Morgunblaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019  Knattspyrnudeild Keflavíkur og danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE hafa komist að samkomulagi um kaup danska félagsins á hinum 18 ára efni- lega varnarmanni Ísak Óla Ólafssyni. Ísak hefur verið lykilmaður í liði Kefla- víkur síðustu ár þrátt fyrir ungan aldur og var nýverið valinn í undir 21 árs landslið Íslands. Hann hefur leikið 54 leiki með meistaraflokki og skorað í þeim 2 mörk. Þá á hann 17 leiki með yngri landsliðum Íslands. Í sumar í In- kasso-deildinni hefur Ísak verið fyr- irliði liðsins. Hluti af samkomulagi lið- anna er að Ísak mun leika með Keflavíkur-liðinu fram til 23. ágúst áð- ur en hann heldur til Danmerkur.  Svíinn Freddie Ljungberg hefur ver- ið ráðinn aðstoðarstjóri enska úrvals- deildarliðsins Arsenal frá og með næstu leiktíð og verður hægri hönd Spánverjans Unai Emery. Ljungberg, sem lék með liði Arsen- al frá 1998 til 2007, tekur við hlutverki Steve Bould sem hef- ur verið aðstoð- arstjóri Lund- únaliðsins undanfarin ár, fyrst með Ar- sene Wenger og síðan Emery. Ljungberg hefur verið þjálfari U23 ára liðs Arsenal frá því í fyrra en Bould tekur nú við því starfi ásamt Þjóðverjanum Per Mertesacker sem lék með Arsenal- liðinu frá árinu 2011 til 2018. Eitt ogannað 59 unglingalandsleiki, var fyrirliði U17- og U19-landsliðanna og hefur verið úti í atvinnumennsku í sjö ár eftir að hafa spilað 12 leiki fyrir sitt uppeldisfélag Fylki. Þrátt fyrir að vera miðvörður að upplagi, og leika sem slíkur hjá danska stórveldinu Bröndby, komst Hjörtur inn í byrj- unarlið landsliðsins sem hægri bak- vörður, á kostnað Birkis Más Sæv- arssonar. Fullur stuðningur frá Birki „Það er aldrei sjálfsagt að fá að spila fyrir landslið. Eftir alla þessa leiki með yngri landsliðunum var maður þó alltaf að bíða eftir því að vera kallaður inn í hópinn með stóru strákunum. Núna hef ég fengið að vera með þeim síðustu þrjú ár og fylgjast með öllu, og það er frábært að ná að koma inn núna og eiga góð- an leik eins og liðið allt. Þá skiptir ekki máli þó að maður hafi þurft að bíða í nokkur ár eftir tækifærinu,“ segir Hjörtur, og hann er þakklátur Birki Má sem ekki hefur sýnt neina kergju vegna síns hlutskiptis: „Það var ekki til neitt slíkt hjá Birki. Hann er að sjálfsögðu keppn- ismaður og ábyggilega ekki mjög ánægður með stöðuna, eftir að hafa skilað henni fáránlega vel í mörg ár og verið einn okkar stöðugasti leik- maður, en hann hefur alltaf verið mjög jákvæður í minn garð og reynt að hjálpa manni ef maður hef- ur einhverjar spurningar. Ég hef ekkert nema jákvætt um Birki að segja, bæði sem leikmann og per- sónu. Það er mjög gott þegar mað- ur kemur inn í svona stöðu að finna að maður fái fullan stuðning og það er sú tilfinning sem ég fæ frá hon- um,“ segir Hjörtur, og bætir við: „Það er voðalega þægilegt að koma inn í leikskipulagið hjá lands- liðinu ef maður er nógu viljugur og einbeittur til að taka þátt. Þetta eru engin geimflaugavísindi, heldur byggt á sterkri liðsheild. Ég reyndi bara að komast eins vel og ég gat frá mínu, og þá vissi ég að aðrir í liðinu myndu styðja við mig og þeir gerðu það andskoti vel.“ Varð bikarmeistari og neitað um HM á sama sólarhring Hjörtur var yngsti leikmaðurinn í 23 manna hópi Íslands sem fór í EM-ævintýrið 2016 en í fyrra fékk hann ekki sæti í hópnum sem fór á HM í Rússlandi. „Það er voðalega súrt að hafa misst af þessu ævintýri í Rússlandi. Maður var einn þeirra sem vissu að þeir þyrftu að bíða við símann fram að lokastundu með að vita hvort þeir yrðu í hópnum. Rétt eins og það voru margir strákar sem þurftu að bíta í það súra epli að fara ekki á EM. Ég datt rosalega óvænt inn í EM-hópinn og var algjörlega í skýj- unum með það, en var svo frekar vongóður um að komast á HM en það datt ekki með manni. Það var jafnvel súrara en hversu sætt það var að komast með á EM, en gerir mann bara staðráðnari í að koma enn ferskari og einbeittari til baka. Ég ber ekki kaldar tilfinningar til eins né neins og það sást á HM að þetta var flottur hópur sem fór, en ég væri ekki að segja satt ef ég við- urkenndi ekki að ég var mjög súr. Ég hafði átt gott tímabil og vann danska bikarmeistaratitilinn á sama sólarhring og ég fékk að vita að ég færi ekki á HM,“ segir Hjört- ur. Gífurlegur sigur fyrir mig Eftir að hafa farið ungur til PSV í Hollandi, og verið lánaður þaðan í skamman tíma