Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019 ✝ Kristín Theo-dórsdóttir fæddist í Reykjavík 1. desember 1936. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 19. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru Sigurlaug Sigurðardóttir, f. 8. júní 1903 í Súg- andafirði, d. 14. nóvember 1970, og Theódór Kristinn Guðmunds- son, f. 25. júlí 1905 í Bolung- arvík, d. 27. maí 1969. Systir Kristínar var Sigrúna, f. 18. september 1932, d. 31. janúar 2015, og bróðir hennar Þor- steinn, f. 14. apríl 1939, d. 15. apríl 2018. Guðfinna, f. 1983, maki Baldur Gunnarsson, f. 1978. Börn þeirra Janus Smári, f. 2007, Baldur Bragi, f. 2011, Alex Bjarki, f. 2014, Gunnar Breki, f. 2015. c) Ómar Ágúst, f. 1987, maki Lydia Björk Guðmundsdóttir, f. 1990. Núverandi maki Ágústa Ólafs- dóttir, f. 1959. 2) Marta Gígja, f. 1964, fyrrverandi maki Eiríkur Valgeir Edwardsson, f. 1964. Börn þeirra: a) Edward Alex- ander, f. 1987, maki Birta Aust- man Bjarnadóttir, f. 1989. Börn þeirra Róbert Darri, f. 2010. Nú- verandi maki Höskuldur Ragn- arsson, f. 1964. Börn þeirra a) Höskuldur Þór, f. 1984. b) Vera Dögg, f. 1988, maki Hafsteinn Eyland Brynjarsson, f. 1983. Börn þeirra Hafrós Myrra, f. 2009, Brimir Leó, f. 2015. c) Bjarney Sara, f. 1996. d) Benja- mín Snær, f. 1998, maki Ásta Petrea Hannesdóttir, f. 1999. Útför Kristínar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 28. júní 2019, klukkan 15. Kristín giftist 24.12. 1960 Ómari S. Zóphaníassyni, f. 25.9. 1936. For- eldrar hans voru hjónin Jóna Marta Guðmundsdóttir, f. 27.7. 1905, d. 28.8. 1979, og Zóphanías Sigurðsson, f. 24.12. 1905, d. 27.9. 1982. Börn Kristínar og Ómars eru: 1) Theódór Kr., f. 1955, fyrrverandi maki Hafdís Sigursteinsdóttir, f. 1955. Börn þeirra a) Svava Berglind, f. 1971, maki Davíð Ólason, f. 1971. Börn þeirra Theódór Óli, f. 1996, Aron Snorri, f. 1999. Ísak Steinn, f. 2006. b) Kristín Elsku mamma, nú þegar komið er að leiðarlokum er margs að minnast og mikið þakklæti er mér efst í huga. Þú varst einstök kona, einstök móð- ir og einstakur vinur. Aldrei held ég að ég hafi nógsamlega þakkað þér fyrir þá fórnfýsi, umhyggju og ást sem þú gafst mér. Alltaf varst þú til staðar fyrir mig og mitt fólk og er það alls ekki sjálfgefið. Það var ekk- ert það verkefnið sem þú varst ekki tilbúin að bretta upp ermar og demba þér í ef þess þurfti. Fjölskyldan var þér allt og end- urspeglast það í minningum okkar allra ungra sem aldinna. Aldrei varstu fílefldari en þegar ógn steðjaði að fjölskyldunni. Nokkrar minningar koma upp í hugann eins og þegar þú réðst til atlögu við geitungana. Það skipti ekki máli hvort þeir voru í lofti eða á jörðu, þeir ógnuðu fjölskyldunni sem stökk í allar áttir við að uppgötva þá, en þú vopnaðist og réðst til atlögu og hafðir betur. Þá var betra að vera ekki fyrir. Margar svona sögur eru til og ekki að ástæðu- lausu að barnabörnin þín köll- uðu þig ömmu dreka. Það var ekkert í þeirra augum sem amma gat ekki og buðu þau fram aðstoð þína þegar ókunnugir áttu í vanda. Þau sögðu fólki einfaldlega að amma þeirra gæti hjálpað þeim því hún væri nefnilega dreki, og var not- aður mikill sannfæringarkraftur í þessi orð. Margar eru minningarnar úr bústaðnum þar sem þú undir þér hvað best. Þar líkt og heima voru allir alltaf velkomnir og alltaf eitthvað gott á borðum. Þér fannst gott að vera í kyrrð- inni og hafa víðáttuna fyrir aug- um. Hjálpsemi var eitt sem ein- kenndi þig. Ég man þegar við vorum á Egilsstöðum og eitt barnabarnið þitt hafði veitt þig