Morgunblaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019 Innkoma Bjarka Más El- íssonar í leik Íslands og Tyrk- lands í undankeppni EM í handbolta á sunnudag var glæsileg. Bjarki skoraði ellefu mörk þrátt fyrir að hann spil- aði aðeins seinni hálfleikinn. Guðjón Valur Sigurðsson átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleiknum og var verðskuldað settur á bekkinn í hálfleik. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, hikar ekki við að henda mönnum á bekkinn og jafnvel úr hópnum ef hann er ekki sáttur við þitt framlag. Einhver umræða hefur skapast eftir leikinn um að Guðjón eigi að kalla þetta gott með landsliðinu til að hleypa Bjarka Má Elíssyni og Stefáni Rafni Sigurmannssyni í hópinn í hans stað. Guðjón verður sá fyrsti til að viðurkenna að hann átti slæman dag, en hann á nóg eftir með landsliðinu, það er ég sannfærður um. Hann skor- aði 142 mörk í 33 leikjum á ný- afstaðinni leiktíð í þýsku deild- inni og átti auk þess afar góða leiki í Meistaradeild Evrópu. Bjarki Már skoraði 100 mörk í 34 leikjum í sömu deild. Guðjón Valur var ekki með á HM í Króatíu í janúar vegna hnémeiðsla. Bjarki Már fékk þá gullið tækifæri til að láta ljós sitt skína en hann átti ekki sérstakt mót. Guðjón Valur er að öllum líkindum vinstri hornamaður númer eitt í lands- liðinu þrátt fyrir einn slæman leik. Hann á nóg eftir þrátt fyrir að vera orðinn 39 ára gamall. Hann er á leiðinni í stórliðið PSG fyrir næstu leiktíð og það kæmi mér ekki á óvart ef Guð- jón yrði einn markahæsti leik- maðurinn á EM í janúar. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is HM 2019 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Noregur tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta með naumum 2:1-sigri á Suð- ur-Kóreu í gær. Bæði mörk Norð- manna komu úr vítaspyrnum, en Suð- ur-Kórea var heilt yfir sterkari aðilinn í leiknum. María Þórisdóttir, dóttir Þóris Hergeirssonar sem þjálfar kvennalið Noregs í handbolta, er búin að vera með betri leikmönnum Norðmanna í keppninni til þessa. Hún náði í víta- spyrnu strax á fimmtu mínútu sem Caroline Hansen skoraði úr. Hansen náði svo sjálf í víti á 51. mínútu og þá mætti Isabell Herlovsen á svæðið og tvöfaldaði forskot Noregs. Eftir það sótti Suður-Kórea án afláts og tókst að minnka muninn, en norska liðið hélt út og fagnaði sigri. Noregur mætir annað hvort Brasilíu eða Ástr- alíu í 16-liða úrslitunum næstkomandi laugardag. Frakkar sluppu með skrekkinn á móti Nígeríu. Lokatölur urðu 1:0 og kom sigurmarkið úr vítaspyrnu á 79. mínútu. Varnarmaðurinn Wendie Renard, sem skoraði skrautlegt sjálfsmark gegn Noregi, fékk tvær tilraunir á punktinum. Chiamaka Nnadozie, 18 ára markmaður Níger- íu, fór af marklínunni er Rendard skaut í stöng og fékk hún að launum gult spjald og Renard aðra tilraun. Síðari tilraunin heppnaðist betur og Frakkar fara í sextán liða úrslit með fullt hús stiga. Þrátt fyrir það eru margir ósáttir við frammistöðu franska liðsins til þessa, en hún var ósannfærandi gegn Noregi í síðustu umferð og lítið skárri gegn Nígeríu. Frakkland mætir einu þeirra liða sem hafna í þriðja sæti síns riðils í næstu umferð. Leikmenn nígerska liðsins voru niðurbrotnir að leik loknum, enda hefði jafntefli tryggt liðinu farseðilinn í 16-liða úrslitin. Þess í stað þurfa þær nígersku að treysta á önnur úrslit. Þjóðverjar með fullt hús Þýskaland átti ekki i neinum vand- ræðum með að tryggja sér toppsæti B-riðils. Eins og flestir bjuggust við vann Þýskaland sannfærandi 4:0- sigur á Suður-Afríku. Fram að leikn- um í gær hafði Þýskaland aðeins skorað tvö mörk í keppninni, en Ól- ympíumeistararnir voru sterkari en Suður-Afríka frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Suður-Afríka, sem var að leika á sínu fyrsta heimsmeist- aramóti, lauk keppni án stiga. Sara Däbritz skoraði í öðrum leiknum í röð og þær Melanie Leu- polz, Alexandra Popp og Lina Ma- gull komust einnig á blað. Þýskaland leikur í 16-liða úrslitum í Grenoble næstkomandi laugardag og mætir einu af liðunum sem höfnuðu í þriðja sæti í sínum riðli. Þýskaland hefur ekki tapað leik í riðlakeppni HM síð- an liðið tapaði fyrir Svíþjóð árið 1995. Það var ljóst fyrir leik Spánverja og Kínverja að bæði lið færu í 16-liða úrslit með jafntefli. Þrátt fyrir mikla yfirburði Spánverja tókst þeim ekki að koma boltanum framhjá Shimeng Peng í marki Kína, sem átti magn- aðan leik. Lauk leiknum með marka- lausus jafntefli. Spánverjar áttu 20 skot gegn engu hjá Kína, en það dugði ekki til. Liðin fögnuðu því bæði sætum í 16-liða úrslitum. Ljóst er að Spánverjar, sem eru komnir í útslátt- arkeppnina í fyrsta skipti, mæta ann- að hvort Bandaríkjunum eða Svíþjóð í Reims næstkomandi mánudag. Óvíst er hvaða andstæðingur bíður Kína í 16-liða úrslitum. Vítaspyrnur og dramatík  María Þórisdóttir með Noregi í 16-liða úrslit  Brasilía eða Ástralía bíður  Frakkar sluppu með skrekkinn  Renard fékk tvær tilraunir á punktinum AFP Víti Mörk Noregs komu úr vítum. Isabell Herlovsen skoraði annað markið og gulltryggði farseðil í 16-liða úrslit. Íslenska karlalandsliðið í hand- bolta verður í þriðja styrkleika- flokki þegar dregið verður í riðla fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins en Ísland tryggði sér farseðilinn á mótið með sigrinum gegn Tyrkjum á sunnudaginn og tekur þar með þátt í sínu 11. Evrópumóti í röð. Evrópumótið verður haldið í Austurríki, Noregi og Svíþjóð 9.- 26. janúar á næsta ári. 24 þjóðir taka þátt í Evrópu- keppninni og verður spilað í sex fjögurra liða riðlum. Drátturinn fer fram í Vín föstudaginn 28. júní. 1. styrkleikaflokkur: Spánn, Sví- þjóð, Frakkland, Danmörk, Króat- ía og Tékkland. 2. styrkleikaflokkur: Noregur, Slóvenía, Þýskaland, N-Makedónía, Ungverjaland og H-Rússland. 3. styrkleikaflokkur: Austurríki, Ísland, Svartfjallaland, Portúgal, Sviss og Lettland. 4. styrkleikaflokkur: Pólland, Rússland, Serbía, Úkraína, Bosnía og Holland. gummih@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Yngstur og elstur Viktor Gísli Hallgrímsson og Guðjón Valur Sigurðsson. Ísland í 3. styrkleika- flokki í drættinum á EM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.