til IFK Gautaborgar, gekk Hjörtur í raðir Bröndby eftir EM 2016. Þar hefur hann verið í toppbaráttu síðustu þrjú ár en nið- urstaðan í ár var sú sísta; 4. sæti í deild og silfur í bikarnum. „Bröndby er risaklúbbur í Dan- mörku en var búinn að vera í tilvist- arkreppu árin áður en ég kom inn á sama tíma og þýskur þjálfari. Við byrjuðum strax á að enda í 2. sæti í deild og bikar, árið eftir misstum við af meistaratitlinum á miður skemmtilegan hátt en urðum bikar- meistarar. Síðasta tímabil var hins vegar mjög erfitt í byrjun, því þrátt fyrir að hafa framlengt samning minn um sumarið datt ég einhvern veginn alveg út úr myndinni hjá þjálfaranum. Það var ekki fyrr en hann var rekinn í febrúar að hjólin fóru að snúast af alvöru, ég spilaði hverja einustu mínútu eftir það og liðið náði sæti í Evrópukeppni. Þetta var gífurlegur sigur fyrir mig per- sónulega, og kirsuberið fór á toppinn með því að fá að spila þessa tvo leiki á Laugardalsvelli,“ segir Hjörtur, sem er með samning við Bröndby til 2021 en segist halda öllum mögu- leikum opnum í sumar í ljósi þess að hann hafi ekki rætt við nýjan þjálf- ara sem kynntur var á dögunum. Mamma, pabbi og stóri bróðir landsliðsfólk Foreldrar Hjartar, Eiríka Guðrún Ásgrímsdóttir og Hermann Björns- son, léku bæði fyrir íslensku lands- liðin í handbolta, og Hermann með yngri landsliðum í fótbolta. Björn Orri stóri bróðir þótti einnig afar efnilegur, lék með yngri landsliðum og fór 16 ára gamall út til Ipswich í einn vetur, en meiðsli bundu enda á hans feril allt of snemma: „Ég hef ótal sinnum leitað til hans og geri það enn. Það er alltaf gott að eiga einhvern að sem hægt er að spjalla við um fótbolta, og hefur upp- lifað svo margt. Hann er mikill fót- boltaheili og það er gott að geta sótt til hans, alveg eins og foreldra minna hvort sem það snýr að íþróttum eða ekki. Ég er með mjög gott bakland og er þakklátur fyrir það,“ segir Hjörtur. Þægilegt að koma í þetta lið  Hjörtur braut ísinn með landsliðinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tólf Hjörtur lék sína fyrstu mótsleiki fyrir A-landsliðið gegn Albaníu og Tyrklandi en hafði leikið 10 vináttuleiki og 59 leiki fyrir yngri landslið. FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Það hefur ekki verið mikið um það síðustu ár í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta að nýir leikmenn stimpli sig inn í byrjunarliðið. Raunar var það svo í 2:1-sigrinum á Tyrklandi í síðasta leik að byrjunarliðið var nán- ast það sama og í öllum leikjunum á EM 2016, með einni lítilli undan- tekningu og annarri stórri. Emil Hallfreðsson byrjaði leikinn, eins og hann hefur oft gert þrátt fyrir að hafa verið í varamannshlutverki á EM. Árbæingurinn Hjörtur Her- mannsson lék hins vegar, flestum að óvörum, sína fyrstu tvo mótsleiki fyrir landsliðið í sigrunum á Albaníu og Tyrklandi. „Mig hafði dreymt um þetta ótrú- lega lengi,“ segir hinn 24 ára gamli Hjörtur, í sólbaði í verðskulduðu sumarfríi á Spáni. Þetta var þó kannski rökrétt næsta skref fyrir mann sem hefur verið viðloðandi landsliðið síðustu þrjú ár, á að baki Framherjinn Andri Rúnar Bjarna- son er orðinn leikmaður þýska C- deildarliðsins Kaiserslautern. Andri Rúnar skrifaði í gær undir tveggja ára samning við þýska liðið með möguleika á framlengingu en hann kemur til liðsins frá sænska liðinu Helsingborg. „Ég er mjög ánægður að hafa skrifað undir samninginn. Þetta er stórt félag sem á sér mikla sögu, frábæra stuðningsmenn og mikinn metnað. Það hefur alltaf verið draumur minn að spila í Þýskalandi,“ segir Andri á vef þýska liðsins. Andri Rúnar til Kaiserslautern Ljósmynd/Kaiserslautern Samningur Andri Rúnar skrifar undir samninginn við þýska liðið. Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sig- urjónsson er genginn í raðir Ast- ana, meistaraliðsins í Kasakstan. Rúnar, sem heldur upp á 29 ára af- mælisdag sinn í dag, hefur verið hjá Grasshoppers í Sviss frá árinu 2016 en var í láni hjá St.Gallen á síðustu leiktíð. Astana hefur hampað meist- aratitlinum fimm sinnum og bik- armeistaratitlinum þrisvar. Liðið er í toppsæti deildarinnar og það tekur þátt í forkeppni Meist- aradeildarinnar síðar í sumar en árið 2016 náði það komast í riðla- keppni Meistaradeildarinnar. Rúnar Már spilar í Kasakstan Morgunblaðið/Eggert Ævintýri Rúnar Már Sigurjónsson mun spila í Kasakstan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.