á flugu og brunað var með þig á sjúkrahús til að ná burt flug- unni. Þú áttir að bíða úti í bíl með- an athugað var hvert væri best að fara með þig, en þá sást þú fólk sem var hjálpar þurfi svo þú stökkst út úr bílnum til að bjóða fram aðstoð þína sem var að sjálfsögðu þegin. Svona varst þú alltaf tilbúin, sama hvað. Eitt sem einkenndi þig var húmor og hláturmildi. Þótt þú sért komin í sumarlandið þá munum við heyra hlátrasköllin þín í hugum okkar um ókomna tíð. Þegar sjúkdómurinn þinn fór að herja á þig gerði það þinn karakter ýktari og oft veltumst við um af hlátri yfir því sem þú varst að segja okkur því frásagnarhæfi- leiki þinn var einstakur. Þessar minningar varðveitum við eins og gull. Þú hafðir húmorinn að vopni alveg fram á síðustu stundu. Ég er þér óendanlega þakklát fyrir að hafa beðið með að kveðja þetta líf þar til við vorum sameinaðar á ný. Að hafa getað umvafið þig og fengið að skríða upp í til þín rétt áður en þú kvaddir er mér ómetanlegt. Að fá tækifæri til að þakka þér fyrir allt sem þú hefur verið mér, fyrir allt sem þú gerðir fyr- ir mig og fyrir að hafa einfald- lega verið móðir mín er ómet- anlegt. Ég get ekki annað en glaðst fyrir þína hönd þar sem þú hefur nú komist í sumarland- ið sem þú þráðir svo mikið en guð vildi ekki hlusta á þig eins og þú sagðir. Ég sé þig fyrir mér dansa á gylltum engjunum með karlstráinu þínu sem kvaddi þig alltof fljótt. Ég gleðst yfir því að þú hafir hitt alla þá sem á undan þér gengu og þú saknaðir sárt. Þar til leiðir okk- ar liggja saman á ný mun ég lifa með minningunni um frábæra mömmu. Hafðu þakkir fyrir allt og allt, elsku mamma mín besta. Þín Marta Gígja. Ást, fegurð og þakklæti er mér efst í huga er ég hugsa til þín og kveð þig í hinsta sinn, elsku amma mín. Ég er lukkunnar pamfíll að hafa átt þig sem ömmu, það er svo margt sem þú hefur sýnt mér í gegnum tíðina sem ég mun taka mér til fyrirmyndar. Þú hefur alla tíð verið ein mik- ilvægasta konan í mínu lífi og ég mun aldrei gleyma bláu augun- um þínum, krullunum, klútun- um, hringunum, fallega brosinu og hvað þú varst alltaf glæsileg, sama hvað. Þú varst svo vinnu- söm og undir þér alltaf best ef þú fékkst að hugsa um okkur, skúra, planta eða stússa í mat- argerð og ég er heppin ef ég get orðið helmingurinn af þeirri konu sem þú varst. En það sem ég mun alltaf muna er hversu einstaklega góð þú varst, sama hvað gekk á. Það var alltaf stutt í hláturinn, fíflaskapinn og tala nú ekki um vísurnar. Ég man alltaf þegar ég var lítil hjá ykk- ur afa í Fögruhlíðinni og ég og þú vorum að búa til dúkkuhús- gögn úr eldspýtustokkum og sauma utan um þá. Með þessu kenndir þú mér að gera það besta úr því sem ég á. Einnig kenndir þú mér að láta engan vaða yfir mig og fyrir það er ég þakklát. En mínar allra bestu minningar eru úr Langholtinu með þér og afa Ómari, og trúi ég því að nú eigi ég fallegustu verndarenglana sem dansa nú saman í draumalandinu og vernda mig áfram og leiða mig hinum megin frá. Ég mun ætíð sakna ykkar, en nú eruð þið saman á ný og það gleður mig. Ég mun sakna þess að fá ekki að leiða þig, punta þig fyrir jól- in, heyra hláturinn þinn og end- urtaka með þér vísuna: Allt fram steymir endalaust, ár og dagar líða, nú er komið hrímkalt haust, og horfin sumars blíða. Nokkrum klukkustundum áð- ur en þú fórst yfir móðuna heyrði ég lagið Dag sem dimma nátt spilað í útvarpinu og ég man svo sterkt hvað ég hugsaði til þín, textinn í því hljómar svona: Sólin kyssir kinn og hún snýr mér í hringi þessi gamla jörð Heiðblár