagi í Rótarýklúbbnum Borgum í
Kópavogi í rúman áratug, þar
gegndi ég starfi forseta í vetur,
auk þess sem við hjónin erum í
matarklúbbi, gönguklúbbi og
litlum, nánum klúbbi með vinum
frá Stokkhólmsárunum. Einna
ánægjulegast er svo að passa
yngstu barnabörnin.“
Stefán Baldursson, leikstjóri og fyrrverandi leikhússtjóri – 75 ára
Fjölskyldan Stödd í Mont Tremblant í Québec-fylki í Kanada.
Mjög sáttur við ævistarfið
Matarklúbburinn Heimsókn í Landnámsetrið í Borgarnesi.
30 ára Ívar er fæddur
á Laugum í Sælings-
dal og ólst þar upp og
í Borgarnesi. Hann býr
á Akranesi og er deild-
arstjóri í Frístunda-
miðstöðinni Þorpinu.
Hann er milliríkjadóm-
ari í knattspyrnu og dæmir í öllum deild-
um á Íslandi og líka erlendis. Hann er
tómstunda- og félagsmálafræðingur að
mennt frá HÍ.
Maki: Harpa Jónsdóttir, f. 1990, deildar-
stjóri á frístundaheimilinu Brekkuseli.
Börn: Sigurbjörg Heiða Ívarsdóttir, f.
2010, og Kolbeinn Orri Ívarsson, f. 2014.
Foreldrar: Kristján Þormar Gíslason, f.
1955, fyrrv. skólastjóri, og Rannveig
Finnsdóttir, f. 1956, leiðbeinandi í leik-
skóla. Þau eru búsett í Borgarnesi.
Ívar Orri
Kristjánsson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Sólrún Edda
Sigurðardóttir fæddist 19.
mars 2019 kl. 9.11. Hún vó
4.230 g og var 50 cm löng.
Foreldrar hennar eru Steinunn
Helga Ómarsdóttir og
Sigurður Karl Guðnason.
Nýr borgari