himinninn Já, allt fram streymir og við stefnum eitthvert Hvað síðan verður, verður ekki séð Hver veit hvað við eigum næst í vændum? Ég trúi á þig, trúðu á mig Við erum, við eigum, við verðum Hugsaðu til mín ef þú mátt – þú veist Hversu mikilvægt mér finnst að finna straumana Hug minn öllum stundum þú átt Hafðu mig í draumum þínum dag sem dimma nátt Kvöldið kemur enn Kyrrðin fylgir húminu, allt er hljótt Kólna tekur senn Og þú vefur þér þétt inn í von Í stjörnubliki Það bærist ekki neitt Við erum, við eigum, við verðum Hugsaðu til mín ef þú mátt – þú veist Hversu mikilvægt mér finnst að finna straumana Hug minn öllum stundum þú átt Hafðu mig í draumum þínum dag sem dimma nátt Víst sem snjóa leysir von Víst sem dagur rís aðeins þú, þú Í logni og byl í frosti eða yl Hugsaðu til mín ef þú mátt! þú veist hversu mikilvægt mér finnst að finna straumana Hug minn öllum stundum þú átt Hafðu mig í draumum þínum dag sem dimma nátt. (Stefán Hilmarsson) Ég tók honum sem tákn um okkar samband, og framhaldið þar sem þú ert engill og ég er ennþá hér. Við höfum alltaf ver- ið tengdar og ég veit að þú munt passa mig hvað sem á dynur og heilsa mér í draumum mínum. Svo lengi sem ég lifi mun ég gera mitt besta í að varðveita minningu þína er best ég kann og munu framtíðar börnin mín ef guð mér gefur fá að heyra ófáar sögurnar af ömmu minni Kiddu, konunni sem gaf mér svo margt. Ég elska þig. Þín Bjarney Sara. Elsku amma dreki, það eru blendnar tilfinningar í brjósti mér yfir fráfalli þínu. Það er mér léttir að þú sért laus undan sjúkdómnum sem herjaði á þig þín síðustu ár en það er mér einnig þungbært að þurfa að kveðja þig. Það er huggun harmi gegn að vita af þér á betri stað, umkringd ástvinum og stóru ástinni þinni (karlstráinu eins og þú áttir til að kalla afa Ómar). Ég mun ávallt minnast þín með hlýju í hjarta. Þú varst góð, hjálpsöm, sannur vinur og alltaf með húmorinn í lagi. Þú kenndir mér mikið af góðum gildum sem ég mun bera með mér allt mitt líf. Betri ömmu er ekki hægt að óska sér. Ég á margar fallegar minn- ingar frá tímanum með þér og afa en mér þótti einstaklega gott að fara til ykkar. Ekki skemmdi fyrir að það var alltaf góður matur hjá þér. Það var nefnilega þannig að það var allt best hjá ömmu, skipti engu þótt mamma fengi uppskriftir hjá þér þá voru þær alltaf bestar hjá ömmu. Þú hefur ávallt verið stór hluti af mínu lífi og vil ég þakka þér fyrir allar þær skemmtilegu og góðu stundir sem við höfum átt saman. Ég enda þessa minn- ingargrein á kveðju til þín með því að hlusta á lagið All my loving eftir Bítlana sem þú hummaðir ósjaldan. Þitt barnabarn, Edward (Eddi). Elsku amma Kidda. Drekinn hefur sungið sitt síð- asta „Dædædæ“. Það er svo ótrúlega margt sem kemur upp í hugann á þessari stundu, svo margar minningar. Allar bæjarferðirnar okkar saman þegar ég var yngri. Bíln- um lagt við Hallgrímskirkju og svo rölt niður allan Laugaveginn og niður á torg. Í eitt skiptið varð mér svo illt í tánum á göng- unni að ég sagðist verða að fá nýja skó til þess að geta labbað til baka. Við inn í skóbúð og út gekk ég glöð, í skjannahvítum uppháum leðurskóm með kögri og Indíánamunstri, hætt að vera illt í tánum. Bæjarferðin þegar ég fór með þér í búð að kaupa rosalega fínan dúnkodda sem þú sagðir að væri fyrir einhverja konu í jólagjöf. Ég varð voða- lega hissa þegar koddinn var svo í jólapakkanum til mín. Allar sundferðirnar okkar í Laugar- dalslaug, þú alltaf syndandi með mig á bakinu fram og til baka undir brúna. Öll ferðalögin, úti- legurnar og veiðiferðirnar sem ég fór með þér og afa Ómari um allt land. Heimsóknirnar til þín í Snorrabakarí og fá smá afganga og prufa svo að dýfa ýmsum sæ- tindum í súkkulaðipottinn. Allar stundirnar með þér í vinnunni á sendibílastöðinni og að fá stund- um að kalla í talstöðina var voða sport. Ég gæti svo lengi haldið áfram. Þú varst jákvæðasta mann- eskja sem ég veit um, þú og Lína Langsokkur. Þú varst allt- af syngjandi og trallandi. „Dæ- dædæ“ hljómaði hvar sem þú varst. Smurbrauðið þitt, brauð- terturnar, snitturnar sem þú varst þekkt fyrir og var smur- brauðið þitt auðvitað besta smurbrauð allra tíma. Heima- lagaða majónesið þitt í öll salöt- in var, er og verður alltaf það besta. Terturnar, tebollurnar, kleinurnar sem voru látnar þiðna á ofninum, og allt bakk- elsið þitt. Að fá að sitja á grænu tröppunum í eldhúsinu hjá þér í Fögrukinninni þegar þú varst að útbúa hinar og þessar veislur var alveg yndislegt, og þú að tralla „Dædædæ“ á meðan. Oft settist þú á grænu tröppuna með mig, Sössu þína, á lærinu og leyfðir mér að kúra á bring- unni þinni í smástund, sem var svo notalegt. Við munum halda áfram að gera smurbrauðið í þínum anda þó svo að það verði aldrei eins og þitt. Það var alltaf gott að koma til ykkar afa Ómars hvort sem það var í Fögrukinn, Fögruhlíð eða upp í sumarbústað. Ég var svo heppin að eiga tvö sett af ömmu og afa í sömu Kinninni og líka á sama stað í sveitinni. Eftir að ég og „Dabbi þinn“, eins og þú kall- aðir Davíð alltaf, eignuðumst strákana okkar fengu þeir sko líka að upplifa allt það góða sem þú gerðir og gafst okkur öllum og njóta þeir góðs af. Við eigum, öll fjölskyldan, svo óteljandi marga sprenghlægilega brand- ara sem þú varst snillingur í al- veg fram á hið síðasta og verða þeir vel varðveittir. Að sjá þig fara svona hratt, elsku amma Kidda, var erfitt en þú varst samt sátt. Við söknum þín. Hver minning um þig er dýrmæt perla. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells) Takk fyrir allt og allt. Þín Svava, Davíð, Theodór Óli, Aron Snorri og Ísak Steinn. Það er ekki auðvelt að kveðja Kristínu föðursystur mína eða Kiddu frænku eins og hún var kölluð. Kidda var önnur í systk- inaröðinni en elst var Sigrún og yngstur Þorsteinn faðir minn. Þegar ég hugsa til baka koma fyrst upp í hugann notalegar minningar um jólaboð hjá stór- fjölskyldunni, heimsóknir í Fög- rukinnina í Hafnarfirði eða í sumarbústaðinn fyrir austan. Þar leið Kiddu vel með allt fólk- ið sitt í kringum sig. Kidda um- vafði fólkið sitt og sýndi mikla umhyggju. Hlátrasköll og gleði- legt fas voru einkenni Kiddu enda laðaðist fólk að henni. Allt- af var hlátur og gleði. Kidda var einstök manneskja. Matar- og snittugerð var hennar ástríða og það sveik aldrei. Alltaf gott að fá símtal um boð í Hafnarfjörðinn, þá var alltaf veisla. Kidda var þannig manngerð að hún leit alltaf lífið björtum augum og í hennar huga var glasið alltaf hálffullt en ekki hálftómt. Það viðhorf smitaði út frá sér og voru forréttindi að fá að vera í hennar návist. Sem lítil stelpa fékk ég stundum að gista í Fögrukinninni og eigum við Marta Gígja dóttir hennar margar góðar stundir saman og já, það var mikið hlegið. Stund- um vorum við aðeins of fjörugar en aldrei skammaðar. Hlátra- genið í afa Dóa ættleggnum hef- ur stundum komið okkur í vand- ræði en yfirleitt bara til gleði. María móðir mín sagði mér frá því þegar hún kom fyrst í Melgerðið í Kópavogi ca. árið 1960 og hitti verðandi tengda- foreldra og mágkonur. Fjöl- skyldan sat saman við stofu- borðið en mamma náði ekki öllu sem var sagt því allir töluðu hratt og hátt og hlógu enn hærra. Þetta vandamál er al- þekkt á mörgum heimilum í stórfjölskyldunni. Ég hugsa oft um þessar dásamlegu litlu sögur af þeirra fyrstu kynnum. Kidda var kona sem hló hátt, smitaði alla af gleði og þannig munum við alltaf minnast elsku Kiddu frænku. Kidda sagði mér fyrir ekki svo löngu að hún væri sátt við þessa jarðvist nema helst að „kallinn minn var tekinn of snemma frá mér“ sagði hún. Ómar eiginmann sinn missti hún fyrir rúmum tuttugu árum en hefur verið í góðum höndum barna sinna síðan. Elsku Marta, Teddi og fjölskyldur, ykkar söknuður er mikill en nú fer Kidda frænka á fund Ómars sem hún saknaði mikið og veit ég að þegar Sigrún, Kidda og pabbi koma öll saman í sum- arlandinu verður mikið hlegið. Takk fyrir allt, elsku Kidda frænka. Kolbrún Þorsteinsdóttir. Kristín Theodórsdóttir ✝ Brynjar Axels-son fæddist 6. maí 1931 á Akur- eyri. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð 16. júní 2019. Foreldrar hans voru Sveina Jó- hanna Randíður Jakobsdóttir frá Ak- ureyri, f. 15.11. 1911, d. 7.11. 1967, og Aksel Oshaug frá Melbu Noregi, f. 9.8. 1900, d. 27.2. 1966. Brynjar átti fimm hálfsystkini, fjögur samfeðra, þau Monrad Roger Oshaug, f. 2.2. 1919, d. 18.9. 1990, Brynjulf Oshaug, f. 6.8. 1926, d. 30.12. 2015, Kolbjørn Oshaug, f. 6.11. 1930, d. 4.1. 1999, og Ellen Jo- hanne Steimoeggen (Oshaug), f. 15.1. 1934, d. 8.3. 2011, öll bú- sett í Noregi. Sammæðra átti Brynjar einn bróður, Benedikt Hallgrímsson, f. 23.6. 1940, bú- settur á Akureyri. Brynjar fór sem ungt barn til vistar í Hólum í Reykjadal hjá Kristínu Jakobsdóttur vefnað- arkennara, f. 7.7. 1891, d. 21.3. 1978, og bróður hennar Haraldi Jakobssyni, bónda í Hólum, f. 25.4. 1906, d. 30.5. 1996. Sú vist varð örlagarík þar sem Brynjar festi rætur og ólst þar upp til fullorðinsára. Árið 1950 flutti Brynjar í Glaumbæ í Reykjadal þar sem hann hóf sambúð með Guðnýju Kristjánsdóttur, f. 22.7. 1932, d. 15.5. 2017. Guðný var dóttir hjónanna Kristjáns Jónssonar frá Úlfsbæ, f. 22.7. 1900, d. 1.6. 1976, og Evu Tómasdóttur frá Brettingsstöðum, f. 11.5. 1907, d. 27.5. 1982. Þann 19. nóv- ember 1955 kvæntist Brynjar Guðnýju, þeirra börn eru fjögur. 1. Kristín, f. 29.1. 1951, hennar börn eru: Sveina Björk, Guðný og Sunna Hlín. 2. Jón Krist- ján, f. 21.8. 1952, maki Jo Ann Hearn, hans börn eru; Margrét, Hulda Guðný, Brynja Herborg og Andri Freyr. 3. Lilja, f. 7.3. 1961, hennar börn eru: Janus Þór, Ingibjörg, Birgir, Halla og Al- exander. 4. Valþór, f. 24.4. 1963, maki Valdís Lilja Stef- ánsdóttir, börn þeirra eru: Eva Kristín, Brynjar, Þórgnýr og Stefán. Í byrjun bjuggu Brynjar og Guðný félagsbúi með foreldrum Guðnýjar, síðar tóku þau alfarið yfir búskapinn og bjuggu hefðbundnum búskap í Glaumbæ þar til árið 1979 að þau brugðu búi og fluttu til Ak- ureyrar. Brynjar var bóndi að að- alstarfi en vann þó tímabundin störf meðfram búskap, bauðst tækifæri til þess, helst við bygg- ingarvinnu og var uppbygging Laxárvirkjunar þar einna fyr- irferðarmest. Á Akureyri var hann um tíma verkstjóri hjá Plasteinangrun hf. en síðar aðstoðarmaður á rannsóknarstofu fóðurverk- smiðjunnar Laxár hf. þar sem hann lauk sinni starfsævi. Útför Brynjars fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 28. júní 2019, kl. 13.30. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Hvíl í friði, elsku pabbi. Þinn sonur, Valþór. Meira: mbl.is/minning Brynjar Axelsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.